Vísir - 08.05.1972, Síða 7

Vísir - 08.05.1972, Síða 7
VtSIR. Mánudagur 8. mai 1972. 7 cTMenningarmál Um blöð og tímarit: Pólitíska pressan Tala blaða og tímarita á íslenzku er sjálfsagt nokk- uð breytileg frá ári til árs. Það er algengt að byrjað sé á nýjum blöðum um hin og þessi efni, ýmiskonar blöð öðru hverju gefin út af tímabundnum tilefnum — en æðimikið þarf til að koma á laggirnar blaði eða tímariti til frambúðar. Ef litíð er yfir lengri tíma virðist blaðafjöldinn mjög svipaður, og fer þó hægt og hægt vaxandi. Mörg undanfarin ár hafa 250-300 blöð og tímarit komið út ár- lega ef allt er talið sem ein- hverja blaðalíkingu hefur. Ef talið er að allt að 200 timarit- um komi árlega út á „almennan markað” er að minnsta kosti fjórðungur þeirra blöð af ýmsu tagi — 49 af 190 blöðum og tima- ritum árið 1969. Ætli þessi eða önnur hlutföll efnis og útgáfu hafi breytzt til neinna muna siðan? En hitt má ætla að t.a.m. á kosninga- ári gæti blaðatalan reynzt nokk- uru hærri. Dagblöðin eru 5 eins og allir vita — en reyndar kemur ekkert þeirra út daglega enn sem komið er heldur 6 daga i viku að jafnaði, allt að 300 sinnum á ári. Fyrir ut- an jólablöð og aðra slika auka- getu fylgja dagblöðunum a.m.k. þrjár reglulegar lesbækur sem komu út 20-46 sinnum á árinu 1969. En að dagblöðum frátöldum eru blöðin fjarska misjöfn að stærð og öðru sniði. Við fljótlega yfirsýn virðist mér að á árinu 1969 hafi 2 blöð komið út oftar en 50 sinnum, 8 blöð 26-50 sinnum, 9 blöð 15-25 sinnum, 12 blöð 6-12 sinoum og 10 blöð 1-5 sinnum. Af þessum blaðafjölda eru 38 pólitisk málgögn af ýmsu tagi. Auk lesbókanna fyrrnefndu bæt- ast við 4 staðbundin fréttablöð eða timarit i Hafnarfirði, Vest- mannaeyjum og Keflavik. Enn- fremur er blað Vestur-lslendinga, Lögberg-Heimskringla (43 tbl. 1969) meðtalið, en kemur ekki meir við þessa sögu, ásamt hin- um óyndislegu „staðarblöðum” Reykvikinga sem lifa og þrifast á óvönduðum munnsöfnuði sinum. Siðan hefur eitt þeirra, Nýr stormur(21), burtsofnað úr heimi án þess annað bættist við. Kannski Mánudagsblaðið (26) Og Ný Vikutiðindi (45) megni að metta hinn hungraða markað sin i milli? En sé að þvi hugað hvernig blöð skiptist á flokkana, að dagblöðum meðtöldum, reynast 7 fylgjandi Alþýðuflokknum, 7 Alþýðubanda- laginu, 9 Framsóknarflokknum, 3 Samtökum frjálslyndra og vinstrimanna, 9 Sjálfstæðis- flokknum, en 3 pólitisk blöð, óháð flokkunum, komu út 1969. Af þeim kvaö mest að blaði Sósialista félags Reykjavikur, Nýrri Dags- brún (15), en hin voru málgögn „óháðra kjósenda” i Kópavogi og Hafnarfirði (4-5). Flokkar, blöð og staðir Sjálfsagt eru að minnsta kosti hin helztu landsbyggðarblöö nýti- leg fréttablöð hvert á sinum stað og leggja annað þarflegt til staðarmála. En ekki verður það séð, eða heyrt á vikulegum leiðaralestri i útvarpið, að þau hafi ýkja margt að segja um landsmálin, að jafnaði, allra sizt frá eigin brjósti. Eins og að sinu leyti dagblöðin i höfuðstaðnum eru þessi blöð fyrst og fremst flokkslegar málpipur — og hætt við að dragi úr mætti og kynngi málflutningsins þegar fjær dreg- ur miðstöðvum flokkanna og hinnar pólitisku baráttu. Vera má að þessu hafi verið öðru visi farið áður, mörg þessi'blöð eru gömul og gróin, hvert á sinum stað, en bókstaflega öil blaðaútgáfa, eins og að sinu leyti önnur fjölmiðlun i landinu, er frá fornu fari mótuð af meintum þörfum og hagsmunum stjórnmálaflokkanna. Annars dreifast blöðin á lands- hluta og flokkana svo að hver flokkur hefur á sinum vegum eitt nokkurn veginn reglulegt viku- blað. Flest eru norðanblöðin, út- eftir ¥ Olaf Jónsson gefin á Akureyri — nema helzta málgagn Alþýðubandalagsins ut- an R-vikur, Austurland, kemur út á Neskaupstað, og ekki önnur markverð blöð i þeim landsfjórð- ungi svo séð verði. önnur fylgi- blöð Alþýðubandalagsins eru bæði fá og smá, helzt þeirra Vest- firðingur á Isafirði (21). En það er likast til vottur einhverrar lausungar i flokkslifinu að 1969 komu út tvö sérleg málgögn Al- þýðubandalagsins i Reykjavik, umfram Þjóðviljann, Ný útsýn (9) og Viðsjá sem bara kom einu sinni en andaðist við svo búið. Alþýðumaöurinn á Akureyri (32) er helzt blað Alþýðuflokksins utan Reykjavikur, en þvi næst Skutull á Isafirði (22). Tveimur blöðum tókst að koma út svo sem mánaðarlega, Brautinni i Vest- mannaeyjum (15) og Skaganumá Akranesi (12). Á Akureyri kemur lika út það vikublaðið sem hafa mun mesta, kannski langmesta útbreiðslu — Dagur (53) sem undravert er að ekki skuli vera stærra blað. Norðanlands væri auðvitáð að réttu lagi svigrúm fyrir blað sem kæmi ef ekki daglega þá að minnsta kosti 3-4 sinnum i viku með fasta útbreiðslu, daglega dreifingu að minnsta kosti i sin- um landsfjórðungi fyrir utan lausakaup annars staðar. Annars eru framsóknarflöðin kynduglega litil fyrir sér, helzt þeirra ísfirðingur (24) og Þjóðólfur, Sel- fossi (17). En það er auðvitað nokkuð og liklega nóg að hafa Tiinann. Tölur eins og þessar segja ekki nema hálfa söguna meðan ekki er vitað um upplag blaðanna. En væri ekki ofvöxtur dagblaðanna i Reykjavik og flokksböndin á blaðaútgáfunni, væru að minnsta kosti norðanblöð sjálfsagt reffi- legri en raun ber vitni. Hitt er lika skrýtið að litilsmegnug flokksblöð á við og dreif um landið skuli ekki fá að nota sér með einhverju móti efnisgnóttir dagblaðanna eða njóta annarrar liðveizlu af þeirra hálfu sem sjálfsagt gæti orðið báðum aðiljum að gagni ef rétt væri á haldið. Elzta blað á land- inu, ísafold, með sögufræga for- tið, var siðustu áratugi ævinnar viku-útgáfa Morgunblaðsins handa landsbyggðinni. Hún var siðan aflögð til að púkka upp á vikublað sjálfstæðismanna á Akureyri, og íslendingur-isafold (76) var lika langstærsta lands- byggðarblaðið 1969. Það fyrirtæki hefur samt reynzt á einhvern máta illa grundvallað: blaðið hef- ur aldeilis ekki komið út það sem SLANK PR0TRIM losar yður viö mörg kg. á fáum dögum, meö þvi að það sé drukkiö hrært út i einu glasi af mjólk eða un- danrennu fyrir eða i stað máltiöar. Og um Ieið og þér grenniö yöur nærið þér likamann á nauðsynlegum efnum. PRO TRIM-slank er sérlega mettandi og nærandi. Höfum einnig eggjahvitu- auðugt styrkiefni fyrir iþróttafólk. ’Sendist i póstkröfu. Verð kr. 300,— hver dós. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga opið kl. 10.00 —20.30, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 5—20.30 — laugardaga kl. 10—16.30. Heilsuræktarstofa Eddu — Skipholti 21 (Nóatúns- megin). af er þessu ári. En önnur sjálf- stæðisblöð sýnast litlu burðugri en framsóknarblöðin, helzt þeirra Kylkir, Vestmannaeyjum (27), Suðurlandá Selfossi (24) og loks Vcsturland.á Isafirði (12). Handa hverjum, til hvers? Það virðistekki beinlinis liklegt að „blöð” sem koma út hálfs- mánaðar- eða mánaðarlega eða þaðan af sjaldnar, 4-8-12 bls, upplag þeirra sjálfsagt fjarska litið, séu eða geti reynzt áhrifa- mikil málgögn eða til annarra hluta nytsamleg i sinni sveit. Til hvers eru þau þá, handa hverjum gefin út? Hitt er eflaust, og raunar bera fáein helztu landsbyggðarblöð það með sér, að viða i kaupstöð- um og dreifbýli er markaður fyrir velrekin staðarblöð, pólitisk eða ekki. Það er meira að segja til, að slik „óháð” blöð komist á legg: Surðurnesjatiðindi i Keflavik (25), en i 1S eru kominn 17. tbl. 4ða árgangs. 1 Keflavik kemur ennfremur út staðbundið timarit, Kaxi, (10 tbl, 218 bls.) og virðist Vel. má það vera að ýms hin pólitisku staðarblöð ættu sér frekar . viðreisnar von i þvilik- um sniðum. Þess freista S sjálfstæðismenn I Norðurlands- kjördæmi vestra með Norðanfara sinum (10), nýkomið er lsta tbl, 7daárgangs með pólitiskum hug- vekjum og héraösíéttum. A hitt hefur aldrei reynt hvers umkomið verulega vandað, sjálf- stætt, fjárhagslega óháö, pólitiskt vikublað gæti orðið. Til þess þyrfti að visu allt annars konar málafylgju en tiðkuð er i flokks- blöðum, fyrst i dagblöðum, en siðan sifelldlega þynnt út i þynnra i pólitisku sveitapressunni. Al- þýðuflokkurinn kýs t.d. fremur óbærilegan og alveg vonlausan hallarekstur á Alþýðublaðinu ár eftir ár en freista þess að koma á fót t.a.m. vikulegu málgagni jafnaðarstefnu sem hugsanlega gæti reynzt markaðshæft, dug- andi blað. Það stafar m.a. af þeirri pólitisku lifsnauðsyn að fá daglega upplesinn leiðara i út- varp — en sú náð hlotnast i seinni tið einnig pólitisku landsbyggðar- blöðunum. Sú nýjung er vist að þakka til- komu hins nýja flokks, Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, sem enn i dag hefur einungis vikublöðum á að skipa, Nýju landi (39) og Verkamanninum á Akur- eyri (32). En þvi miður ber ekki á þvi, að hinn nýi flokkur ætli sér að ryðja neina nýja braut i blaðaút- gáfu og málafylgju sinni frekar en öðrum efnum: Nytt land, eitt hið daufgerðasta málgagn, fetar troöna slóð annarra flokksblaða og gömlu flokkanna þrátt fyrir heitingar og frýjuorð i þeirra garð. Bótagreiðslur Almannatrygginganna í Reykjavík Útborgun ellilifeyris i Reykjavik hefst að þessu sinni þriðjudaginn 9. mai. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS /r -■ " ■ ■ sS Fró Póll landi Ö Handmálaðir nytjahlutir . Nýkomið handmálað fajance. Handmálað keramik. Steintau o.fl. , . . . — ——. g W v ^fpír ^ Prýðið heimilið með pólskum listmunum. VERZLUNIN Laugavegi 42 Sími 26435 -A

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.