Vísir - 12.05.1972, Blaðsíða 3
Visir Köstudagur 12. mai 1972.
3
Setudómari verður skipaður
í fjórsvikamálinu á Akureyri
,,Ég geri ráð fyrir að ég víki úr
sæti i þessu máli og skipaður
verði sérstakur setudómari”
sagði ófeigur Eiriksson bæjarfó-
geti á Akurevri i samtali við Visi
nýverið. Hins vegar kvaðst hann
ekki vera búinn að fá i hendur
skýrslu starfsmanna rikisendur-
skoðunarinnar og ekki væri neitt
um ntálið að segja á þessu stigi.
Rikisendurskoðunin hefur
undanfarnar vikur unnið að
rannsókn á misferli þvi, sem upp
komst hjá tveim starfsmönnum
við afgreiðslu tollskjala hjá
embætti bæjarfógeta á Akureyri.
Fyrir stuttu skiluðu þeir ýtar-
legri skýrslu um málið, sem send
var saksóknara. Hann sendi hana
norður með beiðni um áfram-
haldandi rannsókn, en sem fyrr
segir eru allar likur á, að
skipaður verði setudómari i
málinu. Ekki hafa fengizt neinar
upplýsingar um hve háar
upphæðir er að ræða.
-SG
Barþjónar lofa góöa
þjónustu
Liklega vita fáir eins vel hvað
góð þjónusta á hótelum er og
einmitt þjónar sjálfir. bað var þvi
kærkomið bréf, sem Finnbjörn
borvaldsson, skrifstofustjóri
Loftleiða, fékk á dögunum. Þar
hældi stjórn Barþjónaklúbbs Is-
lands starfsliði Hótel Loftleiða á
hvert reipi. Samþykkti aðal-
fundur klúbbsins að þakka Loft-
leiðum þá frábæru þjónustu og
fyrirgreiðslu, sem klúbburinn
naut, þegar hér fór fram norrænt
barþjónamót fyrir ári.
Vandrœðapiltar
á Akureyri
Kveiktu í byggingarefni
Uppvísir að nœr 20 innbrotum
Lögreglan á Akureyri hefur að
undanförnu liaft liendur i hári S
unglingspilta á aldrinum 14 og 15
ára sem viðriðnir hafa verið nær
20 innbrot frá þvi i haust og vetur.
Drengir þessir höfðu broti/.t inn
hér og þar i Akureyrarbæ, ýmist
tveir eða þrir saman, og hnuplað
ýiiisu smáræði. en hvergi komi/.t
yl'ir nein veruleg verðmæti. -GP.
Fara úr
rœkjunni í laxinn
Vestmannaeyingar eru ekkert
óvanir samskiptum við allra
þjóða fólk, en Itins vegar var
óvenju margt erlendra skipa i
höfninni þeirra á dögunum, þeg-
ar (íuðmundur Sigfússon kom
þar að. Þar voru þrjú dönsk skip
nýkomin af rækjuveiðum, og
eitt þeirra, Polarlaks var með
15 lonn af rækju el'tir þriggja
mánaða útivist, — og um horð i
öðru var auk rækjunnar lifandi
selskópur, sem skipverjar
höl'ðu tekið upp á sina arma og
lóku heiin með sér.
Bátarnir voru á leið til Noregs,
— þeir ætla að stunda illræmdar
veiðar þar, laxveiðar, sem
margir telja að eigi aðeins að
veiða á stöng, og þá helzt fyrir
tugþúsunda gjald á dag.
UTSKRIFA STUDENTA
í LEIKLIST Á AKUREYRI
Sú nýbreytni var tekin upp i
Menntaskólanum á Akureyri i
vetur að gefa nemendum kost á
að læra leiklist og framsögn.
Var þetta haft sem valfag, og
kusu 10 nemendur að læra þetta.
Var aðeins nemendunt i 4. bekk
skólans gefinn kostur á þessu, en
neme'ndur i þeim árgangi eru nú
120 að tölu. Munu þessir 10 siðan
taka stúdentspróf i faginu.
Kennarar voru tveir, þær
Jóhanna Þráinsdóttir og Hjörg
Baldvinsdóttir. Voru leiklistar-
timar tvisvar i viku, en timi i
framsögn einu sinni i viku.
Jóhanna Þráinsdóttir hefur
stundað nám i leiklist erlendis og
kenndi hún nemendum i mennta-
skólanum bæði forna leiklist og
svo nútimaleiklist. Björg
Baldvinsdóttir hefur stundað nám
hérlendis og hafði hún eins og
áður segir með framsögn að gera,
flutning málsins og skýran fram-
burð og annað, sem viðkemur
móðurmálinu.
Nemendur hala nú nýlokið prófi
i faginu og hefur árangur verið
sérstaklega góður og einkunnir
mjög háar.
Prófið sjálft fór fram bæði
munnlega og skriflega og það má
geta þess, að þessir 10 æfðu leikrit
i sambandi við þetta og fluttu á
vetrinum. -EA
Hamranesið:
Ekki að gefast upp
- heldur reyna til þrautar
,,Þvi er ekki að leyna, að við
lcntum i miklum erfiðleikum og
höfum ekki komið Hamranesi á
veiðar i mánuð. En við höfum
samt ákveðið að gefast ekki upp
og stefnum að þvi að koma
skipinu út á mánudaginn”,
sagði Haraldur Júliusson, einn
aðaleigandi togarans Hamra-
ness i samtali við Visi.
Haraldur sagði veiðarnar i
janúar og febrúar hafa gengið
sérstaklega illa vegna veðurs.
Hins vegar væri nú bezti timinn
fyrir togarana og þvi hefðu þeir
ákveðið að reyna til þrautar.
Búið er að gera upp við lang-
flesta af áhöfninni, en hins
vegar eru nokkrir, sem voru
búnir að fá meira en þeim bar.
„Staðreyndin er sú, að togara-
útgerðin er öll meira og minna i
molum i dag” sagði Haraldur,
en kvaðst vonast til að þeir
kæmust yfir erfiðleikana, ef vel
aflaðist. -SG-
Fí bætir flugflotann um
tvær Friendship
Flugfél. hefur enn gengið skref i
þá átt að einfalda flugvélakost
sinn, þ.e. fækka teg. sem á
timabili voru 5-6 talsins. Með
kaupum á tveim Fokker
Friendshipvélum frá All Nippon
flugfélaginu i Japan, verða
gerðirnar 3, þ.e. Boeing 727 þotur
(2) Friendship (4) og til að minna
á gamla daga ein DC-3 flugvél.
Senn halda þeir utan Sigurður
Haukdal, Þór Sigurbjörnsson,
flugmenn og Gunnar Valgeirsson,
flugvirki til að sækja vélarnar.
Gullsmiöir gerðu góöa ferö
til Hafnar
Jens Guðjónsson sýndi þá gripi,
sem mesta athygli vöktu i
islenzku deildinni á sýningu gull-
og silfursmiða i Kaupmannahöfn,
segir i fréttatilkynningu frá út-
flutningsmiðstöð iðnaðarins.
Hinsvegar fengu þeir Bjarni og
Þórarinn stærstu pöntunina, en
það voru galdrastafir, sem njóta
mikiila vinsælda, og voru Austur-
rikismenn með stóra pöntun á
þeim. Allir fengu annars
pantanir, og voru þær jafnan
stærri en i fyrra. Bendir margt til
að hægt sé að stórauka fram-
leiðsluna hér innanlands og hægt
sé að selja til útianda á hag-
stæðara verði. Niu islenzk fyrir-
tæki sýndu, eða jafnmörg og
Sviar, Norðmenn voru 22 en
Danir 49.
Engan py Isuvagn í
miðborginni
Undanfarna mánuði hefur fyrir-
tækið Akur h.f. reynt að fá leyfi
borgaryfirvalda til að fá að setja
niður pylsuvagn i miðborginni.
Borgarráð fékk neikvæða umsögn
um málið frá heilbrigðismálaráði
Risinn bjargar
Varnarliðið ei; geysivel útbúið til
björgunarstarfa. Er sú starfsemi
að góðu kunn hér á landi og
margir geta þakkað björgunar-
mönnum liðsins lifgjöf. Þegar
Slysavarnafélagið sýndi tug-
þúsunaum manna Djoreunar-
starfsemi sina i Rauöarárvik,
kom þyrla af gerðinni Jolly Green
Giant fljúgandi og sýndi, hvernig
manni er bjargað úr sjó i þyrluna,
og sést það atriði á myndinni, en
liklega hefur það vakið hvað
mesta athygli áhvorfenda.
og taldi sér þvi ekki unnt að verða
við umsókninni. Pylsuvagnar eru
þó algengir viða um heim og setja
skemmtilegan miðborgarsvip á
þær götur, þar sem þá er að finna,
fyrir utan hagræðið að geta fengið
sér ódýran og fljótlegan rétt.
Skora á menn aö kaupa
ekki brezkt, ef...
Fari svo, aö flutningaverkamenn
láti til skarar skriða gegn
islenzkum skipum eftir út-
færsluna, skorar sjómannadags
ráð á alla Islendinga að draga
sem mest má verða úr kaupum og
innflutningi brezkrar framleiðslu
og þjónustu við brezk skip, sem
til landsins koma. Hins vegar
skoraði fundurinn á þá, sem inna
af hendi ýmsa þjónustu við brezk
skip, að veita sömu þjónustuna
hér eftir sem hingað til, til
tryggingar öryggi skipa og skips-
hafna.