Vísir - 12.05.1972, Blaðsíða 4
4
Visir Föstudagur 12. mai 1972.
Lifandi listaverk
./
beir SÚM-márar eru ekki menn,
sem i'ara troðnar slóöir i list-
sköpun sinni. bessa dagana halda
þeir sýningu i SÚM-salnum við
Vatnsstig, Tryggvi Olafsson, og
Magnús Tómasson. Hluti eins
listaverksins er þessi hvita mús,
sem er að tritla upp á öxl lista-
mannsins, Tryggva, sem hefur
verið búsettur i Danmörku
undanfarin 10 ár. Tryggvi sýnir
þarna 15 verka sinna, en Magnús
25 verk. Sýningin er opin næstu 2
vikur frá 4 til 10 e.h.
Spanskflugan suöar á ný.
brengsli i tjaldageymslunni
þeirra i Iðnó gömlu uröu til þess,
aö sýningar á Spanskflugunni
lágu niðri, meðan Plógur og
stjörnur var tekið aflur tif með-
ferðar Nú er Spanskflugan tekin
til að suða á ný. En aðeins fáar
sýningar verða á þessu vinsæla
leikriti, þvi framundan er lista-
hátið með nýjum verkefnum.
Sama er um Kristnihald og
Skugga-Svein að segja, fáar sýn-
ingar eru eftir. Sýningar á
Spanskflugunni eru orðnar 122 og
mun fjórðungur landsmanna hafa
hlegið sig máttlitinn á sýningun-
um.
VÍSIR fivíiir‘..iiýjur frettlr. Vísiskrakkarnir bjóða
fréttir sem skrifaðar voru 2 Vi klukkustund fyrr.
VÍSIR fer í prentun kl. hálf-ellefu að morgni
og erá götunni klukkan eitt.
OPIÐ TIL KL. 10
Vörumarkaðurinn iif.
lÁrmúl 4 — Simi 86-113
MATVÖRUDEÍLO 86-111 HÚSGAGNADEILD 86-112
alla
föstudaga
MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Ú
YFIRGNÆFANDI
SAMÞYKKI ÍRA
VIÐ EBE-AÐILD
írar studdu aðild að
EBE með yfirgnæfandi
meirihluta í þjóðarat-
kvæðagreiðslu í gær.
83,09 prósent greiddu atkvæði
með aðild, og 16,9 prósent gegn .
Kjörsókn var 71,09%. Jack Lynch
forsætisráðherra kallaði úrslitin
mikinn sigur fyrir irsku þjóðina
og kvaðst fullviss um, aö aðild að
Efnahagsbandalaginu mundi
styrkja samvinnu irsku þjóðar-
innar viö aðrar þjóðir. Hann
kvaðst vona, að Norðmenn og
Danir mundu gera hið sama.
trland er fyrst af þeim fjórum,
sem sækja um aðild að EBE, þar
sem þjóðaratkvæðagreiðsla er
höfð. I Bretlandi hefur Heath
forsætisraðherra margsinnis
hafnað kröfum stjórnarand-
stöðunnar um að láta fara fram
þjóðaratkvæðagreisðlu um málið.
Norðmenn munu hins vegar kjósa
um aðild 24 . og 25. september og
Danirviku seinna.
Stjórnarflokkurinn i Irlandi,
Fianna Fail, og helzti stjórnar-
andstöðuflokkurinn, Fine Gael,
hvöttu stuðningsmenn sina til að
greiða atkvæði með aðildinni, en
Verkamannaflokkur írlands og
aðrir stjórnarandstöðuflokkar
voru andvigir aðild.
Trygve Bratteli forsætisráð-
herra Noregs var ánægður með
úrslitin i trlandi. Hann kvaðst
telja það ,,öllum aðilum til hags-
bóta”, að aðild var samþykkt;
Irland væri minnst af þeim
rikjum, sem sækja um aðild, með
um þremur milljón ibúa. bessi
smáa og þjóðernisstolta þjóð
hefði með þessu skipað ser i sæti i
auknu evrópsku samstarfi, sagði
hann.
16 flugvellir ó Ítalíu
taldir óöruggir
Flugmenn á italiu segjast
ekki lengur munu nota 16 flug-
velli þar i landi, sem flugmenn-
irnir scgja að uppfylli ekki kröf-
ur um öryggi.
bessi ákvörðun var tekin sex
dögum eftir að flugvél félagsins
Alitalia rakst á fjallshlið
skammt frá Palermo, og 115
týndu lifi.
Flugvellirnir i Flórens og
Paiermo eru meðal þeirra 16, og
flugmenn segjast aðeins munu
lenda þar, ef flugstjórinn telji,
að það sé öruggt vegna veður-
skilyrða.
Samtök flugmanna segja, að
þessi ákvörðun sé þáttur i bar-
áttu þeirra til að knýja stjórn-
völd til að bæta eftirlit með
flugi.
betta er versta flugslysið i sögu ttaliu. A myndinni eru þrir lögreglu-
menn við flak Alitaliaflugvélarinnar fyrir nokkrum dögum.
Drepur sigur fasista
hjónaskilnaðarlögin?
Fylgisaukning ný-
fasista á ítalíu i þing-
kosningum kann að ráða
úrslitum i heitum
deildum um hjóna-
skilnaðarlöggjöfina þar.
Ný-fasista og stærsta flokkinn,
kristilega demókrata, greinir á
um flest, en þeir eru sammála i
andstöðunni við frjálsa hjóna-
skilnaðaljöggjöf. Með
kosningunum hafa þessir flokkar
meirihluta á þingi, og geta þeir nú
samþykkt, að þjóðaratkvæða-
greiðsla fari fram um málið.
Frjálsari skilnaðarlög voru
samþykkt á Italiu fyrir ári.
Kaþólskir leikmenn hafa safnað
1,6 milljón undirskrifum fólks,
sem krefst þjóðaratkvæðis.
Vinstri flokkarnir hafa reynt að
koma i veg fyrir það.
Hjónaskilnaðarmálið var eitt
aðalmálið, sem varð sam-
steypustjórn mið- og vinstri
flokka til falls i vetur.
bingkosningarnar nú fóru
fram, áður en kjörtimabili var
lokið, þar sem ekki reyndist unnt
að mynda meirihlutastjórn.
Engar likur eru á stjórnarsam-
starfi kristilegra demókrata og
ný-fasista, en væntanlega standa
þeir saman i skilnaðarmálinu og
gætu þvi látið fara fram þjóðar-
atkvæði, sem raunar er ekki vist,
hvernig færi.