Vísir - 12.05.1972, Blaðsíða 11
10
Visir Föstudagur 12. mai 1972.
Visir Föstudagur 12. mai 1972.
11
Umsjón: Hallur Símonarson
| Jón Ólafur Jónsson meö
Jknöttimi fyrir framan sig
|á marktcig Morton, en á
nnæsta augnabliki var
jlionum brugöiö. Víta-
.spyrna, og Steinar Jó-
Jiannsson skoraöi annaö
Jmark tslandsmeistar-
|anna úr lienni.
Allt er fertugum fœrt
og Oskor sigraði létt
— Ágœtt mót í Laugardalshöll með þótttöku fœreysku badmintonleikaranna
Keppnisför færeysku
badmintonleikaranna til
islands lauk sl. þriðju-
dagskvöld með móti i
Laugardalshöllinni. Það
hófst með nokkrum
leikjum, þar sem Fær-
eyingarnir léku við þá,
sem þeir höfðu gist hjá
hér i Reykjavik, en sið-
an hófst keppni i meist-
ara- og A-flokki með
þátttöku Færeyinganna,
og var eingöngu keppt i
einliðaleik.
t meistaraflokki voru keppend-
ur flestir þeir sömu og kepptu á
nýafstöönu tslandsmóti og i
undankeppninni skeöi fátt mark-
vert nema i leik Siguröar
Haraldssonar, TBR, og Helga
Benediktssonar, Val, sem lék þar
i fyrsta skipti i meistaraflokki og
sýndi, aö hann á heima i þeim
fíokki. Var leikur þeirra mjög
jafn og spennandi. Fyrstu lotuna
vann Helgi með 15:9 og i annarri
lotu náöi spennan hámarki. Helgi
<0
Óskar Guömundsson.
hafði forustu allt upp i 14-12, en þá
tókst Sigurði aö jafna 14-14. Var
framlengt i 17 og lauk lotunni á
þvi.aöSiguröurvann 17-14. Þurfti
þvi aukaleik milli þeirra og þar
náöi Sigurður strax góöu forskoti
og sigraöi með 15-10.
Þar með var Sigurður kominn i
undanúrslit gegn Óskari Guð-
mundssyni, KR, og er þaö i þriðja
skipti, sem þeir lenda saman i
undanúrslitum. Siguröur hóf leik-
inn mjög vel og vann fyrstu lot-
una 15-5. Héldu margir, að Sig-
urður mundi ná þvi langþráða
takmarki aö vinna Óskar og leika
til úrslita i meistaraflokki.
En óskar var ekki á sömu skoð-
un og hóf siðari lotuna af miklum
krafti, sem vi'rtist koma Siguröi á
óvart. Náði hann ekki að sýna
sama leik og i fyrstu lotunni og
sigraöi Óskar meö 15-10. Auka-
leikinn vann Óskar svo nokkuö
létt, 15-4.
Haraldur Korneliusson lauk
sinum leikjum i undankeppninni
með þvi að leika við Steinar
Petersen, TBR, og þurfti þar lfka
þrjár lotur til að fá úrslit. Harald-
ur sýndi ekki samá öryggið og i
leikjum sinum á Islandsmótinu,
en hann sigraði þó Steinar með 8-
15, 15-8 og 15-7.
Þar með var komið að úrslita-
leiknum milli Óskars og Haraldar
og er það i þriðja sinn á keppnis-
timabilinu, sem þeir mætast i úr-
slitum. Og nu sýndi Óskar ,,að allt
er fertugum fært”, þvi hann sigr-
aði Harald og þurfti aðeins til
þess tvær lotur. Fyrri lotan var
mjög jöfn og mátti lengi vel ekki á
milli sjá hvor færi með sigur af
hólmi eins og tölurnar sýndu 4-4,
6-6, 7-7, 8-8, en þá komst Óskar
yfir, 9—8 og 10-8 og sfðan stóð 12-
10 fyrir hann.
Þá kom langur kafli, þar sem
hvorki rak né gekk og var barizt
hart um hverja sendingu. Þarna
var baráttan um sigur i lotunni i
hámarki, en svo vann óskar
sendingu og nýtti hana til að
vinna þrettánda punktinn. Var þá
eins og slaknaði á spennunni og
Óskar sigraði 15-13.
Það var eins og Haraldur hefði
eytt allri sinni orku i þessa lotu,
þvi i þeirri siöari veitti hann mjög
litla mótspyrnu. Óskar sigraði
örugglega með 15-6.
1 A-flokki kepptu til úrslita
Færey jameistarinn Poul
Mickaelsen og Baldur Ólafsson,
TBR- Færeyingurinn sigraði eft-
ir nokkuð jafna fyrri lotu, en i
þeirri siðari sýndi hann talsverða
yfirburði og vann 15-13 og 15-6.
Um styrkleika færeysku bad-
mintonleikaranna er þaö að
segja, að þar skara tveir leik-
menn, Poul Mickaelsen og Einar
Dalberg, nokkuð fram úr og eru
svipaðir að getu og okkar beztu A-
flokksmenn. Aðrir leikmenn eru
nokkuð lakari.
1 ferðinni háðu Færeyingarnir
bæjarkeppni við Siglufjörð, þar
sem Siglfirðingar sigruðu Þórs-
höfn 13-3. Siðan kepptu Færeying-
arnir á Akureyri og þar sigraði
Poul i einliðaleik og i tviliðaleik
ásamt Einari Dalberg. A mið-
vikudagskvöld var haldið kveöju-
hóf fyrir Færeyingana á Hótel
Sögu og þar var einnig verðlauna-
afheiWing fyrir þriðjudagsmótið.
Nóði Munchen-
lógmarkinu
Hin 19 ára Grith Ejstrup varð
fyrst dansks iþróttafólks að
tryggja sér rétt á Ólympiuleikana
i Mtinchen. A móti i Grenþ i gær
stökk Grith 1.76 metra i hástökki,
sem er betra en lágmarksafrek
það, sem krafizt er fyrir
Munchen. Hún átti mjög góðar
tilraunir við 1.81 m, sem er betra
en Norðurlandametið, sem þær
Kari Karlsen, Noregi, og Solveig
Langkilde, Danmörku, eiga og er
1.80 m.
Atvinnumenn Morton voru í
ham og sigruðu Keflvíkinga
- 5:2 voru lokatölurnar í skemmtilegum leik í gœrkvöldi
Hann var greinilegur
munurinn á atvinnu- og
áhugamönnum i knatt-
spyrnu á Laugardals-
vellinum i gærkvöldi, en
þrátt fyrir auðveldan
sigur Morton gegn ís-
landsmeisturunum frá
Keflavik 5-2 voru þó
margir kaflar i leiknum,
sem yljuðu áhorfendum ekki
og gerðu það að verkum,
að þeir fóru ánægðir
heim. Siðari hálfleik-
Tottenham
tók Arsenal
Arsenal tapaði í fyrsta skipti á
heimavelli i sex mánuði i 1. deild i
gærkvöldi, þegar nágrannarnir
frá Tottenham komu i heimsókn.
Þetta var siðasti leikurinn i 1.
deild og Tottenham vann með 2-0
og skoruðu þeir Alan Mullery og
Ralph Coates i siðari hálfleik.
Arsenal varð i fimmta sæti i 1.
deild með 52 stig, en Tottenham
þvi sjötta með 51 stig.
12 mörk í
knattspyrnu
Það voru skoruð 12 mörk i
einum leik 1. deildarinnar norsku
i gær. Strömsgodset vann kunn-
asta knattspyrnulið Noregs,
Fredrikstad meö 9-3, og byrjuðu
leikmenn Fredrikstad þá á þvi að
skora. Eftir fjórar umferðir hefur
Viking frá Stafangri forustu meö
átta stig — hefur unnið alla leiki
sina.
Friörik Ragnarsson nálgast ■
mark Morton, alveg frir, og ■
eftir að markvörðurinu ■
McKay komst fyrir knöttinn .
tókst Friðrik að ná honum ■
aftur og skora fyrsta mark m
Keflvikinga i gxrkvöldi. ■
Ljósm. BB. ■
urinn var virkilega
spennandi og þá tókst
Keflvikingum tvivegis
að senda knöttinn i mark
atvinnumannanna við
gifurlegan fögnuð og
stemningin var oft á há-
punkti á áhorfenda-
svæðunum — það svo, að
maður j undraðist, að
skyldu vera þar
nema um 3000 manns.
Laugardalsvöllurinn var nú allt
annar og betri, en þegar landslio-
ið lék gegr. Morton á þriðjudags-
kvöld og undravert hvað tveir
þurrkdagar geta breytt miklu. Nú
var því miklu betra að sýna
knattspyrnu — og þeir voru fljótir
til þess Morton-leikmennirnir.
Drifnir áfram af gamla Celtic-
leikmanninum Steve Chalmers,
sem nú lék miðherja, sýndi
Morton betri leik en i fyrsta leikn-
um og það svo miklu betri, að i
hálfleik bjóst maður við stórum
lokatölum liðinu i hag. Það varð
að visu 5-2, en þó miklu minna en
ástæða var til að ætla.
Morton hafði mikla yfirburði i
fyrri hálfleik og [iað á öllum svið-
um og þó lék liöið gegn strekk
ings sunnanvindi. Liðið gerði
strax harða hrið að marki Is-
landsmeistaranna og það var
aðeins snilldarmarkvarzla vara-
markvarðar Keflvikinga, Reynis
Óskarssonar, sem kom i veg fyrir
2-3 mörk, þegar á upphafsminút-
unum. En það gat þó ekki staðið
lengi, og á 20. min. kom fyrsta
markið. Chalmers vann skalla-
einvigi við Guðna og skallaði
fram völlinn til Mason, sem lék
nær marki og skoraði með föstu
skoti efst i markið — óverjandi.
Atta min, siðar stóð 2-0 og nú
var það Mason, sem þakkaöi
Chalmers fyrir fyrra markið með
þvi að skalla knöttinn fyrir fætur
miðherjans rétt innan vitateigs
og kappinn frægi var ekki lengi að
afgreiða knöttinn i netið. En fleiri
urðu mörkin ekki i hálfleiknum,
þrátt fyrir hina miklu yfirburði
Morton, og ef til vill gátu Keflvik-
ingar þakkað linuverði, að þriðja
markið varö ekki staðreynd.
Hann veifaði rangstöðu á einn
sóknarmann Morton, sem skoraði
— og var það meira en litið vafa-
samt, að áliti þeirra, sem bezt
voru staðsettir til að sjá atvikið.
Og hvað var nú framundan,
þegar Skotarnir höföu einnig
vindinn með sér? Þaö var ekki
laust við, að ýmsir óttuöust úrslit-
in, en leikmenn Keflvlkinga voru
á annarri skoðun — nokkrar
breytingar voru gerðar á liðinu i
leikhléinu og var þar þýðingar-
mest, að Magnús Torfason kom
inn á — og leikurinn allur varð
miklu skemmtilegri — einkum
vegna baráttuvilja Keflvikinga.
Að visu sótti Morton mjög i
byrjun og strax á fyrstu min. var
bjargað á marklinu — en leik-
menn Morton ætluðu sér greini-
lega um of á kostnað varnar-
innar. Og á 17 mín. tókst Keflvik-
ingum að laga stöðuna i 2-1, að
visu eftir gifurleg varnarmistök
— ef til vill kæruleysis. Bezti
varnarmaður Morton, Clark, gaf
þá knöttinn inn i eiginn vitateig til
Langhton, þegar hann gat sent
hann hvert sem var, og Langhton
urðu á enn meiri mistök, þegar
hann reyndi að leika á Friðrik
Ragnarsson við vitateiginn. Frið-
rik náði knettinum af honum og
leiðin að markinu var greiðfær:
Þó tókst McKay markverði að
komast fyrir knöttinn, en hélt
honum ekki og um siðir tókst
Friðrik að renna honum i autt
markið. Þetta voru löng augna-
blik fyrir flesta áhorfendur.
En ekki voru Skotar ánægðir
með þetta — eftir aðeins tvær
min. skoraði bakvörðurinn Hayes
eftir sendingu Chalmers 3-1.
Fjörið hélt áfram — Jón Ól. Jóns-
son lék upp kantinn, gaf til
Friðriks, sem þegar gaf aftur
framhjá varnarmanni til Jóns
Olafs, og hann fékk knöttinn
greinilega fyrir innan vörn Skota.
Það var ekki veifað og Jón ólafur
lék inn i vitateiginn — upp að
markteig. þar sem honum var
brugðið illa. Magnús Pétursson
dæmdi þegar réttilega vitaspyrnu
og Steinar Jóhannssor, skoraði
mjög fallega úr henni 3-2.
En þetta var siðasta afrek Kefl-
vikinga i leiknum — Chalmers lék
þá grátt i lokin og skoraði tvö fall-
eg mörk, svo lokatölur urðu 5-2 og
verðskuldaður sigur Morton .
Islandsmeistararnir eiga að
mörgu leyti hrós skilið fyrir leik
sinn gegn ofureflinu — einkum i
siðari hálfleik. Það var kraftur i
strákunum og leikurinn góð
skemmtun. Liðið er nokkuð jafnt
— þó Guðni sé beztur — og helzt
veikleiki hjá^ bakvörðunum.
Reynir stóð sig vel i marki og
verður varla sakaður um mörkin,
og i siðari hálfleiknum var til
bóta, þegar Jón Ólafur fór i stöðu
miðherja, og Magnús kom inn
sem framvörður. Ólafur Július-
son var skemmtilegur, en hann
kom inn um miðjan hálfleikinn,
þegar Jón ólafur meiddist, og þá
færðist meira fjör i Steinar og
Friðrik i framlinunni. Það er
greinilegt, að Keflvikingar verða
erfiðir mótherjar i sumar. —
Lóra nólgast
Islandsmetið
Erlendur Valdimarsson, 1R,
kastaði kringlu 55.28 m á fimmtu-
dagsmóti FRl á Melavellinum i
gær og var það bezta afrek
mótsins. Hreinn Halldóx-ssQTi
varpaði kúlu 16.18 m, Lára
Sveinsdóttir hljóp 100 m á 12.7
sek. (Islandsmetið er 12.6) og
Anna Kristjánsdóttir hljóp á 13.2
sek. Þá hljóp Ragnhildur Páls-
dóttir 800m á 2:31.5 min við hinar
erfiðustu aðstæður.
Jenkins hljóp
300 m. á 32.6!
David Jenkins, Englandi, sem
varð Evrópumeistari i 400 m
hlaupi i Hensinki i fyrrasumar,
náði i gær mjög góðum árangri i
300 m hlaupi á Crystal Palace
iþróttasvæðinu i Lundúnum.
Ilann hljóp vegalengdina á 32.6
sek .sem eraðeins hálfri sekúndu
frá heimsmetinu, og þessi árang-
ur sýnir, að hinn 19 ára Jenkins
verður hættulegur bandarisku
hlaupurunum á Ólympiuleikun-
um i Múnchen i haust.
Bikarkeppni skíða-
manna á lokastigi
Þrátt fyrir hækkandi
sól og sumarbliðu er
keppnistimabili skiða-
jnanna enn ekki lokið.
Baráttan i Bikarkeppn-
inni i alpagreinum
stendur sem hæst, en
henni lýkur með sein-
asta punktamóti vetrar-
ins, Skarðsmótinu, sem
haldið
firði
verður á Siglu-
hvitasunnuna.
um
Eins og fram kom fyrr i vetur
þá er bikarkeppnin nýbreytni
hérlendis. Sigurvegarinn er sá,
sem hlýtur beztan samanlagðan
árangur úr sex greinum af tiu á
punktamótum vetrarins.
Fyrir Skarðsmótið er baráttan
mjög hörð á milli þriggja fyrstu
manna, en staða fremstu manna
er þannig i stigum:
1. Árni Óðinsson Ak. 9.59
2. Tómas Jónsson R. 11,90
3. Hafsteinn Sigurðss. 1. 17,67
4. Guðmundur Jóhanness. 1. 74,39
5. Viðar Garðarsson Ak. 78,15
6. Jónas Sigurbjörnss. A. 84,24
7. Hákon Ólafsson S. 84,97
8. Björn Haraldsson H. 95,32
Þar eð Arni hefur aöeins tekiö
þátt i fjórum mótum i vetur verö-
ur hann að skila sér vel bæði i
. svigi og stórsvigi á Skarðsmótinu
til þess að eiga möguleika á sigri.
Tómas og Hafsteinn hafa hins
vegar þegar lokið sex keppnum
og eru þvi ekki eins háðir árangri
á Skarðsmótinu.
Hinn nýbakaöi Islandsmeistari
i svigi, Haukur Jóhannsson, fyrir-
geröi möguleikum sinum i keppni
þessari á punktamótinu i Reykja-
vik,þarsem honum tókstilla upp,
en hann eins og Árni Óðinsson
voru þá nýkomnir frá Bandaríkj-
unum og misstu af tveimur fyrstu
punktamótum vetrarins.
Bobby Charlton
kemur í dag
hingað til lands
Bobby Charlton, sá heimskunni
knattspyrnukappi, stfgur i dag i 'fyrsta
skipti á fslenzka grund og á morgun af-
hendir hann verðlaun á Laugardalsvell-
inum i Fordkeppninni.
Eitt þúsund drengir á aldrinum átta til þrettán ára
kepptu i hverjum aldursflokki i gær viösvegar á land-
inu — og á morgun kl. þrjú hefst úrslitakeppnin á
Laugardalsvelli, þar sem tiu stigahæstu drengirnir i
hverjum aldursflokki keppa til úrslita.
Eftir keppnina afhendir Charlton verðlaun. Þrir
beztu i hverjum aldursflokki fá verðlaunabikara, en
hinir minjagripi, svo sem áritaöa mynd af Bobby
Charlton — sérstakt heiðursskjal og búningstösku.
Þaö verður þvi mikið um aö vera i lifi ungra knatt-
spyrnumanna á Laugardalsvellinum á morgun —
keppni um skemmtileg verðlaun, sem vinsælasti
knattspyrnumaður heims afhendir, knattspyrnumað-
ur, sem ýmislegt hefur upplifað á löngum knattspyrnu-
ferli: heimsótt mörg lönd og leikið fleiri landsleiki en
nokkur annar knattspyrnumaður eða 106,— lifað af eitt
hroðalegasta slys, sem knattspyrnulið hefur lent i,
þegar lið Manch.Utd. splundraðist i febrúar 1958 á
Mflnchen-flugvelli á leiö heim frá sigri i Evrópukeppni
i Júgóslaviu, og siðan hlotið titil sem bezti knatt-
spyrnumaöur Evrópu og Englands — unniö til allra
helztu verölauna i knattspyrnu, heimsmeistari,
Evrópumeistari og Englandsmeistari og þaö oftar en
einu sinni.