Vísir - 13.05.1972, Side 1

Vísir - 13.05.1972, Side 1
VISIR I lÆKNADEILANil VORU KROFURNAR? - „EÐLILEGUR HVERJAR OG HVAÐ ER VINNUTÍMr7? — Sjá bls. 16 HINGAÐ OG EKKI LENGRA MEÐHITAVEITUNA! Lögbann sett á framkvœmdir hitaveitunnar í landi Teiga í Mosfellssveit— Fara um milljónaland án viðunandi bóta, segir ábúandinn H. Sím. rœðir við Bobby Charlton Ég er ekki kominn hingað til að selja bfla fyrir Ford, en ég er kominn hingað til ts- lands af þvi ég hef áhuga á málefninu — að gefa ungum drengjum tækifæri á knatt- þrautum, þar sem allir geta verið með, eins þeir, sem ekki ráða yfir mikiili leikni, eða eru feitir, stuttir eða langir, sagði Bobby Charl- ton, hinn kunni knattspyrnu- maður við komuna tii ts- lands i gær. Haliur Simonar- son, hsim, ræddi við Charl- ton, fyrirliða uppáhaids liðs sins i gærkvöldi. Varla blandast neinum hugur um hvor er hvor á myndinni. SJA ÍÞRÓTTIR A BLS. 9 Og hvernig verða þœr svo klœddar? Það er alltaf viss ánægjuauki að sjá ungar og fallegar, — og vel og snyrtilega klæddar ungar stúikur tritla um stræti og stiga i góðu sumar- veðri. Og hvernig ætla þær að klæða sig i sumar, blessaðar. Við ræddum við forstöðukonur og menn i tizkuverzlunum iReykjavik i gær. — SJA BLS . 8 Nýstárleg hugmynd ungs arkitekts Nýstárleg hugmynd ungs arkitekts, Einars Asgeirs- sonar, er kynnt i grein i blað- inu I dag. Hann vill reisa hvolfþak við sundlaugina i Laugardal, þar sem hægt mundi að hafa gróðursæla reiti og heilsulindir, þegar vetrarstormurinn bitur hvað verst. — Sjá bls. 2 „Aðalágreiningsefnið er það hvort hitaveitan hefur rétt til að leggja stokk í gegnum land sem er mill- jónavirði án þess að greiða viðunandi skaðabætur. Ég álít að hún hafi ekki rétt til þess og því fór ég fram á að lögbann yrði sett við frekari framkvæmdum í landi Teiga." Þetta sagði Matthias Einarsson bóndi að Teigi i Mosfellssveit i samtali við Visi i gær. Fógeta- réttur Hafnarfjarðar úrskurðaði lögbann á framkvæmdir hitaveit- unnar i landi Teiga samkvæmt beiðni ábúenda jarðarinnar og settu þeir tryggingu fyrir lög- banninu, en málshöfðun verður að fylgja innan viku. Skera þá dómstólar úr um hvort landeig- andi fær bætur eða hvort þeir tapa málinu og hitaveitan getur þá krafizt bóta vegna lögbanns- ins. ,,Það er að visu til samningur milli landeigenda hér i Mosfells- sveitinni og hitaveitunnar, en ég álit bað hálfgerða nauðungar- samninga og alls ekki full- nægjandi” sagði Matthias. „Þeir fara hér um land sem á eftir að verða mjög verðmætt sem bygg- ingalóðir. Ég hef að undanförnu haft i hyggju að loka fyrir þessar framkvæmdir og lét svo til skarar skriða i dag. Starfsmenn hitaveit- unnar urðu að fara i burtu með öll sin verkfæri og tæki nema hvað ég lofaði þeim að klára spreng- ingar sem þeir höfðu undirbúið. En ég vil taka það fram að ég er gamall starfsmaður hitaveit- unnar og vil þvi fyrirtæki vel þótt þess ágreiningur hafi komið upp” sagði Matthias að lokum. Það mun vera um 300 metra spilda sem lögbannið nær yfir, en það er veglengdin sem liggur um land Teiga. Jóhannes Zoéga hitaveitustjóri kvaðst ekkert vilja segja um mál- ið á þessu stigi en visaði til borgarlögmanns um málið. Páll Lindal borgarlögmaður sagðist ekki vita betur en bæði samningar og lög giltu um rétt- indi hitaveitunnar og skyldur i Mosfellssveit. Þar væri ákvæði um að bæta fyrir rask samkvæmt mati. En það væri bezt að biða og sjá hver úrslit málsins yrðu fyrir dómstólunum. -SG Starfsmenn taka saman verkfæri eftir að lögbannsúrskurður hafði verið kveðinn upp. Reykjalundur i baksýn. REKTOR TAPAÐI OG VANN! — Sjá frétt um prófkosningar fyrir spennandi rektorskjör á bls. 16 Þjóðverjar árisulastir — m > Sjá könnun á atferli Frakkar ástleitnastir — m > ferðafólks Bretar átvögl m -—> á bls. 6

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.