Vísir - 13.05.1972, Blaðsíða 16
Laugardagur 13. mai 1972
Farþegar fjar-
lœgðir úr
flugvél
Nokkrir farþcgar meö Loft-
lciöavél, sem átti aö hefja sig til
flugs af Keflavíkurflugvelli kl. 10
á fimmtudagsmorgun, neituðu aö
hlýönast fyrirmælum áhafnar-
innar um aö setjast og spenna
öryggisbeltin.
Varö af nokkurt þref, og greip
flugstjórinn til þess aö biöja uin
aöstoö lögreglunnar, sem kom á
vettvang.
Þarna var á ferðinni hópur
bandariskra ungmenna, sem
vildi mótmæia þvi, að vélin færi
án þess aö laka meö einn félaga
þcirra, en hann haföi orðiö seinn
til. Tilkynnt haföi veriö seinkun á
flugvélinni og brcyttur brott-
farartimi, en þeirri ákvöröun
haföi svo aflur verið breytt og
brottförinni flýtt aftur.
Ungmennin töldu sig vita af
félaga sinum á flughafnarsvæö-
inu og væntu hans á hverri
minútu. Fararstjóri þeirra fór
þess á leit við félagið, að veittur
yrði nokkurra minútna frestur, en
þvi var synjað. — Þá brauzt út
óánægja.
Þegar lögreglan kom i flugvél-
ina, komst kyrrð á farþegahóp-
inn, en 5 ungmenni yfirgáfu vél-
ina i fylgd lögreglunnar og gistu á
flugvallarhótelinu i nótt, en héldu
siðan utan með næstu vél.
Of dýrt að teppa-
leggja á nóttinni
,,Við sjáum okkur ekki fært aö
láta vinna þelta á nóttunni, þar
scm það þýddi margfalt mciri
kostnaö. Þaö eru um 30 götur og
götukaflar, sem viö „leppaleggj-
um” og kostnaöurinn er áætiaöur
uin 10 miiljónir króna.” Þctta
sagöi Ingi Ú. Magnússon, gatna-
málastjóri, i samtali viö VIsi i
gærmorgun.
Margir ökumenn hafa komið að
máli við blaðið og kvartað undan
umferðartruflunum á helztu göt-
um borgarinnar, þar sem unnið
hefur verið við að leggja á þær
nýtt slitlag. Hefur mönnum fund-
izt óþarfi að vinna við þetta, þeg-
ar umferð er mest, og væru
næturnar betur til þess fallnar.
En sem sagt, það myndi kosta
skattborgarann mun meira, og
þvi hefur sú leið ekki verið farin.
Gatnamálastjóri sagði, að hann
reyndi að tilkynna um það fyrir-
fram, hvaða götur yrðu teknar
fyrir, og gætu menn þá valið sér
aðrar leiðir. Framkvæmdum átti
að ljúka i þessum mánuði, en
þeim hefur seinkað litið eitt
vegna vætu og lýkur þvi sennilega
ekki fyrr en i byrjun júni.
Og af þvi veðrið er svona gott i
dag er ekki úr vegi að benda
mönnum á, að það er hreinasti
óþarfi að aka lengur á nagla-
dekkjum. Samkvæmt könnun,
sem gerð var á helztu bilastæðum
borgarinnar siðustu vikuna i
april, voru 40% bila enn á nagla-
dekkjum. Vitað er, að fjölmargir
hafa þau enn undir bilnum og
spæna þvi upp malbikið. En það
getur varla verið, að það snjói
mikið úr þessu, og þvi bezt fyrir
alla aðila að drifa nú i þvi að
skipta. —SG
Rektor féll og vann!
r r
Urslit prófkosninga vegna rektorskjörs í Háskóla á morgun tvirœð — Ovenjulegur kosningahiti
Allnokkur gustur og
flokkadrættir hafa ver-
ið meðal kennaraliðs
Háskóla íslands
undanfarið vegna
rektorskjörs, sem fer
fram á morgun. Nýlega
fór fram prófkjör
vegna rektorskjörsins,
og urðu niðurstöður úr
þvi mjög tviræðar, en
þær lágu fyrir á mið-
vikudag. Úrslitin urðu
þau að Guðlaugur Þor-
valdsson, prófessor i
viðskiptadeild, og
Magnús Már Lárusson,
háskólarektor, urðu
mjög jafnir.
Prófkjörið fór fram í tvennu
lagi. t fyrsta lagi var efnt til
prófkosninga meðal þeirra, sem
eru á kjörskrá við rektorskjörið,
þ.e. skipaöir prófessorar,
lektorar og dósentar með fullt
kennslustarf og 11 stúdentar. —
69 af 95 á kjörskrá greiddu at-
kvæði. Úrslit urðu þau, að Guð-
laugur Þorvaldsson fékk 32 at-
kvæði, en Magnús Már Lárus-
son fékk 28 atkvæði. Aðrir, sem
fengu atkvæði i fyrsta sæti, voru ■
Gylfi Þ. Gislason, Sigmundur
Guðbjarnason, Davið Daviðs-
Hektor — féll og vann!
son, Gaukur Jörundsson, Mar-
grét Guðnadóttir og Þór Vil-
hjálmsson.
Hins vegar fór fram prófkosn-
ing innan Félags háskólakenn-
ara, en i þvi eru allir þeir, sem
hafa aðalstarf sitt innan Há-
skólans. 1 þeirri prófkosningu
greiddi 91 af 151 atkvæði. Þar
fékk Magnps Már Lárusson 40
atkvæði, en Guðlaugur Þor-
valdsson 36 atkvæði.
Að þvi er Jónatan Þórmunds-
Guölaugur — dró sig i hlé
son, íormaður Félags háskóla-
kennara, sagði i viðtali við Visi i
gær, kom fram tillaga þess efn-
is, innan félagsins, að efnt yrði
til prófkosninga. A almennum
félagsfundi kom fram það ein-
róma álit, að rétt væri að halda
prófkjör til að skýra eitthvað
linurnar, áður en til sjálfs
rektorskjörsins kæmi, þar sem
ekki eru valdir sérstakir fram-
bjóðendur.
Jónatan sagði, að þessi próf-
kosning hefði ekki orðið mikið
til þess að skýra linurnar. Guð-
laugur Þorvaldsson hefði sent
félaginu bréf þess efnis i dag, að
hann gæfi ekki kost á sér til
rektorskjörs, þar sem hann teldi
núverandi rektor hafa fengið
slika traustsyfirlýsingu, að ekki
væri verjandi að vera i fram-
boði á móti honum. Það er þvi
alveg á huldu, hvort einhver
samtök verði um kosningu ann-
ars i rektorsembættið en núver-
andi rektors, sagði Jónatan.
Ýmislegt getur gerzt alveg þar
til á morgun.
-VJ
Nógur tími til
fótboltaiðkunar
í vertíðarlok
Þaö er þungt i þeim hljóðiö
Veslmannaeyingum, scm um
áraraöir hafa státaö af mestu
verstöö landsins, en sem aö
þessu sinni var svo gott sem
dauð vegna fiskieysis á vertiö.
Og hér sjáum viö yfirlilsmynd
yfir höfnina, þar liggja skipin
viö bryggju, búið aö taka
veiöarfærin i land á þcssum
lokadegi, scm sannarlcga var
ckki mikill gleöidagur að
þessu sinni.
Og kannski cr það táknrænt á
inyndinni hans Guömundar
Sigfússonar, að fótboita-
mennirnir framarlega á
myndinni er eina lifiö, sem
sjáanlcgt er þarna viö höfn-
ina. Fótboltamenn Eyja hafa
liklega haft gott næði til aö
undirbúa væntanlegan sigur i
islandsmóti suinarsins.
Fjármálaráðuneytið um launakröfur sjúkrahúslœkna:
Sérfrœðingar úr 85 í 168 þús. kr.
„Hóflegt" vinnuálag samsvarar dagvinnu með 12-44 yfirvinnustundum á mánuði
F já rmálaráöuney tið sakar
stjórn Læknafélags Keykjavikur
um „grófa tilraun til blckkinga” i
greinagerð, sem f jármálaráöu-
ueytiö sendi út vegna tiiskrifa
læknafélagsins uin fyrri
upplýsingar f jármálaráöherra
um sanininga viðræður við
sjúkrahúslækna. — llin grófa til-
raun er fólgin i þvi, að ráðherra
eru tilcinkuöþau sjónarmiö, aö 75
klst.vinnuvika sé „hófiegt vinnu-
álag”.
1 skrifum ráðuneytisins i gær
kemur frám, að hóflegt vinnuálag
hafi verið talið eins og verið hefur
hjá sérfræðingum og aðstoðar-
læknum. Þeir hafa fengið að
meðaltali greiddar 12 stundir i
yfirvinnu á rannsóknarstofum,
19-22 stundir á handlæknisdeild-
um og 33-44 á öðrum deildum. —
Tölur þær, sem stjórn L.R. notar
máli sinu til framdráttar er hins-
vegar yfirvinnutimi kandidata
sem lengst hefur verið óhóflegur
að dómi ráðuneytisins sem lækna.
Ráðuneytið ver löngu máli i að
svara einstökum atriðum i „leið-
réttingum og skýringum lækna”
og getur Visir ekki birt það i
heild.
Þar kemur fram, að stjórn L.R.
virðist hafa leikið sér nokkuð
frjálslega með tölurnar i skrifum
sinum. Þannig sverja þeir af sér
25 milljónir króna i útgjaldaaukn-
ingu, þar sem þær renna til ann-
arra lækna en þeir telja sig vera
að semja fyrir. Þeir „gleyma” þó
að draga 25 yfirlækna, sem þarna
er um að ræða, frá hinum 107
læknunum. — Ef það er gert verð-
ur útgjaldaaukningin vegna 82
lækna 77 milljónir og rúmar 25
milljónir vegna 25 yfirlækna.
Ráðuneytið birtir sem dæmi
kjör sérfræðinga eins og þau eru
núna og eins og þau yrðu, ef geng-
ið yrði að hinum upphaflegu kröf-
um lækna. — 1 dæmi ráðuneytis-
ins er miðað við, að yfirvinna sér-
fræðinganna sé nú að meðaltali 30
klst. á viku, þ.e. fyrir 49 1/2 klst.
vinnuviku. Kaupið núna er 85.236
kr. en yrði miðað við jafnlanga
vinnuviku 167.985 kr. Árshækkun
jafngilti 992.988 kr. eða um 97%.
—VJ
Stjórnin safnar 1700 millj. í lónum
Er rikisstjórnin að koilsigla
efnahagsniáluiium meö halla-
búskap og búin að hirða af al-
menningi kauphækkanirnar i
haust með veröhækkunum og
skattpiningu? Um það snerust
umræður i „eldhúsinu” i gær-
kvöldi.
Jóhann Hafstein (S) benti á
skuldasöfnun rikisins, sem væri
að safna að sér um 1700
milljónum i lánum, spari-
skirteinum, happdrættisláni og
erlendum lánum, og væri um að
ræða 10-11 sinnum hærri
fjárhæð, en fyrri stjórn hefði
tekið til framkvæmdaáætlunar
• fyrir ári. Hann spurði hvort
þjóðinni væri ætlað að lifa ,,á
slætti” erlendis með halla gagn-
vart útlöndum.
Björn Jónsson (SF) sagði, að
ekki væri unnt til frambúðar að
greiða halla með erlendum lán-
tökum. Þetta hefði verið gert i
fyrra og mundi enn gert i ár.
Björn neitaði þvi að
kauphækkanir hefðu verið
hirtar og taldi, að kaup mundi
verða um 20% hærra en var
fyrir hækkanir i haust, þegar
kauphækkun og visitöluhækkun
væri komin á júnikaupið.
Jóhann Hafstein taldi, að fé til
spariskirteina væri tekið úr
sparisjóðum og yrði til að yfir-
bjóða vinnuafl og kynda undir
verðbólgu. Hann sagði að hér
gætti nú vaxandi miðstjórnar-
valds, „ný stétt” væri að
myndast, sósfalistisk yfirstétt.
Pétur Pétursson (A) kvað
munu reyna á „næstu vikur”,
hvort hannibalistar vildu sam-
einast alþýðuflokksmönnum,
„hvort istaðið þeir ætluðu að
stiga i”.
Einar Agústsson, utanrikis-
ráðherra sagði, að vegna land-
helgismálsins hefði minna verið
unnið að endurskoðun varnar-
samningsins ,,en vert væri”.
Ölafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra áleit, að um þessar
mundirværi „gaman að vera Is-
lendingur”. -H.H.