Vísir - 13.05.1972, Síða 2
2
Visir — Laugardagur 13. maí 1972
íslendingur endurbœtir hvolfþaksgerð Þjóð-
verjans Frei Ottós. Kynnir hugmynd að 1000
fermetra hvolfþaki, sem reisa mœtti í Laugar
dalnum. Tilvalin gróðrarstöð og heilsulind,
sem reka mœtti sem ferðamannamiðstöð:
„Hlýtt loftslag"
í Laugardalinn
ó vetrum
VÍSmSFTft:
Ertu búin(n) aö fá vinnu í
sumar?
(iuArúu Arnarsdóttir: Já. Ég fer
aö vinna i fiski. Ég hef gert það
áður.
Asdis (iuðinundsduttir: Já, já. íig
hef hugsað mér að fara að vinna i
apóteki i sumar, þangað til ég
byrja i skólanum. Ég hef ekki
unnið svoleiðis starf áður.
Jóna Adolfsdóttir: fog er búin að
fá vinnu i sumar. Ég ætla að fara
að afgreiða i mjólkurbúö.
Sverrir Hálsson: Ja, ég tel það nú
eiginlega öruggt. Ég býst viö aö
fara i byggingavinnu i sumar
svona fram á haust þangað til
maður byrjar i skólanum.
Steingrímur Þóröarson: Já, ég
held ég sé búinn að fá vinnu i
sumar. Það verður sennilega i
byggingavinnu.
Ileimir Ilávarðsson: Já. Ætli
maður skelli sér ekki á grálúðu-
veiðar, liklega fyrir vestan. Ég er
va'/iur til sjós, kann vel við mig
r>ar.
Höfundur hugmyndarinnar er
ungur arkitekt, Einar Ásgeirs-
son, sem nýlega kom heim frá
Þýzkalandi, þar sem hann var
við nám og störf hjá hinu
heimsþekkta arkitekt Frei
Otto, sem m.a. hefur gert
Olympiutjöldin i Munchen og
gerði einnig hin eftirminnilegu
sýningartjöld V —þýzku
sýningardeildarinnar á heims-
sýningunni i Montreal 1967.
Sú tegund hvolfþaks, sem Einar
hefur i huga, ersú sama og Otto
reisti i Montreal um árið, Einar
hefur hins vegar endurbætt
umrætt byggingarform þar
sem áður hefur aðeins verið um
trébyggingar að ræða. Hans
hugmynd er sú, að ál verði
aðalburðarefnið, og svo i öðru
lagi, að hvoifið veröi „tvöfalt”,
þ,e. að burðarlögin verði tvö, en
nethvolfþak hefur enn ekki
verið byggt tvöfalt.
Það var á nýafstaðinni ferða-
málaráöstefnu i R-vik, sem
Einar kynnti þessa hugmynd
sina. Þar gat hann þess þá
m.a., að hann hafi haft sam-
band við tvö þýzk fyrirtæki i
sambandi við kostnað við út-
færslu hugmyndarinnar. Sam-
kvæmt uppgefnum kostnaði
fyrirtækjanna ætti kostnaður
viö bygginguna gróflega áætlað
að vera i kringum sjö og hálfa
milljón islenzkra króna.
j S T A Ð
FÓTBOLTAVALLAR
Einar kveöst hafa athugað
lauslega staðsetningu hvolf-
þaksins i Laugardalnum. ,,Ég
reyndi að fella hana að ramma
hins nýja skipulags Laugar-
dalssvæðisins,” segir hann.
vllér gefur að lita lauslcgan upp-
drátt af 101)0 fermetra hvolf-
þakinu, sem Einar liugsar sér,
að reisa megi i Laugardalnum.
Burðargrindin er úr áli, en
„Þar sem allt svæöið hefur
verið lagt undir iþróttasvæði á
mjög svo rýmilegan hátt með
nýja skipulaginu, var ekki um
annað að ræða en að leggja
fram breytingartillögu: A
svæðinu i heild eru áætlaðir
fimm knattspyrnuvellir þar af
fjórir i suðurenda dalsins að
meðtöldum núverandi gras-
velli, en sá fimmti suður af
sundlaugunum.
Ekki er gert ráö fyrir neinu al-
mennu útivistarsvæði, að þvi er
séð verður. Hér er þvi gerð sú
tillaga, að knattspyrnuvellirnir
verði fjórir i stað fimm. Þeim
fimmta suður af sundlaugunum
verði breytt i almennt úti-
vistarsvæði og þar fái hvolf-
þakið lóð og tengist sundlaug-
arsvæöinu beint.”
HLÝTT LOFTSLAG
AÐ VETRI TIL
„Byggingin yrði úr ódýrum
og einföldum byggingareining-
um i námunda við hverasvæði,
með það fyrir augum,” segir
Einar, „að nýta þá orku, sem
þar er til staðar og annars fyki
út i veður og vind, til þess að
mynda „hlýtt loftslag” þótt
innanhússsé, i náttúrulegu um-
hverfi.
Hvoru tveggja er hugsað sem
tilraun til að efla tilbreytingar-
möguleika almennings hér á
landi á löngum vetrarmánuðum
en að sjálfsögðu verður miðstöð
af þessu tagi einnig aðdráttar-
afl fyrir ferðamenn.
Það liggur i hlutarins eðli, að
slika miðstöð er heppilegt að
reisa i námunda við aðrar
heilsuræktarmiðstöðvar.”
grindin er þakin Acrylgleri, en
það cr óbrothætt og heppilegt
fyrir þcssa tegund þaka vegna
sveigjanleika sins. Eigum við
lleykvikingar ef til vill eftir að
Einar Asgeirsson. Hann kveðst
hafa gert þær breytingar á net-
hvolfþakinu, sem gerir þaö sam
keppnisfært viö hvaöa hvolfþak
sem er.
Og Einar Asgeirsson heldur
áfram máli sinu: „Vitaskuld
má einnig rækta matjurtir og
ávexti i þessari gerð „gróður-
húsa”, en sennilega væru
nokkrar 300-500 fermetra
byggingar hlið við hlið heppi-
legri til þessa en eitt 1000 fer-
metra hvolfþak.
Form hvolfþaksins, sem enn
má telja til hins óvenjulega um
heim allan, virkar ekki sizt sem
aðdráttarafl á allan almenning,
en að auki nýtist hitaorka betur
komast þarna i hlýtt loftslag?
Fram hefur komið hugmynd að
eitt þúsund fermetra hvolfþaki,
sem reisa mætti i Laugardaln-
um i næsta nágrenni við sund-
innan hvolfþaksins en kantaðra
þaka.”
HELMINGUR AF
KOSTNAÐARVERÐI
IBÚÐARFERMETRA
En svo segir Einar allt i einu:
„Óskynsamlegt væri að ráöast
strax i byggingu 1000 fermetra
hvolfþaks, þar sem ekki er sizt
nauðsynlegtaðaðlaga þróunina
islenzku veðurfari. Legg ég til,
aö fyrst verði reist 100 fermetra
bygging, sem gerðar verði
stöðugar athuganir á i a.m.k.
tvo vetur. Mætti hugsa sér, að
námsfólk i arkitektúr eða
svipuðum greinum væri fengið
til að búa i byggingunni þennan
tima til þess að fylgjast með
henni.
Staðsetning þessarar tilrauna-
byggingar þyrfti að vera sem
næst Laugardalnum, ef til
framkvæmda kæmi þar siðar.
Mætti imynda sér, að fyrir-
hugaða græna svæðið við
Laugarnes væri heppilegur
staður fyrir það, þvi seinna
mætti nota það sem vinnustofu
listamanns á vegum borgar-
innar.”
Og að lokum tekur Einar
byggingarkostnað venjulegrar
ibúðarbyggingar til saman-
burðar viö byggingarkostnað
100 fermetra hvolfþaks. Þeir
útreikningar sýna, að kostnað-
ur á fermetra við 100 fermetra
tilraunabyggingu af þeirri
gerð, sem um er rætt, er um
það bil helmingur af
kostnaðarverði ibúðarfer-
metra. Fermetrakostnaðurinn
á 1000 fermetra byggingu er
hins vegar minna en 1/3 af
kostnaðarverði ibúðar-
fermetra. —ÞJM
laugarnar þar, hitað meö
hveravatni og þannig tilvalin.
gróðrarstöð og heilsuíind, sem
rcka mætti sem feröamanna-
miðstöö.
LESENDUR
M HAFA
ORÐIÐ
Hannibal enn
Lántaki skrifar:
„Mér finnst þetta tal Hannibals
um pólitiskt þukl starfsmanna
Húsnæðismálastofnunarinnar
vera honum til litils sóma. Sjálfur
hef ég tekið lán hjá þessari stofn-
un og fékk þar mjög góða
afgreiðslu án þess að ég þekkti
þar nokkurn mann eða gerði til-
raun til að ræða við „mina”
menn. Tel ég Hannibal ekki hafa
nein efni á þvi að ráðast þannig að
þessum mönnum.”
Sambœrilegar stéttir
langt fyrir neðan
lœkna í launum
„1 ljósi þeirra upplýsinga, sem
fram hafa komið á alþingi um
launakröfur lækna, vil ég benda
á, að læknar hafa einir þá sér-
stöðu, að þeir hafa enga dauða
reikninga. Með þessu á ég við, að
læknar fá borgað fy.rir allt sem
þeir gera. Þá vil ég einnig minn-
ast á það i sambandi við þessar
óhóflegu kröfur, að það eru marg-
ir, sem hafa sambærilega mennt-
un og læknar og vinna jafn-
ábyrgðarmikil störf, en eru langt
fyrir neðan þá i launum. Það ætti
þvi ekki að koma neinum á óvart,
þótt þeir, sem þannig er ástatt
fyrir, kæmu á eftir og krefðust
þess að fá sambærileg laun.
Þá hef ég grun um, að læknar
séu með tilburði i þá átt að tak-
marka inngöngu i sinn félags-
skap, og er það i samræmi við
önnur vinnubrögð, sem þeir hafa
apað eftir stéttarbræörum sinum
á vesturlöndum-
Einnig má minnast á,að það er
almenningur, sem þarf að borga
læknum laun, beint og óbeint. Þvi
hljóta stórfelldar launahækkanir
til þeirra að hafa áhrif á kjör alls
almennings.
Með allri virðingu fyrir lækna-
stéttinni finnst mér eðlilegast, að
rikisstjórnin setji bráðabirgða-
lög, sem banna læknum að hætta
störfum og einnig að flytja úr
landi. Oft hafa verið sett bráöa-
birgðalög af minna tilefni.”
„Borgari.”
Loka bíóunum um
hvíasunnuna í
stað þess að
fjölga þó sýningum
Borgari hringdi:
„Ósköp kom mér það spánskt
fyrir sjónir að lesa i dagblöðunum
sama daginn um tilraun Æsku-
lýösráðs til að koma i veg fyrir
„hvitasunnusvall” unglinga með
skemmtanahaldi samtimis þvi,
að bióstjórar tilkynna, að þeir
ætli að loka bióhúsum sinum
einnig á annan.
Með hliðsjón af striði æskulýðs-
félaganna við Bakkus og svall
æskunnar á undanförnum hvita-
sunnuhelgum hefði fremur mátt
búast við þvi, að bióin fjölguðu
sinum biósýningum um þessa
helgi i stað þess að fækka.
Mér finnst tilraun Æskulýðs-
ráðs til að hafa ofanaf fyrir skóla-
æskunni um hvitasunnuhelgina
góðra gjalda verð. Próf munu
raunar standa yfir i sumum skól-
anna um þetta leyti núna, en fjöl-
mörg skólabörn verða lika nýbúin
i prófunum og þar af leiðandi ólm
i að lyfta sér upp. Þeim er ekki of
gott að geta brugðið sér i Laugar-
dalshöllina og hlýtt á guðsorð og
popp. Hver láir þeim kætina að
afloknu prófstritinn'' ”