Vísir - 13.05.1972, Page 3
Visir — Laugardagur 13. mai 1972
3
Sœnskt Jesús-fólk á
hvítasunnuhótíð hér
Þau eru sex talsins, koma
syngjandi frá Sviþjóö og segja:
,,Við erum Jesú-börn. Það er
þess vegna, sem við erum svona
himinglöð! Hlæðu og dansaðu!
HANN elskar þig!”
Hér að framan er lýst ung-
mennum, sem vakið hafa storm-
andi lukku um gjörvalla Sviþjóð
og nú eru á leið til Reykjavfkur til
að taka þátt i, og koma fram á
hvitasunnuhátið i Laugardals-
höllinni á hvitasunnudag.
Þau koma stormandi upp aö
ölturum sænskra kirkna, syngja
og stappa taktinn i gólfið, taka
jafnvel fáein dansspor, en ræða
siðan við viðstadda um trúna á
Jesúm Krist og tilgang lifsins.
Þetta eru hressileg ungmenni, að
þvi er bezt verður séð af úrklipp
um úr sænskum blöðum. Ung
menni, sem blöðin segja að rifið
hafi trúmálin upp úr dvala og
vakið almennii.g til alvarlegrar
umhugsunar.
,,Við höfum fengið að kynnast
þvi, hvað það þýðir i raun og
veru, að vera Guðsbörn. Við höf-
um ekki verið svona alla tið. En
núna erum við það. öl! erum við
fjölskyldumeðlimir i stórfjöl-
skyldu Jesús,” segja þau — og
taka svo lagið. Þau syngja um
„...konung þinn, sem kemur hjól-
andi á hvitu hjóli”. Þau semja
gjarna sjálf söngva til að syngja.
A hátiðinni i Laugardalshöllinni
mun þetta unga og friska Jesú-
fólk svara fyrirspurnum þeirra,
sem úti i sal sitja. En i lok hátiða-
haldanna, þessarar nær tiu tima
samkomu, munu þau, ásamt öðr-
um flytjendum, koma saman á
sviðinu og spila, syngja og stjórna
fjöldasöng.
—ÞJM
Hópurinn á skemmtun i Sviþjóð
LAXNESSLAUSIR
— en frumsýna Strompleikinn samt i kvöld
,,Að visu sagði Laxness, að það
hefði veriö svo mikið húliumhæ i
sambandi við afmælið, að hann
kæmistekkiá frumsýninguna, en
hún verður samt sem áöur i
kvöld,” sagði Þráinn Karlsson,
framkvæmdastjóri Leikfélags
Akureyrar i sambandi við Visi.
Félagið frumsýnir i kvöld
Strompleik eftir Halldór Laxness
undir leikstjórn Mariu Kristjáns-
dóttur, og leikmyndir eru eftir
Ivan Török. Þetta er þriðja leik-
ritið eftir Laxness, sem LA tekur
til meðferðar, en áður hefur það
sýnt tslandsklukkuna og Dúfna-
veizluna.
Strompleikurinn hefur verið
æfður i 6 vikur og eru leikendur 18
talsins. Með helztu hlutverk fara
Guðlaug Hermannsdóttir, Aðal-
steinn Bergdal og Jóhann
ögmundsson.
Nú eru liðin 55 ár frá stofnun
Leikfélagsins og er þetta 144.
verkefnið. Leiksýningar eru
samtals orðnar 1500 talsins. -SG.
Prýðis veður og
bílastœði í Blófjöllum
Þeir, sem hyggja á ferðalög um
helgina, ættu ekki að þurfa að
hræðast mjög i sambandi við
veðrið. Veðurguðirnir ætla að
vera nokkuð hliðhollir þeim,
sein hafa hugsað sér að hossast á
jeppum eða lúxuskerrunni eitt-
hvað út fyrir ys og þys
borgarinnar.
Ef einhverjir hafa i hyggju að
bregða sér á skiði og nota sér
snjóinn, sem enn situr i hliðum
Bláfjallanna, þá má geta þess, að
vegaframkvæmdum fer senn a
ljúka.
Framkvæmdir hófust þar fyrir
um það bil viku, og hefur nú verið
borið i mestallan veginn, ekki eru
nú eftir nema um það bil 300
metrar.
Fólk getur þvi haldið á skiði,
jafnt i fólksbilum, sem fjalla-
jeppum.
Eftir að veginum hefur verið að
fullu lokið, i næstu viku, verða
gerð bilaplön i Bláfjöllunum, svo
að fólk þarf ekki lengur að leggja
bilum sinum út um hvippinn og
hvappinn, heldur á bilastæði.
Þó að útlit sé fyrir sæmilegasta
veður, þá er ekki þar með sagt,
að fólk þurfi að hlaða á sig sól-
kremum eða öðru þviumliku, þvi
sólin gerir litið vart við sig.
A Veðurstofunni spá þeir suð-
austlægri átt, og við hérna á suð-
vesturhorninu megum búast við
einhverri rigningu og skýjuðum
himni. En það verður hlýtt i veðri
og ef til vill örlitið sólskin.
Það má lika geta þess, að á
Norðurlandi verða þeir einna
heppnastir hvað veðrinu við-
kemur. Þar spá þeir björtu veðri
og hlýindum, og þvi er hugsan-
legt, að Norðlendingar fái tæki-
færi til þess að ná sér i lit á
hörundið. -EA
Flóamarkaður í
Laugardalshöll
— ógóðinn rennur m. a. til söfnunar í hjartabil
Flóamarkaðir gerast nú alltið-
ir. Einn slikur cr fyrirhugaður i
Laugardalshöllinni á morgun,
sunnudag. Eru það samtök Svarf-
dælinga, sem að honum standa til
styrktar menningar- og liknar-
málum, svo sem búcndatali og
æviskrám manna i Svarfaöar-
dælahreppi fyrr og siöar, verki,
sem er i undirbúningi og ætlað er
að gefa út innan skamms. Einnig
mun ágóðahluti renna i sjóð
Blaðamannafélags íslands til
kaupa á „hjartabíl”. En geta má
þcss, að Ilaukur Hauksson, sem
sjóðurinn er einmitt stofnaður til
minningar uin, var Svarfdæling-
ur i báðar ættir.
A markaðinum fæst allt "milli
himins og jarðar”. Þar á mcðal
má telja leista, trefla, vettlinga,
húfur, púða og málverk. Auk
fatnaðar má þarna kaupa hluli
frá ýmsum stöðum á landinu,
fyrir lágt verð. Munirnir kosta
alll frá tiu krónum til eitt þúsund
króna.
—ÞJM
TRIPPI FYRIR BIL I ARBÆ
Lögreglubifreið á eftirlitsferð
um Árbæjarhverfi i fyrrinótt
rakst á trippi, sem hljóp i veg
fyrir bifreiðina. Varö að lóga
skepnunni.
Hrossið hljóp yfir veginn og dró
ökumaðurinn úr hraðanum, en
þegar það var komið yfir veginn,
stakk það skyndilega við fótum,
um leið og það ætlaði fram af
vegabrúninni og snarsneri sér inn
á veginn aftur og hljóp á bilinn.
Skemmdir urðu litlar á lög-
reglubilnum. -GP.
Hólaskóli 90 óra
A morgun, 14. maí 1972, er
bændaskólinn á Hólum i Hjalta-
dal 90 ára. Á sumrinu sem i hönd
fer munu margir fara „heim að
Ilólum” til aö vitja þess sögu-
fræga staöar. Þá er margs að
minnast og margt aö athuga.
Skagfirðingar stofnuðu skólann
og sáu einir um rekstur hans —
fyrsta árið. Merkileg stofnun,
mikið harðindaár. Hafisinn barst
að landi i marzmánuði, hér og
þar, en 24-26 apríl rak isinn að
fullu að Iandi i miklum stórviðr-
um, — „fyllti alla firði og víkur
frá Straumnesi viö Aðalvik norð-
ur og austur fyrir land allt suður
að Breiðamerkursandi”. —
„Lágu isar þessir við Norðurland
allt sumarið fram til höfuðdags,
og af innanverðum Eyjafirði rak
isinn eigi algerlega burt fyrr en 3.
september, — — svo kalt allt
sumarið að vetraris var ekki
leystur af Ólafsfjaröarvatni 6.
jlíli. — Taldist mönnum til að 10
sinnum hefði alsnjóað nyrðra frá
Jónsmessu til rétta.” — Eftir
hríðar og frost 12.-15. september
voru ár riðnar á is i Skagafirði. —
„Sumsstaðar náðist enginn baggi
inn hvorki af töðu né útheyi fyrri
en siðast I september”.
Ofan á allt þetta bættist mikil
mislingssóttar — veikindi, sem
sagt er hafi drepið um 1600 manns
á landi hér, ár þetta, mest um
sumarið og haustið.
Viö þessar aðstæður tók
Bændaskólinn á Hólum til starfa,
við stjórn Jósefs J. Björnssonar,
sem numið hafði búfræöi i Noregi
— á Steini, — og i Danmörku, við
ágætan orðstir. Hið fyrsta ár —
þetta harðindaár — varð Jósef að
búa á 2/3 hlutum af jörðinni Hól-
ar, upp á eigin spýtur og til-
kostnað.
Húsakostur skólans á Hólum
var fyrstu árin: „Gamli bærinn”
— torfbærinn — neðan við
kirkjuna, og auk þess „Nýi bær-
inn”, sem nú er kallaður „gamli
bær”, og stendur ennþá á Hólum.
Hann var byggður 1854. En
„Gamli bærinn” niður frá, sem
varð fyrsta skólasetrið, var
margendurbyggður bær biskupa
og presta á Hólastað.
Nýtt skólahús, úr timbri, var
byggt 1892. Það brann 1926. Stóð á
fögrum stað, vel settum. Fyrsta
steinsteypuhúsið var byggt 1910,
og það stækkaði um helming eftir
brunann 1926, o.s. frv.---
Við sem munum Bændaskólann
á Hólum um 70 ára skeið og vart
neitt lengur en það, minnumst
mikilla og merkra umbóta sem
gerðar höfðu verið á æskuárum
skólans, þótt hart væri i ári við
upphaf bændaskólans. Þeirra
umbóta er gott að minnast, þótt
flest væri þá með öörum hætti en
nú er oröið. — Vel man ég
engjarnar, sem ræstar höfðu ver-
ið fram með miklum skurðum
handgröfnum, og gerðar að á-
veituengjum, uppistöðugarðar
hlaðnir, áveituvatn sótt langa
leið, fram i Hofsá. Nokkur túná-
veita frá bæjarlæk lika minnis-
verð. Hið sama er um miklar
beðasléttur sem gerðar voru um
og fyrir aldamót, niður á túninu á
Hólum, eða réttara sagt látnar
stækka túnið, þvi að þar var áður
mýrarfit niður af gamla túninu.
Þá er að minnast fjárhúsanna
miklu sem byggð höfðu verið
fyrir aldamót, úr steini, og á þeim
stað, eða þar sem næst, sem nú
stendur ibúðarhús skólastjórans.
Þeirra fjárhúsa er gott að minn-
ast, fyrirkomulags öllu, þótt
grjótveggjum væri þvi miður ekki
haldið við er þeir urðu áratuga
gamlir. óviða munu hafa sézt
fjárhús jafn loftgóð og fjárhirð-
ingargóð. Og sama er raunar að
segja um önnur gömul og sér-
staklega góð fjárhús með torf-
veggjum klæddum innan trjá-
rimlum,festum á stoðir. — Gömlu
smiðjuna man ég lika mjög vel.
Sem vænta má er nú annað yfir
að lita á Hólum. Engjarnar nær
allar orðnar að túni, og sumsstað-
ar meira land en þær. Byggingar
allar steinsteypa, þótt þar megi
sjá sérstakar byggingar er vel
mættu og sannarlega þurfa aö
hverfa. Vonandi feigar. Þetta tel
ég gilda um fjós og hlöðu, með
meiru, frá 1914. Nýtt þarf að
byggja, nútima hagkvæmt, á
alveg nýjum stað, og láta þessa 56
ára gömlu byggingu, sem eitt
sinn var allgóð, hverfa með öllu,
endurnýja gömlu grænu hlað-
brekkuna, sem eitt sinn var við
gamla skólahúsið frá 1892. Og ef
vel væri ætti óþægðarhús þaö sem
byggt var á sama grunni, eftir
brunann 1926, lika að hverfa eða
þvi verði breytt i snoturt ibúðar-
hús. Hvergi var fegurra hússtæði
á Hólum, og svo má verða aftur á
ný. Verkfærahús verður að
byggja á nýjum stað. Viö sem
hugsum heitt til Hóla, á 90 ára af-
mælinu, leggjum hugann mjög
heitt að þvi að þar þarf ennþá
mikið að gera, bæði að endur-
rækta og bæta mikil tún, og
byggja ný og hentug hús, bænda-
efnum og starfandi bændum til
fróðleiks og fyrirmyndar. Hið
fyrsta er, sem sagt, nýtt fjós á
nýjum og heppilegum stað. — Þar
næst verkstæðið.
Vonandi er, að milljónum króna
allmörgum verði varið til þessara
hluta nú þegar á næstu árum, að
landbúnaöarráðuneytiö, ráðherr-
ann og Alþingi spari ekki fé til
þess.
Þá eru það aukin og ný verkleg
námskeið — jarðræktarnáms-
skeið— bæöi vor og haust, sem
eru mikil nauösyn sem endurbót
Hólaskóla, i samræmi við það
sem nú varðar svo miklu fyrir
nemendur skólans og bændur
alla. Að læra og temja sér góða og
fullkomna lúnrækt i stað harka-
ræktunarinnar sem nú er svo
sorglega vanaleg. An fjárveitinga
og tilkostnaðar verður vanræksla
slikra námskeiða og kennslu
sennilega áframhaldandi vana-
leg. An fullrar fjármálaákvörð-
unar, kunnáttu og tilkostn-
aðar, getur enginn skólastjóri
komið neinu verulegu til leiðar,
sem varðar verklegar umbætur,
þess er litil von, eins og nú er
komið vinnu og greiðsluháttum á
landi hér.—
Loks er að minnast Hólakirkju og
kirkjugarðs. — Hin 210 ára gamla
kirkja hefir staðið sig vel, en
þarfnast samt allmikilla umbóta,
sem rétt gerðar verða sómi Hóla,
Skagfiröinga og þjóðarinnar allr-
ar. Að láta þær umbætur ógerðar
er döpur ómennska.
Þeir sem nú koma að Hólum,
sér til fróðleiks og gleði, þurfa að
hugsa til hins liðna og gamla á
mörgum sviðum, sögu Hóla, og
margháttaöra breytinga sem þar
hafa orðið, bæði á siðustu 90 árum
og raunar alloft og viða fyrir þann
tima. An sögu Hóla i huga er
þangaðkoman lltils virði, með
söguna i huga ómetanleg.
An umbótaáætlana á Hólum og
fjárveitinga til þess að iram-
kvæma þær er góður skólastjóri
illa leikinn. — Þess vegna
spyrjum viö Hóla-vinir: Hvers
má vænta i ráðuneytinu og á Al-
þingi? Verður 90 ára afmælið ekki
notað til rúmra fjárveitinga og
allstórra ákvarðana?
A.G.E.