Vísir - 13.05.1972, Síða 8

Vísir - 13.05.1972, Síða 8
8 Vísir — Laugardagur 13. mai 1972 IIMIM SÍÐAN Umsjón: Edda Andrésdóttir Alls staftar í heiminum standa nú yfir tizkusýningar, og tizku- kóngar koma stöftugt fram meö nýjar og nýjar hugmyndir varöandi su martizkuna . Viö hérna uppi á tslandi reynum allt sem i okkar valdi stendur til þess aö vera ekki eftirbátar nágrannaþjóöanna i klæönaö- inuin, og tizkuverzlanir bæjar- ins auglýsa stööugt nýjar og nýjar sendingar. Myndirnar hér á siöunni sýna þaö nýjasta, sein gefur aö lita i tizkuvcrzlunini Fivu, og er þessi klæönaöur allur kominn frá Danmörku. Fyrirsæturnar eru þær Marta Bjarnadóttir, eigandi vcrzlunarinnar Evu, og Kristin Kjartansdóttir, en Ijós- myndari er Sigurgeir Sigur- jónsson. Þær eru ósköp sumarlegar og l>að verður ekki amalegt aö spranga um göturnar i sumar, i stutterma þunnum kjólum meö blómavönd i hcndinni. léttklæddar, stúlkurnar á myndunum, og eftir einni myndinni að dæma, viröist Visir vera einn af þeim hlutum, sem hvorki tizkukóngar eöa aörir megna að reka burt úr tizku- heiminum, heldur er sifellt nýr. Viö hringdum í nokkrar tizku- verzlanir bæjarins til þess aö forvitnast um, hvaö væri þaö vinsælasta meöal kvenþjóðar- innar i dag, og hvers væri helzt að vænta I tizkuheim inum islcnzka. í tizkuverzluninni Evu, sagði Marta Bjarnadóttir, eigandi verzlunarinnar, að það lang vinsælasta meöal kvenna i dag væru buxur og blussur. Sömu- leiðis ætla mussurnar svo- kölluðu lengi aö halda velli, þvi að þær voru rikjandi i fyrra- sumar og eru enn. Sagði hún, að yfirleitt væru það þessi léttu og þægilegu útiföt, sem ættu hvaö mestum vinsældum að fagna, og spáir hún mikilli sölu á þvilikum fatnaöi i sumar. Er við spuröum hana um siðu kjólana, sem allar konur, jafnt yngri sem eldri, hafa gengið i allan veturinn, kvað hún þá vera eitt af þeim fyrirbrigðum, sem að mestu væri búið að vera. Sagði hún stuttu kjólana aftur á móti vera mjög vinsæla, og að það yrðu þeir, sem myndu rikja i sumar, við öll tækifæri. Um nýjungar i verzluninni er helzt að nefna mikið úrval af alls kyns skóm og þá helzt tré- klossunum, svo og ýmiss konar snyrtivöru frá Margith Brandt. sem er dönsk. Það eru þó ekki varalitir og augnskuggar, held- ur krem, ilmvötn og annað þviumlikt. Fanný Jónmundsdóttir eigandi tizkuverzlunarinnar Fanný, spáir þvi, að japanska sniðið muni hertaka allt i sum- ar, - japanskt snið á blússum og jökkum og léttum treyjum. Einnig kvað hún svunturnar svokölluðu áreiðanlega eftir að verða mjög vinsælar i sumar- tizkunni. Svuntur þessar eru nokkurs konar blússur með heilu stykki að framan, en siðan með hlýrum, sem bundnir eru um hálsinn, en bakið siðan bert. Buxur, og þá allt viðar buxur, blússur og mussurnar sagði hún seljast mest þessa dagana. Litla sölu sagði hún vera á kjólum, en þó telur hún þá kjóla, sem hægt er að nota við öll tækifæri, eiga eftir að ryðja sér mjög til rúms. Eins væri um barðastóru hattana, skreytta blómum og fjöðrum og alls kyns skrauti. Þó sagði hún, að mikið bæri á þess- um setningum meðal ungu Blóm í höndunum og blómum skreyttir kjólar. Létt og sportlega klæddar, beint i sumarferöalagiö. stúlknanna Ég gæti aldrei gengið með hatt. „En þetta er aðeins nokkurs konar punktur yfir i-ið” sagði Fanný. Verzlunarstjórar i Karnabæ, tizkuverzlun unga fólksins, Grétar Axelsson og Erla Ólafs- dóttir, voru sammála i þvi, að eitt af þvi sem vinsælast er i dag meöal kvenna, eru viðu buxurnar, og spá þeim góðri framtið i sumar. Jakkaföt kváðu þau einnig vinsæl, svo og öll föt i skærum litum, gulum, grænum og svo köflótt. Khaki-föt sögöu þau sivinsæl, og einnig töldu þau stuttu kjólana ryðja sér mjög til rúms, en þó sögðu þau siða, fina kjóla halda velli. Er við spurðum þau að þvi, hvort islenzkar konur væru langt á eftir i tizkunni i saman- buröi viö aðrar þjóðir, svöruðu þau þvi til, að þær væru alls ekki á eftir, heldur fylgdust mjög vel með. Einnig bjóða tizku- verzlanirnar upp á allt það nýjasta. Eftir þessu rabbi að dæma virðast þeir, sem hvað mest fylgjast með tizkunni og öllu þvi, sem henni viðkemur aö mestu leyti sammála um það, hvað vinsælast er i dag, svo og hvers má vænta i sumar. Tizkan ætlar að verða skraut- leg og skemmtileg á komandi sumri, og islenzkar konur sóma sér eflaust vel á götunum. Og karlmennirnir hafa eitthvað til þess að hlakka til, þvi stuttir kjólar verða i algleymingi og þeir' geta aftur fariö að gjóa augunum að fallegum fótleggj- um. —EA Nýja tfzkan klæönaöinum, og alltaf fylgir Visir

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.