Vísir - 13.05.1972, Page 9
Visir — Laugardagur 13. mai 1972
9
■
Leikmenn Manch. Utd. mundu
áreiðanlega vilia leika hér
— sagði Bobby Charlton
— Mér finnst mjög lik-
legt, að lið Manch. Utd.
fengist til að koma hingað
til ísiands og leika einn
leik. Ég mun tala um það
við Frank O'Farrell, fram-
kvæmdastjóra liðsins, strax
og ég kem heim aftur. Já,
strákarnir mundu áreiðan-
lega vilja leika hér— það
er stutt að fara og hægt að
koma leik á i miðri viku,
sagði Bobby Charlton, hinn
kunni fyrirliði Manch. Utd.
á blaðamannafundi í gær-
kvöldi, en hann kom hingað
til lands ásamt konu sinni,
Normu, i gær og mun í
dag afhenda verðlaun á
Laugardalsvellinum í sam-
bandi við Fordkeppnina.
— En, bætti hann við, auðvitað
þurfa þá boð að berast frá réttum
aðilum isambandi við slika heim-
sókn. Manch. Utd. er eftirsótt lið,
og það þarf að gerast með
nokkrum fyrirvara að fá slikt lið i
heimsókn.
Charlton-hjónin komu hingað
frá Glasgow með flugvél Flug-
félags íslands, og aðeins rúmum
klukkutima siðar voru þau mætt á
blaðamannafundinum ásamt for-
ráðamönnum Ford og keppn-
innar. Akaflega heillandi per-
sónur bæði tvö, sem svöruðu öll-
um spurningum greiðlega. Þetta
var léttur og skemmtilegur
fundur — Bobby alltaf tilbúinn að
slá upp i léttara hjal, og einfalt að
skilja við kynningu þær miklu
vinsældir, sem hann hefur öðlazt,
jafnt á leikvelli sem utan.
— Ég er ekki kominn hingað til
aö selja bila fyrir Ford, en ég er
kominn hingað af þvi ég hef
áhuga á málefninu — að gefa ung-
um drengjum tækifæri á knatt-
þrautum, þar sem allir geta verið
með, eins þeir, sem ekki ráða yf-
ir mikilli leikni, eða eru feitir
stuttir eöa langir. Það hefur verið
gaman að vinna að þessu. Ég hef
úthlutað verðlaunum frá þvi For-
keppnin byrjaði fyrir þremur
árum, og mestur áhugi hefur
verið i Hollandi. Og það er tákn-
rænt, aö þegar slik keppni hefur
farið fram i landi öðru sinni hefur
þátttaka tvöfaldazt.
— Nei, ég hef engar áætlanir á
prjónunum um hvað ég fer aö
gera, þegar leikferli minum
lýkur. Ég hef enn samning við
Manch. Utd. i fjögur ár, svo
nægur timi er til að hugsa það
í gœr við komuna til Islands — I dag verður Fordkeppnin á Laugardalsvelli
Norma og Bobby á Hótel Esju
Ljósmynd Bjarnleifur.
mál. Blaðamaður? — Kannski,
svona i igripum. Framkvæmda-
stjóri knattspyrnuliðs? Varla.
Framkvæmdastjórar eins og
Shankley hjá Liverpool og Revie
hjá Leeds óska þess áreiðanlega,
að þeir væru aftur orðnir leik-
menn, og ég vona að ég verði leik-
maður sem lengst.
Bezti leikmaður, sem ég hef
leikið með?
— Þer er tvimælalaust Duncan
Edwards. Hann var stórkostlegur
leikmaður (Duncan var einn
þeirra, sem fórst i flugslysinu i
Mflnchen 1958). Mótherji? Þvi er
erfitt að svara. Ungverjinn
Mesoly er bezti miðvörður, sem
ég hef leikið gegn — Seeler var
frábær miðherji, Pele innherji,
Puskas, de Stefanó — nei, þaö er
ómögulegt að gera upp á milli
þeirra. Tom Finney og Stanley
Matthews voru frábærir leik-
menn, en ég heföi viljað leika með
þeim, þegar þeir voru 15 árum
yngri en þegar ég kynntist þeim
sem leikmönnum.
Islenzk lið eða leikmenn?
— Nei, ég hef ekki leikið gegn
Islendingum og aðeins séð eitt
islenzkt lið i sjónvarpi. Það var
þegar Keflavik lék gegn Everton
á Goodison Park i Liverpool. Og
liðið sýndi mikla getu, þegar tekiö
er tillit til fámennis islenzku
þjóðarinnar.
Fyrsta skipti, sem þið komið til
Islands.
— Já, þetta er i fyrsta skipti, en
verður áreiöanlega ekki i það sið-
asta.
Voru ekki vonbrigði hjá leik-
mönnum Manch. Utd. meö sið-
asta leiktimabil?
— Jú, vissulega, en við vorum
lika hissa, þegar við höfðum náð
fimm stiga forskoti i 1. deild. En
liðiö lék þá mjög vel og erfitt aö
geta sér til, hvaö kom siöan fyrir.
Astæðurnar eru eflaust margar.
Kannski háttalag George Best
þegar fór að halla undan fæti?
— Ef til vill spilaði það eitthvað
inn i. George er ekki liðmaður
,,team-man”, i þess orðs beztu
merkingu, en það hefur enginn
leikmaður á Englandi jafn mikla
hæfileika. Það getur verið stór-
kostlegt að leika með honum,
þegar hann er i rétta skapinu —
en vandamál liðsins er vandamál
framkvæmdastjórans, ekki mitt.
Og i dag verður þessi við-
kunnanlegi knattspyrnumaður á
Laugardalsvelli og afhendir
framtiðarmönnum islenzkrar
knattspyrnu verðlaun i Ford-
keppninni — keppni, sem vakið
hefur áhuga margra og eitt er
vist, að spenningurinn verður i
hámarki i dag. A morgun halda
Charlton-hjónin aftur heim til
Englands. hsim.
Þeir keppa til úrslita í Fordkeppninni
úrslitin í dag —
BobbyCharlton kominn
Úrslitin i FORD-keppninni
veröa i Laugardalsvellinum i dag
klukkan fimmtán og þá afhendir
Bobby Charlton verðlaun. Tiu
drengir keppa i hverjum aldurs-
flokki, en þeir eru sex, frá átta til
þrettán ára. — Aðgangur er
ókeypis.
Þessir drengir keppa til úrslita
i Evrópukeppni Ford, og eiga þeir
að mæta, kl. 14.00 laugardaginn
13.mai, á Laugardalsvellinum i
Reykjavik. Allir drengirnir hafi
með sér Ford-peysu, hvitar
buxur, hvita sokka og strigaskó
án takka.
1959.
Guðmundur K. Baldursson, Fram
Sigurður G. Gunnarsson,
Vikingur,
Erling L. Kristmundsson, Fylkir,
Hafsteinn Hafsteinsson, Fram
Hálfdán Þ. Karlsson, U.B.K.
Rafn B. Rafnsson, Fram,
Óskar Sigurðsson, Fram,
Jón K. Sigurðsson, Fram,
Þórir Sigfússon, K.F.K.,
Baldur Guðgeirsson, Þróttur,
Varamenn:
Kristinn Guðmundsson, Fylkir
Siguróur V. Sveinsson, Þróttur.
1960
Björn Björnsson, K.F.K.,
Jónas Ólafsson, Fram,
Guömundur M. Skúlason, Fylkir,
Siguröur B. Asgeirsson, K.R.,
Óskar Reykdal, Selfoss,
Þórarinn Þórhallsson, U.B.K.
Bjarni Ólafsson, U.M.F.K.
Erlingur Hjaltested, Þróttur,
Hjálmar Björgvinsson, Fram,
Agúst Már Jónasson, K.R.,
Varamenn:
Óskar J. Óskarsson, Þróttur
Atli 0. Hilmarsson, U.B.K.
1961
Gunnar P. Þórisson, Grótta
Lúðvik Birgisson, Fram
Sæbjörn Guðmundsson, K.R.,
Aðalsteinn Sigfússon K.R.,
Andrés Pétursson, U.B.K.,
Halldór Lúðviksson, U.B.K.,
Jóhann Grétarsson, U.B.K.
Sigurður Sigurðsson, Vikingur,
Benjamin Arnason, Fylkir
Sigurjón Sigurösson, Fram,
Varamenn:
Hilmar Björgvinsson, K.F.K.
Helgi H. Helgason, Þróttur.
1962.
Bragi Þ. Bragason, Stjarnan,
Gisli F. Bjarnason, K.R.
Siguröur Grétarsson, U.B. K.
Helgi H. Bentsson, U.B.K.,
Ómar Rafnsson, Fram,
Guðmundur 'A. Björnsson,
Þróttur,
Sigurjón Guðjónsson, U.B.K.
Björgvin Magnússon, U.M.F.K.,
Björn Bjartmarz, Vikingur,
Markús örn Þórarinsson, Fylkir,
Varamenn:
Gunnar Schram, K.F.K.,
Valdimar Einarsson, U.M.F.K.
1963
Þorsteinn Gunnarsson, K.R.,
Freyr Hreiðarsson, U.B.K.,
Björn Hjálmarsson, U.B.K.,
Magnús Þór Asmundsson, Valur
Karl Hjálmarsson, Valur,
Jón ólafsson, Grótta,
Jón Kristjánsson, Fram,
Ólafur Hjálmarsson U.B.K.,
Ragnar Jónsson, U.B.K.
Guðmundur E. Ragnarsson,
Þróttur,
Varamenn:
Jóhann Holton, Valur
Gunnar V. Arnason, Fylkir,
1964
Hörður Andrésson, Þróttur,
Jón E. Ragnarsson, F.H.
Þór Sigurösson, Fram,
Þorvaldur Steinsson, Fram
Valur Ragnarsson, Fylkir,
Úlfar Friðriksson, U.B.K.,
Asgeir Þóröarson, K.R.,
Páll Þóröarson, U.B.K.
Kolbeinn Finnsson Fram.
Jón Magnússon U.B.K.
Varamenn:
Gunnar Ingi Laufdal, I.R.
Gunnar Þ. Karlsson, F.H.