Vísir - 24.07.1972, Qupperneq 2
2
Visir. Mánudagur. 24. júli. 1972
mmsm:
Hafið þér orðið fyrir
ókurteisi af völdum
lögregluþjóna?
Guðmundur Bjarnason læknir:
Nei. Ég hef ekkert nema gott af
þeim aö segja.
Axel Olafsson.klæðskeri: Nei. Ég
hef ekki þekkt þá að neinu sliku'
hingað til. Þau litlu kynni sem ég
hef haft af þeim eru ekki nema
góö.
Klisabel Kristjánsdóttir, nemi:
Ja, ekki kannski ég sjálf en ég
veit um marga vini mina sem
hafa kvartað undan þvi að
lögregluþjónar væru óliðlegir og
dónalegir við þá.
Unnur Gunnarsdóltir, nemi: Nei,
ég get ekki sagt það. Þeir hafa
aldrei skipt sér neitt af mér.
Jón Hjartarson, bóndi og bilstj.:
Get varla sagt það. Ég hef ekki
orðið var við að mér væri sýnd
ókurteisi eöa tillitsleysi af
lögreglunni þó ég sé búinn að
keyra bil i 20 ár.
Agúst Agústsson, ródari: Nei, ég
man nú ekki eftir þvi. Það er þó
alla vega ekki alvarlegt. Þó þekki
ég fólk sem kvartar undan þvi að
þeirhafi stundum sýnt ókurteisi,
en það hefur ekki bitnað á mér.
Þetta er eins og Mozart
— segir argentíski snillingurinn Najdorf um skóklist áskorandans
t bakkabúöinui á Loftleiða-
hótelinu aö drekka te meö Chest-
er Fox Og Isador Turover og
klukkan er rúmlega þrjú á sunnu-
degi. Fox er óvenju daufur i
dáikinn og hefur litla trú á áfram-
haldandi kvikmyndun einvigis-
ins, Turover reynir að telja i hann
kjark, segir að þetta eigi eftir að
lagast og hann er svo mælskur, að
þaö sýöur og bullar á honum og
fyrr en varir er hann horfinn frá
skákinni og fsrínn aö útskýra
Gyöingatrú fyrir ökkur 2f mikilli
iþrótt og kunnáttu. Hanií yirðist
kunna skil á ýmsu karlinn sá og
biöur mig fyrir alla muni aö kalla
sig ekkimúltimilla. þvi þaö kunni
aö draga dilk á eftir sér. Guö-
mundur Þórarinsson og Fred
Cramcr eru á haröaspani i and-
dyrinu og það leynir sér ekki á
göngulaginu, að einhver þýð-
ingarmikil fundarhöld eru á döf-
inni.
Sérðu mamma,
þarna er Spasskí!
Klukkan er hálf fimm og
heimsmeistarinn á rölti fyrir
framan hótel Esju á leiöinni inn i
Höll. Hann er ekkert að flýta sér,
litur i búðarglugga og ekki að sjá
að hann kviði neinu. Litil telpa að
spásséra með mömmu sinni kall-
ar upp: „Sérðu mamma, þarna er
Spasski” Mamman sussar á
ibarnið sitt og segir: „Hafðu ekki
svona hátt barn " ' Og Spasski er
löngu horfinn inn i Höllina, þegar
Najdorf
franskan blaðaljósmyndara ber
að garði spyrjandi á bjagaðri
ensku, hvort heimsmeistarinn sé
kominn og þegar honum er svar-
aö rekur hann upp skaðræöisóp,
rétt eins og konan hans hafi geng-
ið fyrir bil.
Fischerá seinni skipunum eins-
og vant er og Sæmundur Pálsson,
lögreglumaöur,lóösarhonum inn i
heilagleikann. Klukkan hefur
gengið i átta minútur, þegar
áskorandinn leikur fyrsta leikinn.
Tartakovervörn segja spek-
ingarnir og við sem stytzt erum
kóilinir reynum að vera gáfulegir
á svipinn og segjum, að staðan sé
afsakplega flókin og erfið.
t blaðamannaherberginu á
fyrstu hæð hefur andrúmsloftið
tekið stakkaskiptum, þvi þar er
kominn Najdorf frá Argentinu og
gneistaflugið er svo mikið frá
honum, að það er eipsog maður sé
staddur i járnsmiðju þar sem
verið er að hamra glóandi járn.
Það er óneitanlega skemmtilegt
að sjá þá i hóp saman gömlu
kappana: Horovitsj, Enevoldsen
og Najdorf og ekki skemmir það
samkunduna, þegar Ingi R. bæt-
ist i hópinn og ég heyri ekki betur
en margar tungur séu talaðar og
allir skilji alla. Það er annars
merkilegt rannsóknarefni, hve
miklir málagarpar skákmenn
eru, ég hef til að mynda heyrt að
Golombek sá enski tali ein sex
eða sjö tungumál.
Geller eins og
barómeter.
1 austurhorni anddyris Hallar-
innar fyrir framan minjagripa-
verzlunina sitja rússnesku kapp-
arnir og fylgjast með gangi mála.
Þegar Geller situr með kross-
lagða handleggi og bros á vör, þá
er allt i lagi uppi á senunni hjá
Spasski, en er hann fer að ganga
um gólf og tekur niður brösið þá
hallar undan fæti hjá heims-
meistaranum og ef hann fer út i
RoverRangerinn og sezt undir
stýri áður en skákinni lýkur, þá er
glötunin á næst leyti. Krogius
breytir aldrei um svip enda er
hann sálfræðingur og ég er illa
svikinn, ef hann kann ekki eitt-
hvað fyrir sér i póker. Nei er
bjartur yfirlitum með iþrótta-
mannlegar hreyfingar og engu
móti hægtaðsjá á honum hvernig
Ahuginn skin úr augum Lombardys og Horovits
Geller með krosslagðar hendur
leikar standa hverju sinni. Það er
bara Gelíer, sem er einsog baró
meter: sólskin og bliða þegar
hann situr, hraglandi og élja-
gangur, þegar hann gengur um
gólf og hávaðarok með stórhrið
og látum þegar hann hverfur út i
bil.
í bakkabúðinni
á loftinu.
1 bakkabúðinni á loftinu er
hávaði og fjör og kaupskapur i
bezta gengi. Það er meiri
ósköpin, hvað fók getur i sig látið
og troðið sig út af mat og drykk.
Ég hef vist gleymt að gefa skýr-
ingu á orðinu bakkabúð en hann
Halldór Dungal kenndi mér það
og sagði mér að nafni hans i
Gljúfrasteini notaði það i stað
útlenda orðsins kafeteria. Næmur
á orð og orðatiltæki Dungal karl-
inn. Ung stúlka i "erhúnerhún-
ekkikjóli” kemur til min og spyr
með grátstafinn i kverkunum:
,,Er hann að tapa aftur?” Hannes
Pétursson skáld gengur um gólf
og hugsar, hann er vist einn af
þeim, sem er lengra kominn i
skákinni, þvi hann er einn af höf-
undum Skákblaðsins einsog Helgi
Sæm.
Honum vill
upp í skipið.
Geller er horfinn úr anddyrinu
og ógæfan blasir við heim.s-
meistaranum, áskorandinn
stendur yfir honum með reidda
exina. Endalokin blasa við.
Brokklyndrengurinn með sigur-
bros á vör. Klukkan á eftir tutt-
ugu minútur i tiu þegar þeir
standa upp og enn verður heims-
meistarinn að bita i súra eplið.
Honum vill upp i skipið Bobby
karlinum. Á stéttinni fyrir fram-
an Höllina stendur Najdorf með
flasksandi hár i ljósu fötunum og
rauðavestinu og hann kallar i mig
segjandi: ,,Ertu ekki á bil elsku
vinur. Viltu vera svo vænn að aka
mér og bezta manni i heimi
ásamt konunni hans heim á
hótelið okkar?” Bezti maður i
hiemi er Horovits og þau þrjú
paufast upp i bilinn hjá mér.
,,Þetta varMozart, ekta Mózart
ekki Beethoven eða Bach heldur
tær og einfaldur Mozart.” segir
Najdorf um skáklist áskorand-
ans, þegar við ökum i áttina til
Loftleiðahótelsins og hann spyr
mig spjörunum úr um land og
landsmenn: ,,Er það satt að allir
eigi ibúðirnar sinar hér á
íslandi?" ,,Er það fiskur og fisk-
iðnaður, sem stendur undir þjóð-
arbúinu? Hvað hefur lögreglu-
þjónn i kaup? Er kalt hérna á
veturna? Hvað kostar þriggja
herbergja ibúð? Og þegar þau
fara úr bilnum við Loftleiða-
hótelið segir Argentinumaðurinn
á sinni skemmtilegu suður
amerisku ensku um leið og hann
þakkar fyrir sig: „Furðufólk
þessir Islendingar.” E.
LESENDUR
JlHAFA
/ÁWi ORÐIÐ
Hve langt á
að ganga...
J.J. skrifar:
„Hvernig er það? — Vill ekki
Fischer bara fá sundlaug Loft-
leiðahótelsins upp i herbergi til
sin? A ekki að gera það fyrir
hann?
Eftir að hafa lesið þessar
siðustu kröfur þessa pilts ofbýður
manni alveg heimtufrekjan og
um leið virðingarleysiö fyrir
öllum öðrum, sem i kringum hann
eru. Á meðan heimsmeistarinn
býöst til þess að greiða úr sinni
buddu þegnar veitingar i flug-
vélinni á leiðinni hingað, hvað þá
annaö, þá heimtar þessi, að
hoaum sé rétt allt upp i hend-
urnar.
Hve langt á að ganga i þvi að
láta undan þessu? Og hver
borgar alla þá vitleysu, sem þessi
drengur kann að láta sér detta i
hug að heimta?
Er ekki kominn timi til að
piltinum veröi kennt eitthvað i
alvöru lifsins? Láta hann vinna
fyrir sér t.d.?
— Við svona gutta hefði verið
sagt i minu ungdæmi. að réttast
væri að senda hann á togara.
Hann mundi hafa gott af þvi”.
Athugið
umferðarljósin!
„Ég var að keyra suður
Háaleitisbrautina i gærrríorgun
og þegar ég kom að gatnamótum
Háaleitisbrautar og Miklubraut-
ar þar sem dauðaslysið varð um
daginn var bæði rautt og grænt
ljós á götuvitunum, Bilstjórinn
sem var á undan mér tók bara
eftir grænu ljósunum og keyrði
áfram og það munaði minnstu aö
helvita mikill trukkur og umferð-
in, sem kom á eftir honum, lenti á
þessum litla bil.
Bilstjórinn á litla bilnum varð
að vonum alveg sleginn út af lag-
inu, þegar hann sá hvað hafði
munað mjóu.
Nokkru seinna var allt i lagi
með ljósin aftur. En hjá mér hafa
vaknað ýmar spurningar eins og
t.d. þessi. Gæti hið sama hafa
komið fyrir manninn á Keflavik-
urflugvelli um daginn og umferð-
arljós, sem fóru úr lagi verið or-
sök á þessu dauðaslysi? Ég hef
lika tekið eftir þvi á gatnamótun-
um, sem oft hafa orðið slys á,að
grænt ljós hefur verið á báðum
götuljósunum i einu.
Mér finnst að athuga ætti þessa
„klikkun* i götuljosunum fyrr en
siöar.”
Gunnar ólafsson, Stóragerði
HRINGIÐ í
síma86611