Vísir - 24.07.1972, Qupperneq 4
4
FJÖLDINN ALLUR Á NAGLADtKKJUM
UM HÁSUMARIÐ!
Það eru ekki bara heims-
meistarinn Spasský, og svo
Fischer, sem aka hér um
götur borgarinnar á nagl-
reknum snjóhjólbörðum í
miðjum júlí. — Þrjú
komma fimm prósent ann-
arra ökumanna gera það
líka.
Umferðardeild gatnamála-
stjóra Reykjavikur hefur
i vor og í surpar gert könnun
á helztu bilastæðum borgarinnar,
hve mikil brögð væru að þvi, að
menn ækju um göturnar á þess-
um tima árs á nagladekkjum.
1. mai leiddi athugunin i ljós, að
40% bilanna voru þá ennþá á
negldum dekkjum. — Hálfum
mánuöi seinna voru 13% enn á
nagladekkjum. — 1. júni hafði
þeim fækkað til muna og voru 8%
á gaddadekkjum. — t miöjumjúni
leiddi könnunin i ljós, að 5% voru
þá á negldum hjólbörðum. — Og
núna um siðustu mánaðamót
voru það 3,5% og lausl. athugun
hefursýnt, að svipaður fjöld mun
vera ennþá akandi á þessum
vetrar- og snjóútbúnaði.
Nokkur ár eru siðan menn fóru
að gera sér ljósar skemmdirnar,
sem nagladekk valda á akbraut-
um. Tjaran, sem veldur bileig-
endum höfuðverk, þegar þeir þvo
bila sina, er asfaltagnir, sem
naglarnir tæta upp. t þurru og
björtu veðri má sjá förin eftir
naglana i yfirborði akbrautanna
— og greinilegt slit á gatnamótum
og i beygjum. Hvitu asfaltrend-
urnar, sem merkja göturnar og
akreinarnar eiga að endast i 2 ár
en þurrkast út á nokkrum vikum.
Vegna naglanna mestmegnis.
Tækniháskólinn i Ziírich hefur
UDolvst. að slitið á malbikuðum
akbrautum þar sé 0,1-0,8 mm
fyrir hverja 1000 bila á sólarhring
yfir timabilið 15. okt. til 31. april,
en það er eini timinn, sem leyfi-
legt er að nota neglda hjólbarða
þar. — I Miinchen mældist slit á
malbikaðri akbraut 7-10 mm eftir
22000 bila á sólarhring fyrir tima-
bilið 10. nóv. til 10. marz (en það
er timinn, sem nota má nagla-
dekk þar).
Til samanburðar má geta þess,
að þar sem umferðin er mest um
Miklubrautina fara um 8500 bilar
á sólarhring, en samkvæmt
reynslu Ziirich-manna mundi það
þýða 0,85 til 6,4 mm slit yfir vet-
urinn. — Einu mælingarnar, sem
gerðar hafa verið hérlendis yfir
þann tima, sem nagladekk eru
mest i notkun, sýndu 8 mm slit á
Hringbrautinni eftir veturinn.
Norðurlöndin hafa öll takmark-
að notkun nagladekkja af þessum
sökum. T.d. i Danmörku er aðeins
leyfilegt að nota nagladekk frá 1.
okttil 30. april. t nokkrum fylkj-
um Bandarikjanna (og eins i
nokkrum sýslum i Kanada) er
notkun nagladekkja ALGER-
LEGA bönnuð.
En tsland hefur enn ekki slegizt
i hóp þeirra, sem takmarka notk-
un nagladekkja,
Borgarráð tók til meðíerðar i
miðjum mai s.l. bréf frá gatna-
málastjóra, þar sem lagt var til
aö banna nagladekk yfir
hásumarið. Miöað var við, að
nagladekk væru aðeins leyfileg á
timabilinu frá 15. sept. að hausti
til 1. mai að vori.
Borgarráð samþykkti að beina
þvi til lögreglustjóra, að sem
fyrst yrði sett reglugerðar-
ákvæði.sem bannaði neglda hjól-
baröa annan tima árs. — GP
Vtsir. Mánudagur. 24. júli. 1972
RGUN ÚTLÖND
„Allir
heim
fyrir
kosn-
ingor"
Singer saumavélin
sem gerir saumaskapinn aö leik
^^einfaldar stillingar (sem enginn þarf að hræðast), eina saumavélin á markaðinum
með sjálfvirka spólun, glært spóluhús, sem sýnir hvað eftir er af tvinna á spólunni,
sjálfvirkur hnappagatasaumur, 2 gerðir, hallandi nál, teygjusaumur fyrir
nýtízku teygjuefni, m.a. „overlock" og afturstingur og fjöldi annarra hluta gera Singer sauma-
vélina að beztu hjálp sem þér getið fengið við saumana.
Þér getið valið um 6 gerðir frá kr. 9.872,00 til kr. 25.043,00.
SÖLU- OG SÝNINGARSTAÐIR:
Liverpool, Laugavegi 18A, Domus, Laugavegi 91,
Gefjun, Austurstræti, Dráttarvélar, Hafnarstræti 23,
Véladeild SlS, Ármúla 3 og kaupfélögin um land allt.
SAMBAND iSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
$ Véladeild
ARMULA 3 REYKJAVÍK, SÍMI 38900
Tökum gamlar vélar sem greiðslu upp í nýjar
Thomas Eagleton vara-
forsetaefni demókrata spá-
ir því, að allir bandarískir
landhermenn verði farnir
frá Víetnam fyrir kosn-
ingarnar í Bandaríkjunum
i nóvember.
,,Ég hef þessa tilfinningu,” seg-
ir hann. „Ég held, að Nixon hafi
þegar ákveðið þetta.”
Hann telur ákvörðun forsetans
„standa i beinu sambandi við
ferðir hans til Kina og Sovétrikj-
anna”.
Þótt þetta yrði gert til að efla
fylgi Nixons meðal kjósenda,
þýddi það ekki, að striðið væri bú-
ið, segir Eagleton.
Hann kvaðst bjarts'ýnn um, aö
demókratar fengju „mestan
liluta fylgis vérkamanna”, þótt
heildarverkalýðssamtökin, AFL-
CIO hafi ákveðið að vera hlut-
laus.
Nixon hefði ákveðið að tilkynna
strax, að Spiro Agnew yrði áfram
varaforseti hans, vegna gagnrýni
á Agnew frá ýmsum repúblikön-
um, svo sem Javits þingmanni
New York.
Margir
fjall-
göngu-
menn
farast
Fjórir fallgöngumenn
fórust um helgina i
Grisons-Ölpum.
Tveir Vestur-Þjóðverjar
hröpuðu og biðu bana,
og hinn þriðji slasaðist
þegar þeir reyndu að
klifa 3.912 metra háan
Piz Palue tind á sunnu-
dag. Sama dag biðu
tveir svissneskir fjall-
göngumenn bana. Þeir
misstu takið og hröpuðu
á leiðinni niður Toedi-
fjall sem er 3.614 metra
hátt.