Vísir - 24.07.1972, Síða 12

Vísir - 24.07.1972, Síða 12
Sigurmarkið fyrir leikslok 4 mínútum Skemmtilegur og jafn leikur á Skaga á laugardag Hörkuskemmtilegum og jöfnum leik Akurnes- inga og KRinga é laugar- daginn uppi á Skaga lauk meö sigri heimamanna, sem skoruðu þrjú mörk gegn tveimur mörkum KR. Staöan i hálfleik var 2-1 fyrir Akranes, KR jafnaöi þegar þriöjungur var af siðari hálfleik, en Akurnesingarnir skoruöu sigurmarkiö aöeins fjór- um minútum fyrir leiks- lok. KR hóf leikinn meft stórsókn, og sótti gegn all snörpum vindi. Kftir skot Sigurðar Indriðason- ar i þverslá á fjórðu minútu duldist það engum að KRingar voru til alls liklegir i þessum leik, enda urðu þeir fyrri til að skora. A 13. minútu tókst Birni Péturssyni sem oftar að leika upp að endalinu vallarhelmings Akurnesinga, þar sem hann gaf fyrir markið frá hægri. Þar var Alli Þór Héðinsson fyrir, stökk upp og skallaði boltann af öryggi i hornið vinstra megin. Eftir þetta áfall Akurnesinga var sem þeir tækju að beita sér af meiri ákveðni, og unnu smám saman aukin viild á vellinum, og er frá leið lá sóknarþunginn á KR-markið. Eyleifur, Teitur og Karl Þórðarson, stórkostlegt efni, sem tekið hefur stöðu Matthiasar Ilallgrimssonar á hægri kantinum, byggðu vel upp, og á 22. minútu kom jöfn- unarmarkið frá Karli. Á öllu áttu menn von, öðru en þvi að mark yrði á þessari stundu. Karl fékk boltann langt úti á velli, svona 10-20 metra fyrir utan vitateig, og skaut föstu og háu skoti að KR-markinu. Magnús markvörður Guð- mundsson var alls ekki illa stað- settur m iðað við eðlilegar aðstæður, en samt sem áður flaug boltinn yfir hendur hans, sleikti neðanverða þverslána og inn. Skagamenn tóku siðan for- ystuna á 35. minútu þegar Teit- ur Þórðarson einlék inn i vita- teig KR, en sendi siðan boltann út til vinstri, þar sem hinn há- vaxni Jón Alfreðsson hafði l'undið smugu i varnarvegg Sig- mundar Sigurðssonar og Þórðar Jónssonar og viðstöðulaust vinstrafótarskot Jóns lenti óverjandi i hægra horninu. Hinir ungu og spræku KRing- ar, með þá eldri i liðinu sem nokkurs konar akkeri i stórsjó knattsprynunnar, eru sannar- lega lið, sem vert verður að l'ylgjast með. Þeir áttu siður en svo minna i þessum leik við arf- taka merkisins i knattspyrnu- bænum, og eftir 17 minútna leik i siðari hálfleik jöfnuðu þeir enn metin, 2-2. Þetta mark var sterkan keim af þvi fyrra, og engu likara en þeir Björn og Atli hefðu æft þetta sérstaklega fyrir leikinn. 1 þetta sinn tók Björn hornspyrnu frá hægri, og hitti beint i höfuð á Atla, sem skallaði, eins og i fyrra skiptið, rakleiöis i mark. Um miðbik siðari hálfleiks ógnuðu Akurnesingarnir mjög, en sterk vörn KR stöðvaði allar sóknarlotur áður en i óefni var komið. Siðan, er á leið, snerist dæmið við, og KR tók að þrýsta á markiö hjá mótherjunum. Þó tókst hinum skemmtilega miðherja Akurnesinga tvivegis Akureyringar „sölluðu" ísfirsku gestina niður — en „móttökurnar" ó Húsavik voru öllu skórri Akureyringar voru i sannköll- uðu ..banastuði” i 2. dcildarleikn- uin gcgn isfirðingum um lielgina, þvi eftir afskaplega rólegan fyrri liálfleik lengst af var eins og ein- liver diilinii kraftur leystist úr læðingi i siðari hálfleiknum, og fimm niiirk fylgdu. Eyjólfur Ágústsson skoraði fyrsta markið upp úr aukaspyrnu i fyrri hálfleik og rétt undir lok hálfleiksins bætti Magnús Jóna- tansson öðru við. En seinni hálf- leikurinn var einstefna á isa- fjarðarmarkið. Magnús byrjaði markasúpuna, tók boltann við- stiiðulaust á lofti og skorar. Þá bætti Kári 4. markinu við þegar hann slapp einn innfyrir með boltann. Sigurbjörn skoraði svo 5:0 eftir mistök markmanns, og 6:0 skor- aði Kári svo með skoti af 20 metra færi, en markvörðurinn missir gegnum klolið. Lokamarkið átti svo Sigurbjiirn, 7:0 eftir þvögu við isafjarðarmarkið. Heldur lélegur leikur, og yfirburðirnir allt of miklir til að leikurinn gæti nokkru sinni orðið skemmtilegur. Þarmeð heldur Akureyri for- ystu sinni i deildinni, en FH ógnar stöðugt. Leikur þessara liða i Hafnarfirði 12. ágúst ætti þvi að skýra linurnar talsvert. Á Húsavik léku tsfirðingarnir i sömu ferð, og þar voru ,,mót- tökurnar” öllu skárri, þar urðu úrslit þau að Völsungar sigruðu með 4:2. en leikurinn var allur jafnari enda þótt heimaliðið ynni þarna réttlátan sigur. þrátt fyrir fádæma lélega vörn. Þar skoraði Hermann Jónasson 3 markanna fyrir Völsunga, en Hreinn Elliða- son eitt. Mistðk íboðun dómara, línuvarða og liða: Takfi leikmenn mœta of seint — nehoði að dœma Þegar Reynismenn úr Sand- gerði mættu til leiks gegn Stjörnunni i Garðarhreppi á föstudagskvöldið sagðist Þor- varður dóniari Björnsson ekki mundu dæma. þeir hefðu mætt of seint. Var annar linuvarð- anna þó ekki mættur. Töldu Reynismenn þá hefð komna á i dcildinni að leikir hæfust kl. >0.30 en ekki 20 eins og i leikskrá stendur. Stjörnumenn voru tilbúnir að leika, svo og linuverðir, allir nema dómarinn. Kom i ljós sið- ar að um mistök hafði verið að ræða hjá boðunarmanni dómara og gaf hann leikmönnum Reynis yfirlýsingu um að mistökum sinum væri um að kenna. og yrði nýr leikur háður. 1 3. deildinni gerði Viðir jafn- tefli við Fylki úr Árbæjarhverfi. 1:1. Átti Fylkir þó mun meira i leiknum og hefði átt sigur skilið. Úti á landi urðu helztu úrslit i 3. deildinni þau um helgina að Þróttur á Neskaupstað vann stóran sigur i leiknum við Hug- in. 7:1 og liklega hefur þar ver- ið sett tslandsmet i skotfimi. talin voru ein 42 skot á mark Hugins. en 7 lentu á réttum stað. Leiðir Þróttur þvi örugglega i Austf jarðariðlinum. Hinsvegar urðu sviptingar i Noröurlandsriðli, Siglfirðingar gerðu jafntefli við Magna frá Grenivik, en Skagfirðingar voru heppnir i leiknum við Olafsfirð- ingana, unnu með 4:2 i jöfnum leik og spennandi. eftir að Ólafsfirðingar skoruðu tvö fyrstu mörkin. Stendur keppnin þvi milli Skagfirðinganna og Siglfirðinga i riðlinum. að rata leiðina að KRmarkinu. Á 40. minútu hafnaði þrumuskot hans af löngu færi i þverslá, og yfir, og einni minútu siðar fékk hann boltann óvænt rétt utan vitateigs KR, með aðeins einn varnarmann auk markvarðar- ins milli þeirra Eyleifs Haf- steinssonar og marksins. Þeir kunnu lika svo sannarlega að notfæra sér þetta óvænta tæki- færi. Teitur brunaði upp völlinn með boltann, þar til varnar- maðurinn sneri sér að honum, en gaf þá boltann yfir til Eyleifs, sem ekki linnti sprettinum fyrr en boltinn lá i markinu að baki Magnúsar markvarðar sem gerði góða tilraun til að verja. Akurnesingarnir geta verið ánægðir með þennan sigur, þvi hiö ört vaxandi lið KR veitti þeim mjög sterka mótspyrnu. Akurnesingarnir geta ekki siður verið ánægðir með efniviðinn til að hlaup i skörðin, þegar eitt- hvað amar að hinum „föstu” leikmönnum liðsins, enda er það varla sársaukalaust neinu liði, þegar leikmenn á borð við Har- ald Sturlaugsson, Matthias Hallgrimsson og Björn Lárus- son haltra utan vallar og horfa á gþ Þá er því lokið, — rétt einu sinni . . . Það var eins og eitthvað vantaöi fyrri dag meistaramótsins i frjálsum iþróttum. — jú, það var Valbjörn Þorláksson. sem menn söknuðu. Hann gat ekki mætt á laugardaginn, en i gær var liann mættur hress og kátur að venju. og heim fór hann sem tvöfaldur islandsmeistari, fyrst vann hann 110 metra grinda- hlaupið á 15.2 i hörkukeppni við Borgþór Magnússon, sem hljóp á 15.3, —- og siðan var það stangarstökkið, auðvitað vann Valbjörn þar einnig, — það var 1S. sinn sem hann varð islands- meistari i greininni, geri aðrir betur. Valbjörn stökk 4.20 metra, en Guðmundur Jó- hannesson 2 metra slétta. Og á myndinni er Valbjörn að lokinni keppninni og engu likara en að liann segi ,,þá er þvi lokið, — rétt einu sinni...”

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.