Vísir - 24.07.1972, Síða 20
Mánudagur. 24. júli. 1972
Rofvirkjastríðið:
Akvörðun
í dag
Stjórn Félags Islenzkra
rafvirkja heldur i dag kl. 6 fund,
þar sem tekin veröur ákvöröun
um svar rafvirkja viö bréfi
Vinnuveitendasambandsins f.h.
Félags löggiitra rafvirkja og
Landsambands isl. rafverktaka,
þar sem mótmælt var samþykkt
Fél isl rafvirkja um aö vinna
ekki aö nýiögnum eöa meiri-
háttar breytingum á lögnum
nema i ákvæöisvinnu. Skorar
Vinnuveitendasambandiö á raf-
virkja aö draga samþykktina til
baka, fyrir kl. S á morgun, svo aö
komizt veröi hjá málaferlum og
frekari óþægindum.
þs.
Mikill ágreiningur meðal
bœnda vegna stœkkunar Sögu
— Afgreiðsla Stéttarsambandsins lögleysa, segir Hermóður í Árnesi
,,t fyrsta lagi þaö, aö sam-
kvæmt þeirri spá um fjölda
ferðamanna, sem áætlunin er
sögö byggjast á,er ekki þörf á
nýju hóteli fyrr en á árinu 1976
og þaö er aigjöriega útilokaö aö
reka hótei eins og Sögu meö
sumargestum eingöngu.”
...rökstuöningur fyrir ósk um
stækkun hlýtur miklu fremur aö
byggjast á þvi aö stjórn fyrir-
tækisins æskir þess aö halda
forystusæti sinu I ferðamálum
tslendinga, fremur en aö um
einhvern hagnaö sé aö ræöa i
náinni framtið.”
Svo segir m.a. i greinargerö
Þorvarðs Eliassonar viöskipta-
fræöings um fyrirhugaða stækk-
un á Hótel Sögu , en þessi
greinargerð er tekin saman
samkvæmt beiðni Hermóðs
Guðmundssonar i Arnesi og
fleiri bænda sem hafa lýst sig
andviga þvi að i stækkun hótels-
ins verði ráðizt. 1 umsögn Þor-
varðs kemur fram mjög hörð
gagnrýni á þá fjárhagsáætlun
sem Hagvangur h.f. hefur gert
um stökkun Sögu.
Segir Þorvarður aö reksturs-
halli Sögu vegna stækkunarinn-
ar, ef framkvæmd verður muni
nema 69 milljónum króna til
ársins 1980, auk 36 milljóna
vaxtataps. Þá telur hann ólik-
legt að 246 milljón króna innlent
lán fáist til framkvæmdanna og
ráðherra hafi vart heimild til
rikisábyrgðar nema með sam-
þykki alþingis.
Þá fengu Hermóður og félag-
ar lögfræðing til að svara þeirri
spurningu, hvort Stéttarsam-
bandinu eða aðalfundi þess sé
heimilt samkvæmt lögum að
taka ákvörðun um verulega
stækkun Sögu. Hann kemst aö
þeirri niðurstöðu að svo sé ekki.
„12. gr. samþykkta Stéttarsam-
bandsins eins og hún er orðuö nú
sem stendur, finnst engin stoð
undir vald Stéttarsambandsins
til að taka ákvaröanir um fjár-
festingu i hótelrekstri i Reykja-
vik” segir i álitsgerð lög-
fræðingsins. Ennfremur er tekið
fram að þaö megi leiða rök að
þvi að stórfelldur atvinnurekst-
ur Stéttarsambands bænda i
Reykjavik gangi i berhögg við
þau stefnumiö sem sett eru i
samþykktum Sambandsins.
„Það hefur farið fram látlaus
áróður af hálfu formanns
Stéttarsambandsins fyrir þessu
hótelmáli og náði hann hámarki
sinu á siðasta fundi þegar hann
skipaði eintóma stuðningsmenn
sina i nefnd sem fékk hús-
byggingamálið til meðferðar.”
sagði Hermóður i samtali við
Visi. „Við litum á afgreiðslu
Stéttarsambandsins sem ólög
og markleysu” sagði Hermóður
ennfremur. Hótelstækkunin er
orðin mikið hitamál meðal
bænda og hafa nokkrir bændur
hótaðaö hafin veröi barátta fyr-
ir þvi að öll starfsemi Búnaðar-
félagsins veröi flutt frá Reykja-
vik ef ráðizt verður i stækkun
Sögu.
—SG
Fullmönnuð róta
rakst ó brúarhandrið
— þrennt á slysavarðstofuna
Fullmönnuð 21 manns rúta
rakst á handrið brúarinnar yfir
Skillandsá i Laugardal i gær-
kvöldi um kl. 8.
Þrennt slasaðist og var flutt til
Reykjavikur á slysavarðstofuna
en þó ekki talið alvarlega meitt.
En mikil spjöll uröu á rútunni,-
sem var tiltölulega ný og hafði
aöeins veriö ekið 7000 km. — Talið
er aö bilun I stýri hafi valdið
árekstrinum.
Griðarlegur f^öldi fólks var að
Laugarvatni um helgina, og var
þarna mesta umferö, sem Laug-
vetningar hafa séð til þessa {
sumar. En önnur óhcpp urðu
engin. -GP.
Enginn fulltrúi til Haag
- þegar lögbannskrafan verður tekin fyrir
„Við munum ekki senda neina
fulltrúa til Haag þegar alþjóða-
dómstóllinn tekur fyrir lögbanns-
kröfu Breta” sagði Pétur Thor-
steinsson ráðuneytisstjóri i sam-
tali við Visi I morgun.
Hann kvaðst búast við að dóm-
stóllinn afgreiddi málið á
skömmum tíma, en þar sem við
viðurkenndum ekki rétt hans til
að dæma i málinu yrðu ekki frek-
ari viðbrögð af okkar hálfu gagn-
vart lögbannskröfunni.
—SG
Þjónar fó kauptryggingu
— og gestir matinn sinn ófram
Samningar milli þjóna og veit-
ingamanna voru undirritaðir með
fyrirvara á laugardagskvöldið.
Þeir verða bornir undir félags-
fundi i dag og ekki var hægt að fá
innihald þeirra uppgefið fyrr en
þeim fundum er iokið.
Þó hefur Visir frétt eftir
áreiðanlegum heimildum að
þjónar hafi náð fram kauptrygg-
ingu, en að vfsu ekki jafn hárri og
farið var fram á. Eftir þeim upp-
lýsingum sem blaðið hefur aflað
sér mun kauptryggingin vera úm
29.000 krónur á mánuöi.
—SG
BROSIN STIRÐNA
Þessa mynd tók UPI-fréttastofan og sendi út nú um helgina, — Rúss-
ar eru þarna að stúdera fjórðu skák þeirra Fischers og Spasskf í skák-
klúbbi i Moskvu og bros leikur um varir félaganna, þegar Yuri Katkov
útskýrir stöðuna. Hætt er við að brosin rússnesku fari nú aö stirðna Htið
eitt...
Grunaður um kyn-
mök við 7 ára telpu
Slökkviliðsmenn reyndu froðu-
tækið á brunann f öskjugerð
Sölumiðstöövarinnar i morgun
með góðum árangri.
Skemmdir af
bruna í
umbúða-
verksmiðju SH
Edlur kom upp í umbúðamið-
stöð við Kleppsveg I morgun.
Tveir starfsmenn urðu varir viö
að kviknað hafði i vaxútbúnaðar
vél ki. 8.30 I morgun og hlupu
þegar til og tóku fram slökkvitæki
staðarins, sem tæmdust þó mjög
fljótt. '
Slökkviliðið var þá þegar kallað
á vettvang, ásamt tveim sjúkra-
bflum, sem reyndust þó alls
óþarfir þar sem engin slys urðu á
mönnum og eldur ekki eins mikill
og virzt hafði i upphafi. Slökkvi-
starfi var lokið á aðeins 20
minútum.
Ekki er hægt að segja um hve
miklar skemmdir hafa orðið á
vaxútbúnaðarvélinni, en starfs-
menn töldu hana nær ónýta. Hún
hefur verið notuð til þess að úða
og festa vax á pappa og er venju-
legur hiti við notkun hennar um
132 gráður, en hún ofhitnaði og
þess vegna kom upp eldur..
Um aðrar skemmdir hússins er
ekki svo gott að segja ., en
rúður sprungu, og einhverjar
skemmdir urðu á þaki.
-EA.
—tók myndir af eiginkonunni í kynmökum með öðrum mönnum
Filmur með myndum af konu i
margvislegum kynlifsstellingum
með hinum og þessum karlmönn-
um fundust heima hjá manni i
Hafnarfirði, sem grunaöur var
um kynmök við sjö ára tclpu.
Myndirnarhaföi hann allar tek-
iöaf konu sinni með öðrum mönn-
um.
Maðurinn, og annar til, voru úr-
skurðaðir i allt að 40 daga gæzlu-
varðhald, meðan frekari rann-
sókn fer fram á athæfi þeirra
gagnvart 7 ára dóttur konunnar.
Telpan litla hafði skýrt svo frá, að
þeir hefðu haft við sig ónáttúru-
lega tilburði, og hefur annar
þeirra játað það.
Auk filmanna fúndust kynn-
ingarplögg mörg af þvi tagi, þar
sem óskað var eftir kynnum við
annað fólk með tilliti til kynmaka
og nákvæmlega tiltekiö hvaða af-
brigði kynlifs hverjum og einum
væri hugleiknust. Hafði maðurinn
annazt milligöngu i þessum kynn-
um, og konan verið honum til aö-
stoöar við það, en enga hugmynd
hafði hún hinsvegar um tiltæki
hans gagnvart barninu.
Sterkur orðrómur hafði leikið á
þvi i næsta nágrenni vð heimili
þessarar kynningarmiðstöðvar,
aö þar mundi stundaður saur-
lifnaður af þessu tagi, og þótti ná-
grönnum sem börnum þeirra
væri ekki óhætt. Barst þetta til
eyrna barnaverndarnefndar, sem
óskaði rannsóknar lögreglunnar á
þessum aðstæðum.
Leiddi það til húsleitar og yfir-
heyrslu barnsins, sem upplýsti,
hvað þarna var á seyði.
Maðurinn, sem tók myndirnar
af konu sinni með öðrum mönn-
um, hefur áður komizt i tæri við
lögin i Kópavogi, þegar hann fyrir
nokkrum árum auglýsti eftir ljós-
myndafyrirsætum, en var þá
kærður af stúlku, sem svarað
hafði auglýsingunni.
G.P.