Vísir - 01.08.1972, Side 5
Visir Þriðjudagur 1. ágúst 1972
5
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLOND
UMSJON:
HAUKUR HELGASON
IRA-menn
flúnir
Leyniskyttur skutu á
brezka hermenn
nokkrum sinnum í Lond-
onderry i nótt, og i Bel-
fast særðist piltur. Ann-
ars var allt með kyrrum
kjörum, eftir innrás
brezka hersins i hverfi
IIIA i gærmorgun.
Bretar telja, að flestir yfirmenn
öfga arms IRA-hreyfingarinnar
hafi flúið yfir landamærin til
irska lýðveldisins. Óttazt er, að
nú hefjist aftur hermdarverk
skæruliða, sem hafast við i irska
lýðveldinu. en geri árásir i Norð-
ur-lrlandi, eins og gerðist á árun-
um 1956 til 1962.
Yfirmenn öfgafyllri arms IRA-
hreyfingarinnar segjast ekki hafa
staðið að sprengingunni i þorpinu
Claudy i Norður-lrlandi i gær, en
þar biðu sex borgarar bana. Með-
al þeirra sem fórust, voru niu ára
stúlka og 16 ára drengur.
Verkfallið í Bretlandi sverfur að:
Vöruskortur
Hafnaverkfallið í Bret-
landi er farið að segja til
sín í matvælabirgðum. Þótt
verkfallið hefði aðeins
staðið i fimm daga, voru
kaupmenn farnir að vara
við skorti á ávöxtum. Verði
verkfalli haldið áfram,
verða engir bananar til í
verzlunum i lok þessarar
viku og aðrir ávextir verða
gengnir til þurrðar í næstu
viku.
Mikið magn liggur undir
skemmdum i skipum, sem ekki
hafa verið afgreidd. 600 skip biða
i höfnum, meöal annars með mik-
ið af appelsinum, eplum, banön-
um og sitrónum.
Heath ræðir við ráðuneyti sitt i
dag um, hvenær skuli lýsa yfir
neyðarástandi.
Búizt var við slikri yfirlýsingu i
lok vikunnar, ef verkföllum létti
ekki.
Fulltrúar vinnuveitenda i höfn-
um og verkalýðsfélaga héldu fund
i dag i fyrsta sinn, siðan verkfall-
ið hófst.
Þriggja stunda viðræður gáfu
engar frekari vonir um samn-
inga.
Kjötverð hækkar
Dálitið magn af nýjum matvæl-
um var flutt til Bretlands i gær i
fiugvélum. Tómatar komu til eins
flugvallar. og 16 tonn af dönsku
svinafleski komu til annars. Þetta
er þó aðeins litið brot af þvi
magni, sem berst við venjulegar
aðstæður.
Kjötbirgðirnar eru töluverðar,
en lambakjöt frá Nýja Sjálandi
hefur hækkað i verði.
Nixon fengi 56%
56 af hundraði kjósenda
mundu kjósa Nixon, en 37
af hundraði styðja
McGovern, samkvæmt
Galluppkönnun, sem var
birt í gærkvöldi.
Grófust í
skriðum
10—14 verkamenn eru
taldir hafa farizt eftir
skriðuföll á Spáni í gær við
stiflu skammt frá landa-
mærum Portúgals.
Tvö lik hafa fundizt. en ekki var
vitað, hvort þar hefðu verið S eða
12 aðrir. Mennirnir grófust undir
grjóti og mold.
I.itlar vonir eru um að finna
nokkurn þeirra á lifi.
Krýningin.
Kerry Wells krýnd „Ungfrú Alheimur" 1972. „Ungfrú Alheimur
197(1", Marisol Malaret setur kórónuna á höfuð henni.
Kagleton reynir að laglæra toppinn á Mcdovern.
Eagleton víkur
„Fréttir um veikindi hans skyggðu ó kosningamólin"
— 0 'Brien og Muskie nefndir meðal líklegra eftirmanna
McGovern tilkynnti i
nótt að Thomas Eagleton
mundi draga sig i hlé sem
varaforsetaefni flokksins.
Tilkynningin var gefin eftir
þriggja stunda fund hans og
Eagletons. Orsökin var, að sögn
McGoverns, aö upplýsingar um
það, að Eagleton hefði fyrrum
orðið að leita læknis vegna geð-
sjúkleika, „beindu athygli al-
mennings frá kosningamálum”.
McGovern kvaðst vera sann-
færður um, að Eagleton væri við
góða heilsu eftir að hann hefði
rætt við lækna hans og starfað
með honum, siðan flokksþing
depnókrata valdi þá frambjóð-
endur.
Eagleton gaf stutta yfirlýsingu
á eftir ræðu McGoverns og hét að
halda áfram stjórnmálastarfi
þrátt fyrir æsinginn, sem hefði
orðið vegna þessa máls siðustu
sjö daga.
Miðstjórn demókrataflokksins
kýs i dag eftirmann Eagletons i
framboð til varaíorseta. Búizt er
við, að hún fari að fyrirmælum
McGoverns. Deilt er um, hverjir
hafi réttindi til að sitja i mið-
stjórn, eins konar vasaútgáfa af
deilunum, sem urðu um réttindi
fulltrúa á flokksþinginu.
McGovern segist ekki hafa tek-
ið ákvörðun um, hver skuli taka
við af Eagleton.
Thieu forseti Suður-
Vietnam spáir þvi, að
Norður-Vietnamar muni
hefja nýja sókn um-
hverfis bæina Quang Tri
og Ilue, áður en forseta-
kosningar verða i
B a n d a r i k j u n u m i
nóvember.
,,Einhverjar slæmar
afleiðingar"
Eagleton hlaut hrós frá mörg-
um stjórnmálamönnum demó-
krata fyrir að láta „þjóð og flokk
sitja i fyrirrúmi fyrir eigin hags-
munum ’. Demókratar lýstu yfir
von um, að nú gæti kosningabar-
átta miðazt við málefni fremur en
menn.
Fylkisstjóri i Oklahoma, David
Hall, segir, að Eagleton hafi sýnt
„hugrekki”. Leiðtogi demókrata i
öldungadeildinni, Mike Mans-
field, segist vera „hryggur, en
þessa ákvörðun varð að taka”.
Hann kvaðst bera fyllsta traust til
Eagletons.
Formaður demókrata i Miss-
ouri, Delton Houtchens, segist
ekki munu styðja lista demókrata
eftir þessa ákvörðun. Eagleton
hafi hlotið slæma meðferð.
Einn kosningastjóri
McGoverns, Anne Wexler, segist
búast við „einhverjum slæmum
afleiðingum, en þær munu ekki
endast lengi”.
Fréttirnar af Eagleton
skyggðu á deilur um Nixon
„Þetta var einhver átakanleg-
asta ákvörðun, sem ég hef tekið á
ævinni,” sagði McGovern.
„Ég er sannfærður um, að
Eagleton hefur heilsu og geðstyrk
Hann hvatti Bandarikjamenn
óbeint til að halda áfram loftárás-
um á Norður-Vietnam” og sagðb
að „vopnahlé i Norður-Vietnam”
yrði hættulegt fyrir Suður-Viet-
nam.
„Ef við viijum binda enda á
þetta strið, verðum við að halda
áfram að eyðileggja allar her-
stöðvar Norður-Vietnama og
brjóta niður efnahagslegan styrk
þeirra,” sagði Thieu.
járnkarls,' sagði McGovern.
„En það varð mér sifellt ljósar,
að fréttirnar af lyrri sjúkleika
Eagletons hafa ráðið lögum og
lofum i pólitiskum umræðum hér
á landi. Ég hafði vænzt, að úrslit
þessara kosninga yrðu ráðin á
grundvelli verka Nixon-stjórnar-
innarog þeirra breytinga, sem ég
býð upp á.”
Þau nöfn, sem oltast eru nefnd
um liklega eftirmenn Eagletons,
eru Lawrence O’Brien, fyrrum
formaður miðstjórnar flokksins,
og öldungadeildarþingmennirnir
Gaylord Nelson frá Wisconsin,
Frank Church frá Idahoe og Ed-
mund Muskie frá Maine, sem var
einn þeirra sem kepptu við
McGovern um framboðið. Auk
þeirra hefur verið nefndur Kevin
White borgarstjóri i Boston.
Deilurnar um Eagleton spruttu
skömmu eítir að hann hafði sam-
þykkt tilboð McGoverns um að
vera varaforsetaefni flokksins.
Þá skýrði Eagleton frá þvi, að
hann hefði verið i sjúkrahúsi i
þrjú skipti á árabilinu 1960 til 1966
til meðferðar vegna geðsjúkleika,
og meðal annars verið gefið raf-
magns,,sjokk” i meðferðinni.
Tliieu forseti.
„Ný órós í Víetnam
fyrir kosningarnar"