Vísir - 14.08.1972, Síða 12
Líkt og fljúgandi furðuhlutir er danska frystikistan Frigor
tæknilega fullkomin.
Danir vita nefnilega hvernig á að-geyma matvæli. Það er lóðið.
Frigor frystikisturnar eru fáanlegar í sex stærðum á hagstæðu
verði og með greiðsluskilmálum.
Komið og skoðið. Hringið eða skrifið og fáið mynda- og verð-'
lista sendan.
JOAó££a44/*é£a/t A/
RAFTÆKJADEILD • HAFNARSTRÆTI 23 • REYKJAVlK • SlM118395 • SlMNEFNI ICETRACTORS
LEEDS
TAPAÐI ILLA
Óvænt uröu úrslitin að venju i ensku
knattspyrnunni á laugardag, þegar hún
hófst að nýju eftir sumarleyfi leikmanna.
Mest stingur i augun stórtap bikarmeist-
ara Leeds í London gegn Chelsea 4-0.
En tapið er skiljanlegt, þvi Leeds varð
fyrir miklum skakkaföllum fyrir og i
leiknum. Fjórir af aðalmönnum Leeds
gátu ekki tekið þátt i leiknum vegna
meiðsla eða leikbanns (Hunter, Clarke)
og svo meiddist markvörðurinn Harway
og varð að yfirgefa völlinn. Peter
Lorimer, framherjinn skotharði, fór þá i
mark. En ekki var allt búið með þvi —
Mike Jones meiddist og Leeds lék meö 10
leikmönnum mestallan siöari hálfleikinn.
Annars urðu úrslit þessi i leikjum á is-
lenzka getraunaseölinum.
2 Birmingham— Sheff.Utd 1-2
1 Chelsea—Leeds 4-0
2 Leicester—Arsenal 0-1
1 Liverpool—Manch.City 2-0
2 Manch.Utd.—Ipswich 1-2
1 Newcastle—Wolves 2-1
X Norwich—Everton 1-1
X Southampton—Derby 1-1
1 Stoke-Crystal Palace 2-0
1 Tottenham—Coventry 2-1
X WBA—West Ham 0-0
1 Huddersfield-Blackpool 1-0
Tveim leikmönnum var visað út af i leik
Liverpool og Manch. City — Larry Lloyd
og Wyn Davies og alls voru 53 bókaðir
Fátt um fina drœtti í
jafntefli FH og IBA!
— og Akureyringar standa nú bezt að vígi í 2. deild
,,Ekki veröur I. deildin
skemmtilegri næsta sumar
ef annað hvort þessara liöa
bætist i hópinn" varð einum
að oröi, sem horfði á leik
Akureyringa og FH á
laugardaginn. Þessum drep-
leiðinlega leik lauk með
jafntefli 1:1 og verða það að
teljast sanngjörn úrslit þeg-
ar á heildina er litið.
Strax i byrjun varð ljóst að sá
knattspyrnuvöllur sem Hafnfirð-
ingar hafa til afnota er algjörlega
óhæfur nema sem æfingavöllur og
er raunar furðulegt að jafn stór
bær og Hafnarfjörður er orðinn,
skuli ekki búa betur að liöi sinu en
raun ber vitni. bað er vart hægt að
búast við að menn geri einhverjar
rósir, þegar þeir leika á malarvelli
eins og þessum þar sem sandurinn
þyrlast upp við minnstu hreyfingu.
bað var sem sagt fátt um fína
drætti i þessum mikilvæga leik sem
gat skorið úr um hvort liðið kæmist
upp i 1. deiid næsta ár.
Hann einkenndist af langskotum
sitt á hvað og samspil var i lág-
marki hjá báðum liðum.
1 fyrri hálfleik voru Akureyr-
ingar öllu harðari i sókninni og á 12.
minútu óð Kári Arnason upp og
skoraði glæsilegt mark fyrir þá
norðanmenn.
Varnarmenn FH réðu ekki við
hraða Kára og markvörðurinn
hafði engin tök á að verja hnitmið-
að skot. baö færðist fjör i FH-liðið
eftir markið og seinni hluti fyrri
hálfleiks fór að mestu fram á
vallarhelmingi Akureyringa án
þess þó að mark væri skorað. Rétt
fyrir leikhlé áttu Hafnfirðingar
opið færi sem þeir misnotuðu
herfilega. Stóðu þá einir þrir i
framlinunni rétt fyrir framan
Akureyrarmarkið og tókst þeim á
óskiljanlegan hátt að skjóta fram
hjá. Verður það að teljast afrek út-
af fyrir sig en Akureyringar vörp-
uðu öndinni léttar og höföu bæði
stigin áfram.
Strax i byrjun siðari hálfleiks
tókst Hafnfirðingum að ná öðru
stiginu með þvi að jafna. Geta
Akureyringar nagað sig i handar-
bökin út af þvi marki. Hafnfirð-
ingar sóttu stift en vörnin stöðvaði
sóknina og lagði boltann niður, án
þess að taka eftir þvi að FH liðið
hafði alls ekki hætt sókninni og
hirtu þeir tækifærið sem að þeim
var rétt. Vart er eyðandi prent-
svertu til að lýsa leiknum til enda.
bó náðu Akureyringar að skora
annaö mark en það var dæmt af.
Var sá dómur fremurtorskilinnþar
sem ekki var um rangstöðu að ræð
eftir þvi sem bezt varð séð. Talc
dómarinn að markvörður Hafnfiri
inga hefði orðir fyrir áreitni, efti
að hafa borið sig saman við lini
vörð.
Leiknum lauk þvi meö jafntef
1:1 og þvi er enn óvissa um hvor
liðið leikur i 1. deild næsta sumar
Dómari var Einar Hjartarson o
hafði hann nóg að gera við a
stugga áhorfendum frá vellinun
milli þess sem hann fylgdist me
leiknum. Varð til dæmis aö gera hl
meðan að smástrákar fjarlægð
reiðhjól sin sem lágu meðfran
vellinum sem er alls ekki boölegu
sem keppnisvöllur eins og áður hef
ur komið fram. Skotinn Dunca
sem þjálfar Hafnfirðinga var
hress yfir úrslitunum. „Við áttun
80% i leiknum. Við áttum auðvita
að vinna” sagði hann viö blaðí
mann Visis um leið og hann fórnað
höndum. En Akureyringar voru
öðru máli og töldu sig hafa átt að f;
bæði stigin þar sem annað marl
þeirra hefði verið dæmt af á röng
um forsendum. — SG
— Ja, nú munaöi litlu, hugsaði inarkvöröur FH þegar boltinn
sleikti þverslána.