Vísir


Vísir - 14.08.1972, Qupperneq 17

Vísir - 14.08.1972, Qupperneq 17
Visir Mánudagur 14. ágúst 1972 17 <í0<S<S<S<S<S<a<30<S<S*c»<5<S<S<S<S<S<X<»<5<S<5<S<S^3<S<2r<S<S<S Umsjón: Eddo Andrésdóttir hann setti heimsmet í kappakstri Þeir láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna þeir sem eru fatlaðir á einhvern hátt, og þessi maður sem við sjáum hér á meðfylgjandi mynd, setti olympíumet í svo- kölluðum ,,hjólastólakappakstri". Hann heitir Jan Erik Steinberg og er frá Skiptvedt í Noregi. Hann ók 60 metra á 23,6 og hér sjáum viðeinn aðal for- ráðamann keppninnar, Jan Molberg, óska honum til hamingju. Keppnin fór fram i svokölluðum Stoke- AAandeville-leikjunum í Heidelberg í Noregi. „Ég vil búa einn í fjöllunum ## — Steve McQueen sem nú vinnur af grið og erg við upptöku kvik- myndarinnar ,,The Getaway” hefur ákveðið að fara aleinn upp i eitt- hvert af fjöllunum i Kaliforniu og dveljast þar i nokkra mánuði, eftir að upptöku kvik- myndarinnar lýkur. En senn liður að þvi. „Ég ætla að setja svefnpoka á bak mér.stiga á mótorhjól og fara i burtu þangað sem enginn kemur til með að geta fundið mig”, lætur hann hafa eftir sér. Steve McQueen er nú 42 ára gamall og alltaf nýtur hann stöðugra vinsælda. Þrátt fyrir það að hann heyrir orðið mjög illa, og heyrn hans fer stöðugt hrakandi heldur hann sig að kvik- myndaleiknum og svo auðvitað kappakstrinum. En eins og kunnugt er er hann kappaksturs- hetja mikil. ,,Ég vil verða sjálfstæöur og ef til vill dálitið sérstakur persónu- leiki,” segir Steve McQueen, en þeir sem bezt til hans þekkja, segja þó að svo sé hann þegar. Hann er sjálfstæður, velur handrit að kvikmyndum sinum sjálfur, leikur þegar honum dettur i hug og gerir yfirleitt þá hluti sem hann langar til að gera hverju sinni. En skilnaður hans við konu sina, Neile, mikill drykkjuskapur og fleira, sem hent hefur hann, hefur komið honum til þess að lita alvarlegri augum á framtiöina, og hann hefur oft óskað þess að fá að byrja á lifi sinu aftur og lifa þvi skyn- samlegar. ,,Nú verð ég að koma sjálfum mér inn á rétta braut”, segir hann. „Ég á tvö indæl börn, og ég á konu sem mér er allt. Svo ég á virkilega mikiö en ég verð að reyna að virða það sem ég á.” „Það er satt” segir Steve, „að ég er alls ekki vel fjáður þessa stundina. Ég hef fengið mikið af peningum i hendurnar, en ég hef yfirleitt misst þá aftur. Satt aö segja, er mér nokkuð sama. Þegar mig fer að vanta peninga tilfinnanlega vinn ég, en annars er ég dálitið latur maður.” En hvað hyggst Steve gera i fjöllunum i Kaliforniu? „Það er ekkert ákveöið, segir hann, „ef til vill sit ég úti i náttúrunni allan daginn og hugsa, og geri hreint ekki neitt. Kannski sit ég i grasinu og horfi á kú borða gras. Það veröur örugglega nóg að gera.” segir Steve McQueen Steve McQueen i atriöi úr kvik- myndinni „The Reivers.” *s<a<30<30*30r3<s<30*so<30*so<30^30<30<3<a<3<s<3<5<s<3 Richard Nixon Richard Nixon, forseti Bandarikjanna á eftir að verða myrtur. En hvenær er ekki fullvitaö. Svo hljóðar spá eins af hinum mörgu spámönnum Ameriku. Ymsu hefur jú verið spáð, fyrir þjóð- höfðingjum og fyrirfólki, en ekki rætzt. Barbara Anderson Þá leikkonu kannast flestir Islendingar við, þvi hún hefur jú leikið i þáttunum Ironside, ásamt Raymond Burr, lamaða lögreglumanninum. Barbara Anderson hefur nú lokið leik sinum i þeim þáttum, og næsta verkefni hennar eru i framhaldsmyndaflokkum sem bera nafniö: „Misson: Impossible” og „Night Gallery”. Rolling Stones Þeir þurfa svo sannarlega að fá sér góða hressingu áður en þeir koma fram á hljóm- leikum eða opinberlega, þvi þeir þurfa að drekka 10 flöskur af áfengi i hvert sinn. Ef farið er nánar út i það, þá eru það tvær flöskur af whisky, 3 flöskur af kaktusvini, ein flaska af koniaki og 4 flöskur af hvitvini. Geri aðrir betur! Peter Fonda Peter Fonda ætlar ekki að verða miklu heppnari i samskiptum sinum við konur en systir hans Jane i samskiptum sinum við karlmenn.Eftir 12 ára hjúskap hefur kona hans Susan, yfirgefið hann, og þess má geta að hún hefur tekið með sér tvö börn þeirra. Greta Garbo Ekki fæst Garbo á nokkurn hátt til þess að vekja athygli á sér á einn eða neinn hátt. Hún hefur nú enn slegið hendinni á móti tilboði sem hún fékk fyrir stuttu. Var það frá amerisku bókaforlagi sem bauð 84 milljónir islenzkra króna fyrir endurminningar hennar. Romy Schneider Þessi 35 ára gamla kvikmyndaleikkona nýtur nú sólarinnar og sumarsins i Frakklandi, en þó getur húh ekki leyft sér það nema á milli upp- tökuatriða. Þar er nú verið að gera kvikmynd með henni i aðalhlutverki og ekki er hægt að segja annað en að hún beri þessi 35 ár mjög vel. Alan Delon. Nýjasta kvikmynd sem sýnd hefur verið meö Alan Delon hér i Reykjavik var kvikmyndin Borsalino, þar sem hann lék eitt aðalhlutverkið ásamt Jean Paul Belmondo. Hann er ekki á þeim buxunum aö gefa upp leik sinn i kvik- myndum og nú er von á þessum franska leikara til Kaupmannahafnar. Mikið verður um dýrðir á Norðurlöndunum i sumar og margir frægir sem gista þessi lönd. Paul McCartney er þegar i Dan- mörku, von er á Johnny Cash og svo Delon. Lee Harvey Oswald Moröingi John F. Kennedy hefur svo sannarlega náö þeirri frægð sem hann haföi óskað sér svo lengi. Fyrir nokkru siðan var bréf sem hann hafði sent til móður sinnar frá Minsk, selt fyrir 108.000 krónur islenzkar á uppboði. Johnny Cash Hann hefur löngum sungið fyrir fanga og þá sem ekki hafa getað gengið um frjálsir um stræti og torg sökum ýmissa hluta. Fangar hafa tekið honum býsna vel, og ein af plötum hans var til dæmis tekin upp þegar hann söng fyrir þá i einu af fangelsum Bandarikjanna. Nú hefur hann lofað að syngja i sænska fangelsinu Osterrakers, þegar hann i októbermánuði kemur til Skandinaviu. Vanessa Redgrave. Hún virðist að mestu hafa misst allan áhuga á leik i kvikmyndum. Að minnsta kosti er farið að likja henni við Gretu Garbo og kalla hana Gretu Garbo númer tvö. Hún neitar öllum kvikmynda- tilboöum, og foröast að láta taka myndir af sér eöa koma fram opinberlega. Hún býr um þessar mundir i London.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.