Vísir - 14.08.1972, Qupperneq 24
vísm
Mánudagur 14. ágúst 1972
Fannst með-
vitundarlaus
Einn kunnari hestamanna
Akureyringa, Gunnbjörn
Arnbjörnsson féll af hesti sinum i
Þórunnarstræti um kl. 18.20 i gær.
Var hann meðvitundarlaus,
þegar að honum var komið, en
kom fljótt til sjálfs sin aftur.
Hann var lagöur inn á sjúkra-
húsið á Akureyri, þar sem i ljós
kom, að meiðsli hans voru ekki
alvarleg, og var liðan hans eftir
atvikum góð i morgun. — GP
Fœrðir í
jórnum í
fangageymslu
Til ryskinga kom fyrir utan
skcinmtistaðinn Sigtún i fyrri-
nótt, og þjörmuðu þar þrir
aðsópsmiklir Kópavogsbúar að
einum Seltirningi, þegar
lögrcglan var fcngin i spiliö.
Kkki létu Kópavogspiltarnir sér
segjasl við komu lögrcglunnar og
sýndu henni mótþróa, svo að
undir lokin varð að færa þá i
járnum á lögrcglustööina til yfir-
lieyrslu. Voru þeir hafðir i
gcymslu i nótt.
Scltirningurinn var fluttur á
slysavarðstofuna, cn i ljos kom,
að meiösli lians voru ckki alvar-
lcg. GP
BÍLAR ULTU
— en fólk slapp ón
teljandi meiðsla
Eftir að hafa oltið nokkrar velt-
ur og hafnað loks i garði við sum-
arbústaö i Bræðratungu i Mos-
fellssveit, var bifreið, sem fór út
af veginum i krappri beygju við
Bræðratungu, talin nær ónýt.
— ökumaðurinn slapp hinsveg-
ar meö minriiháttar skrámur, en
hann var einn á ferö, þegar þetta
skeði i nótt. Hann var grunaður
um, að hal'a ekið undir áhrif-
umáfengis.
önnur bilvelta varð þarna á
Úlfarsíellsveginum um helgina,
en einnig i þvi tilviki slapp fólkið
án meiriháttar meiðsla. — GP
Utanríkisráðherra um nýjar tillögur í landhelgisdeilunni við Breta:
„Allnokkur tilslökun"
Hið nýja tilboð okkar til
Breta til lausnar land-
helgisdeilunni þýðir að
okkar mati allnokkra til-
slökun hvað varðar svæði,
sem Bretum stæði til boða
að veiða á innan nýju
fiskveiðilögsögunnar, en
einnig tilslökun á timum
og stærð fiskiskipa, sagði
Einar Ágústsson utan-
ríkisráðherra í viðtali við
Visi i morgun um nýjar
tillögur, sem sendar hafa
verið Bretum.
Veigamestu breytingarnar
frá fyrri tilboðum Islendinga
eru þessar:
1) F.allizt er á þá kröfu Breta,
að veiðihólfin, sem opnuð yrðu,
gætu náð upp að 12 milna möVk-
unum. Akvörðun um stærð
veiðihólfanna og timatakmörk á
þeim er opin til umræðu.
2) Stærð fiskiskipa sem fengju
undanþátu, er stækkuð úr 165
fetum i 180 fet, þ.e. að skip allt
að 750-800 lestir fengju að veiða
innan nýju landhelginnar. öll
stærri skip, svo sem verk-
smiðjuskip og frystiskip yrðu
útilokuð.
3) Gildistimi þessara undan-
þága er framlengdur um 5 mán-
uði eöa frá 1. sept. nk. til 1. júni
1974, en áður áttu undanþágurn-
ar að gilda til 1. janúar 1974.
Utanrikisráðherra kvaðst
telja gott að þetta kæmi fram,
þar sem látið hefði verið að þvi
liggja af hálfu brezkra aðila, að
hér væri um óverulega tilslökun
að ræða.
Hann kvað óvist, aö þessar til-
slakanir giltu fyrir veiðiskip
annarra þjóða, enda væru for-
sendur t.d. Þjóðverja aðrar en
Breta og legðu þeir þvi áherzlu
á önnur atriði en Bretar i við-
ræðunum við fslendinga.
-VJ
KOMNIR MEÐ FLUGVELARFLAKIÐ
i
Glæsilegt er það ekki flakið af
Fairy Battle vélinni, sem brezki
leiðangurinn náði i þar sem það
var sunnan undir Hofsjökli. Leiö-
angursmenn komu með flakið i
hæinn á laugardag. Gert er
ráð fyrir, aö það verði sett upp
i flugvélasafni brezka
l'lughhersins.
Þessi tegund véla er fágæt, að-
eins ein vél til i Bandarikjunum.
Það verður þvi sennilega öllu til
kostað við að endurbyggja vélina
til að fylla inn i flugvélasafnið
brezka. Ef til vill er um verðmæt-
an grip að ræða þótt flakið sé illa
l'arið, meöal annars vegna þess,
að það hefur verið brennt og eyði-
lagt og litið er eftir af innvolsinu.
— SB -
Brezki leiðangurinn kom með
flakið af Fairy Battle i bæinn á
laugardag.
„Sumir tildra nverju sem
Ný lög um auglýsingaskilti
„Samkeppni og ýmislegt fleira
liefur valdið þvi, að ýmis
veilingahús og fleiri staðir dreifa
auglýsingaskiltum viö þjóð-
vegina, og þessi skilti eru aldrei
til prýði, jafnvcl þótt þau séu vel
úr garði gerð. fíg lief til dæniis
séð nokkur mjög ómyndarleg
skilti, og það er eins og sumir
tildri liverju scm er upp”.
Svo sagði Arni Reynisson,
framkvæmdastjóri Landverndar,
i viðtali við blaðið i morgun, en
Náttúruverndarráð auglýsti
mikið um helgina, eins og
kunnugt er, bann við að setja upp
ýmis auglýsingaskilti úti á þjóð-
vegum.
„Við vildum vekja athygli á
þessu, svo fólk færi ekki að eyða
peningum til ónýtis”, sagði Arni
ennfremur, ,,en ekki get ég bein-
linis sagt að þaö hafi verið vegna
einhvers sérstaks tilefnis”.
„Það er þó ástæða til að setja
bann, en samt eru undan-
tekningar, og til dæmis er leyfi-
legt að hafa uppi skilti með leið
beiningum um leiðir, áningastaði,
þjóðgarða, friðunarsvæði og bæi.
Svo er heldur ekki hægt að banna
að setja upp skilti á eignarlandi,
ef t.d. staður stendur við þjóðveg,
má setja þar upp skilti á landinu.
En við höfum til dæmis látið taka
niður skilti með auglýsingum um
almenna neyzluvöru.”
„Það er kannski ekki ýkja
mikið um auglýsingaskilti hér-
lendis. en þau sjást, og þetta
getur vaxið mikið. Vitin til
varnaöar eru erlendis, þar má
sjá mörg ljót dæmi”.
Og þar sem verið er að tala um
prýði landsins, inntum við Arna
eftir þvi hvort nokkuð hefði borizt
af kærum til Náttúruverndarráös
vegna slæmrar umgengni úti i
náttúrunni.
„Það hafa ekki borizt neinar
kærur”, sagði Arni, „Og þvi
miður liggur mér við að segja.
Það sem við verðum varir við,
fýkur eiginlega upp i fangið á
okkur. Við lesum um það i
blöðum, eða fólk segir okkur frá
þvi.
er upp"
Á einstaka stað eru þó stundum
haugar af rusli, sem fólk hefur
skilið eftir og ekki gengið frá. Þó
virðist umgengni heldur fara
skánandi, en við erum alls ekki
fædd með snyrtimennskuna i
okkur og þurfum þvi að ala sjálf
okkur upp i þessu. Næsta kynslóð
verður kannski betri, en þangað
til hef ég enga trú á þessu”.
Aðspurður um umgengni um
Verzlunarmannahelgi, sagðist
Arnienga skýrslu hafa enn fengiö
um það, en hann sagði þó, að
þegar hann hafi komið á mót-
svæði tæpu ári eftir þá helgi, hafi
verið mikið af rusli, þó ekki eftir
gesti, heldur þá sem standa að
mótum. Skúrar, senur og fleira
hefur þá verið látið standa, og
skapast rusl af þvi. —EA
Hásetahlutur 150 þús. eftír 2 mán.
„Auðvitað liættir niaður þessu
iiiimartogi uni leið og útgerðin
segir já”, sagði ungur skipstjóri
sem Vísisinaöur hitti um belgina,
„þetta er þaö leiðiniegasta seni
hægt er að bugsa sér. Maður tog-
ar 1 finiin tinia. Svo er hift og það
tekur óratinia að ná þessu al-
mennilega inn — maður þarf að
greiða úr dræsunni og gera aö.
Seinlegt verk og geðspillandi —
ég hlakka til að komast á al-
mennilegt fiskiri aftur. En hum-
arinn borgar sig vist. Maður hef-
ur haft 320.000 kall fyrir tvo mán-
uði...”, en þaö er vist tvöfaldur
hlutur sem kafteinninn hafði. Og
ævinlega er á þvi allur gangur,
hvernig bátar afla og hvað menn
þéna.
Humarveiöin hefur gengið
bærilega hér við Suöurlandið i
sumar. Margir bátar eru enn á
humarveiöum, og landa helzt i
hafnir á suðvestur- og Suðurlandi,
Grindavik og Þorlákshöfn.
Raunar mun humarveiðin nú
ganga yfir. Vestmannaeyingar
sögðu Visi aðýangflestir Eyjabát-
ar væru að fara aftur i fiskitroll.
„Ég held þeir séu þrir eftir á
humarnum — og þetta var ekkert
sem þeir komu inn með um helg-
ina”, sagði sérfræðingur okkar i
Eyjum, „þeir eru allir að fara
yfir i fiskitrollið. Einir tuttugu
bátar héldu sig reyndar við þaö i
allt sumar. Sumir þeirra hafa afl-
að sæmilega”.
Bátar úr Reykjavik, Hafnar-
firöi og Akranesi hafa verið á
humarnum fyrir sunnan land, og
landa þá i næstu höfnum. Koma
ekki til heimahafnar með humar-
inn nema hálfsmánaðarlega, þeg-
ar helgarfri eru.
„Það hefur verið rólegt hér hjá
okkur”, sögðu þeir i Hafnarfirði i
morgun, „Haukanesið er reyndar
komið inn með fisk. Við vitum
ekki hve mikið. Það virðist vera
algert leyndarmál hvað þessi tog-
ari er með....”, en við skulum
bara vona að það hafi verið fisk-
ur. — GG
Lögreglubíl og sjúkrabíli
órekstri á leið á slysstað
A stuttum tiina um miöjan
dag i gær uröu fjórir árekstrar I
umfcrðinni i bænum, og fimmta
óhappiö varð við Úlfarsfell i
Mosfellssveit, en mitt i þessari
árekstrarsúpu, rakst svo
lögreglubifreið, sein var á leið-
inni á einn árekstursstaðinn á
annan bil.
Lögreglubillinn var á leiðinni
að Úlfarsfelli, þegar þetta kom
fyrir, og það var reyndar
sjúkrabillinn lika, sem sömu-
leiðis varð fyrir þvi að rekast
utan i annan bil á sömu ga-tna-
mótunum og lögreglubillinn.
Það byrjaði allt með þvi að kl.
15.15 varð árekstur á mótum
Hverfisgötu og Smiðjustigs.
Fimm minútum siðar varð
lentu báðir í
anoar arekstur á mótum
Grundarstigs og Skálholtsstigs
Réttum hálftima eftir það var
tilkynnt slys við Úlfarsfell uppi i
Mosfellssveit, og voru lögreglu-
bifreið og sjúkrabifreið send af
stað.
Varla var liðin nema rétt
minúta frá þvi, þegar tilkynnt
var um árekstur á gatnamótum
Nóatúns og Laugavegar. Það
reyndist þá vera lögreglu-
billinn, sem hafði lent i árekstri
við annan bil. Sjúkrabillinn
hafði reyndar komið þar að lika
og strokizt utan i bil, sem numið
hafði staðar við gatnamótin. En
þótt sjúkrabillinn rifi brettið af
fólksbilnum, varðhún sjálf ekki
fyrir meira hnjaski en svo, að
hún gat haldið áfram til að
sækja hið slasaða fólk upp i
Mosfellssveit.
Og vart voru tiu minútur
liðnar frá þessum ósköpum,
þegar enn einn árekstur haföi
orðið i Hraunbæ hjá Bæjarhálsi.
Sem betur fer reyndist fólkið
ekki alvarlega slasað, sem lent
hafði i óhappinu við Úlfarsfell.