Vísir - 22.08.1972, Qupperneq 3
Vísir Þriðjudagur 22. ágúst 1972
3
400 á fyrstu
sýningu rússnesks
listamanns hér
(íóft aósókn hefur verið á sýn-
ingu rússneska listamannsins,
Orests Vereiskis, sem sýnir um
þessar mundir i Casanova, ný-
bygj'ingu Menntaskóians i
Lækjargötu. Þcgar hafa um 11-400
manns sótt sýninguna, og á
sunnudag var sérstaklega liflegt
en þá komu um 200 manns. Virð-
ist fólk sýna sýningunni nokkurn
áhuga, og þá sérstaklega þar sem
þetta er fyrsta einkasýning rúss-
nesks listamanns hér á landi.
Orests Vereiskis hefur mynd-
skreytt ýmis bókmenntaverk, og
má þar nefna Brekkukotsannál,
og i dag hyggst hann gera skyssur
af Árbæ, sem hann mun siðar
nota við myndskreytingu i bók-
inni Mamma skilur allt.
Hann sýnir 23 myndir frá ts-
landi, en á sýningunni eru sam-
tals 60 myndir. Eru þær flestar af
rússneskri náttúru, en
myndirnar eru grafik, vatnslita-
myndir og teikningar. Orests hef-
ur sýnt her áður á samsýningum,
og kom hér fyrst 1958. Honum
likar dvölin hér á tslandi mjög
vel, og tima sinum eyðir hann til
þess að heimsækja kunningja
sem han hefur eignast hér, svo og
að gera skyssur.
—EA
Hannes
er á-
nœgður
„Hins vegar fóru nokkrir
fréttamenn af fundi til þess að
sima inn efni erindisins þegarþvi
var dreift i fjölrituðu formi, svo
sem algengt er á slikum fund-
um”. Svo segir Hannes Jónsson
blaðafulltrúi rikisstjórnarinnar,
en gagnrýni hafði komið fram um
fund, er hann hélt með blaða-
mönnum i London 16. ágúst, og
var sagt, að sumir blaðamanna
hefðu gengið af fundi vegna
lagrar ræðu fulltrúans.
Hannes er ánægður með fund-
inn, sem hann segir, að hafi
„farið fram með miklum ágætum
og skilað miklum árangri”. Fyrir
hans tilstilli hafi sjónarmið
Islendinga komizt i allt brezka
fréttanetið, greinar birzt i blöðum
og fréttir i útvarpi- og sjónvarpi.
Fundurinn hafi verið boðaður
sem kynningarfundur um
landhélgismálið en ekki
takmarkaður við kvikmynda-
sýningu.
Hannes kom fram i sjónvarps-
þáttunum BBC „Look North”
(horfið norður) og sjónvarpsþætti
stöðvarinnar ITN og einnig i BBC
útvarpinu.
—HH.
Ævintýri konu
á náttkjól
- eða dœmi
um hve
hjólhýsi geta verið varhugaverð
t>au eru vist svolitið viðsjál
þessi hjólhýsi, sem svo margir
„ferðaglaðir” hafa fengið sér,
til að draga um landið.
Þau standa sig t.d. illa i
snörpum hliðarvindi, og eru
ekki beint löguð tii að taka við
þeirri meðferð sem vegakerfið
islenzka veitir farartækjum af
öllu tagi.
En að þessum atriðum sleppt:
um, vegunum og rokinu, þá geta
þau lika verið viðsjál á fleiri
sviðum, þau komust a.m.k. að
þvi um daginn, hjón ein, sem
fengu sér svona sumarbústað á
hjólum.
Þau ætluðu svo i sumarleyfi
dragandi húsið á eftir sér, Lagt
var af stað á föstudagskvöldi, og
ætlaði maðurinn að aka þá fram
á nóttina eða laugardags-
morguninn, en siðan ætluðu
hjónin að njóta sólar og hjól-
hýsis uppi i Skorradal um
helgina.
Svo var ekið sem leið liggur
Konan fór strax upp i hjólhýsið
sitt nýja og ætlaði sér að sofa
þar af nóttina, en láta eigin-
manninn um alla fyrirhöfn við
akstur og þess háttar. Hún festi
hins vegar ekki blund.
Framarlega i Hvalfirði gerði
maðurinn stanz á akstrinum,
brá sér út. Það gerði konan lika.
Maðurinn var hins vegar
snarari i snúningum en konan
og var kominn upp i bilinn og af
stað áður en konan náði að segja
halló! Og þarna stóð hún i
kvöldhúminu og i engu nema
hýjalinsnáttkjól, berfætt úti á
miskunnarlausum og hörðum
islenzkum þjóðvegi.
Sá maðurinn hana ekki? Eða
sá hann hana kannski og ætlaði
i stundarfögnuði að rjúka af
stað og sjá hana aldrei framar?
Hun hugsaði vist margt, sú
stutta og nakta, þar sem hún
stóð — en komst loks að þeirri
niðurstöðu, að helv... kallinn
skyldi ekki komast upp með
svona bellibrögð.
Hún sveipaði náttkjólnum
þétt að sér, reyndi að halda á
sér nokkrum hita, og beið þess
að miskunnsamur vegfarandi
færi hjá. Ekki leið á löngu, þar
til bill kom og vitanlega fékk
hún far. Hún ætlaði i Skorradal-
inn á eftir manni sinum. En þar
sem Dragháls úr Hvalfirði er
erfið leið einkum fyrir hjólhýsi
hafði maður hennar farið lengri
leiðina i Skorradalinn. Herra-
maðurinn sem tók konuna upp á
sina arma framarlega i Hval-
firði, hafði hins vegar ekkert
hjólhýsi aftan i sinum bil. Og
vitanlega skauzt hann yfir
Dragann með frúna fögru á
náttkjólnum.
Og svo settist hún aftur á veg-
brún og beið bils — að þessu
sinni bils með hjólhýsi aftan i
sér. Og von brábar birtist hann,
akandi i rykmekki.
GG.
SIFELLT DYR-
ARA AÐ LIFA
Framfærslukostnaður
jókst frá maibyrjun til
ágústbyrjunar um 2,7%
sem eru 4,55 vísitölustig,
samkvæmt útreikningum
kauplagsnefndar. Þó verð-
ur engin kauphækkun við
þetta 1. september sam-
kvæmt lögum frá 11. júli
síðastliðnum.
Samkvæmt þeim lögum verður
greidd 17% verðlagsuppbót á laun
á timabilinu 1. september til 30.
nóvember, sem er óbreytt uppbót
og hún hefur verið siðan 1. júni i
vor.
Margir liðir framfærslu-
kostnaðar hækkuðu, aðallega frá
júnibyrjun til setningar bráða
birgðalaga rikisstjórnarinnar 11.
júli.
Húsnæðisliður er talinn hafa
hækkað um 10 stig meðal annars
vegna hækkunar fasteignaskatta.
Hækkanir visitölunnar nema
alls 8,8 stigum, en frá þvi dragast
4,3 stig vegna aukningar niður-
greiðslna og hækkunar fjöl-
skyldubóta, sem voru ákveðnar i
bráðabirgðalögunum. — HH
Krakkarnir voru a dogunum úti i góða veðrinu, sem gafst inn á
milli rigningardaganna. Þau fóru með einni hjúkrunarkonunni á
I.andsspitalanum út i góða veðriö i hjólastólunum sfnum og nutu
þgss aö vonum. (Ljósmynd Astþór)
Tekur sjónvarpið til sýningar Fischer-
þútt sem var sýndur í Keflav.sjónvarpi?
,,Ef það er búið að
sýna þennan þátt í
Keflavíkursjónvarpinu
þá eykur það nú ekki
áhuga okkar fyrir hon-
um", segir Jón Þórarins-
son yfirmaður LSD-
deildar sjónvarpsins.
Sá þáttur sem hér er
um að ræða var Dick
Cavett-show en í þeim
síðasta kom þar fram
Bobby Fischer og marg-
irá Reykjavíkursvæðinu
fylgdust með af miklum
áhuga Var þarna rætt
við Fischer (áður en
einvígið hófst) og lék
hann á alls oddi og reytti
af sér brandarana.
Nú hafa komið fram óskir
frá fólki þess efnis að islenzka
sjónvarpið tæki þáttinn til
sýningar. Visir hafði þvi sam-
band við Jón Þórarinsson eins
og fyrr greinir. Sagði Jón að
þrátt fyrir áhugaleysi þeirra
sjónvarpsmanna fyrir kana-
sjónvarpinu væri alls ekki úti-
lokað fá þennan þátt. „En ef
um er að ræða kaup á erlend-
um skemmtiþáttum kaupum
við yfirleitt nokkra þætti en
ekki einn einstakan. Hitt er
annað mál að ef verið er að
fjaila um vissa atburði sem
eru á döfinni kemur það til
greina að sjónvarpið kaupi
einstaka þætti. Ég þekki nú
ekki þessi Dick Cavett „pró-
gröm” svo ég get ekkert sagt
fyrir um það að svo stöddu
hvort við tökum til sýningar
þennan Fischer-þátt.
En það kemur til greina,”
sagði Jón okkur að lokum.
GF
Synti uppi mink
í Eyvindará
Bændur af Egilstaðabúinu,
sem voru staddir upp við
Eyvindará snemma i morg-
un, sáu þar til minks synda I
ánni. Svo vel vildi til, að þeir
voru með hund sinn með sér,
sem er af skozku kyni, og
siguðu þeir honum á mink-
inn. Hundurinn stökk i ána á
eftir minknum.og synti hann
uppi, og var þeirra viðureign
ekki löng eftir það, þvi að
hvutti var fljótur að vinna á ‘
minknum. — GP._________
Björn Bjarman
hlaut ferðastyrkinn
Atta sóttu um ferðastyrk, sem
vcittur er af Menntamálaráðu-
ncytinu cn úthlutað af stjórn Rit-
höfundasjóðs islands. i þetta sinn
hlaut Björn Bjarman rithöfundur
styrkinn að upphæð 85 þúsund
krónur.
Þetta er i annað sinn, sem slik-
uni ferðastyrk er úthlutað. i fyrra
lilaut Jóhannes llelgi styrkinn.
SB-
„Ekki of seint á ferðinni"
— segja arkitektar um þjóðarbókhlöðu og tannlœknadeild
— Að minnast ellefu hundrað
ára byggðarsögu þjóðarinnar
með nýrri þjóðarbókhlöðu er
mjög þakkarverð hugmynd, ef
vel er að málum staðið. Hins
vegar virðist stjórn Arkitekta-
félags tslands heldur litill
hátiðarbragur hafa verið á
framkomu og gerðum bygg-
ingarnefndar umræddrar bygg-
ingar, viðvikjandi undirbúningi
öllum og ráðstöfun verkefnisins,
segir m.a. i frétt frá arkitekta-
félaginu.
Stjórn félagsins fagnar þvi, að
fundurinn i Norræna húsinu og
aðrar aðgerðir hafi þó leitt til
þess, að byggingarnefndin hafi
séð að sér varðandi undirbúning
og að viss von sé fyrir hendi um
faglegan framgang málsins og
vinnubrögð. Vitnar stjórnin i
fréttaviðtal við arkitekta
þjóðarbókhlöðunnar og segir
það gefa til kynna, að nú skorti
ekki þann tima, sem talin hafi
verið aðalástæða fyrir þvi, að
byggingarnefndin og aðrir
ráðamenn hafi ekki verið til við-
ræðu um almenna samkeppni
um teikningar af þjóðarbók-
hlöðunni.
Siðan segir i frétt arkitekta:
„Þetta er hvorki fyrsta né eina
málið. þar sem stjórn A.t. hefur
verið tjáð af ráðamönnum. að
hún sé þvi miður of seint á ferð-
inni og ekki lengur timi til að
verða við óskum eða ábending-
um hennar. Siðar hefur hins
vegar komið i ljós, að timinn,
sem „skorti” var fyrir hendi en
fór i önnur .störf eða drátt á
framkvæmdum. Er þar
skemmst að minnast viðræðna
stjórnar A.t. við ráðamenn og
fleiri varðandi teikningar að
nýrri tannlæknadeild.” —SB—