Vísir - 22.08.1972, Side 4
4
Visir Þriöjudagur 22. ágúst 1972
nú
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
VINSÆLDALISTAR
Það vekur athygli á brezka vinsældarlistanum að
engin ný plata hefur bætzt á vinsældarlistann, og
þau tvö lög sem halda stöðu sinni á vinsældar-
listanum eru bæði amerisk. School ’s out með Alice
Cooper heldur fyrsta sæti á listanum, og The
Supremes með plötuna, Automatically sunshine
eru enn i 10. sæti, en eiga sjálfsagt eftir að komast
hærra.
ENGLAND
Terry Daetyl and the Dinosaurs hafa hækkað sig úr þriðja sæti upp i
annað sæti með plötu sina, Seaside Shuffle, og lagið Silver Machine
hefur hækkað sig um þrjú sæti, það er að segja úr sjötta sæti upp i
þriðja. Heiðurinn af þeirri plötu eiga Hawkind Popcorn.
Platan? með hljómsveitinni Hot butter hækkaði úr áttunda sæti upp i
fimmta. Og hér kemur þá listinn eins og hann litur út i dag:
(1) School’sout.
(’.D Seaside shuffle.
(5) Silver machine.
(2) Puppy love.
(S) Popcorn.
(5) llreaking up is hard to do
(1) Sylvia’s mother.
(9) 1 can see clearly now.
(7) Itock and roll part II.
(1(1) Automatically sunshinc.
Alice Cooper.
Tcrry Dactyland and theDinosaurs.
Hawkind.
Donny Osmond.
Ilot butter.
Partridge family.
Dr. Hook and the medicine show.
Johnny Nash.
Gary Glitter.
Supremes.
AMERIKA
Lagið Alone again hans Gilberts O’Sullivan, þess irska sem við gerð-
um góð skil hér á siðunni i gærdag, heldur velli sinum i fyrsta sæti, og
ekkert lag virðist ætla að komast ofar, og platan hans er enn sú bezt
selda. Brandy your’re a fine girl er enn i öðru sæti, og hefur verið það
nú um nokkurn tima, en nýtt lag er komið upp i þriðja sæti, I’m still in
love with you með A1 Green, en það var áður i fjórða sæti. Það vekur
athygli að þrjú lög hafa bætzt á vinsældarlistann, og eru það lögin Back
stabbers. sem hefur farið úr 19. sæti upp i það 7. Goddbye to love sem
hækkað hefur úr 12. upp i 8., og svo lagið You don’t mess around with
Jim, sem nú er i 10.sæti en var áður i þvi 11.
1 < i) Alone again Gilbert O’Sullivan.
•> ( 2) Brandy, you’re a finc girl. Looking glass.
( 1) I’ni still in love with you A1 Green.
i ( 5) Long cool woinan in a black dress. Hollies
5 ( :i) If loving you is wrong Luther Ingram
<> (ío) llold your licad up Argent
7 ( 19) Kack stabbcrs O’Jays
K (12) Goodbyc to love. Carpenters
\) ( 9) Happicst girl in the wliole USA Donna Fargol
1(1 (11) You don’t mess around witli Jim Jim Croce
n>
Hárgreiðslu- og
hárs k urðarsýn ing
að Hótel Sögu
fíriðjudaginn 22. ágúst
lliiiu hcimslrægi hárgreiðslumeist-
ari I.KO PASSAGK sýnir ásamt
DlKTMAlt PLAINKR Austurríkis-
manui scm licfur haldið námskeið og
sýnt i 71 löndum.
Auk þcss koma fram sænski
mcistarinn KWKRT PRKUTZ og
danski meistarinn POUl. K.
JKNSKN
Tækifæri til að sjá sýningu
sem þessa, gefst ekki á
næstu árum.
-jj Leo Passage
—
Aðgöngumiðar seldir við innganginn
vcrð kr. 500,01) Húsið opnað kl. 7.
Matur scldur frá sama tima
Dietmar Plainer
Forsala aðgöngumiða á sýninguna:
Hárgreiðslustofan Venus, Hallveigarstöðum
Hárgreiðslustofan Krista, Grundarstíg 2
Hárgreiðslustofan Tinna, Grensásvegi 50
Rakarastofan Klapparstig, Laugavegi 20B
Rakarastofan Eimskipafélagshúsinu, Pósthússtræti
ERFIÐARI LÍFS-
BRAUT FYRIR
FRUMBURÐI
OG EINKABÖRN
Kinkabarni og frum-
burði er hættara við að
þjást af ótta og verða
ósjálfstæðari á lifs-
brautinni heldur en
öðrum börnum. Þau
munu koma til með að
þola minna mótlæti, og
ef ekki allt gengur þeim
að óskum, eru þau likleg
til með að gefast upp.
Þetta segir Frank H. Farley
prófessor við Háskóla i Indiana
og hann segir ennfremur að þetta
skipti miklu meira máli heldur en
fjölskyldustærðin.
Rannsóknin var gerð á 148
nemendum við þennan sama
háskóla, og þetta kom fljótt i ljós
hjá þessum nemendum, sem sér-
staklega voru valdir til rann -
sóknarinnar.
Astæðan fyrir þessu kveður
prófessorinn ómögulegt að segja
hver er, en hann telur þó senni-
legast að svona fari, vegna þess
hve foreldrum er annt um fyrsta
barn sitt, þegar það kemur i
heiminn, snúast i kringum það á
allan hátt og hafa miklar
áhyggjur af þvi hvernig því muni
vegna i framtiðinni. Það sama er
að segja um einkabörnin, en
foreldrar hafa minni áhyggjur af
seinni börnum sinum, kunna
betur að ala þau upp, og
áhyggjurnar minnka.
TRASH
BÖNNUÐ
í NOREGI
Kvikmynd Andy Warhols, Trash, hefur verið
bönnuð i Noregi. Sýningar voru að visu hafnar, en
yfirvöld gripu i taumana þegar þau þóttust sjá að
hún mundi koma til með að hafa skaðleg áhrif á
ungdóm og fleiri i Noregi.
Við höfum sagt frá Andy
Warhol hér á siðunni og kvik-
myndum hans, og sjálfsagt
kannast margir Islendingar vel
við hann, og óska gjarnan eftir að
einhverjar af kvikmyndum hans
verði teknar hér til sýningar.
Kvikmyndin Trash var bönnuð i
Bretlandi og Finnlandi, en hún
hefur verið sýnd i Sviþjóð. Norsk
kvikmyndahús hafa tekið kvik-
myndina Flesh gerða af Warhol
til sýninga, en það er þó nokkuð
liðið siðan, eða um það bil tvö ár,
Yfirvöld telja að frjálsleg
notkun á eiturlyfjum i kvikmynd-
inni, og sömuleiðis það umhverfi,
þar sem lyfjanna er neytt hafi
slæm áhrif á þ& sem þegar neyta
eiturlyfja, og einnig aðra. Til
dæmis er notkun heroins látin lita
út sem algjörlega skaðlaus og
yfirvöldum finnst hætta á notkun
þessara lyfja ekki koma nógu vel
fram. Einnig eru nokkrar kyn-
lifssenur ekki við hæfi norskra
laga.