Vísir - 22.08.1972, Síða 5
5
Visir Þriðjudagur 22. ágúst 1972
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
UMSJON:
HAUKUR HELGASON
Verðhœkkanir
nauðsynja ollu
neyðaróstandi
Ríkisstjórn marxistans
Allende i Chile hefur lýst
yfir neyöarástandi í
Santiagofy Iki, eftir tveggja
stunda verkfall kaup-
manna og atlögu lögreglu
að verkfa llsmönnum.
Kaupmenn mótmæla varð-
hækkunum, sem rikis-
stjórnin hefur gert, segir í
NTB skeyti.
Miklar óeirðir urðu i miðri
Santiago. Lögregla beitti táragasi
gegn verkfallsmönnum.
Rikisstjórnin hafði fyrirskipað,
að verð skyldi hækka verulega á
ýmsum vörum, til dæmis kjöti,
innfluttu frá Argentinu, þar sem
verðið hefur hækkað um 200
prósent á tveimur vikum. Verð
hefur einnig hækkað mikið á sykri
kaffi.mjólk, smjöri og smjörliki.
Menn mótmæltu einnig aðferð-
um yfirvalda gegn kaupmanni
einum i Magellanfylki. Hann
lézt af hjartaslagi, þegar lögregla
hafði lagt hald á verzlun hans
vegna þátttöku hans i verkfalls-
aðgerðum.
Sjötiu manns voru teknir
höndum i óeirðunum i gær, og
munu þeir koma fyrir rétt i dag
sakaðir um brot gegn lögum um
öryggi rikisins.
Foringi svarts valds
dœmdur til hengingar
Fyrrverandi foringi
hreyfingarinnar ,,svarts
valds" í London, Abdul
Malik, var í gær dæmdur
til hengingar fyrir morð í
Trinidad.
Malik var fundinn sekur um
morð á hárskera i Port of Spain
i Trinidad i febrúar siðastliðn-
um.
Annar sakborningur, Stanley
Abbot, hlaut fangelsisdóm.
Báðir héldu fram sakleysi við
réttarhöldin.
Brezka lögreglan Scotland
Yard segist eiga óuppgerða
reikninga við Malik fyrir rán og
hótanir. Ekki er vitað, hvort
Bretar reyni að fá hann fram-
seldan.
Malik sem gengur undir nafn-
inu Michael X fluði frá Bret-
landi til Trinidad i mai i fyrra,
þegar hann afði verið látinn laus
gegn tryggingu.
Malik var foringi öfgahreyf-
ingar svertingja, „svart vald”,
eftir að leiðtogi hreyfingarinnar
i Bandarikjunum Malcolm X
kom þangað fyrir allmörgum
árum og hitti Malik. Malcolm X
var siðar myrtur i Bandarikjun-
um.
Nú lofar
Hassan
kosningum
Hassan konungur
Marokkó hefur heitið kosn-
ingum á næstu mánuðum
til að binda enda á stjórn-
málaglundroöann í landinu
Sagnfræðingurinn Pjotr Jakir. Hcttarhöld Sovétstjórnar yfir honum
ollu gremju meðal menntamanna. Nú fylgja aörir á eftir inn I fanga-
klefana.
Gyðinga-
réttarhöld
Um fimmtíu gyðingar
eru í ströngum yfirheyrzl-
um í Moskvu að sögn sam-
taka gyðinga í Sovétríkjun-
um.
Y f i r h ey r s 1 ur n a r standa
væntanlega i sambandi við
réttarhöld yfir gyðingi einum þar
i landi, Lazar Lubarsky. Gyðing-
ar telja, að stjórnvöld reyni að fá
vitnisburð, sem „sanni, að
sionistasamsæri gegn Sovét-
rikjunum sé á döfinni”.
Gyðingar segja, að sama aðferð
hafi verið viðhöfð i réttarhöldum
yfir Vladimir Markham i Svor-
dlovsk.
Ferðamenn i Moskvu hafa ótt-
azt, að Sovétstjórn ætli að láta til
skararskriða gegn menntamönn-
um gyðinga i Moskvu, sem hafa
beðið um leyfi til að flytjast til
tsrael.
eftir tilræðiö við konung og
sjálfsmorð Oufkirs, aðal-
ráðgjafa hans.
Konungur varaði stjórnmála-
flokkana þó við að „gera miklar
kröfur” i kosningabaráttunni.
Hassan segir, að i Ijós hafi nú
komið, að Oufkir hafi lengi
bruggað sér launráð. Hafi það
meðal annars komið fram, þegar
hann lét sýkna menn, sem stóðu
að tilræði við sig fyrir ári.
Hassan — Htill lýðræðissinni.
Rabbi Kahane höfuðsmaður ofgamanna.
,Rœnum diplómötum'
öfgasamtök bandarfskra gyð-
inga, JDL, vöruðu bandarisku
stjórnina í gær, við þvi að sam-
tökin mundu ræna sovézkum
dipiómötum, þótt það gæti stofn-
að samskiptum stórveldanna i
hættu. Þetta veröi gert, ef Sovét-
stjórn hætti ekki að skattleggja
gyðinga, sem flytjast frá Sovét-
rikjunum til israels.
Meir Kahane, rabbi og foringi
hreyfingarinnar, sagði á blaða-
mannafundi, að Rogers utan-
rikisráðherra hfði verið skrifað
bréf um þetta.
Hefði Rogers verið hvattur til
að gripa til róttækra ráða til að
stöðva þessa skattlagningu
Sovétmanna á menntamönnum
gyðinga.
Rússar alliðnir við
kjarnorkusprengingar
Bandarikjastjórn segir, að
fundizt hafi á jarðskjálftamælum
merki sem sennilega hafi komið
frá kjarnorkusprengingu, sem
Sovétmenn hafi gert neðanjarðar.
Sprengingin virðist hafa orðið á
tilraunasvæði Sovétmanna norð-
an Kaspiahafs.
Þetta hefði þá verið
kjarnorkusprenging
manna neðanjarðar i ár.
sjötta
Sovét