Vísir - 22.08.1972, Qupperneq 16
VÍSIR
Þriðjudagur 22. ágúst 1972
Áttu pínu-
pils sðk ó
árekstrinum?
,,Æ, ég var einhvern skrattann
að góna út i loftið. Gleymdi mér
alveg,” viðurkenndi hreinskilnis-
lega ökumaður, sem lenti upp á
gangstétt á Strandgötunni i
Hafnarfirði i gær og rakst beint á
Ijósastaur.
Reyndar áttaði hann sig, þegar
hann var kominn upp á gangstétt-
ina, enda gátu farþegarnir þrir,
sem með honum voru, ekki orða
bundist. En þegar hann ætlaði að
nauðhemla, áöur en hann lenti á
ljósastaurnum, virkuðu hemlarn-
ir alls ekki. Þeir drógu ekki einu
sinni úr feröinni.
Ljósastaurinn lá i valnum, og
blllinnvarstórskemmdur. Stórt V-
skarö var komið i hann að fram-
an. — En allir sluppu við alvarleg
meiðsli.
Hins vegar liggur ekki ljóst fyr-
ir, hvað olli biluninni i hemlunum.
ökumaðurinn hafði gengið úr
skugga um, að þeir virkuðu
sæmilega áður.
Ekki fékkst heldur á hreint,
hvað það hafði verið, sem öku-
maðurinn var svona uppnuminn
af. En með þvi að leggja saman
tvo og tvo — á Strandgötunni má
stundum siá kvennablóma Hafn-
firðinga spranga á leið i búðir —
þá geta menn vel fengið út úr þvi
sex.
—GP
Liggur enn
þungt
haldinn
Liðan mannsins, sem varð fyrir
árás tveggja manna á heimili
sinu fyrir helgi, er enn við það
sama. Eins og fram hefur komið
höfuðkúpubrotnaði hann, og ligg-
ur þungt haldinn á gjörgæzludeild
Borgarsjúkrahússins.
—GP
Gísli Árni setti
nýtt sölumet
í Danmörku
Gisli Arni. sildarskipið feng-
sæla, setti nýtt islandsmet i sölu á
sild i llirtshals i Danmörku á
þriðjudagiun. Seldi liann 89,:! tonn
fyrir 2,8 iiiilljónir króna og er
meðalverð þvi :il,tl2 pr. kg. Þetta
er mesta sala islenzks sildarskips
i Danmörku. fyrr og siðar.
Kyrra metið átti Dagfari frá
llúsavik er hann seldi i Dan-
inörku 19(19 50 tonn fyrir 2,5
milljónir. GF
• •
Oflug löggœzla ó
skókeinvíginu
Fjórir einkennisklæddir
lögregluþjónar settu svip sinn
á anddyri Laugardalshallar-
innar á sunnudaginn, þegar
1(1. einvigisskákin var tefld.
Og þeir voru ekki einir á ferð,
þvi að innan um manngrúann
voru (1 lögreglumenn til við-
hótar, en óeinkennisklæddir.
„iivað er á seyði?" datt upp
úr einhverjum erlenda frétta-
maiininuin, sem veitt hafði
þcssum stranga lögregluvcrði
eftirtekt.
Það sem var á scyði, var
óhemju aðsókn að skákinni.
Korvigismenn einvígisins ótt-
uðust troðning, og báðu um
aðstoð lögreglunnar til þess að
greiða fyrir inngöngu áhorf-
endanna og útgöngu einnig, að
skákinni lokinni. -GP
íslenzkir lœknor til Kína að
kynnast nálastungulœkningum
— nokkrir hafa þegar leitað til kínverska sendiráðsins um upplýsingar
//Hingað til okkar hafa
leitað nokkrir íslenzkir
læknar, sem hafa hug á að
ferðast til Kína og kynna
sér nálastunguaðferðina.
Einnig hafa leitað hingað
nokkrir aðrir, bréflega
eða persónulega, sem
vilja fara til Kina og leita
lækninga á þennan hátt.
Við höfum þessi mál nú í
athugun og munum reyna
að greiða götu þessa fólks
eftir getu."
Þannig fórust einum af kin-
versku sendifulltrúnum, I kin
verska sendiráðinu i Reykjavik
orð,er við ræddum við hann i
morgun. Hin forna lækningaað-
ferð Kinverja, nálastungan,
hefur vakið geysilega athygli,
ekki sizt eftir að fréttamenn
kynntu hana i fjölmiðlum eftir
för Nixons til Kina. Leitar nú
fjöldi visindamanna og al-
mennra borgara um allan heim
til Kiná til þess að kynnast þess-
ari lækningaaðferö, sem talin er
hugsanlega eiga eftir að bylta
öllum kenningum um tauga-
brautir likamans.
Blaðið hafði i morgun sam-
bandi við tvo islenzka lækna, þá
Kjartan Pálsson, ritara Lækna-
félags Islands og Pál Asmunds-
son, annan ritstjóra Lækna-
blaðsins og bað þá að segja álit
sitt á þessari lækningaraðferð.
Kjartan Pálsson kvaðst ekki
vita til að læknar heföu leitaö til
Læknafélagsins um fyrir-
greiðslu vegna fyrirhugaðrar
Kinaferðar, en sagði að vissu-
lega rikti hér eins og annars
staðar á Vesturlöndum áhugi á
þessari lækningaaðferð, sem
bryti i bága við margt sem
viðurkennt væri i lækna-
visindunum. Taldi hann að fá-
fræði hefði rikt um þessa aðferð
á Vesturlöndum til þessa og
hefði hún ekki verið viðurkennd
almennt. „Við skiljum ekki
hvernig deyfingar og lækningar
geta átt sér stað með þessari að-
ferð, og fjölda margir álita að
hér sé um hreina dáleiðslu að
ræða”, sagði Kjartan.
Páll Asmundsson sagði að ný-
lega hefði verið þýdd grein fyrir
Læknablaðið, sem væri rituð af
bandariskum lækni, sem hefði
kynnt sér nálastunguaðferðina
er Nixon heimsótti Kina. Var
þessi grein birt i stærsta lækna-
timariti i Bandarikjunum og
vakti geysilega athygli. „Þessi
læknir telur, að með rannsókn á
þessari lækningaaðferö, verði
aö likindum gerbylt öllum kenn-
ingum um taugabrautir likam-
ans. Einkum hefur áhuginn á
þessum nálastungum beinzt að
deyfingunum, sem gerðar eru
með fullri meðvitund sjúklings-
ins.
„Telur þú hugsanlegt aö hér
sé aðeins um dáleiðslu að
ræða?”
„Þeir sem hafa kynnt sér
þetta vel og verið vitni að skurð-
aðgerðum, þar sem sjúklingur-
inn er deyfður með nálastungu,
hafa visað á bug öllum kenning-
um um dáleiðslu og sömuleiðis
hafa þeir visað á bug öllum
kenningum um að Kinverjar séu
svorækilega „heilaþvegnir,” að
þeirgeti útilokað allan sársauka
með einbeitingu, eins og sumir
Vesturlandamenn hafa viljaö
halda fram,” sagði Páll enn-
fremur. —ÞS
Verðlaunofé Fischers fryst?
Nú getur farið svo að
verðlaunafé það sem
Fischer fellur i skaut í ein-
víginu verði kyrrsett eins
og reyndar eigur hans í
Bandarikjunum.
Hafsteinn Baldvinsson, lög-
fræðingur Fox hér á landi tjáði
Visi i morgun að slikt kæmi vissu-
lega til greina. „Ef Fox fer fram
á það, að kyrrsetja verðlaunafé
Fischers þá þarf hann að höfða
mál hérna innan 7 daga frá
kyrrsetningu til staðfestingar á
henni.
Þegar svo krafan fellur endan-
lega i máli Fox i Bandarikjunum,
standa þessar eignir til fullnustu
kröfunni. Þessi atriði hafa verið
rædd en að svo stöddu þori ég
ekkert að segja um hvort þetta
verði gert.”
Guðmundur G. Þórarinsson
forseti Skáksambandsins hafði
það um málið að segja að þetta
væri Jagalegur framgangur sem
við hjá sambandinu hvorki ráðum
við né okkur kemur við á nokkurn
hátt.” Það eru þvi algjörlega Fox
og Fischer sem hér þurfa að
kljást og er engan veginn útséð
hvernig þeirri streitu muni lykta.
GF
Hér fó kon-
urnar inni
— gerist þœr brotlegar
við lögin
Nú er unnið að þvi að byggja
l'angelsisgarð við fangelsið við
Siðumúla og á þá að vera hægt að
nota það fyrir afplánunarfanga.
Jón Thors, deildarstjóri i
Dómsmálaráðuneytinu, sagði
blaðinu aðekki væri þetta sérlega
rammbyggður garður, enda ekki
gert ráð fyrir að þarna verði
erfiðir fangar, sem hugsanlega
hyggðu á flótta. Verður þetta
fangelsi, ásamt gamla heng-
ingarhúsinu, notað til bráða-
birgða, eða þar til byggt hefur
verið nýtt og fullkomið fangelsi.
ViðSiðumúlann verður aðstaða til
þess að hafa kvenfanga, en i hinu
nýja fangelsi verður sérstök deild
fyrir kvenfólk. Ekki taldi Jón að
byggt yrði sérstakt kvennafang-
elsi, enda kvenfangar miklu færri
en karlfangar. —ÞS
SKIUA
FER FISCHER
í FÓSSI?
- Tvö „alvarleg" bréf
fró Cramer og Fischer
til Lothar Schmid
KOMA 0G
10 $ EFTIR
„Við gizkum á aö farþegar
skilji að meðaltali 10 dollara
eftirhér á tslandi, en alls komu
á okkar vegum á milli 12-1500
farþegar með skemmtiferða-
skipunum. Þó eru þetta varla
tölur sem hægt er að byggja á,
sagði Charlotta Hjaltadóttir hjá
Ferðaskrifstofu rikisins i viðtali
við blaðið.
„4 ferðir skipa hafa verið hér
á okkar vegum, en það eru tvö
skip, sem komið hafa hingað
fjórum sinnum. Um 3—500 far-
þegar hafa verið hverju sinni,
og áhöfnin er jafn fjölmenn.
Mjög liklega tökum við á móti
fleiri skipum næsta sumar, en
þó hefur þessum skemmtiferða-
skipum fækkað”.
„Það er erfitt að segja hve
mikið við græðum á þessum
skipum hverju sinni, en koma
þeirra hefur þó sitthvaö að
segja”, sagði Geir Zoega. „Ég
gizka á að við höfum til dæmis
fengiö inn 12 hundruö þúsund
milljinir á ferðamönnum allt i
allt á ári”.
„Hvað viðvikur skemmti-
ferðaskipunum, þá koma með
þeim fjöldamargir farþegar. í
þessari 21 ferð sem komið hefur
á okkar vegum, voru minnst 700
farþegar og allt upp i 1.250
Ahöfn skipa svo yfirleitt 5—600
manns. Þetta fólk ferðast
einhver ósköp um, og eyðir
miklum peningum. Alls tókum
við á móti 15—18 þús. farþegum
i sumar. Þessir farþegar stoppa
hér aðeins stutta stund, en þeir
nota timann mjög vel. Fara að
Gullfossi og Geysi og ferðast um
landið. Við höfum þegar fengið
pöntun frá 16 skipum fyrir
næsta sumar, og sennilega
verða þau yfir 20 i allt''.
—EA
„Ef þessu heldur svona áfram
og yfirdómarinn hefur ekki betri
stjórn á áhorfendum, getur farið
svo að Fischer tefli ekki meira i
einviginu,” sagði Fred Cramer i
stuttu samtali viö Vísi I morgun.
„Við sendum Schmid tvö bréf i
nótt sem hann hefur nú móttekið
samkv. simtali minu við hann i
morgun. Annað bréfið er frá
Fischer en hitt frá mér,” sagði
Cramer ennfremur. „Við höfum
margitrekað það, að hávaðinn -i
salnum sé óþolandi en á sunnu-
daginn keyrði þó um þverbak.
Ég veit það að margir stór-
meistarar myndu ekki sætta sig
við að tefla við slikar aðstæður.
Gligoric, Byrne, Kavalek og
Lombardy hafa allir sagt mér að
hávaðinn af völdum áhorfenda á
sunnudaginn hafi verið svo mikill
að útilokað hefði verið i þeirra
sporum að tefla.
Fischer fór fram á það við
Schmid að 16. skákin yrði flutt i
borðtennissalinn (eins og 3.
skákin) en hann sinnti þvi engu.
Eins og málin standa núna eru
þvi horfur allar hinar uggvænleg-
ustu og óvist hvort Fischer muni
halda áfram að tefla, verði ekki
gengið að kröfum hans,” sagði
Cramer að lokum.
Visir náði tali af Schmid i
morgun vegna þessara nýju
hótunarbréfa Fischers og Cram-
ers. Hann kvaðst ekki reiðubúinn
að láta hafa neitt eftir sér um
bréfin en taldi þau mjög alvarlegs
eðlis.
GF