Vísir - 26.08.1972, Blaðsíða 5
Vísir Laugardagur 26. ágúst 1972
s
í MORGUN ÚTLÖNDI MORGUN UTLÖND í MORGUN UTLÖND
UMSJON:
HAUKUR HELGASON
Kínverjar beita fyrsta neitunarvaldinu:
Fella aðild óttunda
stœrsta ríkis heims
Kinverska alþýöulýð-
veldið beitti neitunarvaldi
sínu i fyrsta sinn í gær, og
hindraði með þvi, að
Bangladess yrði tekið í
Sameinuðu þjóðirnar.
Kinverjum tókst ekki að
fá framgengt frestun máls-
ins.
Tillaga Kinverja um frestun*
var felld með jöfnum atkvæöum
gegn þremur, en niu fulltrúar
greiddu ekki atkvæði.
Þá sáu Kinverjar fram á, að
ekki yrði komizt hjá átökum, og
fulltrúi þeirra, Huang Hua gerði i
ræðu sinni harða árás a'
Bangladess, ,en þó einkum á
Sovétrikin.
Hann ákærði Sovétmenn fyrir
að leika á leiksviði heimsins
,,með hunang i munni en hnif i
hjarta".
Kina greiddi siðan eitt atkvæði
gegn tillögunni um aðild Bangla-
dess, sem Sovétmenn,Indverjar,
Júgóslavar og Bretar báru fram.
Ellefu voru hlynntir aðildinni,
þrir sátu hjá. En neitunarvald
Kinverja hindraði framgang
málsins.
Bandariski fulltrúinngreiddi at-
kvæði með meirihlutanum i 15
manna ráðinu.
Rikið Bangladess fæddist i
styrjöld Indverja og Pakistana i
desember siðastliðnum. Vestur-
Pakistanir biðu ósigur.
Kinverjar studdu Vestur-
Pakistani, en Sovétmenn
Indverja i striðinu.
Bangladess er áttunda fjöl-
mennasta riki heims með 75
milljónir ibúa.
Ródesía og S-Afríka fá
ekki að vera á skákmótinu
Suður-Afrika og
Ródesia fá ekki að vera
með i Olympiuskák-
mótinu i Skopje i Júgó-
slaviu vegna stefnu
rikisstjórna þessara
landa i kynþátta-
málum.
Olympiumótið hefst 18.
september.
Forgöngumenn mótsins
segja, að þeim sé bönnuð þátt-
taka vegna þess „að þau full-
nægi ekki skilyrðum alþjóða-
skáksambandsins, FIDE, vegna
aðskilnaðarstefnu i kynþátta-
máum, sem er andstæð framf
skoðunum og stefnu annarra
þátttökurikja og þess rikis
(Júgóslaviu) sem gengst fyrir
keppninni”,
„Skáksveitir frá Ródesiu og
Suður-Afriku væru hins vegar
gjaldgengar ef iskaksambönd
þessara rikja lýsa opinberlega
yfir andstöðu við stefnu rikis-
stjórnanna i kynþáttamálum og
hafa i sveitunum beztu skák-
mennina án tillits til hörunds-
litar” segja forráðamenn mót-
sins.
Keðjubréfakóngurinn um Svíþjóð:
Pólitísk
,,Ég og kona min
höfum lengi undirbúið
flótta frá Sviþjóð”, Svo
segir forstjórinn frá
Eskiltuna, sem er
grunaður um að hafa
smyglað um 400 mill-
jónum isl. króna verð-
mæti i sænskum
krónum úr landi, svo-
nefndur „keðjubréfa-
kóngur” i fréttum.
„t Sviþjóð rikir stjórnmálaleg
kúgun” segir hann. Við gátum
ekki staðið undir öllum
sköttunum. Ef ég kem einhvern
tima aftur þá verður það til að
fara á sveitina. Timi er til
kominn að ég fái aftur eitthvað
kúgun
af öllum sköttunum, sem ég hef
greitt”, segir hann. Grunur
leikur á, að hann hafi komið
gróða sinum af keðjubréfunum
úr landi jafnóðum.
Forstjórinn hefur verið i
snekkju sinni, Agneta, með
konu og sjö börnum, og mun
ætla til Mallorca.
Hann neitar að vera viðriðinn
gjaldeyrissmygl.
„Gjaldeyrissmygl? Ég á ekki
einu sinni skiptilykil. Allt er
skrifað á nafn konu minnar. Ég
ætla að fá mér vinnu sem ieigu-
bilstjóri á Mallorca, Við höfum
aðeins fé til að greiða ferðina og
hálfan fyrsta mánuðinn.”
Yfirvöld i Sviþjóð hafa gefið
út handtökuskipun og beðið al-
þjóðalögregluna Interpol að
handtaka hann.
Komið hefur fram, að sænska
lögreglan missti af honum
vegna seinagangs. Unnt hefði
verið að handtaka hann i
Simrishavn, þar sem hann varð
að gera við bátsvélina.
Björgunarbátur dró bátinn þar
til hafnar, en hann var við-
gerður á mánudagsmorgun. og
slapp.
Ermasundsgöng
Franska og brezka stjórnin
ætla i sameiningu að gera göng
undir Ermasund. Fram
kvæmdir eiga að hefjast i júni
næsta ár. Kostnaður er áætlaður
um 100 milljarðar króna.
Göngin munu verða fullgerð
árið 1980.
Þá eiga járnbrautarlestir að
komast frá London til Parisar á
tveimur klukkustundum og 40
minútum.
Sænska lögregian heldur áfram
að hafa hendur i hári stroku-
fanganna. Hér er einn þeirra
færður á lögreglustöðina i
Mariestad eftir mikinn eltinga-
leik.
\ixon lél ekki hjá liða aö heimsækja Mamie gömlu Eisenhower, og
minnast þess, að nú eru 20 ár liðin frá útnefningu Eisenhowers sem
frambjóðanda repúblikana á flokksþinginu 1952. Nixon var sem
kunnugt er varaforseti I tiö Eisenhowers. Hann tapar ekki á svona
myndum.
mrffl’ /ý SwJjT ‘
c&MÍÆó
.