Vísir - 26.08.1972, Page 16
Laugardagur 26. ágúst 1972
Valt
niður
60 m
bratta
Nýklassaður með splunku-
nýrri vél valt þessi oliubíll 60
metra niður flugbrattan halla
og niður I fjöru, og eins og
myndin ber með sér, er hann
gjörónýtur.
I bflnum voru tveir menn á
leið með fullfermi af hráoliu,
þegar þeir mættu þarna á veg-
inum skammt utan við Suður-
eyri I Súgandafirði, öðrum bil
og viku út I kantinn. Gn það
þoldi nýi vcgurinn ekki, þvi að
kanturinn lét undan með þess-
um afleiðingum.
Báðir mennirnir voru fluttir
slasaðir á sjúkrahúsið á tsa-
firöi, en voru þó ekki házka-
lega meiddir, ogþótti það meö
ólikindum vel sloppiö. — GP
VÍSIR
Fischer og Spasskí:
Skattaðir eða ekki?
„Nu,Geller'
det at holde
kœft"
— sagði skattstjóri
„Gins og málin standa vil ég
ekkert gefa upp um hvort
Kischer og Spasski verða
skattiagðir eða ekki”, sagði
Sigurbjörn Þorbjörnsson
rikisskattstjóri þegar Visir
innti hann eftir þvi hvort búið
væri aö ákveöa hvort teknir
yröu skattar af verðlauna-
fénu.
„Þetta er allt i athugun hjá
okkur”, sagði Sigurbjörn.
Eins og fram kom i Visi á dög-
unum þá eru tekjur erlendra
manna hérlendis vitaskuld
skattskyldar eins og annarra.
En enginn hefur viljað tjá sig,
hvorki skattstjörinn i Reykja-
vik né fjármálaráðherra,
vegna þeirra Spasskis og
Fischers „Nu gælder det at
holde kæft” sagði skattstjór-
inn og sló öllu upp i grin og
vitnaði i gamla frelsishetju
norska!
Halldór E. Sigurðsson fjár-
málaráðherra vildi ekkert um
málið segja að sinni. „Við
skulum ekki gera þeim erfið-
ara fyrir svona meðan á ein-
viginu stendur”, sagði Halldór
og kvað alls óvist hvort þeir
yrðu skaltaðir eða ekki. Það
er þvi ekki annað að gera en
að biða og sjá hvað setur.
Verða þeir Fischer og Spasski
skattlagðir hérlendis eða
ekki?
JÚLÍ METMÁNUÐUR
í FLUGINU
IVIikil aukning hefur orðið á
farþegaflutningi Flugfélags
islands á árinu, og þó sérstak-
lega í júlimánuöi. Aukningin
hefur orðið hlutfallslcga meiri í
innanlandsflugi og hafa
svonefndar dagsferðir átt sinn
þátt i þvi. A næsta ári verður
flugferðum yfirleitt fjölgaö á
innanlandsleiðum vegna hins
vaxandi straums ferðamanna.
Á fyrstu sjö mánuðum ársins
flutti Flugfélag fslands 38.264
farega i millilandafluginu, sem
er 6.8% aukning miðað við árið i
fyrra. Þessi aukning féll ákaf
lega misjafnt á mánuði ársins.
Var sáralitil fyrstu mánuðina,
eh i júli varð aukningin 21.5%.
Á sama tima, fyrstu sjö
mánuði ársins, voru 86.590 far-
þegar fluttir i innanlandsflugi,
sem er 14.8% aukning miðað við
sömu mánuði i fyrra. I júli
einum nam aukningin 13.3%.
Samtals farþegaflutningur F.
1. þessa sjö mánuði i innan-
lands- og millilandaflugi voru
124.854 farþegar og heildar-
aukning 12.2%.
Aukningin innanlands hefur
orðið hvað mest milli Akureyrar
og Reykjavikur. Mikil aukning
hefur einnig orðið i flugi milli
Reykjavikur og Hornafjarðar
og Reykjavikur og Fagurhóls-
mýrar, til Egilsstaða, Isa-
fjarðar og Vestmannaeyja
Þetta eru ferðamannastaðirnir,
sagði Sveinn Sæmundsson
blaðafulltrúi, sem veitti þessar
upplýsingar. Hann sagði, að
aukningin væri aðallega fólgin i
farþegaflutningi á útlendingum
og nú væri svo komið, að meiri-
hluti farþega, sem fluttir væru á
aðal sumarmánuðunum væru
útlendingar.
Dagsferðirnar eigi sinn þátt i
þessu, en margir útlendinganna
sem hafi stutta viðkomu á
landinu, sjái sér hag i þvi að
heimsækja tvo til þrjá lands-
fjórðunga i dagsferðunum.
Þessi aukning ferðamanna
muni hafa það i för með sér, að
ferðum verði fjölgað á innan-
landsleiðunum flest öllum
næsta ár og sé gert ráð fyrir ferð
i Djúpið i sambandi við Isa-
fjarðaflug á næsta ári.
1 sumar var yfirleitt farið
fjórar ferðir á dag til Akureyrar
og var sérstaklega bókað i
morgun- og kvöldferðirnar.
Meirihluti farþeganna fer i
Mývatnssveitina.
Grænlandsflugið hefur gengið
all vel i sumar þótt veður væri
slæmt i Vestur-Grænlandi i júli-
mánuði og erfitt um flug til
Islendingabyggða hinna fornu.
Ný þyrla
Landhelgis-
gœzlunnar:
í sjúkraflutninga
og smalamennsku
Landhelgisgæzlan
hefur fengið þarfan
þjón til sinna nota. Er
það þyrla af Shikorsky
gerð, og getur hún flutt
10 manns i sætum, eða
sex i sjúkrabörum. Er
þessi nýi farkostur
einkar vel búinn til
björgunarstarfa.
Fylgir henni spil, sem getur
hift upp allt að 600 punda þunga,
eða tvo mjög þunga menn.
Þessi nýja þyrla sem hefur
hlotið einkennisstafina TF-
GNA, hefur fjögurra tima flug-
þol miðað við 90 milna hraða, en
hámarkshraði sem vélin nær er
105 milur. Er hún knúin þotu-
hreyfli og sögðu þeir Landhelg-
isgæzlumenn, sem sýndu frétta-
mönnum þyrluna i gærdag, að
flughæfni þyrlunnar væri mjög
mikil, hana skipti t.d. litlu hver
vindhraðinn væri, og væri hún
af þeim sökum mjög hæf til að
gegna gæzlustörfum fyrir Land-
helgisgæzluna, þ.e. þegar búið
verður að setja i hana radar.
Nýja þyrlan getur svo lent á
þremur varðskipanna, ,,en það
er ekki ætlunin að hún verði
mikið á skipunum. Hún verður
notuð meira sem sjálfstætt tæki,
enda fylgir henni þriggja
manna áhöfn”, sagði Ólafur
Valur Sigurðsson, einn úr áhöfn
þvrlunnar. „Vélin er einnig
þannig búin, að hún getur lent á
sjó. Skrokkur þyrlunnar virkar
þá sem flotholt, en einnig eru
viðbótar flotholt utan á henni”.
Sagði Ólafur Valur, að þyrlan
myndi sennilega koma Land-
helgisgæzlunni að hvað drýgst-
um notum i þeirri starfsemi
sem flokkast undir aðstoð við
dreifbýlið, ,,en það er raunar
æði margt”, sagði Ólafur, „allt
frá sjúkraflutningum upp i fjár-
leitir fyrir bændur”.
En sennilega mun bændum
ganga erfiðlega að fá þessa nýju
þyrlu léða til aö fara i eftirleit
þvi hún er dýr i rekstri.
Smá von um sólskin
Skyldi nokkur hér I höfuð-
borginni og núgrenni búast við
sólskini á næstunni. Þeir eru
sennilega fáir, enda virðist Htil
von til þcss að nokkuð sjáist til
sólar á næstunni. En þó — við
iögðum þessa spurningu fyrir
veðurfræðinga Veðurstofunnar,
og þeir svöruðu ekki með blá-
köldi nei-i.-
En þeir tóku það eindregið
fram að engu yrði lofað.Eins og
er, er svolitið lát á lægðargangi,
sem hefur verið mjög þrálátur
að undanförnu, en það getur þó
verið að þessi lægðargangur
taki sig upp aftur.
Þess væri óskandi, en spáin
fyrir helgina er svipuð og verið
hefurað undanförnu. Suðvestan
átt og skúrir vestanlands.
Heldur kalt, hiti um 6 stig yfir
nóttina en 9-10 stig á daginn.
A Austurlandi er hins vegar
spáð dálitlu sólskini á laugar-
dag og sunnudag, en fremur er
þar svalt. —
— EA