Vísir - 11.09.1972, Blaðsíða 1

Vísir - 11.09.1972, Blaðsíða 1
62. árg. — Mánudagur 11. september 1972 — 206 tbl. SIGURDAGUR FINNA I MÍÍNCHEN Finnsku langhlaupararnir unnu stórsigra i 1500 m og 5000 m hlaupunum á Olympiuleikunum i gær — Pekka Vasala geröi sér litið íyrir og gjörsigraði hlaupakónginn Keinó frá Kenýa á endasprettinum í 1500 m hlaupinu og rétt áður hafði I.asse Viren sigrað og sett nýtt Olympiumet i 5000 m hlaupi. Engin hlaup vekj-jafnmikla athygli og þessi — engir sigurvegarar verða vinsælli — og nú er Finnland á ný orðið stórveldi á hlaupabrautinni. Það hefur ekki séð i 44 ár eöa frá 1928 að sama þjóð hljóti gullið i 1500, 5000 og 10000 m hlaupum, þá Finnland eins og nú, og þetta eru fyrstu sigrar Finna i hlaupum á Olympiuleikum frá þvi 1926 i Berlin. Sjá iþróttir á bls. 9-16 Hlátur og grátur Það var grátur og lilátur á Olympiuleikunum, sem lauk i gær. Þessar myndir eru táknrænar bæði fyrir gleðina og vonbrigðin, sem þar áttu sér stað. Að ofan brosir Gunnar Larsson, Sviþjóð, ánægður með gullpeningana sina tvo i sundinu, en að neð- an tárast fremsti sprett- hlaupari Bandarikjanna eftir aö hafa misst af undan- rásunum i 100 m hlaupinu vegna mistaka þjálfara sins. Fáir blóðgjafar Einn er sá banki, sem aldrei spyr um efnahag, greiðslu- getu eða vexti, enda er inni- stæðan i þeim banka ekki alltaf mikil. Blóðbankinn þarf heldur ekki að skila neinuin öðrum ágóða en þeim.sem felst i björguðum mannsiifum og bættu heil- brigði. Rekstur þessa banka er að þvi leyti erfiður, að hann þarf alltaf nýtt stofnfé og þvi nauðsynlegt að menn hugsi hlýlega til hans og þá ekki aðeins þeir, sem njóta fram- lags úr honuin. Sjá Visir spyr bls. 2 Fyrrv. ráðherro í njósnamáli Válegt njósnamál er efst á baugi i bandariskum stjórn- málum, þar sem koma við sögu framámenn repúblik- ana, meðal annars fyrrvcr- andi ráðherra. Sjá bls. 6 Fram íslandsmeistari — Víkingar féllu. — Sjá íþróttir bls.14. BJARGAÐI BÖRNUNUM Á NÆSTA BÆ ÚR ELDI 3 og 4 ára börn innikróuð í eldi Tvö 3-ja og 4-ra ára gömul börn voru hætt komin, þegar eldur kom upp i ibúöarhúsinu að Króksstööum i öngulstaða- hreppi í gærdag. Voru þau innikróuð af eldi og reyk i herbergi upp á hálofti, þegar þeim var bjargað út um glugga. ..Bóndinn á næsta bæ. Haukur Berg i Fifilgerði. kom aö i tæka tið til þess að hjálpa þeim út um gluggan og niöur Ijósþakið við hliðina", sagði Arníriður Hólms- dóttir, húsmóðirin að Króks- stöðum. ,,Við höfðum öll verið að verki i kartöflugarðinum, og börnin ein heima, þegar ég leit upp og sá að reyk lagði út um glugga a efri hæðinni," sagði Arnfriður i viðtali við Visi. NY ISÖLD ER AÐ BYRJA Haukur Berg i Fifilgerði hafði verið úti á túni að störfum og varð fyrstur manna var við eldinn, sem um svipað leyti sást alla leið úr flugturninum a Akureyri. Þaðan var slökkviliðinu gert við- vart um kl 17.45. Húsið, tveggja hæða steinhús um 130 fermerta stórt, var alelda. þegar slökkviliðið kom að. og varð ekki slökkt i húsinu að lullu fyrr en um kl.10 i ga'rkvöldi. Stóðu þá veggir og þak uppi,en allt brunnið innanveggja sem brunnið gat. ,,Það eina, sem okkur lókst að bjarga voru tvö sjónvarpstæki og þvottavél en það var þó mjög skemmtaf eldi”. sagði Arnfriður. Auk þeirra hjónanna, Arnfriðar og Aðalsteins Helgasonar, bjuggu þarna sonur Aðalsteins og kona hans, eða alls 8 manns i heimili með börnum beggja „Innbúið telst ábyggilega ekki vera hátt tryggt h já okkur.jgn við vorum nýbúin áð hækka hús trygginguna, eftir að við léturr gera húsið upp,” sagði húsmóðir in. - GP Sovétríkin stigahœst Þegar keppni lauk á Oly mpiuleikunum i gær- kvöldi voru stig þjóðanna lögð saman i hinni óopinberu stigakeppni leikanna. Sovét- rikin hiutu flest stig — einnig flesta verðlaunapcninga og þar af voru 50 úr gulli. Bandarikin urðu i öðru sæti, þrátt fyrir að flcst gengi á afturfólunum hjá Banda- rikjamönnum i frjálsiþrótta- keppninni, bæði i stigum og verðlaunum — hlutu 33 gull. Sjá iþróttir bls. 9-16. Strákar með derhúfur og litlar penar stúlkur Það niætti auðveldlcga ætla að mynd þessi hafi verið tekin i Austurstræti cinhvers staðar á árunum upp úr aldamótunum, cn svo er þó ekki. Þessi.mynd var tekin uppi i Gufuncsi i gær- dag, þegar unnið var af fullum krafti við kvikmyndatökur Brckkukotsannáls. Það var lif og fjör i þessum litla bæjar- hluta. Hoppandi strákar mcð derhúfur á höfðinu iklæddir stuttbuxum, og iitlar , penar stúlkur i rósóttum kjóium. Sjá bls.: 3 segir brezkur frœðimaður Við erum hvorki meira né minna en á hægri leið til nýrrar isaldar. Veðráttan mun fara kólnandi út þessa öid og reyndar lengur, þangað tii isöld verður, citthvað svipað og fyrir um 60 þúsund árum, þegar isbreiðan náði suður fyrir Stóra-Bretland ogyfir mestan hluta Bandarikj- anna. Þetta fullyrðir brezkur veðurfræðingur og háskólapró- fessor og færir margvislcg rök máli sinu til sönnunar. Hann telur þó, að langur timi liði, unz regluleg isöld verður. Hins vegar er þetta meira en lit- ið kviðvænlegt Islendingum, ef rétt reynist, þar sem viö fynd- um vafalaust manna mest til byrjunaráhrifanna. Islenzkir veðurfræðingar telja, eins og flestir fræðimenn hafa gert til þessa, að veðurfar sveiflist til, og ekki sé ástæða til ótta. þótt kólni litið eitt i nokkur ár. Fin Bretinn Lamb er annarr- ar skoðunar. Sjá bls. 5

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.