Vísir - 11.09.1972, Blaðsíða 5
Visir ' ihláHUdáguriifti1 11.' scptember 1972
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
UMSJÓN:
HAUKUR HELGASON
NÝ ÍSÖLD AÐ KOMA'
,Veðrátta fer stöðugt kólnandi og mun gera út öldina," segir brezkur frœðimaður
Ný isöld er að hefjast á
norðurhluta jarðar, smám
saman og veðráttan verð-
ur sifellt kaldari það sem
eftir er aldarinnar. Þetta
segir brezkur veðurfræð-
ingur.
Vefturfræðingurinn býður þó
nokkra huggun.
1 fyrsta lagi mun isöld ekki
hefjast til fulls fyrr en eftir tiu
þúsund ár, segir hann, og hún
mun ekki verða jafn hörð og var
fyrrum.
Veðurfræðingurinn Lamb,
sem flytur þessa spá, er for-
stjóri veðurrannsókna i East
Anglia-háskólanum.
..Milli-isaldatimabilinu er
lokið á norðurhveli jarðar, ”
segir hann. ..Fyrir getur komið,
að veður hiýni um skamman
tima. en það kólnar þegar til
lengdar lætur.”
Lamb segir, að ný isöld sé
þegar hafin að þvi er tekur til
margra jökla i Bandarikjunum
og i Evrópu. ,,Yfirleitt eru menn
á þvi, að jöklar i Norður-
Ameriku og einnig i ölpunum i
Evrópu séu stærri en þeir voru
fyrir 2000 árum”.
Lamb segir. að á fyrri helm-
ingi 20. aldar hafi veðrátta verið
hlýrri en nú er. Hitastig hafi
lækkað hægt og bitandi siðustu
tuttugu ár.
Áhrif geislavirkni.
..Næstu tvær aldir mun
veðrátta verða kaldari. Siðustu
tuttugu ár þessarar aldar mun
stöðugt kólna. Siðan getur verið,
að hlýni um hrið, en einungis
um nokkra tugi ára. Þá mun
aftur kólna.”
I.amb segir. að ein helzta
orsök breytinganna sé geisla-
virkni frá sólu. ,,Við vitum, að
áhrií sólar eru breytileg,” segir
hann. ..Fjarlægðin frá jörðu til
sólar breytist einnig á löngum
tima, er braut jarðar minnkar
eða stækkar. Iialli jarðar breyt-
ist lika i snúningi hennar á
möndli sinum. Heimskautsisinn
hefur vaxið, og það hefur áhrif á
loftmassann i grennd."
Siðasta mikla isöldin var fyrir i
um 60 þúsund árum. t>á náði is-
breiðan suður fyrir Stóra--
Bretland og þakti Norður-
Ameriku, þar sem nú standa
borgirnar New York,
Cincinnati, St. Louis og Kansas
C'ity.
Skelfíng í ólympfuþorpinu í gœrkvöldi
Mörg hundruð vel vopnaðra
lögregluþjóna og hermanna
leituðu ákaft i ólympiuþorpinu i
gærkvöldi, eftir að lögregluþjónn
taldi sig heyra fimm skothvelli
þaðan.
Lögreglan sió hring um þorpið.
Eftir hálftima árangurslausa leit
var henni hætt. Menn óttuðust i
fyrstu, að einhverjir atburðir á
borð við þá sem urðu i fyrri viku
kynnu að hala orðið. Lögreglu-
þjónn taldi sig heyra skot og sjá
mann með skammbyssu. L>á töldu
margir aðrir sig einnig hafa heyrt
skothvelli, og sagan flaug. Málið
varð sifellt stærra. Taugar fólks i
ólympiuþorpinu voru spenntar til
hins ýtrasta. Hegar lögreglumenn
með vélbyssur tóku sér stöðu við
búðir sovézka iþróttafólksins.
komst sú saga á kreik, að bardagi
hefði orðið þar og að minnsta
kosti einn hefði fallið.
Lik finnst
Nýr orðrómur kviknaði, þegar
lik 17 ára pilts fannst. Hað var af
austurriskum stúdenti. sem hafði
dottið og beðið bana i tilraun til
að klifa flaggstöng rétt utan
ólympiuþorpsins.
Menn vörpuðu öndinni léttar
þegar Klein blaðafluutrúi,
skýrðið Irá þvi.að nákvæm leit i
þorpinu heiði ekki leitt neitt
grumsamlegt i ljós. Engin lik eða
særðir menn hefðu fundizt þar
eða nein merki um skot.
Ættingjar i Tel Aviv kasta sér yfir kistu eins iþróttamannanna, sem féllu i Múnchen.
ÞEIR
BÍÐA
DÓMS
Arabisku hermdarverkamenn-
irnir, sem biða dóms i MO’nchen
fyrir morðin á iþróttafólkinu frá
israel. Frá vinstri: Ibrahim
Moroud Badram, en taka varð
annan fótinn af honum vegna sár-
anna. i miðið er Samer Mohamed
Abdulah, sem særðist á hægri
hendi, og loks er A1 Dnawy Abed
Kair.
Israelsmenn
gagnrýna
V-Þjóðverja
fyrir
„5 skyssur"
Bráðabipgöerannsókn
öryggislögreglu israel á
misheppnaðri tilraun
vestur-þýzku lögreglunnar
til björgunar gislunum
leiddi i Ijós aö Þjóðverjar
,,geröu allar hugsanlegar
skyssur", að sögn dag-
blaðsins Neue Zurcher
Zeitung.
Blaðið birtir frétt frá Jerúsa-
lem, þar sem segir. að gagnrýni
ísraelsmann beinist að fimm
ta'kinlegum atriðum.
Hegar gislarnir voru fluttir
til bilsins og siðar úr bilnum til
þyrlunnar misstu lögreglumenn
af tveimur tækifærum til að yfir-
buga Arabana.
Áhiifn þyrlanna hefði átt að
vera skipuð lögreglumönnum i
dulargervi, sem .hefðu getaö
fengið færi á að yfirbuga
hermdarverkamennina
i geymum þyrlanna hefði átt
að vera eins litið af eldsneyti og
unnt var. og þá hefði ekki kviknað
i þeim.
Skyttur iögreglunnar á flug-
vellinum hefðu ekki átt að skjóta
fyrr en Arabarnir voru komnir út
úr þyrlunum.
Eluvélin, sem var viðbúin á
flugvellinum, hefði átt að vera
„gildra” svo að enn hefði gefizt
eitt tækifæri til að yfirbuga
hermdarverkamennina, ef það
hefði mistekizt áður.
í blaðagreininni er sagt, að
stjórnvöld i israel hafi samþykkt
að afla skyldi beitt á þeim for-
semdum, að vestur-þýzka lög-
reglan mundibeita svipuðum að-
gerðum og her israels. Háttsettur
ísraelsmaður er sagður hafa
farið til Munchen sem fulltrúi
stjórnar israel, en hann hafi ekki
komið i tæka tið.
í öðrum fréttum er sagt, að full-
trúar ísraelsstjornar hafi verið á
flugvellinum. þegar vestur-þýzka
lögreglan réðst gegn Aröbunum,
en stjórn aðgerðanna hefð verið i
höndum Vestur-Hjóðverja.
Féllu allir fyrir
kúlum Araba
Krufning hefur leitt i ljós, að
allir gislarnir niu féllu fyrir
kúlum Arabanna.
Heinrich Vin Misch talsmaður
innanrikisráðuneytis Bæjern
sagði i gær, að rannsókn hefði úti-
lokað, að einhverjir þeirra hefðu
fallið fyrir skotum vestur-þýzku
lögreglunnar i bardaganum á
flugvellinum. Hann sagði, að
Arabarnir hefðu greinilega myrt
alla gislana nokkrum sekúndum
eftir að skotbardaginn hófst.