Vísir - 11.09.1972, Page 7

Vísir - 11.09.1972, Page 7
Visir mánudagurinn 11. septembcr 1972 7 f,NNl „ALMENNINGSBÓKASAFNIÐ . —j SEM MENNINGARMIÐSTÖÐ" == Litið inn á sýningu á búnaði bókasafna í Norrœna húsinu Umsjón: Edda Andrésdóttir í tilefni af landsfundi islenzkra bókavarða, sem haldinn er dagana 7.-11. september hafa verið opnaðar ýmsar sýningar, Hér sést hluti af barnadeild sýn- ingarinnar i Norræna húsinu. þar á meðal sýning á búnaði bókasafna í Norræna húsinu, þar sem gefur að lita margt skemmtilegt. Fundinn sjálfan sitja bókaverðir og aðrir áhugamenn um bókasafnsmál, en auk þeirra hefur verið boðið fulltrúum frá bókavarða- félögum á Norðurlöndum, og einnig rithöfundum, arkitektum og fleirum. Tilgangurinn með því er að reyna að tengja vinnu þessara aðila aðeins saman,en allt í allt sitja um 150 manns á þessu þingi. Er við litum inn á sýninguna á búnaði bókasafna i Norræna húsinu vakti athygli okkar einna mest', það sem hægt er að gera fyrir börn á bókasöfnum. Þó að börnin séu stærsti lán- þegahópurinn á islenzkum bókasöfnum er aðeins eitt bóka- safn hér i Reykjavik,sem ekki býður aðeins upp á útlán bóka fyrir börnin. heldur einnig aðstöðu til þess að sitja við lestur. og er það bókasafnið i Sólheimum. en reyndar er slik aðstaða einnig á Akureyri. Sérstakt horn á sýningunni er ætlað börnum. og er þar komið upp skemmtilegum litrikum barnahúsgögnum, og veggir eru skreyttir með brúðum og öðru þviumliku. Á einum stað gefur jafnvelað lita brúðuleikhús, þar sem börn gætu komið til með að dunda sér. Aö þvi er Kristin H. Pétursdóttir, formaður fram- kvæmdanefndar landsfundarins tjáði okkur. er þarna verið að gefa visbendingu um það sem gæti orðið i framtiðinni, þó ekki sé ákveðið að koma neinu sliku upp á næstunni. Sýning þessi i Norræna hús inu er að þvi Kristin tjáði okkur, fyrst og fremst hugsuð sem upp- lýsingamiðstöð fyrir þingfull- trúa sem á þinginu sitja, en al- menningi er þó velkomið að lita á hana, og sérstaklega er heppi- legt fyrir kennara og þá sem að kennslumálum standa að kynna sér þá hluti sem þarna eru, og væru heppilegir á skólabóka- söfn og til kennslu. Þetta er fyrsta slik sýning sem haldin er hér á landi. 90 manns eru nú i Bókavarða félagi Islands, en sem kunnugt er, er krafizt háskólamennt unar til þess að gegna þvi starfi. Viða á Norðurlöndum eru sér- stakir skólar fyrir bókaverði, og segja margir það æskilegra en að hafa nemendur i Háskólanum. Þegar við spurðumKristinu að þvi.Jiver af Norðurlandaþjóðun- um væri lengst komin i bóka- þjónustu svaraði hún þvi til að það væri án efa Danmörk, en Norðurlöndin standa að mörgu leyti miklu framar en aðrar þjóðir i Evrópu-i sambandi við þjónustu á bókum. ..Almenningsbókasafnið sem menningarmiðstöð”, eru efni erinda sem meðal annars verða flutt á þinginu. en hlutverk bókasafnsins er ekki lengur talið það að lána út bækur til al- mennings, heldur þvi ætlað að vera stofnun sem býður fóki upp á margþætta menningarstarfs- semi. svo sem kynningu á bók- menntum. tónlist og myndlist. Slikar menningarmiðstöðvar i anddyri hússíns eru myndir tengdar bókum og bóklestri. Er þeim ætlað að skapa skemmti- legri siemningu og minna á bók- íestur. eru hér i Norræna húsinu og upplýsingaþjónustu Bandarikj- anna. Á sýningunni er smækkuð mynd af bókasafni, og þar eru meðal annars húsgögn af ný- tizkulegri gerð, ,,en he'r er verið að sýna hvað litir geta gert mikið fyrir bókasöfnin”, sagði Kristin. Og það eru vist orð að sönnu. þvi gulir, rauðir og svartirstólar af skemmtilegri gerð, lifga sannarlega upp á. Þar er meðal annars tón- listardeild, en slik deild fyrir- finnst i bókasafni Hafnfirðinga, og er þar hægt að koma og hlusta á músik og fá lánaðar hljómplötur. Tónlistardeild kemur þó til með að verða i Bústaðarkirkju, en þá leggst útibú niður i Hölmgarði. ..Bókasafnsmiðstöð, er nokkuð sem slær allt út og er til mikillar hagræðingar”, sögðu þær Kristin og Kristin Þor- steinsdóttir i stjórn bókavarða- félagsins. Upplýstu þær okkur siðan um það að starfssviði bókasafnsmiðstöðva mætti skipta i tvo aðalþætti: Annars vegar er ýmiss konar útvegun bókasafnsbúnaðar, allt frá hús- gögnum til merkimiða, og hins vegar er svo ýmis bókfræðileg þjónusta. Fyrri þáttinn geta öll bókasöfn hagnýtt sér, en bók- fræðilega þjónustan er of um- fangsmikil til þess að hægt verði að nota hana i öllum söfnum. Enda hefur sú raunin orðið á, að það eru almenningsbókasöfnin og þar á meðal skólabókasöfn sem hægt er að veita mesta og hagkvæmasta bókfræðilega þjónustu, og þannig starfa bókasafnsmiðstöðvar mest i þágu almenningsbókasafna. Skilgreining á hugtakinu bóka- safnsmiðstöð gæti verið á þá leið að það sé stofnun, fjárhags- lega óháð.sem sjái bókasöfnum fyrir alls konar þjónustu, og sá hugsanlegi arður sem orðið gæti af rekstri á slikri stofnun, rynni til hennar aftur, og hann siðan notaður til viðgangs og vaxtar og bættrar þjónustu. Bókasafnsmiðstöðvar eru i Danmörku, Finnlandi. Noregi og Sviþjóð til dæmis, en full- komnastar þó i Danmörku og Sviþjóð. Um nýjungar i sambandi við bókasöfn sagði Kristin Péturs- dóttir, að það væri þá helzt hið nýja fyrirhugaða Borgarbóka safn, sem kemur til með að breyta mjög miklu á þessu sviði. Það skal svo tekið fram að sýningin á búnaði bókasafna er kynning á starfi bókavarða. en arkitektarnir Helgi Hafliðason, Ferdinand Alfreðsson og Stefán Benediktsson hafa algjörlega séð um uppsetningu hennar. Tæki þetta er fengið að láni frá skólabókasafninu í Keflavik, og er hægt að koma fyrir í þvi mörgum eintökum af tfmaritum eða dag- blöðum og ,svo þegar þörf er á, er hægt að fletta því upp. 1 þessu tæki er nú komiðfyrir þremur mánaðarútg áfum af Life Magazin. —EA TÖKUM UPP DAGLEGA MIKIÐ AF FALLEGUM VÖRUM Litaður kristall, mikið úrval. Antik-kristall, rúbín-rauður. Handskorinn og vélskorinn kristall Kjörorð okkar er: vörur fyrir alla - verð fyrir alla & TÉKK - KRISTALL Skólavörðustig 16 simi 13111

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.