Vísir - 11.09.1972, Side 11

Vísir - 11.09.1972, Side 11
Yisir mánudagurinn 11. september 1972 OLYMPÍUMEISTARAR PÓL VERJA Á LAUG ARDALSVELLI — Pólland sigraði Ungverjaland í úrslitum knattspyrnunnar 2—1. Pólland sigraöi Ung- verjaland — Olympíu- meistarana 1964 og 1968 — meö2-l í úrslitaleik knatt- spyrnukeppni Olympiu- leikanna á MOnchen-leik- vangi i gærkvöldi. Kazimierz Deyna, sem leikur hér á Laugardals- vellinum á miðvikudag meö Legia, skoraöi bæöi mörk Póllands í leiknum. Fólland haffti mikla yfirburöi i leiknum allan timann, en þrátt fyrir þaö haföi Ungverjaland eitt mark yfir i hálfleik. Það var Bela Varadi, sem gaf Ungverja- landi forustu á 42 minútur — spvrnti knettinum framhjá pólska markverðinum Hubert Kostka af fimm metra færi. Pólska liðið hafði haft mikla yfirburði þar til þetta óvænta mark kom. Varadi náði knettin- um á eigin vallarhelmingi, lék upp allan völl og skoraði. Tveimur min. eftir hlé jafnaði Deyna. Hann fékk knöttinn frir á vitateigslinu og skoraði óverj- andi fyrir Istvan Geczi. Á 68 min. skoraði hann svo sigur- markið. Er aðeins hluti af því stríði, sem við eigum í — sagði arabískur blaðamaður um morðin á íþróttafólkinu frá ísrael Frá Jóni Birgi Péturs- syni, Miinchen. Það hefur verið allt annað en gott, að fá full- trúa fjölmiðlanna hér i Oly mpiuþorpinu — blaðamannahverfinu, til að segja álit sitt á að- gerðunum, sem áttu sér stað, þegar ellefu ísra- elsmenn létu lifið. í gærkvöldi króaði ég af einn þeirra fáu arabisku blaðamanna, sem hafa hætt sér á barinn i Pressestadt — blaða- mannabænum — hér i Munchen. Sá heitir E1 Nagar frá Tripolis og reyndar snéri hann sér fyrst að mér og spurðist fyrir hvort ég teldi Fiat- 124 góðan bil. Hann hafði i hyggju að kaupa einn slikan hér i borginni. Ég taldi Fíatinn góðan ef hann væri nýr. — en hvað um arabisku- israelsku deiluna? spurði ég. — Þú veizt eflaust sjálfur, að við berjumst þar réttlætisbaráttu gegn ísraelsmönnum, sem hafa orðið hrein kverkatök á öllum okkar arabisku þjóðum. — En hvað um atburðina, sem áttu sér stað i Olympiuþorpinu á dögunum og siðar flugvellinum? Það er raunverulega bara hluti af þvi striði, sem við eigum i. Er þá bara eðlilegt að almennir borgarar frá tsrael falli þannig fyrir byssukUlum — hvar er Olympiuandinn? , spurði ég þannan Utvarpsmann frá Tri- polis. Heyrðu, við skulum sjá spennandi leik i sjónvarpinu, sagði þá þessi fréttamaður frá Tripolis og hvarf i þröngina, þar sem menn horfðu á fyrsta ósigur Bandarikjamanna á Olympiu- leikum i körfuknattleik. Ég vildi ekki frekar rekja garnirnar Ur manninum, sem vildi kaupa sér notaðan bií hér i Mifnchen, en hann lýsti að nokkru viðhorfi þeirra manna sem dvelja hér i Pressuborginni og eru af ara- biskum uppruna. Þeir lýsa yfir stuðningi við félaga sina Ur skæruliðahreyfingunni — að minnsta kosti þegar þeir eru komnir á barinn og farnir að tala. USA gat ekki stillt upp boðhlaupssveit Bandarikin, sigurvegari i 4x400 m boðhlaupi á siðustu fjórum Olympiuleikum, gat ekki stillt upp sveit i keppn- inni nú i Munchen og um leiö hvarf öruggt gull. Alþjóða- olympíunefndin d æ m d i svertingjana Malthews og Collett, sem voru i tveimur fyrstu sætunum i 400 m halupi, frá frekari þátttöku á Olvmpíuleikunum, þátt fyrir ákiif mótmæii bandarisku Olympiunefndarinnar. Ilvert land mátti aðcins lilkynna sex hlaupara fyrir- l'ram i boðhlaupið og USA hafði aðeins þrjá menn. Þriðji 400 m hlauparinn, Jolin Smith, liafði slitið viiðva i 400 m keppninni og gat ekki hlaupið. lleimsmet- liafinn I.ec Kvans, sem tap- aði i 400 m i fyrsta skipti á bandariska úrtökumótinu, og var varamaður i Míinch- en, og átti einnig að hlaupa boðhlaupið hverfur þvi frá MiVnchen án þess að fá að sýna sig. Blómsveigur á fánastöng israel á Olympiuleikvanginum i Munchen. \bghurt erekki aðeins sælgæti Yoghurt er þjóðarréttur í Balkanlönd- unum, þar sem menn ná hvað hæstum aldri í heiminum. Rannsóknir erlendra vísindamanna sýna að yoghurt auðveldar meltinguna og eykur heilbrigði jafnt meðal barna sem fullorðins fólks. Eitt er víst: Ávaxtayoghurt er ekki aðeins sælgæti, heldur líka hollur matur. Yoghurt fæst nú með: Ananasbragði, mandarínubragði og jarðarberjabragði í 180 gr. umbúðum. Auk þess með jarðarberjabragði í % ltr. sparnaðar- umbúðum. Mjólkursamsalan meó söxuðum jarðarberjum

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.