Vísir - 11.09.1972, Page 24
vísm
mánudagurinn 11. septembcr'11)72
Nœr kafnaðir
þegar maturinn
brann við
Tveim mönnuni var bjargað
rænulausum út úr íbúð fullri af
rcyk i Karfavogi um miðnætti að-
faranótt sunnudags.
ibúar i næstu húsum kvöddu
slökkvilið og lögreglu til, þegar
þeir urðu þess varir um kl. 1.45,
að mikinn reyk lagði út um
glugga fbúðarinnar. Fundu
slökkviliðsmenn, sem brutust inn
i reykhafið, mennina tvo liggj-
andi rænulausa.
Eldurinn varð fljótlega slökkt-
ur, enda kom i ljós, að hann var ,
svo sem enginn, heldur átti reyk-
urinn allur rætur sinar að rekja til
þess að matur hafði gleymzt á
eldavélarhellu, sem fullur
straumur var á. Hafði hann
brunnið svona hroðalega við.
Mennirnir hjörnuðu báðir við,
þegar þeir komust út undir bert
loft.
Þeir höfðu verið við skál og ætl-
að að malla sér i svanginn, en
gleymt matseldinni með þessum
afleiðingum. — GP
Fót- og hand-
leggsbrotnaði
11» ára piltur fótbrotnaði og
handleggsbrotnaði, þegar liann á
skellinöðru sinni rakst á strætis-
vagn við gatnamót Ilólmsvegar
og lljallavegar um kl. 16 á
laugardag.
Pilturinn var á leið suður
Hjallaveg, þegar strætisvagninn
kom honum á hægri hönd áleiðis
austur Hólmsveg. Fyrir einhverj-
ar sakir virti pilturinn ekki hægri
rétt strætisvagnsins og ók inn á
gatnamótin og rakst framan á
strætisvagninn. — GP
Á annan
tug
unglinga
í eitrinu á
Suðureyri
Töfluglas með 2000
töflum fannst
í flœðarmólinu
,,i gærkvöldi var komið til
min mcð eitt töfluglas,. sem hafði
fundizt hcr i fjörunni rétt framan
við flæðarmálið, og er það annað
þessara glasa sem stúlkurnar
tvær fleygðu i sjóinn. Töflurnar
eru mjög smáar, og sennilega
gætu þær verið 2000 að tölu i glas-
inu".
Þetta sagði hreppstjórinn á
Suðureyri, Sturla Jónsson i við-
tali við blaðið i morgun. Sagði
hann ennfremur að glasið hefði
örugglega aldrei verið tekið upp,
en sagði það hafa látið á sjá eftir
volkið í sjónum.
Þær tvær stúlkur, sem fleygðu
glösunum i sjóinn, sögðust ekki
hafa snert á þeim, en aðeins tekið
það að sér að fela þau fyrir þá tvo
pilta sem nú sitja i gæzluvarð-
haldi á tsafirði. Stúlkurnar tvær
eru frá Suðureyri.
Lögreglumaður úr Reykjavik er
nú staddur á tsafirði og hefur
hann séð um yfirheyrslur. Margir
unglingar hafa komið við sögu
málsins, og sagðist hrepp-
stjórinn ekki hafa tölu yfir þá, en
haldið er að þeir séu á milli tiu og
fjórtán
í gærdag var piltur frá Suður-
eyri kallaður til yfirheyrslu á tsa-
firði og verður yfirheyrslum
haldið áfram. EA
„Eina sem bjargaðist var
bangsinn hennar Sigurrósar"
Melaberg á Stafnesi brann til kaldra kola:
,,Ég veit eiginlega
ekki hvað skeði. Þetta
varð allt svo snögglega
og þegar svona lagað
kemur fyrir þá veit
maður aldrei hvað
timanum liður, en við
misstum allt okkar i
þessum bruna.”
Þetta sagði Sveinn Filippus-
son að Melabergi i Stafnesi á
Reykjanesi þegar Visir hafði
samband við hann i morgun á
heimili móður hans en þangað
flúði hann með fjölskyldu sina,
eiginkonuna Steinunni Erlu
Magnúsdóttur og dóttur, Sigur-
rós 4 ára, eftir að kviknað hafði i
húsinu að Melabergi. „Klukkan
hefur liklega verið um hálf þrjú
i nótt þegar við fórum að sofa.
Eitthvað hefur Steinunn sofið
laust eða verið milli svefns og
vöku, þvi rétt eftir að viö vorum
lögzt þá fann hún reykjarlykt og
ýtti við mér. Nú, ég brá fljótt við
og labbaði út á gang og inn i eld-
húsið þaðan sem svælan virtist
koma. Þegar ég opnaði dyrnar á
eldhúsinu var það eitt svart
reykjarhaf.
Við klæddum okkur i snatri og
komum okkur út úr húsinu.
Eldurinn breiddist svo fljótt út
að ég áræddi ekki að fara inn
aftur, en hefði komist inn i
svefnherbergi og þaðan út um
gluggann en lét það nú eiga sig.
Eina leiðin var nú að ná slökkvi-
liðið og varð ég að fara út á
næsta bæ til þess að komast i
sima. Það er svona 2 kilómetra
vegalengd, en ég var fljótur
þangað. Þar hringdi ég i
slökkviliðið i Sandgerði, en án
árangurs til að byrja með. Það
hafðist svo loksins og komu þeir
frekar fljótt á staðinn. Þá hefur
klukkan liklega verið 4. Slökkvi-
liðið i Keflavik kom okkur einn-
ig til hjálpar og voru þeir með
tankbil. Þegar Keflvikingarnir
komu gekk allt greiðlegar. En
það var engu hægt að bjarga.
Eldurinn læsti sig urn alla veggi
og húsið brann til kaldra kola.
Við misstum allt sem við áttum,
heila búslóð. Þaö eina sem náð-
ist heilt út úr brunanum var
bangsinn hennar Sigurrósar
litlu. Við fengum svo inni hjá
mömmu hérna i Sörlaskjólinu
og verðum þar núna fyrst um
sinn.”
Þau Sveinn Filippuss., Stein
unn Erla og Sigurrós hafa
reyndar áður komið við sögu i
Visi. Það var i vor, en þá bjuggu
þau eins og menn muna inni i
Laugardal i bfl. Eftir það bauðst
þeim að taka á leigu Melaberg i
Stafnesi gegn þvi að Sveinn
gerði húsið upp.
GF
Hœgviðri um allt land
Viðast hvar á landinu er nú
vcður hið bezta, og hcr I Reykja-
vik er komin sunnan gola og þurrt
veður. Austan til á landinu er hæg
norðlæg átt, en litilsháttar úr-
koma er á einstaka staö fyrir
norðan.
Þó er þar ekki næstum eíns
vetrarlegt um að litast eins og
var núna rétt fyrir helgi, en snjór
er þó og á einstaka stað mynd-
uðust skaflar.
Næturfrost hefur nú verið um
nokkurn tima og frost var við
jörðu i nótt, en ekki i mannhæð.
Lægstur var hitinn eitt stig. I nótt
spá þeir skýjuðu hér i Reykjavik.
—EA
Sigurrós litla Sveinsdóttir.4 ára yneð bangsann sinn og aðra kis-
una sina.
Húsaleigan af Iðnó hoekkuð 50%:
„Spyrjum enga um leyfí"
segja húseigendur — en eiga eftir að undirrita samningana, sem LR var nauðbeygt til að gangast að
,,Viö spyrjum enga um lcyfi til
að fá að liækka húsaleiguna af
lðnó. Þá ha'kkun crum við i full-
um rétti til að framkvæma nú,
þegar nýir leigusamningar eru
gerðir og sýnt er að hækkunin er
nauðsynleg", svaraði Jón Ingi-
marsson er Visir leitaði i morgun
Irétta hjá honum af samninga-
gjörðuni eigenda Iðnós við Leik-
félagið, en Jón situr i stjórn Iðnós.
Vildi Jón ekki fjölyrða um mál-
ið öllu frekar. ,,Það er meira en
nóg búið að fjalla um þessa leigu-
samninga i blöðunum. Almenn-
ingi koma þessi mál ekkert við."
sagði hann.
Fékkst hann þó til að gefa eilitið
nánari grein fyrir þeirri ákvörðun
húseigenda að hækka leiguna.
,,Þar sem hinir nýju samningar
gera ráð fyrir þvi, aö Leikfélagið
fái nú full afnot af húsinu þótti
rétt að miða leiguupphæðina
við það. Af húsinu er heldur engar
aðrar tekjur að hafa. Veitinga-
reksturinn gerir ekki annað en að
standa á sléttu og sýningafjöldi
Leikfelagsins orðinn slikur,að um
frekari nýtingu hússins er ekki að
ra'ða. Til verulegra hækkunar á
leigutekjum þurfti nauðsynlega
að koma, þannig að staðið yrði
undir rekstri hússins. en fyrir
liggja tölur Hagstofunnar. sem
sýna, að reksturskostnaður svona
húss hefur hækkað 36 prósent,”
sagði Jón að lokum.
Guðmundur Pálsson,. fram-
kvæmdastjóri Leikfélagsins,
kvaöhina nýju leigusamninga við
húseigendur hafa verið undirrit-
aða rétt fyrir hádegi á laugar-
dag. en fyrstu sýningar Leik-
félagsins voru þá um kvöldið og á
sunnudagskvöld. Bárust Leik-
félaginu lyklar að hinum nýju
skrám að dyrum hússins skömmu
fyrir fyrri sýninguna, en um
skrár hefði veriö skipt á miðviku-
dag.
Lét Guðmundur þess getið i við-
talinu við Visi i morgun. að LR
hefði látið undirrituðum samn-
ingunum fylgja bréf til hússtjórn-
ar Iðnós þar sem sagði, að félagið
teldi sig ekki eiga annarra kosta
völ en að ganga að skilmálum
húseigenda.
Og nú er nýtt leikár hafið hjá
LR. f húsnæði. sem félagið þarf
nú að greiða nær einni milljóninni
meira fyrir en á siðasta leikári,
eða tæplega 2,7 milljónir króna.
Samninga þar að lútandi undir-
ritaði félagið nauðbeygt — EN...
húseigendur hafa raunar ekki
undirritað þá samninga sjálfir
enn sem komið er.
—ÞJM
HERMDARVERK ÞEGAR LJÓSIN
• •
VERÐA SLOKKT Enn ein vökunóttin í Munchen
Jón Birgir Pétursson,
Munchen i morgun:
Blaðamenn hér i Pressestadt i
Muncben áttu enn vökunótt i nótt.
Frakki einn kom til lögreglunnar
um bálftiuleytið i gærkvöldi og
kvaðst hafa heyrt skothvelli.
Blaðamenn þustu til þorpsins, og
þar voru komnir einir 20-30 brýn-
varðir bilar á vettvang. 1 miöstöð
blaðamannanna 4000 byrjaði
vökunótt, þótt Klein yfirmaður
blaðamannaborgarinnar segði,
að um mishermi væri að ræða.
Gengi Klein og yfirmanna leik-
anna hefur fallið eftir atburöina i
siðustu viku, og upplýsingum
þeirra er ekki trúað sem skyldi.
Enn var bóðaður blaöamanna-
fundur um miðnættið, og kom i
ljós, að lögreglumaður einn hafði
séð mann með byssu og heyrt
skot, en byssumaðurinn hvarf
sjónum lögreglumannsins. Lög-
regluþjónninn gerði ekkert i mál-
inu nema að gefa skýrslu. Klein
kvaö ibúa i sömu blokk og Frakk-
inn býr ekki hafa heyrt neitt, en
þar búa Rússar. Fréttir eru
komnar frá fréttastofu um morð á
2-3 manneskjum i þorpinu, en
skothrið var sögð hafa átt sér stað
skammt frá ibúðum Marokkó-
manna.
Heinz Klein stóð fast á þvi, að
engin lik væru i þorpinu, en
blaðamenn létu efasemdir i ljós
vegna þeirra upplýsinga, sem
hann og ráðherrarnir höfðu gefið,
þegar atburðirnir urðu hér fyrir
tæpri viku, en þær upplýsingar
stóðustu i engu. þegar til átti að
taka.
Blaðamenn eru mjög uggandi
vegna þess, að hápunktur lokaat-
hafnar leikanna i kvöld á aö vera
sá. að öll ljós verða slökkt. Telja
simir liklegt, að þá muni arabisk
öfgasamtök gripa tækifærið og
sprengja sprengjur á leikvangin-
um.
Frekari frásögn frá at-
burðunum i gærkvöldi er á
bls. 5. JBP/HH