Vísir - 09.10.1972, Blaðsíða 11

Vísir - 09.10.1972, Blaðsíða 11
VISIR. Mánudagur 9. október 1972. 11 Öruggur bikarsigur Vestmannaeyja — Sigruðu Bikarmeistora Víkings með 4-1 í Eyjum á laugardag örn óskarsson, sá hviti til hægri, var mikill ógnvaldur fyrir vörn Vikings á laugardag. Hér hefur hann leikið á Magnús Þorvaldsson og sendir knöttinn framhjá Diðrik markverði. Þetta var fyrsta mark Arnar og Vestmannaeyinga i leiknum. Ljósmynd Guðmundur Sigfússon. Eftir jafnan fyrri hálfleik i bikarleik iBV og Vikings í Vest ma nna ey j u m á laugardag tóku Eyjamerui völdin í leiknum i þeim siöari. Þeirskoruðu þá þrjú mörk og sigruðu bikar- meistara Víkings með 4-1 í skemmtilegum og a II- góðum leik og verða að teljast mjög sigurstrang- legir í keppninni. Fyrri hálfleikur var frekar jafn og sóttu liðin á vixl, en á 8. min. fékk Orn Óskarsson boltann á hægri kanti og brunaði upp kant- inn og inn i vitateigshornið. Þar spyrnti hann föstu skoti, og bolt- inn hafnaði i markinu. Siðan áttu liðin nokkur tæki- færi, meðal annars átti Guðgeir Leifsson fast jarðarskot af 30 m færi, sem Páll i marki tBV varði vel. Þá átti Guðgeir annað lang- skot i hálfleiknum, sem Páll varði einnig. Vikingum tókst svo að jafna á 25. min. úr aukaspyrnu. Guðgeir skaut i Eirik Þorsteins- son, sem var rangstæður, og breytti hann stefnu boltans i markið. Á 6. min. i siðari hálfleik skoraði Orn annað mark sitt i leiknum og á 15 min. kom Haraldur Júliusson IBV i 3-1. Hann átti þá gott skot af 20 metra færi. Siðan átti Snorri skot i slá Vikingsmarksins og boltinn hrökk út til Haralds, sem skallaði að marki, en Diðrik varði vel. Aðeins siðar áttu Vikingar skalla yfir markmannslaust mark IBV. A 31. min gerði Orn út um leik- inn — hann fullkomnaði þrennu sina 4-1. Miklu meiri munur var á liðunum i siðari hálfleik, en þeim fyrri. Guðgeir Leifsson var lang- bezti maður Vikings. Hann ætlaði að verða eftir aö leik loknum til viðræðna við stjórn IBV, en hann er að hugsa um að flytja til Vest- mannaeyja og leika með liðinu næsta ár. Hins vegar gat Guðgeir ekki komiö þessu við nú og hélt með Vikingum heim. Orn Óskars- son kom frá Reykjavik, þar sem hann er að vinna i Kassagerð Reykjavikur og skoraði þrjú mörk. örn og Haraldur léku bezt i framlinu IBV, og ólafur og Frið- finnur i vörninni. Valur Benediktsson dæmdi lélega. GS Ármenningar stóðu í Val Fjórir leikir voru háöir i meistaraflokki Reykjavfkur- mótsins i handknattleik I gærkvöldi og kom þar mest á óvart, að Reykjavikur- meistarar Vals áttu i hinum mestu erfiðleikum með Armann. Þó tókst Val að sigra 11-10 og kom sigur- markið rétt fyrir leikslok. Fyrsti leikurinn var milli Fram og Fylkis og vann Fram stórsigur 17-3. 1 næsta lið komu KR-ingar á óvart og gjörsigruðu IR-inga 17-8. KR-liðiö lék oft skemmti- lega og linuspil þess setti 1R út af iaginu, auk þess, sem markvörður KR, ívar Gissurarson, átti stórgóðan leik. KR-ingar komust I 7-1 eftir 12 min. og eftir það var ekki um mikia keppni að ræöa. Staðan i hálfleik var 10-3 fyrir KR. Siðasti leikurinn var milli Þróttar og Vikings og var það jafn ieikur. Þróttur kom vissulega á óvart og voru Vikingar frekar heppnir að ná jafntefli 10-10, þar sem jöfnunarmark Vikings var skorað rétt fyrir leikslok. Ef þér hafið einhvern tíma skoðað þessa skápa í réttu umhverfi, þá vitið þér hvað vantar í stofuna yðar Nordaas veggskápur úr palisander. Vér bjóðum tvær gerðir. Stærri 90 cm breiða og 190 cm háa úr tekki, eik, hnotu og palisander. Minni 80 cm breiða og 180 cm háa hvíta, græna, rauða og úr tekki, eik og hnotu. UL ft I -1 r Íff Simi -22900 Laugaveg 26

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.