Vísir - 11.10.1972, Blaðsíða 10

Vísir - 11.10.1972, Blaðsíða 10
VIöIK Miovikudagur 11. oktober 1972. v íoiii iTiiuv inuuti^u Fimm nýliðar í ensku landsliði — England leikur við Júgóslava í London í kvöld Miklar likur eru á, að limm leikmenn leiki sinn fyrsta landsleik i kvöld fyrir England, þegar landsleikur við Júgóslava verður háður á Wembley i kvöld. Landsliðseinvaldurinn enski, Sir Alf Ramsey, hefur orðið að gera miklar breytingar á upp haflegu liði sinu vegna þess, að margir leik- menn eru bundnir við leiki i deildabikarnum. Þannig gat Sir Alf ekki valið neina leikmenn frá Liverpool, Tottenham eða Leeds i landslíð sitt og fór þá kjarni þess liös, sem hann hafði valið til æfinga. Má þar nefna Peters og Chivers hjá Tottenham, Keegan, Lloyd og Hughes hjá Liverpool, Clarke og Madeley hjá Leeds. 1 gær tilkynnti landsliðseinvald urinn nöfn tólf leikmanna, sem leika i kvöld, og þar af eru fimm leikmenn, sem ekki hafa leikið áður i enska landsliðinu — þeir Mills, Ipswich, Lampert, West Ham, Kendall, Everton, Jeff Blockley, Arsenal, og Mike Channon, Southampton. Aðeins þrir af gömlu heims- meisturunum frá 1966 eru enn með - Bobby Moore, Alan Ball og Gordon Banks. Aðrir leikmenn eru Peter Storey, Arsenal, Colin Bell, Manch. City, Joe Royle, Everton og Rodney Marsh, Manch.City. Þrir varamenn eru til reiðu ef eitthvað kemur fyrir þessa 12 i dag — þeir Phil Parkes, Úlfunum, Wotthington, Leicester, og Rich- ards, Úlfunum. Það hefur mikið skeð hjá Jeff Blockley siöustu daga. Hann var seldur til Arsenal frá Coventry i siðustu viku fyrir 200 þúsund pund — lék sinn fyrsta leik með sinu nýja liöi á laugardag, og i kvöld leikur hann sinn fyrsta landsleik. Þeir Kendall og Royle hafa sýnt mjög góða leiki með Everton að undanförnu og þótti val þeirra þvi sjálfsagt, og sama er aö segja um fyrirliða Ipswich Mills, sem gæti gert bakvarðastöðuna i landslið- inu aö sinni ef honum tekst vel upp i kvöld. Ekki var alveg talið vist hvor þeirra Storey eða Lampart verður 12. maður liðs- ins. Júgóslavar hafa mjög sterku liði á að skipa og nær allir leik- mennirnir, sem leika fyrir Júgóslaviu i kvöld, hafa leikið tugi landsleikja. 1 siðustu niu landsleikjum Englands og Júgó- slaviu hafa Slafarnir unniö fjóra, Englendingar tvo, en þrjú hafa jafnteflin orðið. Viðureign Vals og Armanns í Reykjavikurmótinu var mjög skemmtileg á sunnudag og þaö var ekki fyrr en nokkrum sekúndum fyrir leikslok, að Reykjavikurmeisturum Fram tókst að tryggja sér sigur. Þessi skemmtilega mynd er frá leiknum. Það er hinn hávaxni Hörður Kristinsson, Armanni sem stokkið hefur upp og reynt markskot, en knötturinn stöðvast á höfði nýliðans Þorbjörns Guðmundssonar, sem vakið hefur mikla athygli i Valsliðinu í síöustu leikjum. josmyn Velgir Þróttur íslands- meisturum Fram í kvöld? Liverpool| ófram Liverpool tryggði sér rétt i 4 umferð enska deildabikars ins i gærkvöldi, þegar liðið vann WBA 2-1 á Anfield i gærkvöldi eftir framlengdan leik. WBA lék mun betur framan af leiknum — var raunverulega miklu betra liöiö lengstum i leiknum. Liðinu tókst þó ekki að skora fyrr en á 51. min. aö Robert- son sendi knöttinn i markiö. Strax á næstu min. jafnaði Emlyn Hughes með þrumu- skoti af 20 m færi og á siöustu min. framlengingar- innartókst Kevin Keegan að Wyggja sigur Liverpool. Allar likur eru á að mót- herji Liverpool i 4. umferð verði Leeds, sem leikur við Aston Villa i kvöld. t keppn- inni léku og Charlton og Sheff. útd. i gær. Jafntefli varð enn 2-2 eftir fram- lengdan leik. Þriðja leikinn þarf þvi milli liöanna til að •skera úr hvort þeirra mætir Arsenal á heimavelli i næstu umferð. - bert Royal Hall i Lundúnum. Bugner, sem er af ungverskum ætt- um en brezkur rikisborgari, hafði mikla yfirburði gegn keppinaut sinum. Strax i fyrstu lotu sló hann Þjóðverj- ann niður og tók Blin talningu að sex. Joe Bugner var fljótari i hringnum, þó hann sé stærri og þyngri en Blin, og vann allar loturnar á stigum. I þeirri áttundu var greinilegt að hverju stefndi. Blin var þá sleginn niður — stóð á fætur aftur — og Bugner réðst að honum eins og gammur og sendi Þjóðverjann aftur i gólfið. Að þessu sinni tókst Blin ekki að risa á fætur meðan dómarinn taldi upp að tiu. Joe Bugner hefur lengi verið talinn helzta von „hvitra i hnefaleikahringn- um. Þó hann sé aðeins 22ja ára hefur hann verið atvinnumaður i hnefaleik- um i rúm fjögur ár og hefur tekið þátt i 44 leikjum sem slikur. Hann vann Evrópumeistaratitilinn fyrir tveimur árum af landa sinum Henry Cooper og þá jafnframt brezka og samveldis- titilinn i þungavigt. Þessu tapaði hann öllu nokkru siðar — gegn landa sinum Jack Bodell. En Bodell var ekki lengi meistari. Hann tapaði titlinum i fyrstu vörn sinni — einmitt gegn Jiirgen Blin. En i gærkvöldi réð Blin ekkert við Bugner og ungi Bretinn er aftur orðinn meistari. Hann hefur oft æft með Cassiusi Clay — meðal annars i Dublin i sumar — og hefur Clay spáð honum miklum frama i hnefaleikahringnum. Þróttur hefur sýnt góða leiki i handknattleiknum aö undanförnu, en þó aöeins hlotið eitt stig á Reykjavikurmótinu. Svo virðist scm úthaldiö sé ekki nægilegt, þvi Þróttur hefur misst niður góða for- ustu i lokin. Nokkrir efnilegir, ungir piltar eru i liði Þróttar og þarna sjáum við einn, Sigurð Trausta Þorgrimsson, — með Nitto á brjóstinu — komast innfyrir vörn Vikings og skora. Siguröur Trausti hefur leikið i isl. unglingalands- liöinu. Ljósmynd BB. ingarnir, sem unnu stórsigur gegn 1R á sunnudag. Siðasti leikurinn verður milli Fram og Þróttar og ef úthald leikmanna Þróttar bregst ekki ættu þeir að geta veitt Fram harða keppni. Þróttur stóð mjög vel lengi i leikjum sinum gegn KR og Viking, en liðið gaf eftir undir lokin, KR vann með tveggja marka mun, og Vikingur náði jafntefli. Joe Bugner Keppni i meistara- llokki á Reykjavikur- mótinu heldur áfram i kvöld og verða þá háðir þrir leikir. Tveir þeirra ættu að geta orðið tvi- sýnir og stóra spurningin hvort Þróttarliðinu tekst að velja íslandsmeisturum Fram undir uggum. Mótið hefst kl. 20.15 með leik Vikings og Fylkis og verður þar varla um mikla keppni að ræða. Lið Fylkis getur ekki talizt meistaraflokkslið enn. Siðan leika KR og Armann. Það verður áreiðanlega skemmtilegur leikur — bæði liðin likleg; til afreka i vetur — einkum ungu KR- Joe Bugner, hinn 22ja ára risi, vann aftur Evrópumeist- aratitilinn í þungavigt i gær- kvöldi. Hann sló meistarann þýzka, Júrgen Blin, í rot í átt- undu lotu í keppni þeirra i Al- Umsjón: Hallur Simonarson Slrandamaðunnn sterki bœtti sig um40sm í kúlu! Hreinn Halldórsson varpaði 17.79 metra Hreinn Halldórsson, hinn jötunsterki kúlu- varpari úr Strandasýslu, stórbætti árangur sinn á kastmóti ÍR i gærkvöldi. Hreinn varpaði lengst 17.79 metra, sem er bezti arangur hérá landi i kúlu- varpi i sumar og fjörutiu sentimetrum betra, en Hreinn átti bezt áður. Að- eins einn íslendingur hef- ur varpað kúlunni lengra — Guðmundur Her- mannsson, en Islandsmet hans er 18.48 metrar, sett 1969. 1R hefur efnt til fjögurra kast- móta að undanförnu af niu, sem fyrirhuguð eru, og hefur Hreinn sýnt mikla framför á þessum mótum. Ekki var keppt i kúlu- varpi á fyrsta mótinu, en 5. október varpaði Hreinn 16.82 bætti sig svo i 17.10 m 7. október og i gær varpaði hann 17.79 metra. Bezt áður i sumar átti hann 17.39 metra, en i fyrra- sumarvarpaði hann lengst 16.53 m, svo hér er um stórstigar framfarir að ræða. Beztu kúluvarparar tslands eru nú. Guðm. Hermannsson 18.48 Hreinn Halldórsson 17.79 Erl. Valdimarsson 17.12 Gunnar Huseby 16.74 Skúli Thorarensen 16.00 Jón Pétursson 15.98 Sigurþór Hjörleifs. 15.81 A mótinu i gær var einnig keppt i kringlukasti og sigraði Erlendur með 54.14 metrum. Hreinn kastaði 49.68 m. Páll Dagbjartsson, HSÞ 46.94 m og Grétar Guðmundsson, KR, 42.20, sem er bezti árangur hans. Þá kastaði Guðni Halldórs son, HSÞ, drengjakringlu 47.54 m sem er hans bezta og Sigur- björn Lárusson, tR, 47.36 sveinakringlu (15-16 ára). A fyrsta mótinu kastaði Er- lendur Valdimarsson sleggju 55.28 metra. Þá sigraði hann einnig i kringlu með 52.44 metra. Páll kastaði þá 45.90 m og Hreinn 44.84 m. A öðru mót- inu keppti Erlendur ekki i kringlu, en Hreinn sigraði með 46.38 m og Páll kastaði 43.45 m. Á mótinu 7. október náði Hreinn svo 17.10 m i kúlu, en Grétar náði þar sinum bezta árangri hingað til 13.24 m. Hreinn sigr- aði þá einnig i kringlukasti með 48.84 m og Páll kastaði 46.64 m. Þá kastaði Jón Magnússon sleggju 48.28 m. Einnig var þá keppt i lóðkasti og þar náði Jón Magnússon öðrum bezta árangri lslendings — kastaði 14.67 m. Aöeins tslandsmet Er- lends erbetra. Páll kastaði 13.92 m, sem er nýtt héraösmet Þing- eyings i þessari grein og Hreinn kastaði 13.49 m. Guðmundur Hermannsson var einnig meðal keppenda og kastaði lengst 12.43 m, sem mun bezti árangur KR- ings i lóðkastinu. Þegar litiö er á árangur á þess- um kastmótum 1R kemur i ljós, að um talsverða framför hefur verið að ræða hjá flestum köst- urunum — og hápunkturinn var svo þessi ágæti árangur Hreins i gærkvöldi. Mótunum verður haldið áfram næstu kvöld. Ilrcinn llalldórsson — stöðugt i framför Olympíuskúkmótið í Skopje Hörkubarútta Ung- verja við Sovét- menn í 1. riðlinum — fslenzka skúksveitin er fallin niður í úttunda sœti í 2. riðli Aðeins tvœr umferðir eru nú eftir ú mótinu í 13. umferðinni á Olympiuskákmótinu, sem tel'Id var i Skopje i gær- kvöldi, mættu íslendingar israelsmönnum. Aðeins cinni skák lauk. Björn Þor- steinsson tapaði, en hinar þrjár skákirnar fóru i bið. Allir vinningar Albana i 2. riðli hafa nú verið þurrkaðir út og kom það verst við is- lenzku sveitina, sem náð hal'ði 3.5 vinningum úr við- ureign sinni við Albani. England jók forskot sitt i riðlinum i gær og hefur nú hlotið 32 vinninga. island er i áttunda sæti með 23.5 vinn- inga og þrjár biðskákir. í aðalriðli keppninnar eru Sovétrikin og Ungverjaland enn jöln og efst að vinning- um með 35 vinninga hvor þjóð og auk þess með tvær biðskákir. Þá gerðust þau tiðindi i flokknum, að Tékkóslóvakia sigraði Svi- þjóð á öllum borðum og hef- ur það ekki oft komið fyrir að tölurnar 4-0 hafa sézt i þeim llokki. Úrslitin i 13. umferö i gærkvöldi urðu þessi i 1. riðli. Sovétrikin hlutu 1.5 vinninga gegn hálfum vinning Spán- verja, en tvær skákir fóru i bið. Ung- verjar höfðu einnig hlotið 1.5 vinninga gegn Rúmenum og þar voru einnig tvær biðskákir. Danmörk og Pólland skildu jöfn, hvort land hlaut tvo vinn- 1 inga. Tékkar unnu Svia eins og áður / segir 4-0. Hollendingar voru með tvo 1 vinninga gegn einumSvisslendinganna og ein skák fór i bið. Vestur-Þýzkaland var með 1.5 vinninga gegn Argentinu og tvær skákir fóru i bið. Júgóslavia og Austur-Þýzkaland voru jöfn eftir þrjár skákir — 1.5 vinningur hvor þjóð og ein skák fór i bið. Búlgaria sigraði Banda- rikin með 2.5 vinningum gegn 1.5 vinningum. Staða efstu þjóðanna var þannig eft- ir 13. umferðir. Sovétrikin/ 31.5 vinningur og ein biðskák. Tékkósló- vakia 30 vinninga. Vestur-Þýzkaland 29 vinninga og tvær biðskákir, Rúmenia 29 vinningar og ein biðskák og Búlgaria 28 vinningar. ir 13. umferðir. Sovétrinin og Ung- verjaland 35 vinninga ot tvær biðskák- ir. Júgóslavia 31.5 vinningur og ein biðskák. Tékkóslóvakia 30 vinninga. Vestur-Þýzkaland 29 vinninga og tvær biðskákir, Rúmenia 29 vinningar og ein biöskák og Búlgaria 28 vinningar. Eftir 13. umferðina var England efst i 2. riðli með 32 vinninga. Israel var i öðru sæti með 29 vinninga og þrjár bið- skákir við ísland. Filipseyjar höfðu 29 vinninga, en Norðmenn 28 og tvær bið- skákir. Þá kom Kanada með 27 vinn- inga og þrjár biðskákir. Austurriki var með 26 vinninga, Kúba 25.5 vinninga. ísland 23.5 vinninga og þrjár biðskákir við Israelsmenn. Þá kom Kolombia með 22.5 vinninga og eina biðskák. Indónesia var með 21 vinning og eina biðskák. Italia hafði hlotið 20.5 vinn- inga og átti þrjár biðskákir. Þá kom Mongólia með 19.5 vinninga, Perú 17.5 og eina biðskák. Grikkland 17 vinninga og eina biðskák og Belgia rak lestina i riðlinum með 15 vinninga og eina bið- skák. Aðeins tvær umferðir eru nú eftir á mótinu. Islenzka sveitin teflir við þá itölsku i 14. umferðinni i kvöld, en i siö- ustu umferðinni teflir sveitin við Austurrikismenn. tslenzka skáksveitin hlaut aðeins hálfan vinning úr viðureigninni við Englendinga i 12. umferðinni i Skopje. Guðmundur gerði jafntefli i biðskák sinni við Keene, en Jón Kristinsson tapaði fyrir Hartstone. Eftir þessa umferð — þegar allir vinningar Albaniu i 2. riðli hafa verið þurrkaðir út —er Island i sjöunda sæti I riðlinum með 23.5 vinninga, heilum 5.5 vinning- um á eftir Englandi, sem er i efsta sæti. Úrslit i 12. umferð i B-riðli urðu þessi, Filipseyjar-Noregur 1.5-2.5 (Cardoso-Wibe O-l, Rodrigues-Jo- hannesen 1-0), England-tsland 3.5-0.5, Italia-Kúba 1.5-2.5 (Paoli-Hernandez jafnt, Capee-Jadiaz 0-1). önnur úrslit misfórust I fréttaskeyti til blaðsins. Staöan eftir 12. umferðina varþannig. England 29, tsrael 28.5, Noregur 27, Filipseyjar 26.5, Kanada 26, Austurriki 25, Island 23.5, Kúba 22.5, Kolombía 21.5, Italia 20.5, Mongólia 19, Indónesia 19, Perú 16.5, Grikkland 15.5 og Belgia 15 vinninga. Eftir 12 umferðir i 1. riðli voru Sovétrikin og Ungverjaland jöfn og efst aö vinningum með 33.5 vinninga hvort land. Júgóslavia var i þriðja sæti meö 29 vinninga, þá Vestur-Þýzkaland og Rúmenia 27.5, Tékkóslóvakia 26, Búlgaria 25.5, Holland 23.5, Bandarlk- in, Spánn og Austur-Þýzkaland 22, Pólland 20.5, Sviþjóö 19.5, Argentina 17.5, Danmörk 17 og Sviss 16. 1 12. umferð urðu úrslit þessi. Hol- land-Rúmenia 2-2 (Ree-Ciocaltea 0-1, Zuidema-Ghitescu jafnt), Ungverja- land-Argentina 4-0 (Forintos-Emma 1- 0, Cxom-Hase 1-0), Vestur-Þýzkaland- Spánn 2.5-1.5 (Darga-Toran jafnt, Hecht-Bellon jafnt), Búlgaria- Júgóslavia 2-2 ( Bobosov-Gligoric 1-0, Tringov-Ljubojevic 0-1), Austur- Þýzkaland-Danmörk 2-2 ( Knaak- Jakobsen 1-0, Liebert-Sloth 0-1) Póll- and- Tékkóslóvakia 1.5-2.5 ( Schmidt- i Hort jafnt), Sviþjóð-Sviss 1-3 (Ander- í son-Hug jafnt, Liljendahl-Schaufen- 7 berger 0-1, Olson-Witernsa 0-1). I Etir 12 umferðir var staðan þannig i 3. riðli Ástralia 35.5, Finnland og Skot- land 32.5, Iran 31, Brazilia 29.5, Portú- gal 24.5, Mexikó 23.5,Tyrkland 22.5 (1), Porto Riccó 22.5, Irland 21.5 (1), Wales 21.5, Túnis 21, Nýja-Sjáland 20, Dominikanska lýðveldið 18.5, Japan 13.5 og Bolivia 13. 1 riðli 4 var staðan þannig. Frakk- land 38, Singapore 33.5, Hong Kong og Malta 28, Marokkó 24, Færeyjar og i Libanon 23, Sýrland og Luxemborg 22, Kýpur 22, Guearnsey 18, Malasia 17.5, Andora 16.5, Irak 15.5 og Virgineyjar 7.5 vinninga. NÝR EM-MEISTARI I ÞUNGAVIGT

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.