Vísir - 11.10.1972, Blaðsíða 20

Vísir - 11.10.1972, Blaðsíða 20
v 1 Miövikudagur 11. október 1972. Nú duga engin „stórmeistara- jafntefli" Daninn Bent Larsen og Sovét- maöurinn Viktor Korchnoj munu tefla einvigi um, hvor skuli veröa fyrsti varamaður Petrosjan og Spasskfs, ef annar þeirra getur ekki teflt á næsta kandidatamóti. Atta menn munu tefla á kandidatamóti 1974. Sex þeirra vinna sér réttindi á tveimur milli- svæftamótum. Petrosjan og Spasski komast beint i kandidata- mótift, ellegar varamenn þeirra. Jafntefli gilda ekki i einvigum þeirra, sem verfta milli kandidat- anna, en i'jöldi skáka i einvigum heiur veriö takmarkaftur. Sá skákmanna i einvigi, sem fyrst fær 3 vinninga i fyrstu lotu ein- vigja, 4 i annarri lotu og 5 i loka- lotunni, sigrar. Meft „lotum” er átt vift, aft þetta er útsláttar- keppni, þar sem i fyrstu lotu eru fjögur einvigi og þvi fjórir kepp- endur slegnir i.út”, i ann- arri lotu eru tvö einvigi, og loks er lokaeinvigi milli þeirra tveggja, sem þá eru eftir. Sigurvegari þess einvigis teflir vift heimsmeistarann. Skákafjöldinn er ef mörg jafntefli verfta, takmarkaður vift 16 skákir i fyrstu lotu, 20 i annarri og 24 i lokalotu. F'leiri verfta skákirnar ekki, og sigrar sá, sem hefur fleiri vinninga eftir þaft. Ef þeir eru þá jafnir aövinningum, ræður hlut- kesti. Næsta olympiumót verftur svo i Frakklandi, sennilega i Nice (Nizza) árift 1974 —HH Offsetprentunin og dagblöðin: Stóroukning ó sölu Vísis eftir breytinguno Offsetprenttæknin hefur nú verið notuð við prentun dagblaða i S-9 mánuði hjá Blaða- prenti h,f. Er greinilegt að hin nýja tækni hefur mælzt vel fyrir hjá lesendum dagblað- anna, a.m.k. er það reynsla okkar hjá Visi. Hefur upplagsaukning orftift mjög veruleg á Visi á ekki lengri tima, — söluaukningin miftað við sama tima i fyrra yfir 25% og mikil aukning áskrifenda dag frá degi. I september voru nýir áskrif- endur umfram þá sem hurfu úr áskrifendahópnum 350 talsins. Ef litift er á prentun tveggja stærstu blaftanna i Blaðaprenti h.f. siftustu þrjá mánuftina, kemur i ljós, aft Visir hefur prentaft nær 1.5 milljónir ein- taka á þessum tima, efta 1.484,985 eintök en Timinn hefur látið prenta 1.284.000 blöö. Útkomudagarnir i júli, ágúst og september voru 76, og er þvi meöa lta lsupplag þessara tveggja blaða 19.200 hjá Visi og 16.700 hjá Timanum. Er þetta aukning hjá báftum blöftunum frá fyrri tift, — einkum þó áberandi hjá Visi. bess skal getið, aft upplag Visis fer allt út á markaftinn og afgangar eru litlir sem engir, Getur af- greiðslan t.d. ekki útvegaft nema hluta af þeim blöftum, sem út komu i sumar. Nokkur hluti af aukinni út- breiftslu Visis er i bæjum og kaupstöftum úti á landi, þar sem blaftift sást varla fyrir breytinguna, — en skiljanlega er meginútbreiftsla blaösins á Reykjavikursvæftinu. —JBP— |Grciniiegter aö fyrirmenn hafa drifiö I aðsetja fötin sin i hreinsun eftir skyratiö, þvi aö klæönaöurj þeirra var óaðfinnanlegur er þeir sóttu frumsýningu bjóöleikhússins i Túskildingsóperunni í|gærkvöldi. Frá vinstri sjáum viö Svein Einarsson þjóöleikhússtjóra, forsetahjónin frú llalldóru og herra Kristján Eldjárn, Gylfa b. Gfslason og Geir Hallgrimsson borgarstjóra. „Okkur ber ekki að leggja í meiri kostnað við blokkirnar" segir formaður Framkvœmdanefndar um kröfur íbúa fimm blokka í Breiðholti 1 ..Framkvæmdanefnd Bygg- ingaráætlunar er alls ekki lilbúin til aö samþykkja, aö henni beri aö framkvæma einhverjar breytingar á lóöum þeirrar blokkar, sem borgin kveftur á um i þvi mati, sem getið var um i frcttum Visis i fyrradag”, sagöi Eyjólfur K. Sigurjónsson for- maöur F.B. i viötali i morgun. Ilann var hcldur ekki á þvi, aö Framkvæmdanefndinni bæri aö auka eldvarnir blokkanna, sem um gat i fréttum Visis i gær, þó aö cldvarnareftirlitiö teldi æskilegt aft sú aukning færi fram. „Opinberir aftilar samþykktu allar teikningar að húsunum á sinum tima, við byggöum þær og seldum siftan. baft var fyrir fjórum árum og vafasamt aft halda þvi fram, aft núna sé hægt að krefjast þess aft vift leggjum i aukinn kostnað vift blokkirnar,” sagfti Eyjólfur ennfremur. ,,Hvai ættum vift aft taka peninga fyrir þeim framkvæmdum”? „Ég vil lika halda þvi fram, aft þessar blokkir i Breiftholti 1, sem um getur i fréttum Visis, séu til fyrirmyndar. Frágangur þeirra og lóftanna i kringum þær var i engu lakari en á svo fjölda- mörgum fjölbýlishúsum i Reykjavik. En það er ekki nema eftlilegt kannski, aö eftir aft Framkvæmdanefndin hefur byggt fyri 707 fjölskyldur og er að byggja yfir 545 i viftbót, aft ein- hverjar þessara fjölskylda geri sig óánægftar meft eitthvaft”. ,,En nú voru þær blokkir, sem getið var um i blaftinu, meft þeim fyrstu, sem Framkvæmda- nefndin lét byggja?” ,,Já, þaö er rétt. bær voru lika samkvæmt áætlun byggftar hratt og á stuttum tima. bar af leiftandi þurfti að fara nýjar leiftir meft ýmislegt, en þrátt fyrir allt álit ég aft ekki hafi fleiri gallar komift fram en vift var að búast. Blokk- irnar eru ekki meiri eldgildrur en fjöldi annarra húsa i borginni. Og með bilastæftin vil ég benda á þá fullyrftingu verkfræftinga okkar, að þar sé vel hægt aft malbika eins og undirlagift liggur fyrir núna.” „Hvaft um hina ýmsu galla, sem ibúarnir benda á i ibúðunum”? „Gallar og vifthald. baft er ekki svo gott aft greina lengur þar á milli i öllum tilvikum, eftir að fjögur ár eru liöin frá þvi aft flutt var inn i ibúftirnar. Strax á fyrsta ári samþykktum vift aft láta fara fram viftgerðir, sem farift var fram á i plaggi frá ibúum, en þaft var i átta liðum”. Og næst sagði Eyjólfur: „Ef einhverjir ibúanna eru óánægftir mega þeir gjarna fá aft vita þaft, aft þaft er langur biftlisti i ibúftir þeirra, vilji þeir flytja.” Aft lokum vildi hann undir- strika, að ibúftirnar væru eignar- ibúöir en ekki leiguibúðir. —bMJ Flökin flutt ó nœstunni? „Hef litla trú á því", segir Gísli Guðmundsson öryggisvörður „Nú fyrir stuttu, eftir að aftur hafði verið vakin athygli á slysa- gildrunni i Sundunum, sem er vist óhætt að kalla svo, fór ég og talaði viö eigendur skips- flakanna. Ég benti þeim á að nú yröi að fjarlægja þau sem fyrst, þar sem timi sá, er þeir fengu til þess að fjarlægja flökin, er löngu útrunninn”. Reyndar hef ég litla trú aö þvi aö þau veröi flutt burt á næstunni”. betta sagfti Gisli Guðmunds- son, annar öryggisvörftur Reykjavikurborgar i vifttali vift blaftið, en sennilega óska þess flestir að eigendur skipsflakanna sinni þvi, enda slysahætta þarna ennþá, þó aft lúgum og fleiru sliku hafi verift lokaft fyrir nokkru. „Ég er viss um aft Særún verður fjarlægft á næstunni, þó aft þaft heffti reyndar átt aft gerast i sumar. Votviftri olli þvi þó aft eig- endur treystu sér ekki til þess aft flytja þungar byrðar yfir votan sandinn. Leó á aft vera horfinn, aft minnsta kosti fyrir næsta vor, en hann er reyndar inni á svæfti eigenda. Bliðfari er i fjöru eigenda og inni á þeirra athafna- svæfti. Laxfoss er ekki uppi i fjörunni, heldur nokkuft frá landi, og þangaft er erfitt aft komast nema á bát, þannig aft ekki er talin ástæfta til þess aft flytja hann. Einnig liggur Visundur i fjörunni”. í viötali vift Gatnamálastjóra, sagði hann, aft frestur sá er eig- endum flakanna heffti verift gefinn væri liftinn, og öryggis- vörftur kominn i málift. Ef þvi yrfti nú ekki sinnt aft flytja flökin, yrði málift lagt fyrir borgarráft. —EA SAMVÁ EINNIG GJALDÞROTA SAMVA eða Samcinaöa Vátryggingafélagið hefur veriö tekiö til skiptameðferöar sem gjaldþrota. En þetta trygginga- félag var einmitt stofnaö upþ úr tryggingastofni Vátryggingafél- agsins, sem varö gjaldþrota fyrir um tveimur og hálfu ári, eins og menn rekur eflaust minni til. Litlar upplýsingar var aft fá um gjaldþrotsmálift hjá Unnsteini Beck i morgun. „Bókhalds- rannsókn er svo skammt á veg komin ennþá”, sagði hann. „Og svo er lika alltaf erfitt að gera sér grein fyrir hverjar eru raunveru- legar tölur og hverjar óraunveru- legar á meftan ekki er lokift mati á bótakröfum ýmis konar, sem tryggingafélagið stóft i þegar gjaldþrotift bar aft. Trygginga- félög eru skiptarétti ávallt erfið verkefni”. —bJM BREKKUKOTS- MAÐUR í SLYSI Upptökum að Ijúka Ekki á af þeim Brekkukots- mönnum aö ganga. Tvö meiri háttar slys hafa oröiö þar á starfsinönnum, 1 fyrra skiptiö var það H assenstein kvik- myndatökumaður, en í seinna skiptiö varö fyrir slysi Ernst Steinlechner, sem sér um allar fjárrciöur fyrirtækisins. Slysið varð á föstudag, er Steinlechner, var á leift til höfuftborgarinnar ásamt konu sinni og fór út af veginum á bif- reift sinni. Til allrar hamingju slasaftist hvorugt þeirra mikið, en kona hans brákaftist og sjálfur marftist hann afteins inn- vortis. Steinlechner er nú kominn til vinnu aftur, enda er farift aft styttast i þaft aft Brekkukots- menn dveljist hér á landi öllu lengur. Að þvi er Helgi Gestsson tjáði okkur, fer mestur hluti þeirra er tekift hafa þátt i leiknum burt á laugardag og sunnudag, en eitthvaft af kvik- myndatökumönnum verður hér eftir til þess aö ljúka þvi litla sem eftir er. I bigerð var að reyna aft halda kveftjusam- kvæmi fyrir starfsfólkift, en sennilega verftur ekki af þvi, þar sem upptökur verfta siftast á laugardag. Helgi vildi skjóta þvi að, aö þrátt fyrir það, aft upptökum er nú senn aft ljúka, verftur skrif- stofa þeirra i Brekkukoti opin i tvær til þrjár vikur eftir þaft, og þurfa allir reikningar aft vera komnir inn fyrir mánaöamót. —EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.