Vísir - 09.11.1972, Síða 3

Vísir - 09.11.1972, Síða 3
Visir. Fimmtudagur 9. nóvember 1972 3 Mjólkursölu- kerfið othug- að í nefnd? Ráðherra tekur frumvarpinu þunglega Viö umræður um mjólkursölu- málin á Alþingi undanfarið hefur komiðiljós andstaöa þingmanna Framsóknar við tillögu Ellerts Schram um breytingar á nú- verandi skipulagi. Lýsti land- búnaðarráðherra þvi yfir, að nú- verandi skipulag hefði reynzt vel, en ekki væri útilokað að skipa nefnd til aö kanna málin betur. Ellert Schram rainni ráð- herrann á, að þegar þetta bar á góma á siðasta þingi, hefði verið talað um nefndarskipan. Nú væri enn rætt um að skipa nefnd i málið. Það væri ljóst, að Mjólkur- samsalan vildi alls ekki neinar breytingar á sölumálunum þrátt fyrir eindregnar óskir neytenda þar að lútandi. Landbúnaðarráðherra taldi einsýnt, að dreifingarkostnaður mjólkur mundi hækka með auknu frjálsræði i sölu. Ennfremur yrðu hreinlætiskröfur þá ekki lengur jafn strangar taldi hann. Nú- verandi kerfi hefði verið i ein 40 ár, og það hefði gefizt vel, enda enginn landbúnaðarráðherra lagt i að gera á þvi neinar stökkbreyt- ingar. Ennfremur tók Stefán Val- geirsson til máls og sagði allar kröfur um breytingar komnar frá kaupmönnum. Neytendur kvörtuðu hins vegar ekki. Ellert kvaðst vona, að Hallf.ór E. Sigurðsson léti verða af þvi i þetta sinn að taka þessi mál til endur- skoðunar. —SG Geri við tennur fró Akureyri til Egilsstaða Þeir eru sennilega ekki margir tannlæknarnir á landinu, sem þurfa að anna jafn mörgum sjúklingum og Magnús Torfason á Húsavik. Hann hefur allt svæðið frá Akureyri til Egilsstaða , en á Egilsstöðum er einn tannlæknir „Það er ætlazt til, að hver tann- læknir hafi um það bil 1.000 sjúklinga” en á Húsavik einni eru yfir 2.000 ibúar fyrir utan alla sveitamenn,” sagði Magnús, þegar blaðið hafði samband við hann. ,,Ég kom hingað fyrir þremur vikum og hóf hér tannlækninga- Finnbogi varð meistari islandsmeistaramótinu i billiard er nú lokið með sigri Finnboga Guðmarssonar. i úrslitaleik kepptu þeir Finnbogi og Dagbjartur Grimsson, sem varö annar. Þriðji i röðinni varð svo Jóhannes Magnúsáon, en hann keppti um það sæti við Gunnar Hjartarson. Mótið var að þessu sinni mjög ste-kt og kepptu ekki færri en átta fyrrverandi meistarar. Þetta var þvi góður árangur hjá Finnboga, sérstaklega ef tekið er tillit til þess, að keppnisgreinin „snóker” er ekki sérgrein Finn- boga, ef svo má að orði komast. Hann hefur hingað til mest stundað svokallað „krambul” og vann siðasta íslandsmeistaramót i þeirri grein. ^LÓ störf. Siðan hefur verið mjög mikið að gera og það er allt alveg fullbókað fram að jólum. Áður en ég kom, hafði verið tannlækna- laust hér i tvö ár.” —En hvernig lita þá tennur al- mennings út? „Mjög illa. Tennur fólks eru mjög slæmar hér og þá sérstak- lega i unglingum, þvi að auðvitað hefur ekkert eftirlit verið haft með tönnunum þessi tvö ár. Og megnið af fólkinu hefur trassað að láta lita á þær, enda langt að fara. „Eins og er tek ég aðeins þá, sem eru með tannpinu. Og þrátt fyrir það að það er fullbókað, verð ég að taka framfyrir þá sem eru verst farnir sökum tannpinu. En fólk hefur ekki áttað sig á þvi ennþá, að það þarf að panta tima, það heldur, að það geti komið hingað og komizt strax að, sem kannski er ekki furða”. —En reynist erfitt að fá tann- lækna út á land? „Það virðist mjög erfitt, Það má sem dæmi nefna Raufarhöfn. Mér skilst, að þar sé góð aðstaða fyrir tannlækni . en þangað fæst enginn. Eins og er virðast þeir geta fengið nóg að gera i Reykja- vik”. —En eru þá nógu margir læknar á Húsavik? „Já, hér er sjúkrahús og fjórir læknar”. —Aðlokum. Halda Húsvikingar tannlækni sinum áfram? „Já, ég verð hér áfram, i nokkur ár ef til vill. Kannski lengur, enn er ekki svo gott að segja um það, en mér hefur likað vel hér, enn sem komið er”. —EA Listskreyttir skólar aðeins úti á landi Það er eingöngu úti á landi sem nýrri skólarnir eru prýddir ein- hverjum listskreytingum, að þvi er Guömundur Þór Pétursson hjá Menntamálaráðuneytinu tjáði blaðinu. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að af byggingarkostnaði þeim sem væri við byggingu skólahúsnæðis, mætti nota pró- sentur til listskreytinga á húsinu, það er að segja 2%, en hámarks- uppliæð er 500 þúsund krónur. Að þvi er Guðmundur Þór sagði, hafa þessar prósentur ver- ið notaðar við skreytingar á eftir- töldum skólum úti á landi: Skól- anum að Laugalandi, þar sem nokkurs konar súla er skreytt listaverki eftir Braga Ásgeirsson, Menntaskólinn á Laugarvatni er skreyttur veggmyndum eftir Ragnar Kjartansson, listaverk eftir Hring Jóhannesson er i gagnfræðaskólanum á Húsavik og handrið eftir Jón Gunnar er að skólanum við Hafralæk i Aðaldal. Ekki hafa þessar prósentur til listskreytinga verið notaðar i Reykjavik til þess að prýða nýrri skólabyggingar, en þó eru margir skólanna prýddir með málverk- um og fleiru, og margt er unnið af nemendum sjálfum. „Þetta hefur kannski ekki verið notað eins og búast hefði mátt við”, sagði Guðmundur Þór. „En það væri óskandi að skólar og byggingar væru meira skreytt- ar.” — EA Vínveitingar mundu bæta andann i félagsheimilum sem öðrum samkomuhúsum, var álit Björns Hall- grimssonar, forstöðumanns nýja félagsheimilisins i Grindavik, sem við hittum að starfi i gærdag. Sígaretturnar og að- komufólkið erfiðast komið við í glœsilegasta félagsheimili landsins sóma sér i hvaða heimsborg sem er Þeir ciga liklega glæsilegasta félagsheimili á landinu, Grind- vikingar. Þau salarkynni, skreytt listaverkum, skrautlýst og lögð hnausþvkkum teppum, gætu sómt sér scm skemmtistaður i hvaða hcimsborg sem væri. En það, sem Fódœma hlótr- ar í leikhúsi Akureyringa „Góðar undirtektir? Þær eru svo góðar, skal ég segja þér, að sumum þykir bara nóg um. Enda er leikhúsið komið nokkuð til ára sinna,” sagði Þráinn Karlsson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar, i samtaii við Visi i gær. gerir forstöðumönnum e.t.v. svolitið lifið lcitt, er, að aökomu- menn hafa ekki sýnt þessari eign bæjarbúa nægilega virðingu. Ungur þjónn úr Reykjavik, Björn Hallgrimsson, stýrir hinu nýja félagsheimili, sem mun kosta 30 milljónir króna upp- komið. „Sigaretturnar eru plága i öllum danshúsum núna”, segir Björn og gefur þá skýringu, að sumir fara með sigarettuna i muninum út á dansgólfið. Þeiir breyting varð á, þegar menn hættu að halda utan um dans- félagana úti á gólfinu. Siðan vill glóðin detta niður á parketgólfin og skaða þau. „Ég tel, að áfengis- málin verði ekki leyst með þvi að hafa félagsheimilin vinlaus hús”, sagði Björn. „Hér er leitað á fólki, sem æskir inngöngu, enginn má hafa vin með sér, og þess i stað kom menn við skál, og alltaf hlýtur vin að komast inn þrátt í Grindavík — Mundi fyrir leit”. Sagði hann greinilega hafa orðið bót i Hafnarfirði, þegar Skiphóll með sinar vinveit- ingar hefði tekið við afböllunum i Alþýðuhúsinu. Svipuðu máli mundi gegna, ef félagsheimilin hefðu vinveitingar, taldi Björn. Taldi hann að nota bá:ri veitinga- salina til að örva ferðamanna- strauminn um Grindavik á sumri komanda, enda hefði mjög vantað greiðasölu þar syðra fyrir þá, sem hafa átt leið um. F'élagsheimilið var 2 ár i bygg- ingu og „kostaði eins og 100 tonna bátur”, eins og Björn orðaði það, en fyrirferðin er talsvert meiri og notagildið annað. Björn kvað heimamenn ákveðna i að halda þessu nýja samkomuhúsi i sem beztu ástandi, en eins og fyrr greinir eru það mest að- komumenn, sem erfiðlega gengur að hemja innan dyra og mun sömu sögu að segja viða um land. —JBP— Þessa dagana brakar og brest- ur i gömlum veggjum leikhússins á Akureyri, þegar hlátur leikhús- gesta skellur án afláts á þeim. Fólk klappar og stappar, veinar og engist af hlátri undir gaman- leiknum „Stúndum bannað og stundum ekki”, sem Leikfélagið hefur nú á fjölunum. Leikritið er eftir þá félaga Arnold og Bach, en Jón Hjartar- son, leikari og Spegilsritstjóri, samdi við það forleik einn bráð- fyndinn og ennfremur söngtexta. Emil Thoroddsen staðfærði leik- inn á sinum tíma, en Jón Hjartar- son bætti um betur, og nú er leik- urinn að hluta látinn gerast i Iðnó hið sögufræga kvöld, er leikið var fyrir dómnefnd yfirvalda i april 1940. L.A. bregður sér sem sagt i gervi L.R. i þessari sýningu. Leikstjóri er Guðrún Ásmunds- dóttir, en leikmynd gérði Magnús Pálsson. Sýningar eru orðnar niu og að jafnaði uppselt á hverja ein- ustu. Þykir Akureyringum-gott að geta hlegið þannig úr sér skamm- degishrollinn. Þá er Leikfélag Akureyrar að hefja æfingar á barnaleikritinu „Kardimommu- bærinn” þessa dagana. I „Stundum bannað og stundum ekki” koma fram yfir 20 leikend- ur. Þar á meðal eru Guðlaug Her- mannsdóttir, Agúst Guðmunds- son, Marinó Þorsteinsson, Arnar Jónsson og Þórhalla Þorsteins- dóttir. Og áfram mun verða hlegið i leikhúsinu á næstunni, ef að likum lætur. — SG Marinó Þorsteinsson og Þráinn Karlsson I hlutverkum sínum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.