Vísir - 11.01.1973, Blaðsíða 3
Visir. Fimmtudagur 11. janúar 1973
SENDU ÚT 5 TONNA SÝNISHORNASENDINGU 1967
NÚ SAMIÐ UM SÖLU Á 10.000
SH og SÍS svara gagnrýni á
sölustarfsemi og vilja til einokunar
TONNUM AFLOÐNU
i dagblaöinu Visi, þriöjudaginn
9. þ.m. er grein um útflutning
frystrar loönu til Japan, sem
byggö er á upplýsingum frá
Bjarna Magnússyni. Þar sem
ýmislegt villandi kemur þar
fram, bæði i sambandi við með-
ferð talna, upplýsingar og
ályktanir sem af þeim eru dregn-
ar, telja Sölumiöstöö Hraðfrysti-
húsanna og Sjávarafurðadeild
Sambandsins nauðsynlegt að
eftirfarandi fái að koma fram:
Eins og opinberar útflutnings-
skýrslur bera með sér, hófst út-
flutningur frystrar loðnu frá ts-
landi til Japan árið 1967, en þá var
aðeins um 5 smálesta sýnis-
hornasendingu að ræða. Jap-
anska fyrirtækið, sem keypti
þetta sýnishorn, hafði áður sent
fulltrúa sina til íslands, til að at-
huga möguleika á loðnukaupum,
en slikt hið sama höfðu önnur
japönsk fyrirtæki gert. Islenzk
loðna er nokkuð frábrugðin þeirri
loðnu sem veiðist við Japan og
varð þvi niðurstaða af þessum
frumathugunum neikvæð nema
hjá þessu eina fyrirtæki.
Að fengnu þessu fyrsta sýnis-
horni, keypti þetta fyrirtæki siðan
5001estiraf frystri loðnu árið 1968
og aftur 750 lestir árið 1969. Allan
þennan tima var stöðugt unnið að
þvi að vinna upp markað fyrir
þessa vöru. Þaö reyndist bæði
flókið verk og kostnaðarsamt,
m.a. vegna þess, að islenzku loðn-
una var ekki unnt að þurrka undir
beru lofti á sama hátt og japönsk
loðna hafði verið þurrkuð, af
ástæðum sem of langt mál væri
að rekja hér. Einnig kom i ljós, að
ekki var auðsótt að selja þurrk-
aða islenzka loðnu til sömu
verkunar- og dreifingaraðila sem
verzluðu með japanska loðnu.
Þurfti þvi hinn japanski kaupandi
að þróa þurrkofna og koma upp
aðstöðu viða I nánd við helztu
neyzlusvæðin til að verka loðn-
una. Jafnframt var fyrstu árin
nauðsynlegt að kaupandi kæmi
sjálfur vörunni til hins endanlega
neytanda, m.a. með þvi að leigja
sölusvæði i stórum matvöru-
smám saman að skila árangri og
þá skeði tvennt: a) kaupin frá Is-
landi fór sivaxandi, 1.000 lestir
árið ’70, 3.300 lestir árið ’71, 4.200
lestir áriö 197á og nú nýlega hefur
verið gengið frá sölusamningum
um 10.000 tonn sem eiga aö af-
hendast á næstu mánuðum og b)
jafnframt fóru önnur japönsk fyr-
irtæki að fá áhuga fyrir þessum
viðskiptum. Innkaup þeirra frá
Noregi hófust árið 1971, þá um
2.500 lestir, sem jókst i um 3.000
lestir árið 1972. Nokkuð kapp hef-
ur orðið á milli japanskra fyrir-
tækja um að tryggja sér kaup frá
Noregi og Islandi á undanförnum
tveim árum, sem m.a. hefur
komið fram i þvi, að háum tölum
um magn og sölumöguleika er
léttilega á loft kastað, án þess að
nokkuð tillit sé tekið til þeirra
skilyrða sem fyrir hendi verða að
vera, ekki aðeins i Japan þar sem
loðnan er verkuð og seld, heldur
einnig i viðkomandi framleiðslu-
löndum.
Óhjákvæmilegt er að vikja
nokkrum orðum að þvi sem að
framleiðslunni snýr i þessum efn-
um. Svo sem kunnugt er, veiðist
loðna aðallega við suður- og aust-
urströndina i janúar og febrúar,
eða á þeim tima sem bolfiskveiði
fer jafnan vaxandi á þessu
svæði. Framleiðslu- og geymslu-
geta fiskvinnslustöðva er
þvi takmörkum háð. Þá krefst
hinn japanski markaður þess, að
hrogn loðnunnar seú orðin vel
þroskuð og að hlutfall kvenloðnu
sé við ákveðið mark. Ferskleiki
og góð meðferð hráefnis jafnt i
veiðiskipi, við löndun og i fisk-
vinnslustöð eru og algjör höfuðat-
riði. I reynd þýðir þetta, að á
undanförnum árum hefur fram-
leiðslan mjög takmarkazt af
þessum kringumstæðum. Vöxtur
þess magns sem selt hefur verið
til Japan á undanförnum árum
hefur þvi bæöi verið háður að-
stæðum i Japan og hér heima fyr-
ir. Það skiptir litlu i þessi sam-
bandi, að vegna óvenjul. hag-
stæðra skilyrða á s.l. ári hefði
verið hægt að framleiða nokkuð
SIS var gerður um 5.000 tonn,
miðað við að aðrir seldu ekki til
Japan, en 4.000 tonn, ef öðrum
aðilum yrði leyfð sala. Sala
Islenzku umboðssölunnar haföi
þvi raunverulega þær afleiðingar
að minnka það magn sem selt var
um nokkur hundruð smálestir.
Fulltrúar frá SH og SIS ferðuð-
ust til Japan haustið 1971 og siðan
aftur á seinasta hausti til að
kynna sér markaðsaðstæður sem
bezt. Var i i ferðinni rætt við öll
þau japönsk fyrirtæki sem höfðu
látið i ljósi áhuga á loðnukaupum
frá Islandi. Viökomandi ráðu-
neyti var látið fylgjast með gangi
mála og virðist ásökun um áhuga
leysi þessara aðila á loðnusölu til
Japan byggð á misskilningi eða
ónógum upplýsingum og þvi vart
svaraverð.
Þeir sem til þessarar fram-
leiðslu þekkja munu flestir telja,
að aukning úr 4.200 lestum á s.l.
ári i 10.000 lestir á þessu ári sé æði
myndarleg og er það hald flestra
að skilyrði þurfi að vera i meira
lagi hagstæð, ef hægt verður að
framleiða verulega meira magn,
án þess að meiri háttar breyting
verði áður gerð á aðstöðu allri á
sjó og i landi. Fari hins vegar 'svo,
að hægt verði að framleiða meira
magn, hafa SH og SIS sizt minni
möguleika til þess en aðrir að
leysa það mál á þann hátt sem
bezt myndi þjóna hagsmunum
þeirra frystihúsa sem samtökin
mynda, ekki aðeins um skamman
tima, heldur einnig meö
framtiðarhagsmuni fyrir augum.
Það sem endanlega skiptir máli i
þessu sambandi, er að sá
markaður sem unninn hefur verið
i Japan fyrir frysta loðnu, fyrst og
fremst fyrir frábæran áhuga og
dugnað eins fyrirtækis, verði
áfram stundaður af kappi og for-
sjá, en ekki af litilli þekkingu og i
hasarfréttastil.
(Kréttatilkynning frá Sölumið-
slöð Hraðfrystihúsanna og
Sjávarafurðadeild S.t.S. 10.1.
’73).
verzlunum og vöruhúsum. meira magn en gert var — en þess
Þessi undirbúningsvinna fór má þó geta að samningur SH og
Héldu vörð við rakarastofu
— eftir að hafa brotið þar rúðu
Tiilvan lengst til hægri á þcssari mynd er sú stærsta á islandi. Hún mun brátt fara til Skýrsluvéla rikis-
ins og Keykja víkurborgar, þar sem skipt verður á henni og eldri vél.
Þessi stóra tölva heitir IBM system 370/135 og getur hún sinnt margvislegustu vcrkefnum. Það má
segja að hún sé enskumælandi, þvl að henni eru gefin fyrirmæli á ensku og hún getur einnig gefið upp-
lýsingar á sama máli.
HEILABROT TÖLVU VIÐ HVERFISGOTU
Oftast þegar ungling-
ar brjóta rúðu taka þeir
á sprettinn i burtu og
reyna að losna við að
borga rúðuna. Ekki er
þetta þó alltaf tilfellið.
Nokkrir unglingspiltar uröu fyrir
þvi i gærkvöldi að brjóta rúðu i
rakarastofu i Arbæjarhverfinu.
Voru drengirnir aö leika sér fyrir
utan rakarastofuna og mun einn
þeirra hafa dottið á rúðuna með
þeim afleiðingum að hún brotn-
aði. En i stað þess að hlaupa i
burtu, héldu þeir vörð við rúðuna
svo enginn óviðkomandi færi inn
á rakarastofuna, á meðan einn
þeirra leitaði uppi eiganda rak-
arastofunnar og tilkynnti honum
um rúðubrotið.
Drengirnir buðust til að borga
rúðuna að fullu, og gengu fjöl-
skyldur þeirra i ábyrgð fyrir
greiðslunni. — ÞM.
Þeir sem lagt hafa leiö sina upp
Hverfisgötuna nú siðustu daga,
hafa eflaust rekið upp stór augu
þegar að horni Klapparstigs var
komið.
Þar er heldur óvenjulega sjón
að sjá inn um glugga á neðstu
hæð. Fyrirtækið IBM á Islandi
hefur sett upp tölvur og tilheyr-
andi.tæki fyrir innan gluggann og
þar vinna menn sin störf við þessi
tæki.
Þessi starfsemi fyrir innan
gluggana gegnir tviþættum til-
gangi aö sögn Sverris Ólafssonar,
deildarstjóra. I fyrsta lagi er ver-
iö aö vinna þarna að verkefnum,
sem fyrirtækið hefur tekið að sér,
svo sem viðskiptalegar úrvinnsl-
ur fyrir fyrirtæki og i öðru lagi er
fólki gefinn kostur á að virða
þessi tæki fyrir sér og væntanleg-
um viðskiptamönnum er sýnt
hvernig þau vinna.
Talsvert af þeim tækjum, sem
nú eru þarna fyrir innan glugg-
ann, fara siðan til Skýrsluvéla
rikisins og Reykjavikurborgar,
þar sem þau verða sett i staö eldri
tækja. önnur tæki koma siðan inn
fyrir gluggann i stað þessara,
sem fara til Skýrsluvéla. —LÓ
ENN ÞRJOZKAST 14 KER VIÐ I ALVERINU
Enn eru ein 16 ker i kerskálum
álversins, sem ekki hefur tekizt
að koma I gagnið að nýju eftir
rafmagnstapið á dögunum. Er
gert ráð fyrir, að það geti tekið
allt aö þrjá mánuði — ef það þá
tekst.
„Aftur á móti eru hin 66, sem
stöðvuðust, komin i full afköst og
óaðfinnanleg,” sagði Ingvar
Pálsson, verkfræðingur, þegar
Visir hafði tal af honum
Eðlilegar vaktir kvað hann
hafa komizt á að nýju undir lok
siðustu viku, en enn væru auka-
vaktir aö störfum við kerin
sextán, sem hafa þrjózkazt við.
,,Sú aðferð, sem kom að haldi
við hin kerin, nægir ekki á þau,”
„Við vorum i tvo sólarhringa að
komast niður á rétta björgunar-
aðferð, þar sem við höfum ekki
neitt fyrir okkur i þeim efnum. En
þegar rétta aðferðin var fundin,
gátum við unnið skipulega að
björgun kerjanna. Við vorum að i
sjö daga og tókum um tiu ker i
gegn á dag,” sagði Ingvar.
Hann kvað álið vera 950 stiga
heitt i kerjunum við eðlilegar
ástæður, en i rafmagnsleysinu
hefði þaö náð að kólna niður i 700
stig. ,,Þá hefði það ekki þurft aö
kólna nema um 40 stig til viðbótar
til að storkna,” útskýrði Ingvar.
„700 stiga heitt var álið seig-
fljótandi og mjög þungt i vöfum.
Það eru um 5 tonn af áli i hverju
keri, en til þess að koma þeim i
gagnið aftur var ráöizt i að brjóta
gat i gegnum storknuðu raflausn-
ina og dæla upp úr kerjunum
þrem tonnum af áli. Þaö krafðist
sérstakrar lagni að soga það upp
úr, sökum þess hve það var seigt,
en þegar það hafði tekizt, var
fljótandi raflausn dælt þar niður.
Við það jókst hitinn og storknaða
raflausnin tók að bráðna.”
Ingvar hafði ekki handbærar
nákvæmar tölur um það tjón, sem
hlauzt af rafmagnstruflununum,
enda ekki öll kurl komin til grafar
ennþá. En hann taldi, að óhætt
væri að fullyrða, að þaö væri ekki
undir 30 milljónum króna, og gæti
jafnvel verið allt að 60 milljónir.
Þá meðtalið framleiðslutap,
rýrnun hráefnis og skemmdir.
Það verður dýrt spaug, ef nauð-
synlegt reynist að brjóta upp
fóðrun þeirra sextán kerja, sem
enn hafa ekki náðst í lag. Fóðrun
hvers þeirra um sig getur kostað
allt aö eina og hálfa milljón
króna, en fóðrun á að duga allt aö
1800 til 2000 daga, eða með öðrum
orðum i nær fimm ár. Fæstar
fóöringjarnareru orönar eldri en
tveggja og hálfs árs, aö þvi er
Ingvar segir.
- ÞJM
HAPPDRÆTTI HASKOLA ISLANDS
Á mánudag verður dregið i 1. flokki.
2.700 vinningar að fjárhæð 19,640.000
krónur.
Á morgun er seinasti heili endurnýjunar
dagurinn
Happdrættl HAskóla tslands
Vinningar ársins (12 flokkar):
4 vinningar á 2.000.000 kr. 8.000.000
44 vinningar á 1.000.000 kr. 44.000.000
48 vinningar á 200.000 kr. 9.6000.0001
7.472 vinningar á 10.000 kr. 74.720.000
52.336 vinningar á 5.000 kr. 261.680.000
Aukavinningar:
8 á 100.000 kr.
88 á 50.000 kr.
60.000
800.000 kr.
4.400.000 kr.
403.200.000 kr.