Vísir - 23.01.1973, Qupperneq 8
8
Vísir. Þriftjudagur 23. janúar 1973
Guðmundur Sigfússon, fréttaritari Visis i Eyjum var kominn á eldstöðvarnar rétt upp úr 2
i nótt og tók þá þessa mynd, sem sýnir hvernig umhorfs var.
Hér á siðunni á móti er
loftljósmynd frá Land-
mælingum íslands. Eru
þar merktir helztu stað-
ir, sem koma við sögu
eldgossins. Sprungan
sjálf og helztu hraun-
straumarnir eru
teiknaðir á myndina.
Tignarlegt og ógn-
vekjandi i senn
Mér varð ekki svo mjög hverft
viö þegar gosið blasti við mér og
félaga minum, sagði Birgir
lögregluþjónn sem fyrstur manna
mun hafa komið á staðinn. —
Annars get ég litla grein gert
fyrir þvi nú, hvaö ég hugsaði. Mér
fannst gosið tignarlegt, en
óneitanlega ógnvekjandi um leið.
Ég áætla að gossprungan hafi
veriö um 200 metrar þarna i
öxlinni, þegar viö komum á
staðinn, en nú er mér sagt að
sprungan sé um 1.5 kllómetrar,
trá Skaríatanga aö Kirkjubæ, en
frá Kirkjubæ sá ég ekici suður
fyrir öxlina.
Við ræstum þegar út slökkvi-
liðiö og vöktum upp i næstu
húsum. Fólk varð auðvitað
skelkað, þegar það frétti hvers
kyns var, en engin skelfing greip
um sig og þvi varð aldrei neitt
öngþveiti. Nú leggur mökk yfir
bæinn, sem er oröinn svartur af
hraungjalli. Þetta hraungjall er
miklu grófara en það sem lagðist
yfir bæinn þegar Surtsey var að
gjósa.
Fyrst eftir að gossprungan
haföi opnazt rann hraun úr henni
allri til austurs, aö mestu leyti
ELDSUMBROTIN HRÖKTU
4000 íYJAMíNN í LAND
undan hallanum fram i sjó. Fljót-
lega fóru þó að myndast gigir I
sprungunni. Helzta hætta fyrir
byggðina i Vestmannaeyjum
núna virðist þvi vera sú, að annað
hvort komi nýjar sprungur nær
bænum, eða að hrauniö fari að
renna til norðurs með ströndinni,
en þá rynni hrauniö inn I höfnina
og lokaöi henni. öskufall virðist
ekki valda verulegri hættu,
aöeins óþægindum.
Almannavarnir stóðust
raunina
Ekki verður annað séð en að
Almannavarnir rikisins hafi
staðizt þessa fyrstu raun, sem
þær hafa lent i. Þó að við séum
ekki komnir i það lag, sem við
vildum vera, sýnist mér þetta
hafa gengið mjög vel, sagði Pétur
Sigurðsson, formaður Almanna-
varnaráðs á sjöunda tímanum i
morgun. Þá gaf Almannavarna
ráð sér smá tima til að gera
blaöamönnum grein fyrir starfi
ráðsins I nótt.
„Strax þegar fregnir bárust um
eldgos i Vestmannaeyjum var Al-
mannavarnaráð kvatt saman til
fundar i stjórnstöð Almanna-
varna i Lögreglustöðinni i
Reykjavik.
Hafizt var þegar handa um að
skipuleggja flutning fólks frá
Vestmannaeyjum, i samræmi við
fyrirfram gerða áætlun
Almannavarna, og gripið til
búnaðar Almannavarna i þvi
sambandi.
Jafnframt var allt lögreglulið
Reykjavikur kvatt út og haft
samband við björgunarsveitir
S.V.F.Í., skáta og flugbjörgunar-
sveita til undirbúnings móttöku
fólks frá Vestmannaeyjum.
Sveitir lögreglumanna úr
Reykjavik voru þegar sendar
flugleiðis til Vestmannaeyja til
Eldgos hófst i Helgafelli á
Heimaey rétt fyrir klukkan 2 i
nótt, aðeins 2-3 kilómetra frá
bænum. Kona hringdi rétt á eftir
á lögreglustöðina i Vestmanna-
eyjum og tilkynnti um gosiö.
Sumar heimildir segja, aö hún
hafi tilkynnt um eldsvoða i bæn
um. Birgir Sigurjónss., lögreglu-
þjónn, fór viðannanmann þegar
á staðinn. — Þegar við komum
austurá Kirkjubæ, sáum viö hvar
gos var hafiö i öxlinni austan i
Helgafelli og fylgdumst við með
þvi hvernig gossprungan lengdist
niður til norðurs, með hverjum
gosstrókinum á fætur öðrum,
sagði Birgir.
Þegar menn höfðu áttað sig á
þvi hvað var að gerast, var
hafizt handa um aö flytja fólk frá
Heimaey. Almannavarnaráð
var komið saman fyrir klukkan
þrjú og hóf þegar skipulagningu
á flutningi fólks. Innan við fjórum
klukkustundum seinna voru um
4000 manns komin áleiðis til lands
meö bátum Vestmannaeyinga og
flugvélum. Þá var-aöeins eftir
fólk, sem af ýmsum ástæðum
vildi ekki eöa gat ekki yfirgefiö
Heimaey.
m
Þetta unga fólk mun vera með yngstu Vestmannaeyingum sem flúði, Ej jr rnar vegna eldgossins I nótt. Daman lengst til
hægri er t.d. aöeins eins mánaðar göhiul. Unga fólkið lét reyndar ölllætin og umstangiðekkert á sig fá, þó smá hrfna heyrðist I
þeim ööru hverju. Enda leið ungu Vestmannaeying. unum bara vel hjá hjúkrunarkonunum i Arbæjarskóla i morgun.