Vísir - 23.01.1973, Síða 11
George Foreman, til vinstri, og Joe Frazier. Myndin var tekin nokkru fyrir keppni þeirra f nótt.
Monika dregur
á Önnu Maríu!
Monika Kaserer, Austurríki, dró
talsvert á önnu Maríu Pröll —
einnig Austurríki — þegar hún
sigraði i bruni í Les Contamines í
Frakklandi á sunnudag, Pröll varð
aðeins í áttunda sæti. Hún hefur
örugga forustu í keppninni um
heimsbikarinn og stefnir í þriðja
sigur i röð þar. Pröll hefur nú 178
stig, Monika Kaserer 126 stig og
Jacquelina Rovier, Frakklandi, er í
3ja sæti með 71 stig
Úrslit í keppninni á sunnudag urðu
þessi:
1. Kaserer, Aust. 1:23.10
2. T. Treichl, V-Þ. 1:23.42
3. B. Cochran, USA, 1:23,88
4. J.Rovier Frakkl. 1:24,08
5. Wenzeel, Lichtens. 1:24.14
6. Nadig, Sviss, 1:24.24
7. G. Emonet Frakkl. 1:24.26
8. Pröll Austurr. 1:24.72.
Bandarísk setti
heimsmet í 500
m. skautahlaupi
Bandariska skautakonan Sheila Young
setti á föstudaginn nýtt heimsmet i 500 metra
skautahlaupi á móti i Davos i Sviss.
Hún hljop vegalengdina á 41.8 sekúndum,
en eldra metið sem Anna Henning — einnig
Bandarikjunum — átti var 42.5 sekúndur svo
hér er nærstum um ótrúlega framlör að
ræöa.
Vfsir. Þriðjudagur 23. janúar 1973
Heimsmeistarinn
Banks dœmdur
í sektir og
sviftur ökuleyfi
Vísir. Þriöjudagur 23. janúar 1973
Frazier sleginn
sex sinnum niður
Gordon Banks, markvörður Stoke
og Englands, sem slasaðist illa a
auga í bílslysi í október sl., var í gær
dæmdur í fjörutiu punda sekt fyrir
óvarlegan akstur, þegar slysið átti
sér stað.
Kftir atburðina i Vestmannaeyjum i nótt og morgun hala margir iþróttaunnendur hugsað til knattspyrnumannanna þar og hvernig þeir
muni haga keppni sinni i sumar. A þessu stigi málsins er óvissan mikil —en þeir munu þó áreiðanlega ekki leggja árar f bát. f fyrrahaust var
lið IBV litríkasla lið tslands og náði þá frábærum árangri — sigraöi I bikarkeppni KSl, varö í ööru sæti f islandsmótinu' og stóð sig með
miklum ágætum I UEFA-keppninni. Þessi mynd af liðinu var tekin rétt fyrir leik þeirra við norsku Vikingana i UEFA-keppninni — Heima-
klettur er i baksýn.
— Og nýr heimsmeistari í þungavigt, George Foreman,
Olympíumeistarinn fró 1968. Leikurinn var stöðvaður í 2. lotu.
Olympíumeistarinn
George Foreman frá
leiknum í Mexikó 1968 er
orðínn heimsmeistari í
þungavigt í hnefaleikum.
Hinn 24 ára Foreman, sem
aldrei hefur tapað leik og
aldrei verið sleginn niður,
lék heimsmeistarann Joe
Frazier grátt í keppni
þeirra um heimsmeistara-
tititinn á Kingston á
Jamaíka í nótt. Þegar
Foreman hafði slegið
Frazier sex sinnum niður
stöðvaði dómarinn leikinn i
annarri lotu og nýr heims-
meistari var krýndur.
Hinn 29 ára Frazier, sem fyrir
leikinn var talinn nær öruggur um
sigur og stóðu veðmál honum 5-2 i
hag, hafði litiö að gera i George
Foreman, sem er þyngri og hærri
en Frazier.
Þegar i fyrstu lotu var ljóst að
hverju stefndi, Foreman kom
strax miklum hægri- og vinstri
handar höggum á heimsmeistar-
ann og þrivegis i fyrstu lotunni
féll Frazier i gólfið. Honum tókst
þó alltaf að komast á fætur áður
en dómarinn hafði taliö upp aö
átta, en hann lá þó i gólfinu þegar
bjallan hringdi eftir fyrstu lotuna.
Sama var uppi á teningnum i
annarri lotu. Hinn þrælsterki
Foreman lék sér beinlinis að
Frazier og sendi hann strax i
fyrstu sóknarlotunni ó gólfiði
fjórða sinn. Frazier komst á
fætur, en hafði ekkert að segja i
Foreman og þegar hann hafði
tvivegis veriö sendur i gólfið með
miklum hægri handa höggum
stöðvaði dómarinn hinn ójafna
leik. Frazier gat þá engan veginn
haldið keppninni áfram, þó svo
hann skreiddist upp á fæturnar.
George Foreman var þvi oröinn
heimsmeistari og var fagnað vel
af yfir fjörutiu þúsund áhorf-
endum. Orslitin voru vissulega
nokkuð óvænt, en þó ekki fyrir
alla. Til dæmis spáöi hnefaleika-
sérfræðingur BBC Harold Mayes
þvi i gær, að Foreman mundi
sigra, og gat þess jafnframt, að
hann væri fyrsti maðurinn, sem
Frazier mætti siðan hann sigraði
Cassius Clay, sem hefði yfir veru-
Joe Frazier, sem einnig er
íþekktur sem dægurlagasöngv-
ari, hefur verið atvinnumaður i
hnefaleikum i átta ár og þetta er i
fyrsta sinn, sem hann tapar leik.
Hann er einnig fyrrverandi
Olympiumeistari i þungavigt —
sigraði i Tokió 1964 — Cassius
Clay sigraði á leikunum i Róm
1960. Siöan George Foreman varö
Olympiumeistari 1968 hefur hann
keppt 38 sinnum sem atvinnu-
maður og sigrað i öllum
leikjunum.
Þegar keppendur voru vigtaðir
fyrir leikinn i gær var Frazier
mun þyngri en nokkru sinni áður
i keppni, eða 216 ensk pund, og
bendir það til að æfingin sé ekki
sem bezt. Foreman var þremur
pundum þyngri.
Þetta var i fimmta sinn, sem
Frazier varði heimsmeistara-
titilinn, sem hann vann i keppni
við Cassius Clay i „leik
aldarinnar” 8. marz 1971. Keppni
þeirra stóð i 15 lotur og i þeirri
fimmtándu sló Frazier Clay i
gólfið, en Clay stóð fljótt á fætur.
Hann tapaði hins vegar á stigum
— var i lélegri æfingu eftir ár-
langa fjarveru frá keppni.
Fyrir keppnina i gær var
Foreman mjög bjartsýnn á sigur.
Hann sagði þá við fréttamenn.
„Litið á afrekaskrárnar. Flestir
heimsmeistaranna i þungavigt
hafa aðeins rikt i 2-3 ár. Frazier
hefur nú verið heimsmeistari i
tæp tvö ár — nú er komið að
mér”. Foreman er mjög sterkur
hnefaleikamaður, en þó er eins og
enginn þekki beint hæfileika hans
— eða hafi ekki viljað viðurkenna
þá. Sem atvinnumaður hefur
hann aldrei verið sleginn niður—
en sama er að segja um Frazier,
sem fyrst og fremst hefur veriö
„rotari” nokkurs konar hvitur
Rocky Marciano.
Keppnin i nótthófst kl. 3.15 eftir
islenzkum tima og var keppt á
stærsta leikvanginum i Kingston
— knattspyrnuvelli, sem rúmar
43 þúsund áhorfendur. Aðgöngu-
miöar kostuðu fimm og hálfan
dollara nema við sjálfan
hringinn, þar sem verðiö var um
110 dollarar — eða 11 þúsund
krónur. Leiknum var sjónvarpað
til Bandarikjanna og Kanada —
einnig til kvikmyndahúsa i Bret-
landi, Japan og Frakklandi og
nokkurra annarra landa. Fyrir
leikinn átti Frazier aö fá 850
þúsund dollara eða 42,5% af
tekjunum, en Foreman átti að fá i
sinn hlut 375 þúsund dollara eöa
20%.
Fyrir leikinn leit afrekaskrá
þeirra þannig út sem atvinnu-
manna. Frazier 29 leikir — allir
unnir, þar af 25 á rothöggi. Fore-
man 37 leikir — allir unnir, þar af
34 á rothöggi.
Enn jafnt
hjá WBA og
Nottm. For
Eftir 291 minútna keppni milii
Nottm. Forcst i 2. dcild og WBA
úr 1. dcild i 3. umferð ensku
bikarkcppninnar hafa rtrslit cnn
ekki fengizt.
Liðin léku i þriðja sinn i gær-
kvöldi og þrátt fyrir frain-
lengingu tókst liðunum ekki að
skora mark í ieiknum. Leikið var
iNottingham. Fyrsta leik liðanna
i West Bromwich lauk meö jafn-
tefli 1-1. Siðan léku liðin aftur i
Nottingham og varð að hætta
leiknum eftir 81 minútu. Fjórði
leikur liðanna hefur enn ekki
verið ákveðinn, en það iiðið, sem
sigra leikur viö Svindon i 4. um-
ferö.
Brumel stökk
2.05 metra!
Valeri Brumel, fyrrum heims-
methafi i hástökki, stökk 2.05
metra I hástökki á innanhússmóti
i Moskvu á sunnudaginn og sýndi
mikla hæfni. Sigurvegari varð
Gabrilov, sem stökk 2.14 metra.
Valeri Brumel lenti i alvarlegu
umferöarslysi fyrir átta árum og
var þá talið aö iþróttaferli hans
væri iokiö. Hann fótbrotnaöi mjög
illa meðal annars og er annar
fótur hans nú styttri. Þrátt fyrir
mótlætið gafst garpurinn mikli
ekki upp og eftir nokkurra ára
fjarveru vegna meiöslanna for
hann að æfa aftur með þessum
árangri. Brumei var i nokkur ár
ósigrandi i hástökki, setti hvað
eftir annað heimsmet og stökk
hæst 2.28 metra. Ilann var
tvivegis kjörinn bezti iþrótta-
maður heims á þeim árum.
STEREO
TOSHIBA CT 412-stereo casettutœki
til notkunar í bílum.
Tœkið er einnig gert fyrir upptöku
úr bílútvarpi eða frú hljóðnema.
10 w. útgangskraftur.
Tœkinu fylgja 2 hútalarar og hljóðnemi.
Verð aðeins kr. 12.620.— Árs óbyrgð
TOSHIBA
Umboðsmenn:
Einar Farestveit
& Co. hf
Bergstaðastrœti 10
sími 16995.
Dómurinn var kveðinn upp i Newcastle-
under-Lyme, borg rétt hjá Stoke. Banks sem
héit þvi fram aö hann væri saklaus af
ákærunum, missti einnig ökuskirteini sitt.
Það var sannað, að hann hefði ekið á röngum
vegarkanti, þegar slysiö átti sér staö. Banks
hefur ekki leikið siðan hann varö fyrir
slysinu, en er byrjaöur aðæfaáný.
Þá var Banks einnig dæmdur (il að greiða
alan málskostnað i Newcastle i gær — þrjátiu
sterlingspund.
unnendur
68 VÍTI DÆMD í 40
MÍNÚTNA LEIK
— Flautukonsert í leik Ármanns
Dómararnir i leik Ár-
manns og Iþróttafélags
Stúdenta i Islandsmótinu i
körfuknattleik, sem fram
fór á sunnudagskvöld,
höfðu sannarlega nóg að
starfa meðan á leiknum
stóð. Frá byrjun leiksins
var mikil harka allsráð-
andi, og greinilegt að hvor-
ugtliðið ætlaði sér að gefa
eftir fyrr en i fulla hnef-
ana. Er leiknum lauk höfðu
alls verið skráð 68 víti á lið-
in tvö — þar af að minnsta
kosti eitt á þjálfara — og ef
þetta er ekki met, er það
áreiðanlega ekki fjarri þvi.
Það tók líka hartnær tvo
klukkutíma að Ijúka leikn-
um, þvi vart var boltinn
kominn i leik eftir eitt vitið
að flautan gall á ný.
Ekki verður þó dómurunum
tveimur. Herði Tulinius, sem kom
alla leið norðan af Akureyri til að
dæma þennan leik, og Erlendi
Eysteinssyni, kennt um að svona
fór. Brotin voru svo mörg að þeir
hefðu vel getaö dæmt fleiri viti án
þess að nokkuö væri viö það að at-
huga.
Ekki fór hjá þvi að öllum þess-
um dómum fylgdu nokkur vita-
skot, en ekki verður sagt að nýt-
ing þeirra hafi veriö glæsileg. Til
dæmis tóku Stúdentarnir 24 vita-
skot alls i fyrri hálfleik, en hittu
aðeins 6, eða 25%. Flestir gætu
liklega gert betur með lokuð aug-
un. Samanlagt tóku liðin 66 vita-
skot i leiknum, en hittu aðeins 31,
eða nokkuð innan við 50%. Væri
ekki úr vegi fyrir leikmenn að at-
huga hvar þeir standa með tilliti
til vitahittni, þvi ósjaldan velta
úrslit leikja einmitt á nýtingu
vitaskota, og það er súrt að tapa
leik með 11 stigum, vitandi það að
liðið hefur klúðrað 20 vitaskotum,
eins og Stúdentarnir gerðu i þess-
um leik.
Bæði liðin byrjuðu leikinn með
maður-á-mann vörn, og þrátt fyr-
ir ágæta dómgæzlu Harðar
og Erlendar, uröu árekstr-
ar tiðir, enda sýnilegt að
bæði liðin voru staðráðin i að ná i
stig i þessum leik. Armanni
veittist strax betur i þessari bar-
áttu, og virtust leikmenn ákveðn-
ir að lyfta liði sinu upp úr þeim
öldudal, sem það hefur verið i
og stúdenta
undanfarið. Vörnin var mjög
samstillt hjá Armanni, og tókst
með þvi að halda fS-mönnum frá
körfunni — jafnvel Bjarna Gunn-
ari, sem er þó ekkert áhlaups-
verk. En með þessum góða
varnarleik, sem stundum varð þó
býsna harður — enda fór fyrsti
Ármenningurinn útaf meö 5 villur
i fyrri hálfleik — og með nýjum
leikaðferðum, tókst Armanni
fljótlega að ná forystu, og eftir
fjögurra minútna leik stóö 12—4
fyrir Armann.
En, hinn ákveðni varnarleikur
kostaði Armenningana fórnir, og
á fyrstu 5 minútunum fékk Birgir
Birgis 3 villur, og varö að vikja af
velli, til að „spara” hann fyrir
siðari hálfleik. Eftir þetta tóku
Stúdentarnir smám saman að
vinna upp forskotið, svo að um
miðjan hálfleikinn jöfnuðu þeir,
16-16. Armann náði þó strax for-
ystunni á ný, og i hléi stóðu leikar
35-24 fyrir Armann.
Hvað sem þvi hefur valdið, þá
var þetta einhver allra slappasti
leikur Stúdentanna i vetur. Liðið
er komið óraveg frá þvi ástandi
sem rikti, þegar það rokkaði milli
1. og 2. deildar næstum árlega, og
hefur nú náð mesta styrkleika
sinum i meir en áratug. Þó
sprungu Stúdentarnir algerlega á
limminu i þessum leik gegn Ar-
manni, og fjórum minútum fyrir
leikslok hafði Armann náð 23
stiga forystu, 77—54. En IS átti
góða kafla, eins og siðustu fjórar
minúturnar, þegar liðið skoraði
14 stig gegn 2, og minnkaði mun-
inn niður i 11 stig, eða 79—68.
Armenningarnir hafa greini-
lega lagt sig fram um að bæta lið
sitt, enda virðist liðiö á réttri
braut. Þetta kemur fram bæði i
sókn og vörn, og verður þess
varla langt að biöa aö Armann
taki aftur sitt fyrra sæti sem eitt
af toppliöunum i 1. deild. Birgir
Birgis stjórnaði liði sinu af rögg-
semi, og skoraöi auk þess nokkr-
ar bráðfallegar körfur, og Jón
Sigurösson er alltaf sami galdra-
maðurinn með boltann, og skor-
aði 17 stig. Bjarni Gunnar varð
sigahæstur Stúdentanna með 18
stig.
gþ
Staðan í
1. deild
KR 4 4 0 331-261 8 St.
IR .3 3 0 282-232 6 st.
Arm. 3 2 1 216-200 4 st.
1S 4 1 3 280-286 2 st.
HSK 2 1 1 138-149 2 st.
UMFN 3 1 2 167-194 2 st.
Valur 2 0 2 152-193 0 st.
Þór 3 0 3 148-199 0 st.
Stigahæstu leikmenn:
Bjarni Gunnar IS 76
Kolbeinn Pálsson KR 73
Fleygði söngkonunni í
sundlaugina - ósyndri
Joc Fraz.ier, sem nú er orðinn fyrrverandi heimsmeistari i þunga-
vigt, virðist ekki hafa tekið lcikinn við George Forcman nógu alvar-
lega. Með honum á Jamika voru skemmtikraftar þeir, sem hann vinn-
ur með i siing og dansi, milli þess, sem hann boxar. Og á fimmtudaginn
munaði litlu að illa færi fyrir Krazicr. i galsaskap kastaöi hann söngkon
unni Dehra Young út i sundlaug á Jamaika og var söngkonan næsluni
drukknuð. i ljós kom að hún kunni ekki að synda og Krazicr tókst að ná
henni upp áður en verr fór. Söngkonan var i algjöru taugasjokki cftir
atvikið, en hefur nú fyrirgefið allt saman.