Vísir - 23.01.1973, Blaðsíða 12
12
Vísir. Þriöjudagur 23. janúar 1973
Reiðhjól
með síma
NÝJASTA TÆKNIFRAMFÖRIN?
Ballettdansari
á einum fœti
Það leit sannariega ekki út fyrir að hann Sören Skjöldejmose gæti
hafið ballcttdans að nýju eftir bílslys, sem hann varð fyrir. Sören
slasaðist það illa, að taka varð af honumfótinnfyrir neöan hné. Og enda
þótt hnénu sjálfu væri þyrmt, var þetta alvarlegt fyrir mann, sem
stundaði starf eins og hann.
En það ótrúlega gerðist. Sören gat nefniiega dansað og hefur
jafnvcl sýnt ballctt i danska sjónvarpinu, —og hann er áreiðaniega eini
cinfætti íistdansarinn í öllum heiminum. „Mér gengur ilia að teygja á
ökklanum á gervifætinum”, sagði Sören, ,,en að öðru leyti finn ég eng-
an mun. £g kem ekki bara fram sem dansari, heldur kenni ég lika nú
timaballett. Við þetta vcrð ég að vera á fótunum 5 tima á dag og það
geri ég án nokkurra erfiðleika,” segir hann.
A myndinni sjáum við Sören, sem er 24 ára Kaupmannahafnarbúi,
nýgiftur og nýlega orðinn faðir.
Sé reiðhjóiið búið sima, má víst
stimpla það tækniframför, —
a.m.k. i þeim borgum þar sem
erfitt eraðkomast leiðar sinnar á
hinum breiðu blikkbeijum, sem
stanga hver annarrar horn í grið
og erg og komast ekkert áfram.
A hjólinu má skjótast á milli óg
nýta minnstu smugur. Paul Red-
fern er, eins og margir aðrir
Lundúnabúar, — mjög önnum
kafinn maður. Þess vegna hafði
hann ekki tima til að nota bilinn
sinn lengur, en keypti hjólið að
tarna. Og hjólið er lika hans skrif-
stofa, og þar hringir siminn, jafn
vel meðan hann er á mestu um-
ferðargötum. Svona innan sviga
verður þó að geta þess, að Paul
missti ökuleyfið i 3 ár á dögunum
vegna ölvunar. En hvort sem
þarna endurtekur sig sagan um
refinn og vinberin eða ekki, þá
segirPaul: ,,Ég kemst mun hrað-
ar yfir með þessu móti,” en hann
starfar við að semja kvikmynda-
handrit fyrir auglýsingamyndir.
Jackie Onassis, konan sem á
allt, sem hugurinn girnist, heimt-
ar meira, meira, meira... Þctta
segja brczk blöð þessa dagana.
Jackie hefur aldcilis verið laus á
fjármuni bónda síns, eftir aö hún
og Ari Onassis giftust fyrir 4 ár-
um. Það er sagt, að hún hafi eytt
sem svarar milljón dollurum i föl,
húsgiing-, skartgripi og annað sem
telst til munaðarvarnings.
Það nýjasta, sem Jackie hefst
að, er alheimsleit að bústöðum.
Hún er að leita að húsum til að
kaupa' i London, Kaliforniu,
Massachusetts, Karibaeyjum og
á Kapri . Fyrir eiga hjónin anzi
myndarlega bústaði i New York,
Paris, Aþenu, að ekki sé talað um
einkaeyjuna Skorpios og fljót
andi heimiliö, skemmtisnekkjuna
Christina.
Fasteignasali einn i London
fékk það verkefni á dögunum að
útvega „mikilvægum, bandarisk-
um viðskiptavini” bústað, sem
væri á rólegum stað og meira en
þaö, reyndarstað semenginn gæti
komizt að, nema eigandinn og
fuglinn fljúgandi. Sjö siöna listi
fylgdi með óskunum um að finna
þennan vel falda stað, —sjö siður
um allt það, sem viðskiptavinur-
inn óskaði að húsið hefði að
geyma. Þegar hann komst að þvi,
hver þessi viðskiptavinur var,
reyndi hann enn frekar að gera
honum (eða henni) til geðs. En
eins og fasteignasalinn sagði:
„Þetta er satt að segja alveg von-
laust. Staður eins og þarna var
farið fram á, er ekki til i London,
svo ég viti. Svona hús verður að
byggja fyrir frúna, hún er sann-
arlega vandlát, bíessuð frúin.”
Eitthvað svipað var það annars
staðar, þar sem menn leituðu
fyrir Jackie, m.a. i Kaliforniu.
Úrslit málsins urðu svo þau, að
Jackie valdi sér hús á Kapri sem
afmælisgjöf frá manni sinum á
fjórða giftingarafmæli þeirra
hjóna.
V- ; ‘ __
\v\y h -• k
nr 5 YvÉ;iifl^n
-- ‘mj ^ :
Pardus erkominn!
Ef þér hafiS það óbyrgðarhlutverk aS sjó
um val ó skemmtikröftum fyrir skemmtun ó
vegum fyrirtœkis yðar, þó er oss áriœgja að
tilkynna yður að nú hefur opnazt ný leið
til að tryggja ánœgjulegt skemmtikvöld
samstarfsfólks yðar.
Okkar starf er yður algjörlega að kostnaðarlausu,
það eina sem þér þurfið að gera er að hafa sámband
við Pardus i sima 13902 og fá allar upplýsingar
um kostnað og val á hljómsveifum eða öðrum
. skemmtikröftum.
látið Pardus létta yður starfið. Hrin&ið strctjc.
Munið, að það eruo þér sem veljið eða hafriið... .
yður að kostnaðarlausu.
US
Skemmtikraftar.Sími 13902
HÚN Á ALLT, EN VILL
MEIRA OG MEIRA