Vísir - 06.04.1973, Blaðsíða 1

Vísir - 06.04.1973, Blaðsíða 1
vísm 63. árg. — Föstudagur 6. apríl 1973. —82. tbl. REIÐHESTUR Á UPPBOÐI Á LÆKJARTORGI! Atta vetra reiöhestur, vakur og töltgengur til sölu á Lækjartorgi? Þetta hiýtur að vera aprilspaug. Já, vissu- lega, þvi það var reyndar fyrir 50 árum sem feitur og fallegur hestur var seldur á uppboði á Lækjartorgi. 1 dag má þar helzt ekki hósta eða hnerra öðruvisi en það varði við lög. Visir fyrir 50 árum er i dag á bls. 16 og þar er hægt að fylgjast með tfðarandan- um fyrir hálfri öld. Veiddu loðnuna bara af bryggjunni Til hvers er verið að koma sér upp veiðitækjum og bát- um fyrir tugi milljóna úr þvi að hægt er að moka þessu upp úr höfninni, sögðu nokkrir Akur'eyringar, sem háfuðu loönuna upp úr báta- dokkinni við Höpners- bryggju. — Sjá bls. 12 ■ te' JÍrJ®lÉ y. m - „, mm - • \\ , \!\£25i SLÆR ALLTAF í GEGN Aðsóknin að sýningu Kjarvals heitins er með eindæmum. Fólk flykkist á sýninguna i Mikla- garði eða Kjarvalsstööum, eða hvaö nýja Iistsýningahúsiö á nú að heita. Lætur nú nærri að áttundi hver Islendingur hafi KJARVAL séð sýninguna. i blaðinu i dag helgum við meistara Kjarval opnu blaðsins og birtum þar litmyndir af verkum hans og ræðum við nokkra gesti sem við hittum á sýningunni i gær. Þá skrifar ólafur Jónsson um Kjarval. Meðfylgjandi forslðumynd er af Þingvallamynd Kjarvals. Skjaldbreiður og Armannsfell trjóna i baksýn. Allar lit- myndirnar i blaðinu eru I eigu Reykjavikurborgar. Mun myndin sem hér fylgir vera frá þvi um 1950. BORGARDÓMUR ÓGILTI VÍSITÖLUBINDINGU Eru vísitöluákvœði ólögleg í leigu- og verksamningum? málsins hljóta að verða að liggja einstaklinga og stofnana byggjast fyrir mjög fljótlega, þvl svo mörg á ýmis konar visitöluákvæöum. - og margþætt viðskiptasamskipti OG. Vatn aftur á morgun: Þá geta þeir baðað sig aftur í Eyjum ÞEGAR VEGURINN LOKAST Hafnarfjaröarvegurinn mjói og holótti er tekinn til um- ræöu af tveim ökumönnum, sem segja sinar farir ekki sléttar. I gær lokaðist vegur- inn Jvivegis þegar svolitið snjófjúk settist á veginn Annar lesendanna ásakar „kerfið” um seinagang, þeg- ar vegurinn lokast, hinn ökumönnum I sumarskapi. — Sjá bls. 2. Hver fann veski gamla mannsins? Maður á áttræðisaldri tapaði veskinu sinu, þegar hann var á leið i fiskbúð. 1 þvi voru 40 þúsund krónur. „Mér er ekki meiri vorkunn en Vest- mannaeyingunum”, sagði hann m.a. þegar blaðamaður ræddi við hann. — bls. 12. Borgar til Lilla teatern — bls. 3 Ákvæði í húsaleigu- samningum um að leiga skuli hækka samkvæmt byggingarvísitölu eru ólög- leg, samkvæmt dómi, sem kveðinn var upp i Borgar- dómi fyrir nokkru. Slík ákvæði eru mjög algeng í húsaleigusamningum, en dómurinn úrskurðaði að leigutaki, sem gengizt hafði undir þau með skrif- legum samningi, þyrfti ekki að greiða vísitöluálag á leiguna. Dómurinn er byggöur á lögum nr. 71, frá 1966, um bann við geng- is- og visitöluákvæðum i samn- ingum um fjárskuldbindingar. Einnig hafa komið fram efa- semdir um lögmæti visitölu- ákvæða I samningum um fbúða- kaup og öðrum verksamningum. Akvæði um hækkun samkvæmt byggingarvisitölu eða annarri verðviðmiðun, hafa lengi verið tiðkuð i samningum manna á milli hér á landi, og má segja, að allir verksamningar, hvort sem þeir eru geröir af opinberum eða einkaaðilum, séu með slfkum ákvæðum. Sama er að segja um samninga um leigu á húsnæði, þeir hafa verið gerðir með ákvæðum um hækkun samkvæmt visitölu, sem talin hefur veriö gilda nema, þegar verðstöðvunarlög giltu. A þeim ákvæðum hafa byggzt langir leigusamningar til margra ára og báðiraðilar talið sig mega vel við una. Leigutaki hefur getað tryggt sér húsnæði til langs tima i einu og leigusali ekki átt það á hættu, að leiguupphæðin gufaði upp i verðbólguhitinni. Þess konar húsaleigusamningar hafa verið geröir meðal annars af ýmsum opinberum aðilum. Þar sem ekki liggur enn fyrir dómur Hæstaréttar i neinu sliku máli og tilgangur löggjafans með setningu þessara laga frá 1966 er ekki ljós — þaö er að segja, hvort þau hafa átt að ná yfir samninga sem þessa — veröur fróðlegt að fylgjast með, hvað skeður i málinu á næstunni. En úrslit „Ég reikna með því að vatnið verði komið á hér á morgun,” sagði Páll Zophoniason bæjartæknifræðingur i Eyjum, þegar við höfðum samband við hann i morgun, en menn i Eyjum hafa kvartað sáran yfir þvi að geta jafnvel ekki þvegið sér. Leiðsla sú, sem gaf sig þegar hraunrennslið var sem mest, eyðilagðist aðeins uppi á Skansi, en vatnið er nú leitt upp á Nausthamarsbryggju svo- kallaða, sjávarmegin. Unnið hefur verið að lagningu vatnsleiðslu i nótt og i morgun, en vegna veðurs og annars hafa ýmsar tafir orðið. Góð von er sem sagt um það að Eyja- skeggjar geti brugðið sér i bað á morgun. -EA. Hvaðan koma gjaldeyristekjurnar okkar? . — sjá baksíðu SJÁVARÚTVEGUR GEFUR MINNA EN HELMINGINN

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.