Vísir - 06.04.1973, Blaðsíða 3
Visir. Föstudagur 6. april. 1973
3
KJARVALSHÚS LISTAVERKAMIÐLUN OG
ÍBÚÐ FYRIR ERLENDAN LISTAMANN
— Það eru uppi hug-
myndir um, að i húsinu
verði deild úr Lista-
safni íslands. Á hún að
sjá um útlán á verkum
safnsins og einnig þeim
verkum, sem keypt eru
sérstaklega til útlána. í
húsinu er ibúð og er
ætlunin,að i henni gefist
erlendum listamönnum
kostur á að dvelja.
Er þá reiknað með, að
islenzkur listamaður dveljist á
sömu kjörum i heimalandi
gestsins. — Þetta sagði Knútur
Hallsson, skrifstofustjóri i
menntamálaráðuneytinu,
okkur, er við spurðum hann um,
hvað gera ætti við „Kjarvals-
húsið” á Seltjarnarnesi. En það
var á sinum tima byggt á
vegum rikissjóðs og Seðla-
bankans og var ætlað sem ibúð
og vinnustofa fyrir Jóhannes S.
Kjarval. Af einhverjum
ástæðum flutti hann aldrei i
húsið, og einu notin, sem af þvi
hafa verið, eru, að þar var eitt
sinri haldin sýning á nokkrum
verkum hans.
Útlánadeildin myndi einkum
sjá um miðlun verka til opin-
berra stofnana, svo sem skóla
og sendiráða, og á þann hátt
væru stöðugt i gangi farand-
sýningar, þar sem listaverkin
yrðu flutt til og önnur kæmu i
staðinn.
Frágangi byggingarinnar er
ekki að fullu lokið, en aðallega
mun það vera ýmis frágangur
við hina fyrirhuguðu lista-
mannsibúð, sem ólokið er.
Einnig mun littekt hússins ekki
hafa farið fram.
Að sögn Knúts Hallssonar er
ekki alveg ljóst, hvort formlega
er búið að afhenda Listasafni einnig vantar fjárveitingu til gerðir eru um að verði þar, geti
rikisins húsið til notkunar og þess, að sú starfsemi, sem ráða- hafizt. —ÓG
Hér biður Kjarvalshúsið á Seltjarnarnesi, sem vonandi á að koma að notum sem bústaður fyrir erlenda
iistamenn, sem gista iandið.
Ekki bara landgrœðsla á afmœlinu
Grundvöllur lagður að landsins byggð
„Stcfna ber að því sem
höfuðmarkmiði, að á ellefu
hundruð ára afmæli byggðar á ts-
landi, liggi fyrir grundvöllur er
geri islenzkri þjóð kleift að marka
sér byggðastefnu næstu fram-
tiðar.”
Það verður þá ekki aðeins land-
græðsla, sem landsmenn hefja til
virðingar næsta ár, ef samstarfs-
nefnd Vestfirðinga, Austfirðinga
og Norðlendinga fær ráðið.
Þessar tillögur voru ræddar i
morgun á fundi nefndarinnar með
þingmönnum þessara landshluta.
Fyrir Alþingi liggja nú tvær til-
lögur um byggðamál frá einstök-
um þingmönnum. Nefndin vill
samræma tillögurnar á þann veg,
að þingmannanefnd verði falið að
vinna að mótun alhliða byggða-
stefnu. Þá sé einnig þörf á skjót-
um aðgerðum til að komast hjá
vaxandi röskun byggðar. Sam-
starfsnefndin leggur að þing-
mönnum að við upphaf næsta
þings þurfi að liggja fyrir laga-
frumvörp um slikar breytingar,
og verði það einnig verkefni þing-
mannanefndarinnar að sjá til
þess.
„Stjórnsýsíustofnun rikisins”
eða ráðuneyti verði sett á
laggirnar, þar sem fjallað verði
Ein Polýfónstúlknanna er hér að útbúa skreytingar fyrir kaffisölu, sem
halda á um helgina. Öll spjót eru höfð úti til að aura saman fyrir Stokk-
hólmsferðinni. (Ljósm. Björgvin Pálsson).
um mótun og framkvæmd
byggðastefnu og skipulagsmál.
Landshlutasamtök sveitarfélaga
fái löggildingu.
Mikilvægt sé að flytja einhverjar
opinberar stofnanir út á land og
útibú og deildir, þar sem það á
við.
Rétta þurfi hlut fólks i þéttbýli
úti á landi i umhverfismálum
almennings, svo að umhverfi geti
orðið sambærilegt við það, sem
ibúar höfuðborgarinnar búa við.
Jafnræði ibúa landsbyggðarinnar
og Stór-Reykjavikur i húsnæðis-
málum verði tryggt, aukið fé
renni til byggðarmála og fleira.
-HH.
„Maður hefur gott af
að kynnast öðru",
segir Borgar Garðarson sem í haust heldur út til Lilla teatern
„Ég hyggst halda út i haust og
fylgjast meö starfi Lilla teatern
i Helsingfors. Ég sótti um að fá
að komast til þeirra og fylgjast
með hjá þeim. Ég hef staðið i
bréfaskiptum við þá nú seinni-
partinn f vetur, og nú hefur ver-
ið gengið frá þessu. Og ef ailt
gengur upp þá fer ég i haust. En
það eru ýmsir spottar lausir
ennþá, og þá kannski sérstak-
lega peningahliðin.”
Þetta sagði Borgar Garðars-
son leikari, þegar blaðið ræddi
við hann I morgun, en Borgar er
að öllum líkindum fyrsti islenzki
leiklistarmaðurinn, sem heldur
út til Lilla teatern i Helsingfors,
þó að margir stundi nám i þvi
sama fagi annars staðar á
Norðurlöndunum.
„Ég hef hugsað mér að dvelja
úti a.m.k. næsta leikár, og það
gæti jafnvel orðið lengri timi.
Þetta er að minum dómi eitt það
skemmtilegasta leikhús á
Norðurlöndum og að þvi er mér
virðist hefur þaö skemmtilega
aðferð að verkefnunum, að
minnsta kosti er árangurinn
ótrúlega góður.” En aðferðin
sjálf að verkefninu, það er nú
það sem ég ætla að fara að
kynna mér.”
„Ég tel að þetta muni koma
mér að góðu gagni, og þó að Is-
land sé ágætt, og engir sérstakir
eftirbátar, þá er það alltaf eyja,
og maður hefur alltaf gott af þvi
að kynnast öðru.”
„En þetta getur orðið anzi
skemmtilegt, og ég vona að ég
komist þetta, en ég veit reyndar
ekki hvort ég byrja að leika þar,
að minnsta kosti ekki strax. Það
er tvennt ólikt, þó maður tali
sæmilega sænsku að fara upp á
svið og leika.” —EA
Borgar Garðarsson, leikari.
Um 80 til hljómplötu-
hljóðritunar í Svíþjóð
Mesti hópur, sem fer utan þeirra erindagerða
Fullvist má telja, aö ferð Polý-
fónkórsins til Stokkhólms i sumar
sé stærsta hópferð isienzkra list-
flytjenda til einnar hljómplötu-
hljóðritunar. Verða þaðekki færri
en 80 til 90 manns, sem fljúga
utan þessara erinda.
„Við munum leigja okkur eigin
flugvél til ferðarinnar og leggja
upp 5. júni”, sagði Ingólfur Guð-
brandsson, stjórnandi Pólýfón-
kórsins. Honum ætti að veitast
auðveltaðskipuleggja ferðina, en
hann rekur sjálfur ferðaskrifstofu
svo sem kunnugt er.
„Upptakan fer fram i hljóm-
leikahöll i útborg Stokkhólms”,
útskýrir Ingólfur: „Salurinn þar
er frægur fyrir góðan hljómburð,
og þar hefur fjöldi hljómplötu-
hljóðritana verið gerður. Kórinn
mun verja þar fjórum fyrstu
dögunum til æfinga einvörðungu.
Siðan er ætlunin að hljóðrita tvær
stórar hljómplötur, sem við
munum gefa út upp á eigin
spýtur”.
Æfingar standa yfir hér heima
þessa dagana, en meðal annars
efnis, sem á plöturnar á að fara,
er „Stabat Mater” eftir
Palestrina, sem er tveggja kóra
verk, og svo modetta eftir Bach.
Þá verða einnig á efnisskránni
ný tónverk eftir islenzk tónskáld,
þar á meðal Þorkel Sigurbjörns-
son, Gunnar Reyni Sveinsson og
Jón Asgeirsson.
Það gefur auga leið, að hljóm-
plötugerð af þessari stærðar-
gráðu er kostnaðarsöm. Hefur
kórinn þvi þurft að nota ýmsar
fjáröflunarleiðir eins og t.d. kaffi-
sölu og happdrættismiðasölu. Og
svo er fyrirhugaður flóa-
markaður að Hallveigarstöðum á
laugardag, sem ætti sömuleiðis
að gefa eitthvað af sér. —ÞJM