Vísir - 06.04.1973, Blaðsíða 12

Vísir - 06.04.1973, Blaðsíða 12
12 Visir. Föstudagur 6. april. 1973 Eyjakrakkar i Noregsreisu Þau Vilhjálmur Garðarsson og Arnfriður Einarsdóttir, 12 ára gömul Eyjabörn, fengu óvænta ferð til Noregs i vikunni, fóru á mánudaginn og komu aftur i gær. Komu þau þar fram i barnatima sjónvarpsins vegna fjársöfnunar i Noregi i sambandi við fyrirhug- aða sumardvöl barna úr Eyjum i Noregi. Noregsferðirnar nefjast um miðjan júni og lykur i byrjun september. Hafa islenzku flug- félögin boðið Norsk-islansk sam- band að gefa helming flugfar- anna. A myndinni með þeim Vilhjálmi og Arnfriði eru Bergljót Rósinkranz, fyrsta flugfreyja um borð i vélinni sem þau flugu með, og flugvélstjórinn, Jón Magnús- son. Q ■ Loðnunni eða kuldanum að kenna? Talsvert mörg tilfelli kvefsóttar hafa komizt á skýrslur borgar- læknis að undanförnu, 92.vikuna 11.-17. marz samkvæmt skýrslum aðeins 7 lækna, sem létu heyra frá sér, en vikuna á undan voru 105 kvefsjúklingar hjá 16 læknum. Læknar eru margfalt fleiri en þetta og eflaust láta fæstir sjúklinganna lækna heyra frá sér. Hvort þetta er kuldanum eða loðnureyknum, sem sumir telja óheilnæman, aö kenna, skal ekki fullyrt um. I shijridi Allar konur eru fallegar En sumar eru pínulítið of stórar, sumstaðar. Komið til okkar og við munum hjólpa ykkur að nó burt aukakílóum, Megrunarkúrar byrja 10. april Hringið strax. «Bezta sauna og massage i Reykjavík!» Bingó i sjónvarpinu Þeir eru ekki i vandræðum að finna sér nýstárleg fjáröflunar- brögð Ljónamennimir. Þeir i Ægi eru nú að fara af stað með bingó i auglýsingatimum sjónvarpsins. Má þá búast við að einhverjir fari að horfa á auglýsingarnar. Númerin verða dregin fyrirfram hjá borgarfógeta. Spjöldin verða aftur á móti seld hjá félögum i Lionsklúbbnum Ægi og i ýmsum verzlunum i Iteykjavik og kosta 300 krónur. Vinningur verður bif- reið að verðmæti um hálf milljón króna. Ebeneser Asgeirsson kaupmaður i Vörumarkaðnum, er formaður klúbbsins og mun aðalútsala spjaldanna verða i verzlun hans. AA kynnir starfsemi sina fyrir Selfyssingum ,,Til fundarins er ekki boðað i áróðursskyni i venjulegri merk- ingu þess orðs. Að baki okkar standa engin félagsleg eða fjár- hagsleg öfl. AA-samtökin eru full- komlega óháð félagslegt fyrirbæri og markmið AA-manna er bara eitt: Að lifa lifinu án áfengis og hjálpa öðrum, sem vilja losna út úr vitahring of- drykkjunnar”, segja AA-menn i bréfi til Selfyssinga en á Selfossi ætla þeir á morgun að kynna starfsemi sina i Tryggvaskála kl. 3 siðdegis. Veiddu loðnu af bátabryggjunni Það var auðveld veiði fyrir þá nyrðra á dögunum, þegar loðna gekk inn i smábátadokkina við Höpnersbryggju. Dagur segir að bakari einn og tómstunda- sjómaður, Sigurður B. Jónsson hafi ásamt fleirum tekið sig til og lokar hafnarmynninum með nót, — og verið kátir. Kilóið af kven- loðnunni er keypt á 7 krónur, — en karlinn er verðminni óg fer á 1.76 kr. kilóið. Segir Dagur að þarna hafi verið um að ræða einar 100 tunnur af loðnu, — sem vitaskuld þurfti ekki annað en að háfa úpp. ## Ekki meiri vorkunn en Vestmannaeyingunum", — segir Björn Jónsson, sem tapaði 40 þús. krónum „Mér er ekki meiri vorkimn heldur en Vestmannaeyingun- um. ÍCg hugga mig við það og eitthvað verður maður að hugga sig við”, sagði Björn Jónsson þegar við ræddum við hann, en Björn, sem cr á áttræðisaldri varð fyrir þvi óláni að tapa hvorki meira né minna en 40 þúsund krónum i fyrradag. ,,Ég fór og keypti fisk i Suðurveri, og gekk siðan niður eftir Hamrahliðinni og niður i Bogahlið, þar sem ég er búsettur. Ég tók upp veskið i fiskbúðinni, og siðan setti ég það niður i vasann, að þvi er mér fannst, og hélt siðan út. Þegar ég kom heim var það ekki til staðar, en ég held ég megi telja það vist að ég hafi tapað veskinu rétt eftir að ég kom út úr búð- inni.” „Þetta voru mánaðarlaun sem voru i veskinu ásamt meiru en svo var einnig ökuskirteini og fleiri skirteini. Auðvitað munar mann um þetta, það munar alla um þessa upphæð.” Veski Björns er brúnleitt, og nú er aöeins að vona að einhver skilvis finnandi komi veskinu til Björns eða lögreglunnar. — EA Ánœgð með það allt saman!!! Kannski þarfnast þessi mynd engra skýringa, en okkur þykir þó ekki saka að láta þess getið, að stúlkan, sem við sjáum hér svo vel, heitir Stephanie McLean. Hún er frá London og hefur andlit sem minnir á Twiggy — en likama, sem er þvi fjarri. „En ég er hæsÞ ánægð með maga minn, brjdst og þykkan bossa”, segir hún orðrétt. Og hún bætir þvi við, að hún telji fullvist, að hún sé ábyggilega ekki ein um það. Hún segir að sér leiðist þær ljósmyndafyrirsætur, sem virðast vera farnar þegar þær hafa snúið i mann hjiðinni. „Nei, má ég þá biðja um al- mennilegar kynbombur á borð við Sophiu Loren, Anitu Ekberg og Marlyn Monroe. Það eru stúlkur af okkar tagi sem karlmönnum geðjast bezt að”, segir þessi ágæta fyrir- sæta. „Bitillinn” John Lennon og kona hans, hún Yoko Ono veifa hér „embættislegum” hvitum flöggum (en þetta eru þjóðfánar NUTOPIU, en það er nýtt þjóð- land, sem þau tilkynntu tilvist á, þegar þau héldu biaðamanna- fund i New York fyrir fjórum dögum). Þau tilkynntu einnig um röð af lagalegum málaflækjum og málssóknum sem gerðu honum kleift að dvelja i Banda- rikjunum i nokkur ár. Lennon var skipað að fara úr landi i Bandarikjunum i fyrri viku, eða vera gerður brottrækur vegna þess að hann er talinn af yfir- völdum „óæskilegur” vegna dóms er hann hlaut i Bretlandi 1968 fyrir óleyfilega eign á hassi. „Nutopia” að þeirra sögn land þar sem allir geta orðið borgarar. Þetta væri land „NEI” fólks, þar þarf ekki vegabréf, og þar eru engin lög sett af skrifstofuveldinu, og þar af leiðandi yrði þetta stærsta þjóð veraldar. Hið alhliða tákn, hvíta flaggið, alþjóðlegt tákn um uppgjöf, Einnig kæmi fáni „Nutopiu”, sér vel eins og Lennon notaði hann, sem vasaklútur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.