Vísir - 06.04.1973, Blaðsíða 20

Vísir - 06.04.1973, Blaðsíða 20
VÍSIR Föstudagur 6. apríl. 1973 INNBROTí NESTI — Þjófurinn náðist Snemma i morgun, um klukk- an fimm varö ökumaöur, sem leiö átti framhjá Nesti á Ártúnshöföa, var viö aö þar mundi einhver óvelkominn vera aö athafna sig inni. Hann geröi lögreglunni aö- vart og kom hún á staöinn og náöi hún manninum, sem annaö hvort hefur Ifklega ætlaö aö ná sér I sigarettur eöa eitthvaö f svang- inn. — ÓG. Hvaðan koma gjaldeyristekjurnar okkar? SJÁVARÚTVEGUR GEFUR MINNA EN HELMINGINN Mörgum kemur vist á óvart sú frétt, að sjávarafurðir gefi okkur minna en helminginn af gjald- eyristekjum okkar. Þannig hefur þetta þó verið að undanförnu. Yfirleitt er einbllnt á útflutninginn á vörum, þar sem hlutur sjávarútvegs hefur heldur minnkaö en er þó nálægt 80%. Sjávarafuröir gdfu hins vegar 49,5% af gjaldeyris- tekjum áriö 1971, þegar öll gjaldeyrisöflunin er skoðuö. Hlutur þeirra hefur rýrnaö siöan meö aukningu iönaöar, túrisma og fleiru. Ariö 1971 fengum viö 59% af gjaldeyri meö vöruútflutningi og 41% meö „þjónustu.” Sam- göngur gáfu 21.5% alls, og Varnarliöiö 1400 milljónir i gjaldeyristekjur sem var 6,3%. Ferðalög gáfu þaö árið 555 milljónir, sem var 2.5%. Sjávarútvegurinn stóð undir 49,5% af gjaldeyristekjunum og 83,9% af útflutningi á vörum. Þaö áriö skilaði hann rúmum ellefu milljöröum króna í gjald- eyri. Er því sizt veriö aö gera litiö úrmikilvægi sjávarútvegs, þótt á réttar staðreynir viö gjald- eyrisöflun sé bent. Útflutningur iðnaðarvara gaf áriö 1971, 7,2% af öllum gjald- eyristekjunum, en land- búnaöurinn lét sér nægja aö gefa 1,8% af tekjunum. Gjaldeyristekjur, sem inn komu þaö áriö, voru alls rúmir 22 milljaröar króna. Þessar tölur eru í nýútkomn- um Hagtölum iðnaðarins, sem Félag islenzkra iönrekenda gef- ur út. -HH. SNILLDARVEÐRIÐ A AÐ HALDAST — segja veðurfrœðingarnir ÁLAGNINGARLAUS MATUR, EN EKKI VÍNVEITINGAR — Gullfoss vistaður samtímis til skíðaferðar og sólbaðsferðar Gullfoss er aö vakna af vetrar- dvalanum og innan skamms siglir hann af staö til Isafjaröar meö skíöaiökendur, en aö þvi búnu heldur hann í Spánarferö meö sóldýrkendur. En þaö er sama hvort um er aö ræöa skiöa- fólk á isafiröi, eöa Spánarfara, séu þeir farþegar Gullfoss fá þeir sama mat aö boröa — tollfrjálsan. Má þaö óneitanlega teljast at- hyglisvert, aö hægt sé aö koma því i kring aö skiöafólk á Isafirði geti boröað ótollaöan mat sé þaö farþegar með Gullfossi á meöan aörir skiöaiðkendur boröa kannski þaö sama, en meö fullri álagningu. Hefur Visir fregnaö, aö þeir tollveröir, sem fylgdust meö þvi, er skipiö var búiö vistum til ferö- arinnar, hafi gagnrýnt þetta fyrirkomulag, sem er þó ekki á neinn hátt ólöglegt. En þó þvi sé þannig háttaö, aö Gullfoss geti boöiö farþegum sin- um ótollaöa erlenda matvöru á meðan skipiö liggur i höfn á Isa- firöi, má ekki selja ótollað vin. Þess er vandlega gætt. Eru vingeymslur skipsins inn- siglaöar áöur en lagt er upp i ferðina og er skipinu gert skylt aö kaupa öll vinföng af áfengisútsöl- unni og selja meö sömu álagningu og vinveitingastaöirn- — ÞJM. ír. Veöurfræöingurinn sagöi okkur aö þaö liti vel út meö veöur um helgina og skiðafólk gæti fariö aö sækja I sig veörið. Spáin fyrir morgundaginn er sú sama og I dag, gerir ráö fyrir rólegri noröanátt um allt land, smáéljum á stöku staö fyrir norðan en sólskin hér sunnan lands og svolltiö frost. Sennilega helzt þetta veöur Hka á sunnu- daginn. Sem sagt, nú fara allir, sem vettlingi geta valdiö á skiöi eöa I gönguferöir eins og skóla- stúlkurnar úr Kreiöholtsskóla, sem viö hittum uppi I Bláfjöllum um daginn. Sklöaáhugafólkiö okkar er annars öllu heppnara en t.d. I Noregi þar sem snjóleysiö er farið aö þjaka menn, sem sjá ekki fram a' aö geta brunað niöur brekkur um þessa páskana, ef vorið heldur áfram innreiö sinni af sama hraöa og undanfariö. -ÓG. GETA FENGIÐ LEYFI TIL • • LANDGONGU Almannavarnanefnd Vest- mannaeyja vill aö gefnu tilefni lýsa þvi yfir, aö reglur þær um takmörkun á feröum fólks um Hcimaey og þar á meðal reglur um landgöngubann skipshafna eru einungis settar af öryggis- ástæðum, og ciga ekkert skylt viö Bjargoð þurrum af kili — Öryggisgrindverkið kom að óvœntum notum þvi eins og kallað er. Skipstjórinn sló af, en ég var að losa um bauj- una á grindverkinu, þegar hann byrjaði aö hallast á bakboröa. Sjór komst i ganginn bakborðs- megin. Báturinn hélt siðan áfram aö siga á hliöina þar til honum hvolfdi,sagði Markús. Viö vorum svo heppnir, að ég hafði látiö setja öryggisgrindverk ofan á lunninguna á sinum tima. Grind- verkið, sem er búið til úr vatns- rörum, reyndist hin ágætasta við- spyrna, þannig að viö komumst þurrirá kjöl. Þegar Knarrarnesiö kom á vettvang skömmu siöar og bjargaði okkur,gátum við gengið' þurrum fótum af kili yfir I bát- inn, nema skipstjórinn, sem fór i sjóinn. Knarrarnesið gat lagzt alveg að okkur. Katrin GK 80 flaut um stund. Reynt var aö draga bátinn inn. Hópsnesinu frá Grindavik tókst að koma taug á milli, en báturinn sökk skömmu siðar. Báturinn var smiðaður i Bátalóni i Hafnar- firði 1970,11 lestir og var metinn á fjóröu milljón króna. _ VJ. Þaö er meö öllu óskiljanlegt af hverju bátnum hvolfdi. Veöriö var prýöilegt og gætilega var far- iö af skipstjóranum, sagöi Markús Þorgeirsson, útgeröar- maöur og skip brotsmaöur á vélbátnum Katrinu GK-901 viðtali viö Visi í morgun. Bát hans hvolfdi og sökk i gærmorgun I Sandvik, sunnan viö Reykjanes. Við vorum byrjaöir aö leggja netin og vorum búnir að snúa á fréttir um þjófnaö og gripdeildir I bænum, sem birzt hafa I fjölmiðlum. Nefndin harmar aö þessu tvennu hefur verið blandaö saman. Þá vill nefndin taka fram, aö þeir sjómenn sem lögleg erindi eiga á Heimaey geta aö sjálf- sögöu fengið landgönguleyfi, enda afli þeir sér nauösynlegra skilrlkja. LEYNIUTVARPSSTJORUNUM MISTÓKST AÐ NÁ SAMBANDI VIÐ MAGNÚS TORFA vilja fó Reykjavíkurborg til að taka þótt í rekstri leyniútvarpsstöðvarinnar Piltarnir sex, sem gert hafa tilraunir meö útvarpsútsend- ingar á höfuöborgarsvæöinu og sent út i loftiö nokkrar ólöglegar dagskrár, hafa ódrepandi áhuga á aö komast aö samkomulagi við yfirvöld um rekstur þessar- ar „útvarpsstöövar”. En illa tókst þeim til, þegar þeir geröu sina fyrstu tilraun til að ná tali af menntamálaráöherra. Magnúsi Torfa Ólafssyni. „Við hringdum i ráðuneytið til að fá komiö i kring viðtali við ráðherrann, en urðum frá aö hverfa þegar þess var krafizt, að við segöum til nafns áöur en okkur væri gefiö samband viö hann”, sagði einn „útvarps- stjóranna” i viðtali við Visi. „Það sem við óttumst er, að viö verðum sóttir til saka fyrir ólöglegt athæfi og þvi erum við ekki reiöubúnir til aö segja til nafns, eins og gefur að skilja”, hélt hann áfram. „Vildum viö tryggja það, að þannig færi ekki, ef við kæmum fram i dagsljósiö til að ræöa mál okkar við rétta aðila”. Segjast piltarnir hafa gengið úr skugga um þaö, að útvarps- sendingar þeirra náist um allt stór-Reykjavikursvæðið, en lengra ná útvarpssendingarnar ekki. „Þvi hefur okkur komið til hugar, að Reykjavikurborg mundi taka þátt i kostnaöinum af rekstri stöövarinnar, en kostnaðurinn þarf ekki að vera svo mikill”, segja áhugamenn- irnir. Ýmsar hugmyndir aðrar hafa þeir, sem þeir vilja leggja fyrir yfirvöld. „Viö erum sannfæröir um að mestur hluti borgarbúa er þvi fylgjandi, að sérstakri út- varpsstöö verði komiö á lagg- irnar, sem flytur létta tónlist 12 tima á sólarhring”, segja piltarnir að lokum. Og nú er aö fylgjast með þvi, hvernig næsta tilraun þeirra félaga til að komast i samband við ráðandi aöila tekst til. — ÞJM.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.