Vísir - 15.08.1973, Blaðsíða 1

Vísir - 15.08.1973, Blaðsíða 1
63. árg. Miðvikudagur 15. ágúst 1973 — 185. tbl. Nú verður öskutunnu- vaktin leikur einn — baksíða Þeir hafa frá ýmsu að segja! .Greinilega örva siðsumar- hretin lesendur okkar til dáða. Heil siða lesendabréfa er dag eftir dag, og eitthvað gengur af eins og gengur og gerist. t dag er ma. vandað um iþröttafrásögn hjá Ómari I sjónvarpinu, og ómar svarar á sinn hátt. Þá kemur það fram að fleiri bankar en Seðlabankinn hafa barizt vegna Arnarhólsins, en tapað þeirri orrustu. Eig- andi sjáifsalans i Lækjar- götu svarar fyrir sig vegna framkominnar gagnrýni. Þá segir lesandi frá mönnum, sem leggjast svo Iágt að stela af leiðum I kirkjugörð- unum. — SJA NANAR BLS. 2 og munið að lesendaþáttur- inn tekur við efni frá lesend- um milli 13 og 15isima 86611. ¥ Sambandsleysið í fjölskyldunni er hœttulegt Sambandsleysi milli aðila i einni og sömu fjölskyidunni er meira mein en margan kynni að gruna. Með.þvi að vera opnari og opinskárri I afstöðu til hvors annars má úr ýmsu bæta. En sérfræð- ingar eru til, sem bæta úr ágöllum sem þessum og samkvæmt reynslu sérfræð- inga við sjúkrahúsið að Kleppi virðist fólk hér á landi móttækilegra fyrir svo- kallaðar fjölskyldumeðferð en viðast hvar i heiminum og hentar sú meðferð þvi vel sem lækningaform. — Sjá bls. 7. -V Strœtið á að óma á ný Austurstræti hefur löngum ómaö af „bernskuglööum hlátri” eins og Tómas kvað forðum. Nú vill einn ungur Reykvikingur, að göngugat- an verðir lifguð upp með alls kyns skemmtanahaldi, og hefur hann i hyggju að leggja fram hugmyndir sinar fyrir borgarráö. — Sjá bls. 3. * Leið yfir tvœr á einni útsölunni! — sjá baksíðu Tekst útgerðarmönnunum að loka áfengisútsölunni? — atkvœðagreiðsla um lokun á Seyðisfírði nœsta vor Viðskiptavinir áfeng- isútsölunnar á Seyðis- firði hafa sérstaka ástæðu til að biða spenntir eftir næstu kosningum. Þá á nefni- lega einnig að fara fram atkvæðagreiðsla um það, hvort halda eigi op- inni þessari einu áfeng- isútsölu á Austfjörðum. „Ég skal ekki segja til um hug manna almennt hér fyrir austan en svo mikið veit ég, að þeir sem skipta við mig, eru afdráttarlaust andsnúnir lokuninni”, sagði Bjarni Þorsteinsson, útsölustjóri umræddrar áfengisútsölu, og hló við þegar Visir ræddi viö hann I morgun. Tillagan um atkvæðagreiðsluna kom fram i bæjarstjórn fyrir nokkru. Bæjarstjórnarfulltrúinn, sem bar fram tillöguna er út- gerðarmaður, og lýsti hann viðureign útgerðarmanna við drukkna sjómenn og kvað hann lokun áfengisútsölunnar geta orð- ið útgerðinni að miklu liði. Afengisútsalan á Seyðisfirði hefur verið opin i áraraðir, en að- eins einu sinni áður hefur komið fram tillaga þess efnis, að henni yröi lokað. Var flutningsmaður tillögunnar þá einnig útgerðar- maður, sem var að glima við sama vandamál og kollegar hans nú. 1 það skiptiö var tillagan um al- menna atkvæðagreiðslu felld i bæjarstjórn. Enn sem komið er að minnsta kosti, hafa engin félagasamtök á Austfjörðum hafið áróöur fyrir kosningarnar, en ekki þykir ósennilegt, að svo fari þegar nær dregur kosningunum. Þess má aö lokum geta, að áfengisútsalan á Seyðisfirði hefur veriö lokuð á laugardögum frá þvi um áramót. „Það kemur ein- ungis til af þvi, að þá eru allar aðrar verzlanir bæjarins lokað- ar”, útskýrði útsölustjórinn i við- tali viö Visi í morgun. — ÞJM. Suðramenn verða dœmdir — ef sannast ó þó að ófengið hafi farið um borð Ekki er búizt viö, að nokkuð finnist af smygluöu áfengi i Suðra. Eins og sagt var frá fyrir nokkru, gerði Tollgæzlan ýtar- lega leit i skipinu, þegar það kom til landsins. Var það vegna þess, að skýrslur bentu til þess, að slikt væri að finna. En þrátt fyrir þessa mikiu leit hefur enn ekkert fundizt. „Þótt leitinni sé hætt, þá er málinu samt ekki lokið”, sagði Kristinn Ólafsson tollgæzlustjóri i viötali við Visi. „Við stöndum i þvi þessa dag- ana að viða að okkur gögnum til að fá frekari vitneskju um málið. Eins og sagt hefur verið áður, var vitaö upp á hár um, hvað mikið á- fengi fór um borð i skipið. Það á- fengi fannst hins vegar ekki. Við erum að reyna að grennslast fyrir um, hverjir hafi staðið fyrir þessu”. Kristinn sagði einnig, að ef svo færi, að dómari teldi sannað, að áfengi hefði farið um borð, þá mætti búast við dómum i þessu máli. — ÓH. HANN HLYTUR AÐ VERA ÚTLENDUR! Þennan náunga hittum við niðri i Auslurstræti fyrir nokkr- um dögum. Var það áður en strætið var „opnað”. Hann stóð þarna sallarólegur, studdi sig við hjólið sitt, og las af ákafa. Ekki vitum við hvað hann var að lesa, en teljum líklegt að það hafi verið einhver ferðamanna- bæklingur. Menn i slikum „múnderingum” sem þessi, eru ekki óalgeng sjón i Reykjavík. En undantekningalaust eru þessir menn útlendingar. Geta menn séð fyrir sér tslending sem fer I stuttbuxur og hjólar niður i bæ? Ljósm.: BP Mývetningar óttast eitrun í fugli — sœnskur stúdent telur sig hafa fundið PCB eitur í öndum — ,Jel þetta mjög ólíklegt" segir Finnur Guðmundsson — rannsóknir hefjast í sumar ,,Ég tel ákaflega ósennilegt, að hér geti verið um að ræða alvar- lega eitrun i fuglum eða öðrum dýrum, en við munum rannsaka þetta mjög bráðlega, til þess að fá úr þvi skorið”, sagði Finnur Guð- mundsson fugla- fræðingur í viðtali við blaðið i morgun. Mývetningar eru nú margir mjög uggandi, þar sem sá orð- rómur hefur komizt á kreik, að eitrun sé I fuglum og fiski i Mý- vatnssveit. Hafði sænskur stúdent sagt frá rannsókn á öndum m .a. á fundi á Akureyri og taldi hann sig hafa fundið PCB eitur i fuglunum. Er slikt eitur talið mjög hættu- legt, og vart hefur orðið við það viða þar, sem mikill málningar eða plastiðnaður er. „Ég tel þetta satt að segja mjög óliklegt, þar sem enginn slikur iðnaður er á þessu svæði og mér er heldur ekki kunnugt um, hvernig þessi rann- sókn fór fram”. :,Nú hefur þú fylgzt mjög vel með fuglalifi þarna íyrir norðan. Hefur þú ekkert séð, sem bendir til eitrunar i fugli við Mývatn?” „Nei, ég tel mig ekki hafa neina ástæðu til þessaö ætla, að svo sé. En það er ljóst, að fyrst þessi orð- rómur er kominn á kreik, verður að rannsaka þetta mjög gaum- gæfilega. Við höfum aðstöðu til þess að gera það hér á landi, en erum einnig i samböndum við erlenda aðila, sem gætu aðstoðað okkur. Mývetningar eru áhyggju- fullir vegna þessa, og ég geri ráð fyrir, að við munum reyna að hefja rannsóknir á þessu strax núna i sumar,” sagði Finnur_jis

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.