Vísir - 15.08.1973, Blaðsíða 4
4
Vísir. Miðvikudagur 15. ágúst 1973.
Dáleiðsla í stað
- skorín
Mikiö hefur verið rætt og ritaö um
nálastungudeyfingar á siöustu
árum, og hafa æ fleiri læknar I
Inga-Lisa og Basil skömmu eftir aögeröina.
VEGG-OG LOFTKLÆÐNINGAR
Har Avioarsalan sf
CARTSIDE MILLS, MILLIKENPARK, RENFREWSHIRE, SCO
svœfingar:
upp ósvœfð og ódeyfð-
Evrópu og Amerlku reynt þessa
ævafornu aðferö til þess aö deyfa
eöa lækna sjúklinga. Jafnframt
þvi sem nálastunguaöferöin hefur
veriö viðurkennd hér á Vestur-
löndum, hafa æ fleiri gefiö sig að
dáleiöslu i þvi skyni aö deyfa eöa
lækna sjúklinga.
Hefur verið reynt að nota
dáleiðslu við t.d. barnsfæðingar
með mjög góðum árangri. bað
segir sig þó sjálft, að með þess
konar „deyfingu”, sem er fólgin i
þvi að hvila hugann og likamann
og að fá fólk til þess að flytja
hugann frá þvi ástandi, sem
likaminn er i, getur t.d. fæðandi
kona ekki fylgzt með þvi, sem er
aö gerast i likama hennar. Hefur
verið reynt að fara eins konar
milliveg og fá konuna til þess að
slappa algerlega af, án þess að
taka hugann frá fæöingunni
sjálfri. Gengur þetta aö sögn
ákaflega misjafnlega og er komið
undir þvi, hvernig fæðingin sjálf
gehgur og hversu vel konan er
undirbúin, likamlega og andlega.
Hins vegar hefur verið reynt að
gera minniháttar uppskurði með
dáleiðslu og gefizt ótrúlega vel.
Auðvitað er fullkomið svæfingar-
tæki haft til staðar, en fótaað-
gerðin, sem gerð var á 58 ár gam-
alli konu i Uppsölum fyrir
skömmu, tókst svo vel, að hvorki
þurfti að nota deyfingu eða svæf-
ingu. Það var Basil Finner lækn-
ir, sem er sérfræðingur i svæfing-
um og dáleiðslu, sem stjórnaði
dáleiðslunni á frú Ingu-Lisu
Olgerfeldt. „Fullkomna afslöpp-
un fær maður hjá 90% af sjúkling-
unum, en 10% geta ekki náð
henni, þrátt fyrir langa þjálfun”,
segir Basil.
Inga-Lisa var skorin mörgum
skurðum i báða fætur vegna æöa-
hnúta án þess að nokkur deyfing
kæmi til. Aðeins örstuttu eftir
uppskurðinn var hún komin til
fullrar meðvitundar, og hún seg-
ir, að sér hafi fundizt hún vera á
ferðalagi allan timann. „Ég fann
aldrei til, enda hefði ég þá
áreiðanlega látið frá mér heyra”,
segir hún.
Inga-Lisa hefur verið i mörg ár
i dáleiðslu hjá Basil. „Ég var
ákaflega skjálfhent og leitaði til
hans til þess að fá bót á þvi. Það
gekk mjög vel, og ég hef verið i
stöðugri dáleiðsluþjálfun hjá hon-
um. öðruvisi hefði þetta aldrei
getað gengið”, segir hún enn-
fremur.
Basil tekur fólk vara við þvi að
reyna dáleiðslu án langrar þjálf-
unar og mikillar þekkingar.
„Þetta er visindagrein, en ekki
sölugaldrar”, segir hann.
— ÞS.
Ingu-Lisu fannst hún vera á feröalagi á meöan á uppskuröinum stóö.
ELIZABETH TAYLOR
liður engan skort, þó hún sé
farin frá Burton. Fyrir leik sinn
i siðustu kvikmynd sinni
„Nightwatch” fær hún ekki
minna en 28 milljónir islenzkra
króna.
Kvikmyndin kostaði að allri
gerð i kringum 900.000 dollara —
en framleiðendurnir nudda
saman höndum brosandi út
undir eyru, þvi mynd með Liz
Taylor er meira gróðafyrir-
tæki einmitt núna en nokkru
sinni fyrr, að þeirra áliti....
MARCELLO
MASTROIANNI,
sem við sáum i siðustu „mánu-
dagsmynd” Háskólabiós, tekst
næst á við hlutverk i kvik-
myndinni „Hvað”? sem þeir
Joseph Levine og Carlo Ponti
eru að hefjast handa við um
þessar mundir.
LIV ULLMANN
velur sér ekki fylgdarmenn af
lakara taginu. Núna upp á sið-
kastið hefur hún sézt við hátið-
leg tækifæri i fylgd með Kali-
forniustrák að nafni Edmund
Brown jr„ sem er sonur fyrr-
verandi rikisstjóra. Hann hefur
farið með Liv um alla Norður-
Kaliforniu, en meðfram sam-
bandi sinu við Brown hefur
leikkonan farið með hlutverk i
kvikmyndinni „Húsfreyja
Zandys”.