Vísir - 15.08.1973, Page 16
VÍSIR
Miövíkudagur 15. ágúst 1973.
Vildi ekki
Kjarvals-
staðanafnið
„Ég tel óeðlilegt að velja aöal-
listsýningarhúsi borgarinnar
nafn ákveðins listamanns”, sagði
Albert Guðmundsson, borgarfull-
trúi, þegar við ræddum við hann I
morgun. En Albert sat hjá viö at-
kvæöagreiðslu um tillögu, sem
gerði ráð fyrir þvi, að
My ndlistarhúsið á Miklatúni
vcrði nefnt „Kjarvalsstaðir” i
framtiðinni. Sú tiilaga var sam-
þykkt með fjórum samhljóða at-
kvæðum.
„Ekki hefði verið óeðlilegt, að
einn salur hússins hefði verið
nefndur eftir listamanninum, en
alls ekki húsið allt, nema þá ef að-
eins ætti að sýna þar listaverk
hans”, sagði Albert ennfremur.
Albert sagði, að ef endilega ætti
að kenna húsiö við einstakan
listamann, þá kæmi enginn annar
til greina en fyrsti islenzki lista-
maðurinn.
Vegna þessarar skoðunar sinn-
ar hefði hann setið hjá viö at-
kvæöagreiðsluna og látið bóka
eftirfarandi athugasemd:
„Ég tel miður, að Mynd-
listarhúsiö viö Miklatún verði
kennt við Jóhannes Kjarval ein-
an, þótt ég telji ekki óeðlilegt, að
annar salur hússins beri nafn
Kjarvals og tel enga hefð hafa
skapazt um nafngift á húsinu og
mun af þeim sökum sitja hjá við
atkvæðagreiösluna um nafngift-
ina”.
Dómkvaddir
matsmenn
skoða Dat-
sun-bílana
Tveir dómkvaddir matsmenn
vinna nú ötullega við að tollmeta
Datsun bilana, sem selja átti á
innan viö hálfvirði, vegna þcss að
þeir höfðu skemmzt af reyk.
Afturkallaöi fjármálaráðuneytið
leyfisitt til sölu á bílunum, tolluð-
um samkvæmt erlendu kaup-
verði, og krafðist nýs tollmats á
bflunum.
Voru dómkvaddir matsmenn og
tóku þeir til starfa s.l. mánudag.
Er starf þeirra allerfitt, þar sem
þeir þurfa að kanna alla hugsan-
lega galla á bilunum, sem margir
hverjir munu ekki koma fram
nærri strax. Samkvæmt
upplýsingum, sem Jón Grétar
Sigurðsson, fulltrúi tollstjóra, gaf
blaöinu i morgun, verðurreyntað
flýta þessu máli eins og unnt er.
Er jafnvel ekki útilokað, að end-
anlegt tollmat liggi fyrir i lok
þessarar viku.
Munu matsmennirnir halda
fund i dag og ræða þetta mál.
Ekki verður unnt að skoða alla
bflana, en þess i stað verða tekin
nokkur úrtök. Bilarnir hafa allir
verið fluttir úr tollafgreiðslunni
og verið ryðvarðir, en slika
heimild er hægt að fá já toll-
yfirvöoldum, Eru þeir nú flestir
hjá innflytjandanum, Ingvari
Helgsyni og biða þar eigenda
sinna, þar til endanlegt tollmat
liggur fyrir. _ÞS
FÉLL í YFIRLIÐ Á
ÚTSÖLU f BORGINNI!
Lög um útsölur síðan 1933
Það eru oft sagðar
skemmtilegar sögur af
æsingi kvenmanna á
utsölum. Ein slik var
Visismönnum sögð i
gær, þegar þeir litu við
á utsölum borgarinnar,
og hefði sú sómt sér vel
hvar sem værj. Það leið
yfir tvær konur á útsölu
i verzluninni Faco á
Laugavegi.
Geysimikill troðningur var i
verzluninni og nokkuð loftlaust
orðið þegar konurnar bar að
garði! Skipti það engum togum,
þær létu yfirbugast af látunum
og voru fluttar i herbergi inn af
verzluninni. Þar var þeim
hjálpað eftir beztu getu, þar til
þær voru færar um að leggja út i
lætin á ný!
Þetta er ákaflega óvenjulegt,
og að sögn afgreiðslumanns i
verzluninni hafði þetta ekk'i
komið fyrir áður. En útsölur eru
i fullum gangi, eins og dæma má
af þessu.
Þegar gengið er niður Lauga-
veginn, standa mörg skilti i
verzlununum, þar sem á stend-
ur útsala, og þá er tækifarið til
þess að gera góðu kaupin. Það
vill þó oft fara svo, að margt er
keypt, sem enginn virðist svo
hafa not af siðar meir.
Lögin, sem gilda um tima út-
sala, eru siðan árið 1933, en þá
rikti ennþá konungur yfir Is-
landi. Hafa fæst lög haldizt
óbreytt siðan á þeim tima!
Útsölur er heimilt að halda á
timabilinu frá 10. janúar til 10.
marz og frá 20. júli til 5. septem-
ber. Verzlunum er heimilt að
hafa útsölur tvisvar sinnum á
ári, og þá ekki lengur en einn
mánuð i einu, eða þá einu sinni á
ári og þá ekki lengur en i 2
mánuði. -EA.
1B8Í4 ^ * .jj p|fí Efí 8 *X’ 1
£8 Bp ' vtJfl - íw ljk ijfvfl • 1
Það er mikið aö snúast i verzlunum þessa dagana, þar sem útsölur eru, en nú eru haustútsölurnar að hefjast af kappi. Mynd þessa tók
Ijósm. I verzluninni Faco, en þar leið yfir tvær konur I öllum troðningnum.
ÖSKUTUNNUVAKTIN
GERÐ HLÆGILEGA LÉTT
Nú hefur sjálfvirknin
náð til sorptunnanna. í
einni blokk i Breiðholt-
inu, Asparfelli 2, hefur
verið komið fyrir sjálf-
virkum sorptunnuút-
búnaði, smiðuðum af
griska vélvirkjanum
Mikael Magnússyni.
Þetta er fyrsta tækið,
sem tekið er i notkun
hérlendis, en smiði þess
tók um tvo mánuði, að
þvi er Mikael sagði.
Þegar hafa verið pöntuð fimm
önnur tæki i blokkina Asparfell
2—12, en það er BSAB, sem
byggði þá blokk. Reynslan af
fyrsta sorptunnuútbúnaðinum
hefur verið góð, en tækið hefur
veriðstaðsett i blokkinni frá þvi á
föstudag.
Húsvörðurinn þar, Einar Guð-
laugsson, sagði, að hingað til
hefði hann þurft að lita inn i sorp-
geymsluna 3svar á sólarhring, en
nú þarf hann ekki að hafa eftirlit
með þessu nema annan og þriðja
hvern dag.
Tækið er þannig útbúið, að 6
tunnum er komið fyrir á plötu,
sem er um 1.80 m á breidd.
Breidd herbergis þess, sem tækið
er staðsett i, þarf þvi að vera um
1.90 m á breidd. Á miðri plötunni
er rafmótor, sem stjórnað er af
eins konar rafeindaauga. Raf-
eindaauganu er komið fyrir á
sorprennslinu, og i hvert sinn,
sem tunna fyllist, slökknar ljós-
„Nú þarf ég ekki aðlíta niður nema annan og þriöja hvern dag á móti 3svar sinnum á sólarhring áöur”,
sagði húsvöröurinn Einar Guðiaugsson.
sagði, að útbúnaðurinn kostaði
um hundrað þúsund krónur, en
hann hefur þegar tryggt sér
einkarétt á honum. —EA.
geisli i rafeindaauganu og veld-
ur þvi, að platan snýst fram til
næstu tunnu.
Þannig fyllist hver tunna á fæt-
ur annarri, en þegar allar eru
orönar fullar, kviknar aðvörunar-
ljós. Ráðgertersvo að koma fyrir
tengi upp i ibúð húsvarðarins,
Einars, þar sem hann getur fylgzt
með þvi, hvenær ljósið slökknar.
Hann þarf þá ekki að fara niður i
geymslurnar nema einu sinni á
viku.
Sérstakur takki er svo fyrir
sorphreinsunarmenn, sem þeir
ýta á til þess að fá tunnurnar til
sin á þægilegan hátt.
Ekkert skilyrði er, að tunnurn-
ar séu sex, heldur er hægt að fá
fleiri, ef húsrými leyfir. Mikael
— óvinsœlasta
skylduverkið
í blokkunum
leyst með
nýrri
uppfinningu