Vísir - 29.08.1973, Síða 5
Vlsir. Miövikudagur 29. ágúst 1973.
5
AP/NTB ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Svœldur út úr bankanum
Þaö hefur veriö nóg um annir hjá sænskum fréttamönnum þessa slö-
ustu sex dagana, og Bertil Haskel ljósmyndari sést hér búa um sig til
svefns á svölum nærliggjandi húss viö Kreditbankann, þvi aö heim
vogar hann sér ekki.
Leita félaga
rœningjans
Innflytjendayfirvöld
Bandarikjanna hafa
leitað dyrum og dyngj-
um að Kaj Robert Hans-
son, sænskum afbrota-
manni, sem slapp úr
fangelsi í Sviþjóð i sum-
ar og flúði til Honolulu,
þar sem eiginkona hans
býr. Kaj Hansson var
fyrst talinn vera banka-
ræninginn, sem hefur
haldið Stokkhólmslög-
reglunni i skefjum i 6
daga.
Slapp ó flugi
Austur-þýzkum vélvirkja
með ekki nokkra reynslu i
flugi tókst að fljúga með fjöl-
skyldu sina vestur yfir landa-
mærin núna um siðustu helgi.
Notaði hann litla eins hreyfils
flugvél, sem venjulega var
notuð til að úða skordýraeitri
yfir akra, en hún sést hér á
myndinni að neðan á litlum
flugvelli ekki fjarri Lubeck.
Lendingin gekk slysalaust, en
ekki alveg áfallalaust, eins og
sést á vélinni. Vélvirkinn
sótti um hæli sem pólitiskur
flóttamaður fyrir sig og
fjölskyldu sina.
Flótamaðurinn hafði haft tal af
sænskum yfirvöldum í sima, og
hann hafði lofað að gefa sig fram,
en ekki staðið við það ennþá.
Sviar hafa óskað eftir framsali
hans, og hefur lögreglan á Hono-
lulu leitað hans án árangurs.
Hansson sagði i viötali við
fréttamann Associated Press um
helgina, að hann og Clark Olofs-
son, sem Olsson (ræninginn i
Kreditbankanum) heimtaði laus-
an úr fangelsi, heföu rænt i sam-
einingu banka i Gautaborg i
febrúar siðastliönum.
SPÓLURNAR
í DAG
John J. Sirica dómari, sem
dæmdi I Watergatemálinu, mun
aö iikindum kveöa upp úrskurö
sinn i dag I máli þvi, sem höföaö
hefur veriö til þess aö fá afhentar
upptökur Hvita hússins af sam-
tölum Nixon forseta.
Munnlegur málflutningur fór
fram I siðustu viku i málinu, sem
er flutt til þess aö heimta úr hendi
forsetans skjöl og segulbands-
spólur, sem snerta hugsanlega
rannsókn Watergatemálsins.
Hvernig, sem úrskurður Sirica
dómara verður, má telja liklegt,
að annar hvor aöilinn áfrýi hon-
um til hæstaréttar Bandarikj-
anna.
Þannig leit anddyri bankans út skömmu fyriráhlaup iögreglunnar.
Lún til stríðsins
Feisal konungur Saudi
Arabiu hefur lofað
Egyptum nægri efna-
hagsaðstoð, til þess að
þeir geti haldið áfram
striðinu við ísraels-
menn, eftir þvi sem
fréttir herma frá Kairó.
Samkvæmt ætlan vestrænna
sendimanna i Kairó, gaf hann
Anwar Sadat Egyptalandsforseta
þetta loforö i heimsókn þess
siðarnefnda i Saudi Arabiu um
helgina. Er þvi haldið fram, aö
Egyptar fái lán frá Saudi Arabiu
til þess að greiða upp skuldir sin-
ar við Ráðstjórnarrikin.
Þar meö stendur Sadat ólikt
betur að vigi en áður i viöræðum
við leiðtoga Libýu um sameiningu
Libýu og Egyptalands, sem
Muammar Gaddafi hefur sótt
einkar fast. Hafði Gaddafi krafizt
þess, aö sameiningin væri orðin
að veruleika þann 19. sept. næst-
komandi.
Kristin Enmafk kvartaði undan
vanliðan, þegar hún kom á
sjúkrahúsið, en þaö hvarf strax
frá, þegar hún hafði jafnað sig af
táragasinu. Birgitta Lundblad (27
ára) haföi einnig fengið að kenna
á táragasinu, en læknar sögðu að
hún heföi sömuleiðis jafnað sig á
þvi fljótlega.
Læknarnir sögðu, að gislarnir
mundu ganga undir læknis-
rannsókn til þess að athuga,hvort
þeir heföu beðið nokkuð andlegt
tjón á þvi taugaálagi, sem þeir
hafa verið undir þessa sex daga,
sem þeir voru á valdi banka-
ræningjans. Hafði ræninginn
margsinnis hótað þeim lifláti.
Veröa gislarnir á sjúkrahúsinu til
miövikudags i næstu viku.
Skipaos
Þessa mynd hefur sænska lög-
reglan geymt i safni sínu af
ræningjanum Jan Erik Olsson,
sem á sér langan afbrotaferil aö
baki.
Gafst upp eftir 6 daga umsátur. Gislarnir heilir á húfi
,,Við gefumst upp! Við
gefumst upp! — Hættið
þessu!” æpti banka-
ræninginn upp i gegnum
eitt gatið sem lögreglan
hafði borað á banka-
hvelfinguna i Kredit-
bankanum.
Það höfðu liðið fimm
minútur, frá þvi að lög-
reglan byrjaði að dæla
táragasi inn um götin á
hvelfingunni og þar til
Olsson ýtti vélbyssu
sinni upp um gatið til
merkis um, að hann
gæfist upp.
Lögreglan gerði áhlaupið um
kl. 9 i gærkvöldi og hafði áður haft
mikinn viöbúnað. Sjúkrabilar
meö læknum, sem báru gasgrim-
ur, voru hafðar til taks, og
slökkviliðsmenn voru ekki fjarri.
Fyrstur út úr bankanum var
peningaskápaþjófurinn Olsson,
en um leið birtist félagi hans Olof-
son. Siðan komu gislarnir fjórir út
hver á eftir öðrum, allir heilir á
húfi.
Þá kváðu við dynjandi
fagnaðaróp og lófaklapp frá
áhorfendum, sem haldið hafði
veriö frá i öruggri fjarlægö, en
hverju smáatriði var sjónvarpaö
béint af staðnum um land allt.
Forsætisráðherrann, Olof
Palme, var meðal hinna fyrstu á
staöinn, og óskaði hann lögregl-
unni til hamingju með vel-
heppnaðar aðgerðir.
Gislarnir fjórir voru fluttir burt
á sjúkrabörum, þótt engan þeirra
hefði sakað. Hin 23 ára gamla
Þaö hefur myndazt mikil ös
skipa, sem beðiö höfðu þess aö
komast gegnum Panamaskurö,
mcðan lóösarnir voru i verk-
falli, eins og viö höfum sagt hér
frá á siðunni. 100 skip biöu þess
aö komast leiðar sinnar, þegar
lóösarnir og stjórnendur skipa-
skurðarins loksins sömdu.