Vísir - 29.08.1973, Síða 13
Visir. Miövikudagur 29. ágúst 1973.
13
Vitkast óöum
Stjórnendur fyrirtækja á Is-
landi hljóta að vitkast óðum i
sinni grein. Stjórnunarfélag Is-
lands og Iðnþróunarstofnun hafa
nú um árabil beitt sér fyrir
kennslu i stjórnun og öðrum atr-
iðum i rekstri'og fleiri hafa þar
lagt hönd á plóginn til að upp-
fræða forystumenn fyrirtækj-
anna.
Dagana 20. - 22. september
gangast Iðnþróunarstofnunin og
Stjórnunarfélagið fyrir námskeiði
í stjórnun og arðsemi.
Iðnþróunarstofnun Sameinuöu
þjóöanna i Genf veitir verulegan
fjárstuðning til námskeiösins.
Leiöbeinendur verða, Palle
Hansen prófessor og René
Mortenser. forstjóri frá
stjórnunarstofnun I Danmörku.
7 milljónir til
útflutningsmiðstöðvar
Stærsta verkefni Otflutnings-
miðstöðvar iðnaðarins á siðasta
ári var aö gera áætlun um eflingu
útflutningsiðnaðar. Þetta var
hlutverk miðstöðvarinnar i sam-
bandi við aðstoð sem við fáum
frá Sameinuðu þjóðunum.
Iönþróunarstofnun Islands fékk
það verkefni að móta áætlun um
eflingu iðnaðar almennt.
Framlög til reksturs
Otflutningsmiðstöðvarinnar
námu rúmum 7 milljónum ifyrra
Hiö opinbera lagði fram fjórar
milljónir. Frá vörusýningarnefnd
kom tæp milljón.
Formaður Otflutningsmið-
stöövarinnar er Bjarni Björnsson
og framkvæmdastjóri Olfur
Sigurmundsson.
„Saf naði maurum af sjó-
fuglum, einkum lunda"
— Hér eru menn að rannsaka margt
49 erlendum rannsóknar-
leiðöngrum, einstaklingum og
hópum hafði verið veitt leyfi til
rannsókna hér á landi fram til 25.
júli. Þessir útlendingar hafa
rannsakað hvaöeina hér á landi.
Til dæmis fékk Helen Fortune
frá Oxford leyfi til athugana á
samskiptum plantna og skordýra.
Dr. John Lazarus og dr. Ian Inglis
fengu að rannsaka gæsir I
Þjórsárverum og á Selmýrum,
uppi af Skaftárdal.
Samstarfsmaður þeirra er Arn-
þór Garðarsson.
Rannsóknarskipiö Shackleton
frá umhverfisrannsóknarráði,
Bretlandi, fékk leyfi til rannsókna
á landgrunni Islands, sem stóðu
yfir frá 13. júni til 31. júli.
Prófessorar og augnlæknir
gerðu i júni erfðafræðilegar
rannsóknir og leituðu að gláku
ásamt fleiri þáttum, sem varða
augnbreytingar hjá öldruðum.
Þá kom Harald Trefall
prófessor frá Bergen og hélt
áfram rannsóknum sinum i há-
loftum með loftbelgjum. Hann
setti upp fjarskiptastöð á Raufar-
höfn i júli til aö skrá upplýsingar
úr loftbelgjum, sem berast munu
hingað til lands frá Noregi.
William M. Berryman frá
Wyoming gerir athugun á örveru-
lifi á Tjörnesi. Samstarfsmaður
hans er Leifur Simonarson.
Skaðleg efni i fuglum og fiskum
var viðfangsefni Joseph J.
Hickeys prófessorsfrá Wisconsin,
sem vann að rannsóknum hér á
landi i samstarfi viö dr. Finn
Guðmundsson.
Andrew J.Main frá Yaleháskóla
safnaði maurum af sjófuglum,
einkum lundum i lundabyggð i
Vik i Mýrdal.
Af þessum dæmum má sjá um-
fang slikra rannsókna, en ótaldar
eru þær fjölmörgu rannsóknir,
sem geröar eru i jarðfræði, á
jöklum, o.s. frv.
Af þessum 49 leiðöngrum voru 2
frá Danmörku, 17 frá Bretlandi, 2
frá Finnlandi, 1 frá Irlandi, 2 frá
Kanada, 1 frá Noregi, 3 frá
Sviþjóð, 15 frá Bandarikjunum, 1
frá Sovétrikjunum og 5 frá
Þýzkalandi.
<1
Auðvelt að skipta um stétt?
Verkalýösfélögin búast til
sóknar um bætt kjör og nú hefur
Björn Jónsson skipt um stétt.
Hann fylgir þvi i fótspor
Hannibals. Hannibal var forseti
Alþýöusambandsins og varö siðar
ráðherra og komst aö þvi leyti
hinum megin við boröiö.
Björn varö forseti Alþýðusam-
bandsins. Oft var sagt að Björn
sækti fast að ríkisstjórninni, og
hann og Hannibal voru ekki sam-
mála um sum mikilvæg mál, er
launþega vörðuöu. Nú hefur
Björn hins vegar fariö I fótspor
Hannibals alla leiðina upp I ráð-
herrastólinn, og menn munu sjá,
hvort Björn breytir afstöðu við
það. Snorri Jónsson hefur
tekið sæti Björns sem forseti ASI
Ekki vitum viö hvort hann fer
lengra.
6,78% kauphækkun
Almenn kauphækkun verður
6,78 prósent frá 1. september.
Kauplagsnefnd reiknaöi visi-
tölu framfærslukostnaðar I ágúst-
byrjun og reyndist hún vera 210
stig eða 9 stigum hærri en i byrjun
mai Samkvæmt þvi var reiknuö
kaupgreiðsluvisitala og var hún
139,54 stig, sem þýðir, aö verð-
lagsuppbót á grunnlaun verður
39,54%. Þessi verðlagsuppbót
var áður 30,68% sem þýðir, að
kaup hækkar almennt um 6,78%.
Safnaði fé i sjóð vegna
Hauks B. Ilaukssonar.
Þessi ungi piltur safnaði fyrir
helgina 1200 krónum i sjóð, sem
iþróttafréttaritarar dagblaðanna
hafa stofnað til minningar um
Hauk B. Hauksson, sem lezt i
knattspyrnuleik. Pilturinn heitir
Bragi Jónsson og á heima á
Langholtsvegi 13. Hann sagðist
hafa haldið hlutaveltu og gaf hún
góöan ágóða, enda höfðu margar
verzlanir gefið hluti i hlutavelt-
una.
þs.
Ný borðstofuhúsgögn
FRÁ FINNLANDI
TEKIN UPP I DAG
LITUR: BRÚNBÆSAÐ
Trésmiðjan VÍÐIR h.f
☆
ÞETTA GLÆSILEGA „SEn" ER Á
MJÖG HAGSTÆÐU VERDI.
GREIÐSLUSKILMÁLAR -
STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
. LAUGAVEG 166 — SIMAR 22222 - 22229