Vísir - 29.08.1973, Blaðsíða 17

Vísir - 29.08.1973, Blaðsíða 17
Vísir. Miðvikudagur 29. ágúst 1973. L í °ag 1 lí KVÖLD | | 1 DAG Sjónvarpið í kvöld kl. 20.55: „Nýjasta tœkni og vísindi Eitt nýra flutt á dag „Það verða þrjár franskar fræðslumyndir sýndar i kvöld i þættinum „Nýjasta tækni og vís- indi”, sagði örnólfur Thorlacius umsjónarmaður þáttarins. Hin fyrsta fjallar um tilraun til að laga vandann um daglegar sveiflur i rafmagnsnotkun, en þessi vandi hefur i för með sér, að rafmagnsþurrð getur orðið, þeg- ar álagið er mest, þótt ekki nýtist nema brot af raforkunni þar á milli. Frakkar eru nú að reisa rafstöð norðarlega i landi sinu, þar sem raforka frá öðrum raf- stöðvum er notuð mestallan sól- arhringinn til þess að fylla lón uppi á hæð, sem svo er tæmt, þeg- ar mest er rafneyzlan, og virkjað til raforkuframleiðslu. t næstu mynd er fjallað um nýrnaflutninga, en i Frakklandi lætur nærri, að grætt sé nýra i sjúkling daglega. Ef nýra — eða liffæri yfirleitt — úr einum manni er grætt i annan, fer oft svo, að liffærisþeginn „hafnar” hinu framandi liffæri. 1 myndinni eru kynntar framfarir i að flokka menn til nýrnagjafar á sama hátt og flokkað hefurverið iblóöflokka i sambandi við blóðgjöf um sjötiu ára skeið. Þættinum lýkur svo á mynd um neyzluvatn og vandamál, sem fylgja siauknu álagi á vatnsból i þéttbýli. —EVI Sjónvarpið í kvöld kl. 21.20: „Mannaveiðar SÍÐASTA ÁIN „Við skildum við þau Ninu, Vincent og Jimmy seinast, þar sem þeim hafði tekizt að komast óséð út úr kastalanum, sem þau höfðu leynzt i”, sagði Kristmann EiðsSon þýðandi brezku fram- haldsmyndarinnar „Mannaveið- ar”. Nú er ferðinni heitið að ánni Shar, sem er aðeins i u.þ.b. 80 km fjarlægð frá þeim. Handan við hana er hið frjálsa Frakkland, og ef þeim tekst að komast yfir hana er greið leið til Spánar og þaðan svo til Englands. Þau hitta fyrir franskan kaup- mann, sem flytur sveppi á göml- um bíl, og ætlar hann að sjá þeim fyrir farkosti og vistum til ferða- lagsins. Þegar þau leggja af stað, birt- ast franskir varðliðar i þjónustu Þjóðverja. Þeim Vincent, Jimmy og Ninu tekst að fela sig bak við tré, en taugaálagið er of mikið fyrir Ninu og hún flýr. Varðlið- arnir sjá til hennar og upphefst nú eltingarleikur og hörð átök. —EVI Sjónvarpið í kvöld kl. 20.30: „Líf og fjör í lœknadeild" // Þeir koma sér fyrir ii f kvöld sjáum við i annað skipti „Lif og fjör i læknadeild.” Þýðandinn Jón Thor Haralds- son lofar okkur góðri skemmtun við að horfa á myndina. Strákunum i læknadeildinni er nú boðið á ball hjá hjúkrunar- konum. Finnst þeim heldur litið varið i að vera að fara þangað, þar sem að hjúkrunarkonurnar eru heldur ósjálegar og litið spennandi að þeirra mati. A ballinu skvettist yfir kjól einnar hjúkrunarkonunnar og aðalsöguhetjan Mike kemur henni til hjálpar og fer með hana upp á herbergi svo að hún geti skipt um kjól. Þetta vekur mikla athygli og sjptm , læknanemarnir verða sammála um að stúlkan hafi alls ekki ver- ið sem verst meira að segja sé hún bara lagleg. Fær nú Mike það orð á sig, að hann sé hinn mesti kvennabósi. —EVI. Útvarpið í kvöld kl. 19.20: „Bein lína" ÚTGERÐARMÁL Kristján Ragnarsson formaður Landssambands íslenzkra útvegsmanna svarar „Það verður Kristján Ragn- arsson formaður Landssam- bands fslenzkra útvegsmanna, sem svarar spurningum hlust- enda I þættinum „Bein lina”, sagði Arni Gunnarsson, sem er um s jón ar ma ður þáttarins ásamt Einari Karli Haralds- syni. Arni sagði, að vafalaust yrði um margt spurt eins og t.d. sild- veiðar Islendinga áNorðursjóog mikilvægi þeirra fyrir okkur. Um nýlokna humarvertið, sem gekk mjög illa. Þá hefur staðiö styr út af humarveiðileyfum. Og brögö hafa veriö að þvi, að islenzkir bátar hafa veitt innan landhelgi. Verð á þorskblokk hefur hækkað mjög undanfariö. Og talað er um að fá skutttog- ara inn á hvert heimili, ef svo má að orði komast. Marga lang- ar eflaust til að spyrja um, hvernig þeir hafi reynzt. Arni biður hlustendur aöhnit miða spurningar sinarsemallra- mest. Venjulega er þaö mikill fjöldi hlustenda, sem ekki hefur náð sambandi þegar þátturinn er búinn. Margir byrja að hringja hálfri klst. áður en hann hefst og kom- iö hefur fyrir, að álagiö á sima- borðinu hefur verið svo mikið, að það springur og byrjar þá hver einasti simi i húsinu að hringja. —EVI Kristján Ragnarsson form. LÍO. UTVARP Miðvikudagur 29. ágúst 13.00 Viðvinnuna: Tónleikar. 14.30 Siðdegissagan: „óþekkt nafn” eftir Finn Söeborg. Þýðandinn, Halldór Stefánsson les (12). 15.00 Miðdegistónleikar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Popphornið. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins 19.00 Bein lina. Frétta- mennirnir Einar Karl Haraldsson og Árni Gunnarsson sjá um þáttinn. 20.00 Einsöngur: Régine Crespin syngur sönglög og ariureftir Richard Wagner. Sumarvaka. a. Þjóðtrú og visindi. Helgi Haraldsson á 17 ** Spáin gildir fyrir fimmtudaginn 30. ágúst. Hrúturinn, 21. marz-20. april. Það getur orðið einhver bið á, að þú fáir þær undirtektir við til- lögur þinar, sem þú hefur gert þér vonir um, en það kemur. W Nl ..r a Nautið, 21. april-21. mai. Farðu bil beggja, ef tveir deila i návist þinni og vilja fá úrskurð þinn. Þetta virðist ekki góður dagur til beinnar af- stöðu. Tviburarnir,22. mai-21. júni. Það virðist oft hafa verið meiri vandi i peningamálunum, en þá er eins og fjölskyldumálin valdi þvi meiri áhyggj- um. Krabbinn, 22. júni-23. júli. Þú ættir ekki að láta persónulegan kala hafa áhrif á afstöðu þina til manna og málefna. Enda er óvist, að þú hafir rétt fyrir þér. Ljónið.24. júni-23. ágúst. Fjármálin valda senni- lega nokkrum áhyggjum, en það vandamál ætti þó að leysast sæmilega. Tefldu ekki djarft i til- finningamálum. Meyjan,24: ágúst-23. sept. Þungt undir fæti fram eftirdeginum, og sennilega einhverjar áhyggjur vegna aðila, sem er nátengdur þér eða náinn vinur. Vogin,24. sept.-23. okt. Þú hefur beðið einhvers með eftirvæntingu að undanförnu, og sú bið var- ir enn. Mjög góður dagur fyrir þá sem last við listræn störf. Drekinn, 24. okt.-22. nóv. Löngu liðin tið virðist rifjast upp fyrir þeim, sem eldri eru, en þeim yngri mun dagurinn verða skemmtilegur er á liður. Bogmaðurinn,23. nóv.-21. des. Ef þú helur glað- vært skopskyn.þá ættirðu að láta það leysa þann vanda i dag, sem annars getur valdið þér nokkr- um áhyggjum. Steingeitin, 22. des.-20. jan. Góður dagur á margan hátt, en getur þó verið viðsjárverður i tilfinningamálum. Hófleg viðkvæmni mun yfir- leitt henta bezj.. Vatnsberinn, 21. jan.-19. febr. Góður dagur á margan hátt, en vissara samt að gera ekki áætl- anir langt fram i timann. Kvöldið getur orðið mjög skemmtilegt. Fiskarnir, 20. febr.-20. marz. Dágóður dagur, en naumast fram yfir það nema þá helzt þegar á liður. Gættu þess að láta ekki tilfinningarnar hlaupa með þig i gönur. •C* -X -tt ■ít + * -ts -k -ft * -tt -k -Ct -k -yt -k -Ct -k -tt * -Ct -k -Ct -k ít -k -ct -k -Ct -k ■» -k -Ct -k -ci -k -Ct -k -Ct -k -Ct -k -ct -k -S -k -ft -k -Ct -k ■Ct -k -» -k -k -Ct -k -Ct -k -Ct -k -Ct -k -Ct -k ■Ct -k -Ct -k -ct -k -Ct -k -Ct -k -Ct -k -Ct -k -Ct -k -Ct -k -Ct -k -Ct -k -ct -k -Ct -k -Ct -k -Ct -k ■Ct -k -Ct Hrafnkelsstöðum fjallar um veðurfar og veðurspár. Steindór Hjörleifsson flytur erindið. b. Nokkur kvæði. Höfundurinn, Sigriður Jóns- dóttir frá Stöpum, flytur. c. Afleiðingar Kötiugossins lOlk.Þórarinn Helgason frá Þykkvabæ flytur frásögu Vigfúsar Gestssonar frá Ljótarstöðum i Skaftár- tungu. d. Kórsöngur: Kammerkórinn syngur lög eftir Friðrik Bjarnason, Áskel Snorrason, ísólf Páls- son, Sigtrygg Guðlaugsson, Jóhann Ó. Haraldsson, Arna Thorsteinsson, Inga T. Lárusson, Sigfús Einarsson og Emil Thoroddsen. Ein- söngvarar: Guðrún Tómas- dóttir og Barbara Guðjóns- son. Söngstjóri: Ruth L. Magnússon. 21.30 Ctvarpssagan: „Verndarenglarnir” eftir Jóhannes úr Kötlum. Guðrún Guðlaugsdóttir les (17) 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Eyja- pistill. 22.35 Nútimatónlist. Halldór Haraldsson kynnir. 22.20 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. 20.55 Nýjasta tækni og visindi. Rafmagn — varaorka á álagsstundum. Nýrnaflutn- ingar. Neyzluvatn. Umsjón örnólfur Thorlacius. 21.20 Mannaveiðar. Brezk framhaldsmynd. 5. þáttur. Siðasta áin. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. Efni 4. þátt- ar: Nina, Vincent og Jimmy leynast i turnherbergi á æskuheimili Vincents, þar sem Von Trenow, hershöfð- ingi, hefur bækistöðvar sin- ar. Stormsveitarforinginn Lutzig herðir leitina að þeim I nágrenni kastalans. Hortense, ráðskona á heim- ilinu, færir þremenningun- um mat á laun. Hún segir Vincent, að móðir hans hafi truflazt á geðsmunum, þeg- ar faðir hans var skotinn. 22.10 Litia gulleggið mitt. Dönsk kvikm. um hug- leiðslu og jóga. Nokkrir ein- staklingar segja frá reynslu sinni af jógaiðkunum undir handleiðslu indverska meistarans Swami Jana- kanada Saraswati. Þýðandi Óskar Ingimarsson. (Nord- vision — Danska sjónvarp- ið). 22.35 Dagskrárlok. SJONVARP Miðvikudagur 29. ágúst 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Lif og fjör i læknadeild. Brezkur gamanmynda- flokkur. Þeir koma sér fyrir. Þýðandi Jón Thor Haraldsson.. Fyi-stm' með iþróttafréttir helg-arinnar VISIR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.