Vísir - 07.09.1973, Síða 1
63. árg. —Föstudagur 7. september 1973 — 205. tbl.
STOLIÐ
SKILDINGA-
BRÉF Á
ÍSLANDIA?
■■■■■■■■■■■■■■HHiaiiHHBail
„Bretland ætti lika að hafa 200
mllna landhelgi,” segir brezki
ihaldsþingmaburinn Reed.
,200
mílur'
— segir brezki
þingmaðurinn
Reed
,,Ég tel, ab 200 mílur séu
skynsamlegt lágmark fiskveiði-
lögsögu, en hún gæti orðiö meiri
ef landgrunnið nær lengra,”
segir brezki Ihaldsþingmaður-
inn Laurence Reed, sem hingað
er kominn I boði Sambands
ungra sjálfstæðismanna. ,,Mál-
staður tslands nýtur vaxandi
stuðnings á Bretlandi, einnig
innan þingsins. Mig hefur furð-
að á þvl, hversu margir þing-
menn styðja tslendinga, þegar
maður talar við þá einslega.
Þeir, sem styðja málstað ts-
lands, eru I fyrsta lagi flestir
fiskimenn, sem veiða við Bret-
land, en þessi fiskimenn eru
fleiri en úthafsfiskimenn.
í ööru lagi styður oliuiðnaður-
inn I vaxandi mæli þá kenningu,
að lögsaga strandrlkja skuli
vera sem stærst. Það fólk, sem
býr við Ermasund, krefst þess
af stjórninni, að hún færi land-
helgina i Ermasundi út I mitt
sundið.
Meöal almennings nýtur sú
skoöun mikils fylgis, að mál-
staður tslendinga sé réttmætur,
vegna þess hve háðir þeir eru
fiskveiðum, og einnig að Bretar
geti ekki nýtt ollulindir svo
langt sem raun er I Noröursjó og
barizt samtimis gegn tslending-
um i landhelgisdeilunni,” sagði
Reed ennfremur.
Reed mun ávarpa þing SUS á
Egilsstöðum um helgina. Hann
er sérfræðingur I málum, sem
varða nýtingu hafsins, og stuðn-
ingur hans við málstaö ts-
lendinga á rætur að rekja til
jeirrar sérþekkingar, sem hann
hefur á þessum málum.
HH/ÞS
SVIKU 172 ÞUSUND UT
ÓR ÚTVEGSBANKANUM
bankinn borgaði tvisvar út
Þrlr piltar sviku fyrr I þessari
viku út 172 þúsund krónur úr inm-
stæðulausri sparisjóðsbók.
Piltarnir náðu svo aö eyöa
þessum 172 þúsund krónum á
tæpum tveimur dögum. Þó
keyptu þeir ekki dropa af brenni-
vlni, hvað þá meir.
Piltarnir voru i einhverjum
erindagjöröum inni i bankanum,
þegar maður fleygði sparisjóðs-
bók til þeirra og sagði, að þeir
mættu eiga hana. Þeir gripu bók-
ina, en þá var búið að taka út úr
henni 172 þúsund krónur, og þar
að auki að gata hana til að gefa til
kynna, að hún væri ónýt.
Piltarnir fóru þó i rælni sinni aö
reyna að ná einhverju út úr bók-
inni. Einn þeirra skrifaði út-
tektarseðil upp á 172 þúsund
krónur og lagði hann inn ásamt
bókinni. Siðan biðu þeir
félagarnir, þangað til nafn pilts-
ins var kallað upp, og þeir fengu
nákvæmlega 172.202 krónur tald-
ar fram á borðið.
Þeir voru ekki lengi að taka
saman peningana og hypja sig út
úr bankanum. Siðan var tekið við
að eyða fénu sem mest mátti, og
voru þeir búnir með allt nema
1700 krónur i gærkvöldi.
Þeir tóku sér leigubila út um
hvippinn og hvappinn, fóru m.a. i
leigubil upp á Akranes.
ó eina úttekt
A Akranesi fór lögregluna að
gruna eitthvað, þegar piltarnir
dreifðu fé.á báða bóga, og mun
hún hafa tilkynnt það. Þegar
piltarnir komu til Reykjavikur i
gærkvöldi, handtók lögreglan i
Hafnarfirði þá.
Þeir höfðu eytt fénu i föt,
gullúr, leigubila, og ýmislegt
annað höfðu þeir keypt sér. t
Hvalfirði keyptu þeir sér 20
brauðsneiðar, bitu einn bita i
hverja þeirra og fleygðu svo
afgangnum.
Þegar farið var að athuga mál-
ið i útvegsbankanum, en það var
þar, sem „bankaránið” átti sér
stað, komu mistökin i ljós. 1
sparisjóðsbókina var stimpluð út-
tekt upp á þessar 172 þúsund
krónur, en það hafði fyrrverandi
eigandi bókarinnar tekið út. Aftur
á móti fundust tvær úttektarnót-
ur, báðar upp á sömu upphæð.
Var sú seinni frá strákunum.
Það virðist þvi vera sem ein-
hver ruglingur hafi átt sér stað
meðal starfsfólks bankans, og
gjaldkerinn eða einhver annar
talið, að ekki væri búið að borga
þessa peninga út.
Sparisjóðsbókin, sem tekið var
út ur, er utan af landi. Hjá
Útvegsbankanum fékk blaðið
engar upplýsingar i morgun. Var
sagt, að ekki: væri búið að kanna
málið nógu náið, til að hægt væri
að gefa skýringu. — ÓH.
Enn einn árekstur og
Bretasambandi slitið
— segir forsœtisráðherra á Hallormsstað
Ólafur Jóhannesson sagði I
gærkvöldi að hann mundi leggja
til við rikisstjórnina á þriðju-
daginn, að stjórnmálasambandi
viö Breta yrði slitið, ef þeir láta
ekki af ásiglingum á hafinu við
Island.
Þrátt fyrir að flug Nimrod
njósnaþotanna sé að áliti At-
lantshafsráðsins ekkert við-
komandi bandalaginu, sagðist
forsætisráðherra krefjast þess,
að aðildarþjóöir bandalagsins
fordæmdu þaö.
Ella hljótum viö að taka af-
stöðuna til NATO til endur-
skoðunar, segir i tillögu ölafs.
öll fyrirgreiðsla af hálfu is-
lenzkrar flugumferðarstjórnar
verður væntanlega stöðvuð
samkvæmt tillögu forsætisráð-
herra á rikisstjórnarfundinum á
þriðjudaginn. Sú þjónusta hefur
verið veitt af flugöryggisástæð-
um, en forsætisráðherra telur,
aö slik þjónusta við njósnaflug-
vélarnar sé ekki verjandi i ljósi
siðustu atburöa i landhelgisdeil-
unni.
—ÓG
Claudiu og Doug. Ljósm. G-S.
Þau kynntust í
öskunni í Eyjum
Hún er frá Þýzkalandi, en hann
frá Ameriku. Hann var búinn að
vinna á moksturstæki við
hreinsunina I Vestmannaeyjum
i einn mánuö, þegar hún kom
þangaö. Hún heitir Claudia
Kaling, hann heitir Doug
Bernas — og bæöi segjast þau
trúa núna á ást við fyrstu sýn.
Mest hefur verið af Þjóðverj-
um I Eyjum, en sjálfboðaiiðar
þaðan hafa verið 40 talsins.
Næstir I rööinni eru Danir meö
36 sjálfboðaliða, en Bandarikin,
Frakkland og tsland standa
jafnt með um 30 hvert land. Af
ööru þjóðerni má m.a. nefna
Belga, Hollendinga, Gyðing,
itala, Japana, Svisslendinga og
Kanadamenn, en samtalseiga
um 20 þjóðir sjálfboðaliða I Evi-
um. —ÞJM