Vísir - 24.09.1973, Síða 1
VÍSIR
63. árg. —Mánudagur 24. september 1973. —219. tbl.
70 trésmiðir í sjálfboðavinnu í nótt!
Strax í nótt var byrjað aö
skipuleggja vinnuflokka til þess
að gera við skemmdirnar, sem
urðu i óveðrinu. Trésmiðafélag
Reykjavikur augiýsti eftir
mönnum tii sjálfboðavinnu og
snemma i morgun voru allt að
70 manns búnir að gefa sig fram
og farnir að vinna viðs vegar
um bæinn við viðgerðir.
Mestar urðu skemmdirnar i
Arbæjarhverfi og Breiöholti.
Fauk mikið af spýtum, plönk-
um, bárujárni og öðru og braut
rúður. Einnig urðu töluverðar
skemmdir á nokkrum Viðlaga-
sjóðshúsum, sem voru i smið-
um. Lögreglan skipulagði þessa
neyðarhjálp og var reynt að láta
ganga fyrir gluggaviðgerðir og
annað i ibúðarhúsum, þar sem
fólk var inni. Blaðið fékk þær
upplýsingar á skrifstofu Tré-
smiðafélags Reykjavikur i
morgun, að mikið vantaði á, að
nægilegur vinnukraftur hefði
fengizt i þessar viðgerðir, og
yrði haldið áfram að auglýsa
eftir mönnum i allan dag.
—ÞS
SKKI JMH HVASST í 30 ÁRl
Gert ráð fyrir hvassviðri eða stormi í dag, en öffu vœgari í nótt
Vindhraðinn um 200 km á klst. þegar hvassast var í Rvík.
Ekki hefur orðið svo
hvasst i Reykjavik sem
var i nótt siðan fyrir um
það bil 30 árum. Það var
á striðsárunum, og
komst vindur þá upp i
108 hnúta.
Þetta sögðu veðurfræðingar,
þegar við röbbuðum við þá i
morgun, en i nótt komst vindur
alveg upp i 108 hnúta sem sam-
svarar um 200 kflómetra hraða á
klukkustund, en meðalvindur var
72 hnútar. Þetta jafngildir allt að
12 vindstigum, en ekki er mælt i
stigum eftir að vindur fer i 64
hnúta. 1 hnútur samsvarar einni
sjómilu eða 1850 metrum.
Versta veðrið virtist vera um
klukkan korter yfir eitt, og stóð
það til klukkan tvö. Eftir það fór
vindur að ganga niður. 1 dag er
gert ráð fyrir hvassviðri eða
stormi i Reykjavik, en ekki verð-
ur eins hvasst og var i nótt. Vind-
ur fer siðan smám saman að
ganga niður.
10-12 hnútar voru viða á Vestur-
landi, en vindur var hægari aust-
an til. Veðurfræðingar sögðu, að
erfitt væri að gera sér grein fyrir
þvi, hvort versta veðrið hefði ver-
ið á Reykjavikursvæðinu, þar
sem hér væri alltaf og stöðugt
fylgzt með mælum, en annars
staðar væri litið á mælana sjaldn-
ar, stundum aðeins á 3ja tima
fresti.
Ekki er gert ráð fyrir, að felli-
bylurinn Ellen heimsæki fleiri
landsmenn að sinni, en gert er ráð
fyrir, að hann fari framhjá Aust-
fjörðum, norður hafiö og svo
vestur. Smám saman minnkar
svo kraftur Ellenar. —EA
Slit stjórn-
mólasambands
yfirvofandi
Eftir ásiglingar Breta á
laugardag er búizt við slitum
á stjórnmálasambandi við
Bretland. Sendiherrann
,,má” nú fara heim.
Sjá leiöara á bls. 6 og
myndir bls. 3.
Víða var raf-
magnslaust
Háspennustaurar
brotnuðu og selta á
rafmagnslínunum
Stöðugar truflanir urðu á raf-
magni á öllu Suðvcsturlandi i nótt
og var rafmagnslaust á stórum
svæöum frám tii morguiis. Brotn-
iiðu háspennustaurar, plötur fuku
á rafmagnslinur, svo að þær slitn-
uðu, og mikil sclta hefur sctzt á
cinangrun á flestum rafmagns-
linum á þcssu svæði. Þá uröu
miklar truflanirá sima af völiliim
veðursins og var cnn i inorgun
sainbandslaust við nokkra staði,
llcfur sfmalinum viða slcgið
saman, cn ckki Var talið i
morgun, að langan tfma myndi
taka að gcra við það. Þá varð
vatnslaust i Brciðholtshverfi i
nótt. þar scm dælustööin stöðvað-
ist vegna rafmagnslcysis.
1 morgun var unnið að þvi að
kanna bilanir á rafmagnslínum á
Suðvesturlandi, en mikiö salt
fylgdi rigningunni i nótt, og hefur
'selta setzt á einangrun á mörgum
rafmagnslinunum. Þá brotnuðu
tveir turnar i Búrfellslinunni i
nótt, og einnig brotnaði há-
spennustaur á Arnarnesi og lagð-
ist linan .þar niður. Varð allur
Garðahreppur rafmagnslaus frá
þvi klukkan 2 i nótt og til 9 i
morgun af þessum sökum. Þá
varð tvivegis rafmagnslaust i
Reykjavik i nótt, og á stórum
svæðum i Mosfellssveit var raf-
magnslaust i alla nótt. Mjög erfitt
var um vik viða við viðgeröirnar
vegna óveðursins. A Suðurnesj-
um var viöa rafmagnslaust fram
til hálf niu i morgun. Þá urðu
bilanir á rafmagnslinum austur i
sveitum og var verið að kanna
þær i morgun. Ekki er vitað enn,
hversu mikið tjón hefur orðið af
þessum sökum, en gera má ráð
fyrir, að gifurleg vinna sé við viö-
gerðir á rafmagnslinum og
mannvirkjum vegna veðursins.
—ÞS
Veðurofsinn í nótt olli
ýmsum spjöllum. Við
Hávallagötu 15 rifnuðu
þrjú tré upp með rótum.
Eins og sjá má eru þetta
engar smáhríslur enda
komnar hátt á fertugsald-
urinn. I vesturbænum og
víðar urðu töluverð spjöll
á trjám og öðrum gróðri.
Steinunn gamla
sðkk í Sand-
gerði í nótt
Margir bátar stórskemmdust I
höfninni i Sandgerði i nótt. Einn
bátur, Steinunn gamla, sökk i
höfninni og sást ekki nema i
masturstoppana á honum i morg-
un.
John Hili, lögregluþjónn I Sand-
gerði sagði að ekki væri kunnugt
um hvernig Steinunn gamla
sökk.
Mjög mikill sjógangur var i
höfninni i Sandgeröi I nótt. og
erfitt að eiga við bátana.
-ÓH.
w ¥ r w W
NITJAN ARA PILTUR LEZT
BÍLSLYSI Á ÓSH — bifreiðin fór niður snarbratta skriðu 19 ára gamall piltur af semfór út af Oshlíðarvegi Barðaströnd lézt í bílslysi ^ blindbeygju. aðfaranótt sunnudags- Pilturinn var ásamt tveimur . félogum sínum á leiö frá Bol- ln,; . , . .. ungarvik til Isafjarðar. Þegar Hann var farþegi 1 bll/ bfllinn kom i blindbeygjuna á ILÍÐARVI óshliöarveginum, fór hann út af. Hann valt niöur 60 til 70 metra langa snarbratta grjót- skriöu og niður I flæðarmál. Pilturinn sem lézt, kastaðist út úr bilnum á miöri leið niður skriðuna. Félagar hans tveir siösuðust litillega. Þeim tókst EGI aö komast upp á veginn aftur og tilkynna slysið til lögreglunn- ar á Isafiröi. Hliðin, þar sem billinn fór út af, er mjög brött, og gekk piltunum erfiölega að kiifra upp hana. Þeir gátu til- kynnt frá Hnifsdal um slysið. —ÓH
MYNDIR OG FRÉTTIR AF ÓVEÐRINU-BLS. 2, 3 OG 24