Vísir - 24.09.1973, Page 3

Vísir - 24.09.1973, Page 3
Visir. Mánudagur 24. september 1973 3 A myndina eru teiknaðar linur, þar sem simastrengurinn átti að liggja við Seðlabankagrunninn (lieil lina), og svo aftur á móti, þar sem hún lá raunverulega (brotin lina). ÚTVARPIÐ FÓR ÚR SAMBANDI í SEDIABANKAGRUNNINUM Strengurínn var ekki „þar sem hann átti að vera a Simastrengur, sem liggur frá Simahúsinu við Austurvöll og i Hikisútvarpið við Skúlagötu, slitnaði á laugardaginn. 1 strengnum voru um það bil 200 Iinur, sem tengja útvarpið við allar endurvarpsstöðvar úti á landi, auk þess við samkomu- hús, veðurstofu, iþróttavelli og fleira hér i borginni. Ölafur Þórðarson verk- fræðingur hjá Pósti og sima sagði, að grafið hefði verið niður á streng i grunni nýja Seðla- bankahússins við Arnarhól. „Þeir, sem unnu það verk, voru þó áreiðanlega i góöri trú, um, að strengurinn væri annars staðar,” sagði Ólafur. „Þegar nýja akreinin var lögð á Kalk- ofnsveginum fyrir nokkru, hafa breytingar verið gerðar á strengnum, sem ekki komu fram á teikningu. Þarna var þvi aðeins um mannleg mistök að ræða sem starfsmenn verktak- ans gátu ekkert gert að,” sagði verkfræðingurinn að lokum. Jón Sigbjörnsson, yfirmaður tæknideildar Hljóðvarpsins, sagði, að fyrst eftir bilunina hefði aðeins verið sent um Vatnsendastöðina, þvi þangað er sent með FM sendi neðan af Skúlagötu. Stærri endurvarpsstöðvarnar úti á landi hafi siðan getað tekið við sendingum þaðan og tengt við hjá sér, en þá væri um mun verri sendingargæði að ræða. Venjulega er sent niður i sim- stöðina við Austurvöll og þaöan er radiósamband um allt land. Bilunin á simastrengnum við Seðlabankagrunninn varð um klukkan 17.30 á laugardaginn, en viðgerö var lokið skömmu fyrir miðnætti. —ÓG VATNSLAUST I NJARÐVÍK í NÓTT Vatnslaust varð I Njarðvikun- uin I nótt vegna veðurofsans. Kaf- ínagnslaust var þar einnig af og til þangað til klukkan fimin i niorgun. en i Innri-Njarövfkuni verður alltaf vatnslaust hálftima eftir að rafmagn fer af. Rafmagn og vatn virðist vera komið i samt lag aftur, eftir þeim upplýsingum sem við öfluðum Þök fuku af 2 húsum í Keflavík okkur i Ahaldahúsi Ellerts Skúla- sonar i Y-Njarðvik. Járnplötur fuku af húsum þar og eitthvert eignatjón varð, en ekki er kunnugt um slys á fólki. í Keflavik fuku rúður úr tveimur húsum, og þar fuku einnig þökin af húsunum. 1 Sandgerði sökk bátur, og björgunarsveitin Stakk- ur var kölluð út til starfa. —EA Hœnsnabú með 3000 hœnsn- um fauk llænsnabú með 3000 liænsn- um fank i nótt i Vatnsenda. Hænsnabúið var á Elliða- hvamnii við Vatnsenda og var i eigu Þorsteins Signiundsson- ar..Ilænsin liafa fundi/t dauð á við og dreif um móana i morg- un. Sumarbústaðir fuku, og margir hverjir eru gjörsam- lega ónýtir. Bátaskýli annað- hvort fuku eða urðu fyrir miklum skemmdum og rúður brotnuðu á við og dreif. Gifurlegt óveður var á Vatnsenda sem annars staðar i nótt, og er ekki munað eftir öðrum eins ósköpum. Ekki er vilað um slys á fólki. —EA 300 MANNA VINNUBÚÐIR í STÓRHÆTTU Á SIGÖLDU — 10 menn unnu í reyna að bjarga Það var nóg að gera fyrir þá 10 menn sem dvöldust á Sigöldu i nótt við að reyna að aftra þvi, að 300 manna vinnubúðir, sem þar cru i byggingu, yröu vcður- ofsanum að bráð. Tókst að bjarga byggingunum að miklu leyti, en þó fuku þök, járn af þökum og jafnvel heilir hús- veggir út i buskann. Var reynt að safna þessum lausu hlutum saman eftir þvi sem unnt var, en skemmdir alla nótt við að húsunum munu þó hafa orðið allmiklar. Rafmagnslaust og simasam- bandslaust var við Sigöldu i nótt, og i morgun höfðu aðeins borizt óljósar fréttir af viðburð- um næturinnar. Mun Lands- virkjun senda flokk manna þangað uppeftir strax og fært þykir, en útilokað var að reyna aö komast þangað i morgun, þar sem gifurlegur sandstormur var á veginum og fuku heilir hraunhnullungar yfir veginn. —ÞS Svona sigldu þeir á Brezka herskipið Lincoln F-99 sigldi tvívegis fyrir varðskipið Ægi úti fyrir Austfjörðum á laugar- daginn, þannig að varð- skipsmönnum tókst ekki að koma í veg fyrir árekstur. Fyrri áreksturinn varö klukkan rúmlega þrjú eftir hádegi, og samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæzlunnar sigldi herskipið skyndilega á bakborðshlið Ægis að framanverðu. Litlar skemmd- ir urðu á varöskipinu. Um það bil klukkutima siöar sigldi Lincoln fram með stjórn- borðssiðu Ægis, en beygði siðan snögglega á bakborða fyrir fram- an varðskipið. Tókst varðskips- mönnum ekki að forðast árekstur, þrátt fyrir að tekið var aftur á af fullu og beygt frá. Skemmdir á varðskipinu urðu nokkrar, aðallega á járngrindum fram á og 4 bandaþil bognuðu ofarlega fram undir stefni. A neðri myndinni sjást Lincoln og Ægir cftir fyrri áreksturinn. Efri myndin er tekin i þann mund, sem siöari áreksturinn verður. Greinilcga sést af kjalsogi skipanna, að Lincoln hef- ur siglt Ægi uppi og sveigir síöan þvert i stefnu lians. Myndin er svo óskýr vcgna hitamóðu frá hreyfli flugvélarinnar. (Ljósm. Bragi) - ÓG.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.